Tíminn - 09.07.1988, Page 8

Tíminn - 09.07.1988, Page 8
8 Tíminrh Tíminn MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Ritstjórar: Aðstoðarritstjóri: Fréttastjórar: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason Indriði G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason OddurÓlafsson Birgir Guðmundsson EggertSkúlason SteingrímurGíslason Skrifstofur: Lyngháls 9, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Timans. Prentun: Blaðaprent h.f. Auglýsingaverð kr. 465,- pr. dálksentimetri. Verð í lausasölu 60,- kr. og 70,- kr. um helgar. Áskrift 700.- Njáll íslenskur kvikmyndaiðnaöur hefur fengið nokkra kveðju frá amerískum kvikmyndaframleiðanda, sem lýsir áhuga á að kvikmynda Njálu. Hefur kvikmyndun Njálu ekki verið á dagskrá síðan Guðlaugur Rósinkrans skrifaði kvikmyndahandrit og vildi að Edda-film kvik- myndaði. Eftir endurvakningu íslenskrar kvikmynda- gerðar og með tilkomu Kvikmyndasjóðs var í fyrstu reynt að halda fram einskonar íslenskri stefnu í kvikmyndagerð með sama hætti og Ástralir gera. En ungir ofurfarar vildu ekki á það hlusta, og nú hefur tekist að gera íslenska kvikmyndaframleiðslu að byssu- leikjagerð í stíl amerískra hasarmynda, sem litið er á eins og dúsínvöru innan iðnaðarins. Furðu vekur að Sænska kvikmyndastofnunin er hlaupin til og vill ólm eiga þátt í Njáli. Þessi stofnun hefur um sinn haft áhrif á úthlutanir Kvikmyndasjóðs með því að tilkynna framlög til íslenskra mynda að því tilskildu að sjóðurinn legði á móti. Hefur hér verið um hæstu framlög að ræða. Ein mynd er þegar komin úr þessari samvinnu og á að vera úr fornöldinni, frá tímum Njálu, en leikarar eru klæddir í gærur og látnir leika að hnífum, eins og höfundur hafi aldrei komist aftar en í Skugga-Svein. Ekki er vitað hvort næsta fornaldarmynd verður sveipuð gærum. Það er gleðiefni að útlendingur skuli hafa áhuga á Njálu til kvikmyndunar. En þar bíða hans fallgryfjur stórar, einkum ef hvergi nýtur við sérfróðra, og má þá búast við að hjálmar verði skreyttir nautshornum og eitthvað verði um gærur að hætti Skugga-Sveins. Þótt kvikmyndun Njálu sé álitshnekkir fyrir framleiðslu íslenskra hasarmynda, er hún gleðiefni vegna þess að hugmyndin vísar okkur inn í heim viðfangsefna, sem við ættum að sitja að einir. Hvorki Kvikmyndasjóður né íslenskir kvikmyndaleikstjórar virðast hafa metnað eða getu til að svara þeirri kröfu hvað íslenskt er í þessari grein listar. Losa þyrfti Kvikmyndasjóð undan ofurvaldi kans- ellíista í menntamálaráðuneytinu og þá um leið undan tilskipunum sænsku kvikmyndastofnunarinnar og gæru- stefnunnar í kvikmyndagerð. Þá þyrfti leikstjórum að lærast, að þeir þurfa ekki endilega að vera mestu sagnasmiðir í heimi þótt þeir kunni fag sitt sem leikstjórar. í landi með óunninn fjölda viðfangsefna fyrir kvikmyndir er óþarfi fyrir leikstjóra að telja sig nauðsynlega höfunda verka sem kvikmynduð eru. Hafa slík verk leitt til heldur dapurlegrar og metnaðarlítillar niðurstöðu. Þá er alveg óþarfi af tæknimönnum, og þeim sem hafa vald á snúrum, að ganga fram fyrir skjöldu og skrifa líka. Sjónvarpsmyndin fræga um Snorra Sturluson er gott dæmi um það. Því miður hefur ekki tekist sem skyldi í íslenskri kvikmyndagerð. Þeir sem um hana hafa vélað geta sjálfir sér um kennt. Við gátum sjálfir kvikmyndað Njálu eða hluta úr henni, en það hefði eflaust ekki fengið byr hjá sjálfhverfum leikstjórum eða Kvik- myndasjóði. Til kvikmyndar um Gísla Súrsson veitti sjóðurinn næstum ekkert fé. Hún hefur nú verið seld víða um heim, og Danska kennarasambandið hefur fengið hana til kennslu og dreifingar um Norðurlönd. Aftur á móti er mikið að frétta af byssubófa- og gærumyndum. Laugardagur 9. júlí 1988 Þ urrkar þeir sem nú ganga yfir norðanverð Bandaríkin og Kanada eiga eftir að hafa áhrif á íslandi, þótt enn rigni hér nóg, eða a.m.k. fannst okkur svo á Suðurlandi í júnímánuði. Þetta gróðurhúsa einkenni, sem spáð var að mundi láta á sér kræla vegna breytinga á loftslagi í menguðum heimi, hefur stór- felld áhrif á fóðurbirgðir í heim- inum. Kanada hefur lengi selt Kínverjum mikið af hveiti og þekktur er innflutningur Rússa á korni frá Bandaríkjunum. Þar sem mikið hefur verið um um- framframleiðslu á korni í Bandaríkjunum, og ríkisstjórn landsins hefur lengi legið undir ámæli fyrir að kaupa af bændum að rækta ekki korn á landi sínu, er ekki að