Tíminn - 01.07.1988, Síða 5
Föstudagur 1. júlí 1988
Tíminn 5
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, um gagnrýni borgarstjóra á stjórninaog skilning forsætisráðherra á henni:
Eg skil ekki innanflokks
rósamál sjálfstæðismanna
„Ég tek þessu ekki sem gagnrýni á forystu Sjálfstæðisflokksins í
ríkisstjórn,“ sagði Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra, um gágnrýni
Davíðs Oddssonar, borgarstjóra, á ríkisstjórnina, í samtali við
Tímann í gær. „Þetta er ekki meint þannig. Ég hef rætt þessí mál
við Davíð margoft og við erum sammála í okkar skoðunum.“
Þorsteinn vildi meina að gagnrýni
Davíðs beindist fyrst og fremst að
Framsóknarflokknum. „Ég er alveg
sammála þeirri megin gagnrýni sem
kemur fram hjá Davíð um að þessar
hugmyndirframsóknarmanna um að
gera ríkisstjórnina að einu allsherjar
verðlagsráði, eru ekkert annað en
gamlar vinstristjórnar lummur sem
ekki duga í nútíma hagstjórn. Þetta
upphlaup útaf Landsvirkjun sýnir að
einn stjórnarflokkanna hefur lýst
því yfir að hann vilji fela áhrif
gengisbreytinga með erlendum
lánum, með því að sökkva ríkisfyrir-
tækjum í erlendar skuldir og reyna
að blekkja almenning með því móti.
Þegar slíkur grundvallarágreiningur
er uppi þá er ekki annað hægt en að
taka undir með slíkri gagnrýni.
Kjarni málsins varðandi Lands-
virkjun er sá að henni er gert að
leggja sitt erindi fyrir trúnaðarmenn
ríkisstjórnarinnar í verðlagsmálum,
þeir fara yfir það og telja það
eðlilegt og iðnaðarráðherra sér ekki
ástæðu til að koma í veg fyrir að
Landsvirkjun taki ákvörðun á þeim
grundvelli. Gagnvart Landsvirkjun
er gætt sömu aðhaldsvinnubragða
og gagnvart öðrum ríkisfyrirtækjum.
Og stofnunin heldur sig innan þeirra
marka sem ríkisstjórnin telur eðli-
legt. Það hafa ekki verið nein lög
brotin," sagði Þorsteinn.
En gagnrýni Davíðs beinist ekki
eingöngu að Framsóknarflokknum.
Hann dregur í efa að ríkisstjórnin í
heild geti tekið á áríðandi málum.
„Auðvitað er það alveg rétt að
afstaða eins stjórnarflokks hefur
áhrif á ríkisstjórnina alla. Það er
ekki nokkur leið til að komast hjá
því, það hefur áhrif á ímynd stjórn-
arinnar. Ríkisstjórnin getur auðvit-
að tekið á málum ef vilji er fyrir
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegs-
ráðherra.
hendi en þá verða allir aðilar að sýna
ábyrgð. Það þýðirekki fyrirstjórnar-
flokka að vera að draga hér upp
gamlar vinstristjórnar lummur varð-
andi verðlagsmál hjá opinberu fyrir-
tæki. Það bara þýðirekki. Það verða
allir aðilar að gera sér grein fyrir því
og vinna í samræmi við það og
auðvitað er það óafsakanlegt ef
þessir þrír flokkar geta ekki tekið
höndum saman í þessum efnurn,"
sagði Þorsteinn.
Rósamál
Sjálfstæðisflokksins
Halldór Ásgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra, var spurður að því
hvernig hann mæti gagnrýni Davíðs
og viðbrögð Þorsteins við henni. „Ef
Davíð Oddsson er að gagnrýna
Framsóknarflokkinn, þá notar hann
afar undarlegar aðferðir til þess. Ég
hef nú litið svo á að hann væri
hreinskiptnari en svo að nota slíkt
rósamál. Ég kann ekki innanflokks
rósamál Sjálfstæðisflokksins, það
verður Davíð að útskýra nánar
sjálfur," sagði Halldór.
Þorsteinn Pálsson segir. í viðtalinu
hér að ofan að Framsóknarflokkur-
inn vilji fela áhrif gengisbreytinga
með erlendum lánum, með því að
sökkva ríkisfyrirtækjum í erlendar
skuldir og reyna þannig að blekkja
almenning.
„Ég skil ekki þessi ummæli. Það
eina sem við viljum er að fylgt sé
þeim áformum sem uppi voru við
setningu bráðabirgðalaganna og að
fyllsta aðhalds sé gætt. Útflutnings-
fyrirtækin og atvinnureksturinn í
landinu hefur þurft að taka á sig
gífurleg afföll og miklu meira en
hægt er að ætlast til. Það verður að
ætlast til hins sama af opinberum
fyrirtækjum, án þess að við séum að
hvetja til skuldasöfnunar. Við erunt
að hvetja til að það sé jafnræði í
þessum málum í þjóðfélaginu. Það
liggur fyrir að eftir því sem hagnaður
fyrirtækis er meiri þeim mun hraðar
getur það borgað niður lán sín. En
það er ekki hægt að halda slíkri
stefnu á þessu sviði samtímis því
sem atvinnureksturinn þarf að sætta
sig við þau kjör sem hann býr við.
