Tíminn - 09.07.1988, Side 3

Tíminn - 09.07.1988, Side 3
- ^ugardagMr,9.: ÍÚM988 Tíminn,- 3 FRÁ UTANRÍKISRÁÐUNEYTINU Utflutningsleyfi fyriróunninfisk Utanríkisráðuneytiö hefur ákveðið að takmarka útflutning á óunnum þorski og ýsu þannig að vikulegur útflutningur af þessum tegundum fari ekki yfir 600 tonn. Umsóknir um leyfi til útflutnings á óunnum fiski í gámum þurfa að berast ráðuneytinu eigi síðar en árdegis á föstudegi í næstu viku á undan þeirri sem útflutningur er fyrirhugaður í, þó á mánudeg- inum 11. júlí fyrir vikuna 10.-16. júlí n.k. Ráðuneytið tekur afstöðu til umsókna og tilkynnir umsækjendum fyrir dagslok á föstudegi um það heildarmagn sem hverjum um sig er heimilt að flytja út í næstu viku þar á eftir. Fyrirkomulag þetta gildir um útflutning á óunnum þorski, ýsu, karfaog ufsatil loká septembermánaðar 1988. Ráðuneytið mun veita útgerðum einstakra skipa, á grundvelli þeirra umsókna sem bárust fyrir 7. þ.m., vilyrði fyrir útflutningsieyfum fyrir helmingi þess magns sem flutt var út af þorsk- og ýsuafla einstakra skipa á sama tímabili í fyrra. Þeir sem slík vilyrði fá þurfa síðan vikulega að óska leyfis til útflutnings á tilteknu magni og verða leyfi til vikulegs útflutnings bundin við 15% af útflutningsheim- ildum viðkomandi aðila á öllu tímabilinu. Séu útflutningsheim- ildir á öllu tímabilinu samtals á bilinu 50 til 300 lestir, má vikulegur útflutningur þó nema allt að 20% heildarmagns og séu heimildir samanlagt undir 50 lestum, verða ekki gerðar kröfur um dreifingu á einstakar vikur. Nái samanlögð útflutningsleyfi samkvæmt ofangreindu ekki 600 tonnum í einstakri viku, verður öðrum umsækjendum um útflutning í þeirri viku veitt leyfi fyrir því sem á kann að vanta. Við þá úthlutun hafa þeir er sóttu um útflutningsleyfi fyrir 7. þ.m. forgang. Með hliðsjón af markaðshorfum í Evróþu á óunnum karfa og ufsa hefir ráðuneytið ennfremur ákveðið að engin útflutnings- leyfi verði veitt vegna útflutnings á þessum tegundum í gámum á tímabilinu 24. júlí til 7. ágúst 1988. Ráðuneytið mun leytast við að fylgjast með horfum varðandi sölu á óunnum karfa og ufsa og grípa til frekari takmarkana á veitingu útflutningsleyfa reynist það nauðsynlegt. Reykjavík, 8. júlí 1988 Utanríkisráðuneytið Hl REYKJÞMIKURBORG |fl 'V Heilsuverndarstöð Reykjavíkur óskar eftir að ráða eftirtalið starfsfólk: Meinatækni til sumarafleysinga. Ljósmóður til sumarafleysinga við mæðradeild. Hjúkrunarfræðinga við barnadeild og heilsu- gæslu í skólum. Hjúkrunarfræðinga við heimahjúkrun til afleys- inga á kvöldvakt. Upplýsingar um ofangreind störf gefur hjúkrunar- forstjóri í síma 22400. Skrifstofumann til símavörslu og afgreiðslu við Heilsugæslustöðina - Asparfelli 12. Sumaraf- leysingar. Upplýsingar eru gefnar á skrifstofu framkvæmda- stjóra heilsgæslustöðva í síma 22400. Útboð Suðurfjarðarvegur, Skriður - Höfðahús Sm Vegagerö ríkisins óskar eftir tilboöum í f ofangreint verk. Lengd vegarkafla 4,9 km, fyllingar 15.000 m3 og buröarlag 22.000 m3. Verki skal lokið 15. júní 1989. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Reyðarfirði og i Reykjavík (aðal- gjaldkera) frá og með 11. júlí n.k. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 25. júlí 1988. Vegamálastjóri Meinatæknar Staða meinatæknis við Sjúkrahúsið í Húsavík er laustil umsóknar. Upplýsingargefurframkvæmda- stjóri í síma 96-41333. Stöðumæla- gjöldin lækka Ðorgarráð hefur samþykkt eftirtaldar breytingar á stöðumæla- og aukastöðugjöldum svo og stöðubrotagjöldum frá og með 10. júlí 1988 1. Stöðumælum þeim, sem nú eru með Vá klst. hámarksgjaldtíma verði breytt þannig að hámarksgjaldtími verði 1 klst. eins og á öðr- um stöðumælum. 2. Gjald í stöðumæla verði eftir sem áður kr. 50, en gildi fyrir 1 klst. í stað V2 klst. áður. 3. Gjald vegna ólöglegrar stöðu bifreiðar, stöðubrotsgjald, lækkar úr kr. 750 í kr. 500. 4. Sé aukastöðugjald á stöðumæli, sem er kr. 500, greitt áður en 3 virkir dagar eru liðnir frá dagsetningu álagningarseðils, fær greið- andi afslátt þannig að greiðslan verður kr. 300. Sama gildir um stöðubrotsgjald. Séu gjöld þessi hins vegar ekki greidd innan tveggja vikna kemur á þau 50% álag og beitt verður þeim aðgerð- um til innheimtu sem lög leyfa. Breytingar skv. liðum 1 og 2 taka gildi eftir því sem mælum verður breytt og er það verk nú þegar hafið. Breyting skv. 3. og 4. lið tekur gildi 10 þ.m. Þá verða nýir álagningarseðlar teknir í notkun. Bflastæðasjóður Reykjavíkurborgar V|Sf7BS0

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.