Fréttablaðið - 24.02.2009, Qupperneq 16
„Leikdagur aldraðra var fyrst
haldinn 1987 og fór fyrstu fimm
árin fram utanhúss, en frá Evr-
ópudegi aldraðra 1993 hefur hátíð-
in verið haldin innanhúss,“ segir
Guðrún Nielsen, formaður Félags
áhugafólks um íþróttir aldraðra,
sem stendur fyrir Leikdegi aldr-
aðra í Íþróttahúsinu við Austur-
berg á morgun, öskudag.
„Eitt helsta markmið leikdags-
ins er útbreiðsla sem nú er farin að
skila sér því hátíðin verður haldin
víðar en í Austurbergi, svo sem á
Hrafnistu og Grund í Reykjavík.“
Guðrún segir íþróttir aldraðra
alltaf vera hugsaðar sem innlegg í
heilsuvernd og því megi þær ekki
útheimta svo mikil átök að heilsu
iðkenda sé stefnt í voða. „Nú eru
boccia og pútt mjög vinsælt og í
því keppt á vorin og haustin. Þá er
leikfimi og sund sívinsæl, sem og
göngur, sem eru eitt það albesta
fyrir fólk í hreyfingu og útivist,
og línu- og þjóðdansar.“
Guðrún segir markmið félagsins
að stuðla að betri líðan eldra fólks
með reglulegri hreyfingu.
„Aldraðir eru að verða æ dug-
legri að hreyfa sig og eftir því sem
yngra fólk kemur inn eykst vitund
um gildi hreyfingar, því með yngri
kynslóðum eldri borgara bætast æ
fleiri við sem stundað hafa íþrótt-
ir, jafnvel alla ævi.“
Guðrún segir aldraða hlakka
mjög til leikdagsins á morgun.
„Við ætlum að hreyfa okkur og
horfa á línudans, jóga, hreyfingu
í sætum, léttan vals og atriði eins
og Krumma sem sló í gegn á fim-
leikamóti aldraðra á Kanaríeyjum.
Þá flytur Ernst Backman einsöng,
en söngur og það að læra texta eru
góð heilaleikfimi fyrir aldraða, því
það þarf vitaskuld að virkja þess-
ar gráu í kolli okkar líka,“ segir
Guðrún glaðbeitt, og vonast til að
nægur tími gefist fyrir dans undir
leik Vinabandsins.
„Svo kveðjum við alltaf með
hringdansi og litlum söng:
Við getum hist,
við getum séð,
við getum fundið til öðrum með,
við skulum treysta vor tryggðabönd
og taka skref með hönd í hönd.
Leikdagur aldraðra stendur frá
klukkan 14 til 16. Húsið er opnað
13.30.
thordis@frettabladid.is
Taka skrefin hönd í hönd
Það eru fleiri en börnin blíð sem gera sér dagamun á öskudag, því í meira en tvo áratugi hafa eldri borg-
arar lýðveldisins leikið sér saman við fjölbreytta íþróttaiðkun, söng og dans á þessum kærkomna degi.
Guðrún Nielsen íþróttakennari er formaður Félags áhugafólks um íþróttir aldraðra,
en félagið var stofnað 1985. Hún segir eldra fólk umhugað um heilsu sína og æ
meðvitaðra um gildi hreyfingar, sem forvörn og til að auka lífsgæði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
BRÁÐADAGURINN er 6. mars. Á bráðadeginum
verður haldið málþing í Rúgbrauðsgerðinni undir yfir-
skriftinni Raunveruleikinn og rannsóknir. Málþingið er
öllum opið og aðgangur ókeypis en þátttaka tilkynnist
á eddath@landspitali.is.
Á hverjum vetri geng-
ur inflúensa yfir norð-
urhvel jarðar á tíma-
bilinu október til mars
og stendur yfir í tvo til
þrjá mánuði. Sambæri-
legur faraldur gengur
síðan yfir suðurhvelið í
júní til október. Inflú-
ensan kemur verst
niður á eldri kynslóð-
inni og einstaklingum
með undirliggjandi
sjúkdóma. Hægt er að
verjast inflúensunni
með árlegri bólusetn-
ingu sem veitir um
60–90% vörn gegn
sýkingu.
landlaeknir.is
Staðurinn - Ræktin
telpurS onuK r
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732
jsb@jsb.is • www.jsb.is
Nýr TT flokkur og ný tímasetning
í hinu sívinsæla “Toppi til Táar„ námskeiði
Ekkert lát hefur verið á aðsókn í TT aðhaldsnámskeiðin
og er okkur því ánægja að bjóða þessa tíma sem henta sérlega vel heimavinnandi mæðrum.
TT tímar sem eru í boði:
6:15 – mán, mið, fös
7:20 – mán, mið, fös
10:15 – mán, mið, fös - Barnapössun
12:05 – mán, mið, fös - Barnapössun
14:20 – mán, mið, fös
16:40 – mán, mið, fös - Barnapössun
17:40 – mán, þri, fös - Barnapössun
19:25 – mán, mið, fim (19:45)
Fundur fyrir alla flokka sunnudaginn 15. mars kl. 16:00 og 17:00 .
Velkomin í okkar hóp!
ATH
höfum bætt við
nýjum tíma
kl. 10:15 mán - mið-
og fös-
barnapössun
Námskeiðið hefst sunnudaginn 15. mars með fundi
Innritun stendur yfir í síma 581 3730EFL IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s
k
h
ö
n
n
u
n
Næstu fyrirlestrar og námskeið
17. feb. Ævintýralíf
Benedikta Jónsdóttir ráðgjafi
19. feb. Goodheart hlátur- markþjálfun
Kristján Helgason hláturjógaleiðbeinandi
24. feb. Erum við andleg og líkamleg eiturefna-
úrgangs-ruslaskrímsli
Edda Björgvins leikkona
25. feb. Spa dekur
Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir
26. feb. Ég fi tna sama hvað ég geri. Hvernig næ
ég jafnvægi?
Esther Helga Guðmundsdóttir ráðgjafi
04. mars. Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða?
Ebba Guðný Guðmundsdóttirwww.madurlifandi.is
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Auglýsingasími
– Mest lesið