Við viljum einfaldlega að það sé
jafnræði þar á milli og þctta höfum
við útskýrt í ríkisstjórn og ætti því
ekki að þurfa að ræða það á opinber-
um vettvangi," sagði Hrlldór. JIH
Útflutningur
ferskfisks
takmarkaður
„Það er búið að ákveða að tak- marka útflutninginn á ferskfiski. Þar er um bráðabirgðaráðstafanir að ræða sem munu gilda í allt að þrjá mánuði. Það varðar þorsk og ýsu og er stefnt að því að ekki fari meira en helmingur út af því magni sem fór á sama tíma í fyrra. Nánari útfærsla á þessu verður kynnt á morgun," sagði Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegs- ráðherra í samtali við Tímann. JIH
111 VEIÐIHORNIÐ 11111 Umsjón: Eggert Skúlasonl
Veður torveldar
veiði á heiðinni
Hjaltí Elíasson, fyrirliði íslenska landsliðsins með spaða ásinn á hendi. Við vonum að hann fái hann oft í dag.
Tfminn Pjetur.
r Norðurlandamótið í brids:
Islendingar efstir
íslendingar unnu Finna 20:10 í áttundu umferð, sem fram fór í
gærdag. íslendingar leiða enn mótið með 146 stig, þá koma Svíar
með 140 stig og Danir eru í þriðja sæti. íslenska kvennalandsliðinu
gengur ekki jafn vel, þær eru í fjórða sæti með 71 stig og eru því í
neðsta sæti, en danska kvennasveitin vermir efsta sætið með 124 stig.
„Svíar hafa verið erfiðasti andstæðingurinn. Við höfum tapað
tvisvar á mótinu, í bæði skiptin gegn Svíum. Svíar eru sterkir, þeir
eru núverandi Evrópumeistarar og búnir að vera toppmenn í fjölda
ára,“ sagði Hjalti Elíasson, fyrirliði íslenska liðsins.
Tíminn náði sambandi við veiði-
menn á Amarvatnsheiði, seinni-
partinn í gær. Það var nú ekki nein
mokveiði, en þó voru menn að
slíta upp einn og einn. Veður
torveldaði veiði, og vom flest vötn-
in lituð að hluta. Vigfús Jónsson
varð fyrir svörum, þegar farsíminn
hringdi í Sesseljuvík. Vigfús var
hinn reifasti þrátt fyrir norð-austan
kalda er gerði veiðimönnum erfitt
fyrir. „Það er sextán manna hópur
að veiða hér núna. Þeir sem mest
hafa fengið hafa landað um tíu
fiskum. Þetta em mestmegnis ótta-
legir puttar, þó ágætis urriðar hafi
slæðst með. Sá stærsti er rétt tæp
fjögur pund. Það er nú kaffi hjá
okkur núna, en við fömm fljótlega
út aftur og þá er aldrei að vita hvað
gerist. Veiðin hefur helst verið hér
í Víkinni. Nokkrir hafa farið í
Austurá, en ekki haft árangur sem
erfiði, þó veiðivörðurinn hafi sagt
okkur af góðri veiði þar fyrr í
Veiðimaður hefur landað dágóð-
um fiski á Arnarvatnsheiði.
Tímamynd Jón G.
vikunni. Nokkrir fóm að Grettis-
höfða fyrr í dag, en ég hef ekki
fregnað hvernig þeim gekk,“ sagði
Vigfús í samtali við Tímann í gær.
Vigfús og veiðifélagar hans veiða
þar fram að hádegi á morgun.
Hjalti sagði að verra þætti að spila
á heimavelli, áhyggjur og daglegt
amstur fylgdi mönnum að spilaborð-
inu sem truflaði einbeitingu. Einnig
sagði hann að íslenskir áhorfendur
væru liðinu til lítils stuðnings: „Það
er vont að vera á heimavelli í
hugíþróttum, eins og brids og skák,
en gott í boltaíþróttum. Þegar kepp-
endur ganga frá spilaborði heyra
þeir tautið í áhorfendum um að þeir
hefðu getað unnið hefðu þeir breytt
öðmvísi en þeir gerðu. Þetta virkar
illa á leikmennina, því það skiptir
höfuðmáli að einbeitingin sé í lagi til
að toppárangur náist.“
Hjalti sagðist vera mjög ánægður
með árangur sinna manna: „Við
erum að spila með mjög sterkum
þjóðum. Færeyingar hafa komið á
óvart og eru greinilega í miklum
uppgangi. Við höfum unnið þessar
þjóðir, sem við eigum eftir að spila
við nokkuð stórt, og ég geri engar
kröfur um að við endurtökum það.
Það gæti farið svo að við töpuðum
báðum spilunum."
Besti árangur liðsins hefur verið
til þessa þegar þeir lentu í 4.-5. sæti
ásamt Pólverjum í Evrópumeistara-
keppninni í Brighton í fyrra. Hjalti
Elíasson tók við þjálfun liðsins eftir
þá keppni. Hann sagði að það væri
langtímamarkmið að ná upp Iands-
liði, en þeir stefndu hátt á Olympíu-
mótinu í haust, sem fram fer á Ítalíu.
Markmiðið á því móti væri að lenda
ofarlega, ekki endilega meðal þeirra
efstu. Hann sagði að landsliðið væri
fyllilega fært um það. Hjalti var
bjartsýnn á framtíð íslenska lands-
liðsins og sagði það hafa alla burði
til að vera meðal þeirra allra bestu
ef allir legðust á eitt eins og hingað
til.
Síðasta umferð Norðurlanda-
mótsins verður f dag og spila íslend-
ingar þá við Dani.
Helstu úrslit gærdagsins önnur en
sigur Islendinga yfir Finnum, voru
þau að Svíar unnu Færeyinga 23:7
og Danir sigruðu Norðmenn 18:12.
Áhorfendur voru með fæsta móti
í gær. Sérfræðingum í brids þótti spil
íslendinga og Finna dauflegt og var
talið víst hvert stefndi þegar íslend-
ingar voru yfir í hálfleik. SH