vænta beinnar vöntunar á fóðri þrátt fyrir þurrkaáfallið núna. Hins vegar er alveg ljóst, að útflutningur á korni dregst stórlega saman í ár og á þess eftir að gæta í verð- hækkunum á próteinframleiðslu annarra landa. Verð á loðnu og síldarmjöli ætti því að hækka að mun á haustdögun, enda má þá ætla að hinir föstu kaupendur á framleiðslu kornbeltanna vest- anhafs sitji uppi með skarðan hlut eftir jDurrkana. Grátið við rætur smjörfjalla Þetta ástand, sem spáð er að sé aðeins byrjunin, sé kenningin um gróðurhúsaveðurfar og loft- mengun rétt, kemur á sama tíma og mikill fyrirgangur er uppi gegn matvælaframleiðslu. Landbúnaður á íslandi þykir óalandi, og EBE-þjóðir í Evr- ópu hafa varla áhyggjur af öðru meiru en smjörfjöllum. Skelli þurrkar á Evrópu í iíkum mæli og þeir, sem eru nú að breyta ræktarlöndum vestan hafs í skrælnaða jörð, er hætt við því að gráturinn við rætur smjör- fjallanna eigi eftir að breytast í grát eftir smjöri. Að vísu skiptir þetta dæmi ekki höfuðmáli, vegna þess að afleiðingar langra þurrka vegna gróðurhúsaein- kenna verða miklu skelfilegri en svo að menn fari að minnast andmæla við landbúnaði. Þá er ástæða til að minnast þess, að um norðanverða Afríku, í jaðarlöndum Sahara- eyðimerkurinnar, hafa hungurs- neyðir verið svo að segja árviss- ar. Við íslendingar erum sérlega kunnugir því vandræðaástandi sem ríkir í Eþíópíu og hefur ríkt lengi. Þar hefur kommúnista- stjórn Mengistu ekki getað brauðfætt þjóðina nema vera upp á aðra komin. Ástæðan er langvarandi þurrkar í sumum héruðum landsins. Auðvitað stafa þurrkar ekki af pólitískum aðgerðum. En þjóðir sem hafa lagt sitt af mörkum til hjálpar máttu horfa upp á það agndofa, þegar heill skipsfarmur af viskíi var fluttur frá Englandi til Eþí- ópíu, svo Mengistu og félagar gætu haldið upp á tíu ára bylt- ingarafmæli í landinu. Veðurfar og eymd Kína og Sovétríkin búa bæði við mikla miðstýringu og heft- ingu á frumkvæði einstaklingsins til sjálfsbjargar. Kommúnista- stjórnin í Kína sneri sér í byrjun að þvf að koma í veg fyrir árvissar hungursneyðir, sem þar höfðu verið landlægar. Um leið og hún lét hefja stórvirkjanir í helstu fallvötnum landsins, sem höfðu flætt yfir gróðurlönd á hverju vori og eyðilagt upp- skeru, gerðufyrirstöðurvirkjan-. anna og uppistöðulónin það að verkum, að hægt var að hafa einhverja stjórn á flóðunum. Á fyrstu árum kommúnistastjórn- arinnar var slík áhersla lögð á að binda fljótin, að fólk var sent hundruðum þúsunda saman á fyrirhleðslustaðina, þar sem það bar mold og möl í litlum tága- körfum á höfðinu, en vegna mannfjöldans urðu afköstin eins og eftir stórvirkar vinnuvélar. Síðan hefur ekki heyrst af hung- urnseyð í Kína þótt þjóðin sé um einn milljarður. Þar var ekki verið að hugsa um viskískipin þótt byltingarafmælin hafi verið mörg og stór. Þrátt fyrir virðingarverða fyrirhyggju og vilja til að fyrir- byggja hungursneyðir hafa Kín- verjar orðið að kaupa mikið af korni af Kanadamönnum á liðn- um árum. Nú eru horfur á því að Kanadamenn verði ekki aflögu- færir. Þá munu koma upp vanda- mál, sem erfitt getur orðið að leysa. Mannfjölgunin er slík yfirleitt, að öll meiriháttar rösk- un á framleiðslu matvæla getur kostað stórfelldar hungursneyð- ir. Jafnframt geta slík áföli þýtt stóraukin átök, eins og urðu í Evrópu á miðöldum í kjölfar rnannfjölgunar vegna bættra búnaðarhátta, sem síðan gátu ekki brauðfætt aukninguna. Þannig er sagan, og þótt við séum í dag að gefa matvæli og veita aðstoð hungruðu fólki, þá er það ekki nema dropi í hafið og kannski meira til að friða samviskuna en til að leysa erfið vandamál, einfaldlega vegna þess að þau verða ekki leyst. Breytingar á veðurfari eru enn óviðráðanlegur þáttur í þeirri eymd, sem sækir á þjóðir á þurrkasvæðum. En slíkar breyt- ingar verða sýnu alvarlegri ef þær verða á helstu kornfram- leiðslusvæðum heimsins. Þjóðir á mörkum hungurs Á sama tíma og þetta vofir yfir er sótt svo fast eftir sjávar- fangi, sem ekki er háð þurrkum eða gróðurhúsaeinkennum svona fyrsta kastið, að heilar herdeildir vísindamanna víða um lönd hafa verið kallaðar til að vega og meta það aflamagn sem fiskistofnarnir þola. Það er því ekki við því að búast, að hægt verði að hefja stóraukna sókn á fiskimið bregðist korn- rækt á næstu áratugum. Það eina sem virðist hægt að gera við upphaf þeirrar kvíðavænlegu þróunar, sem nú er sögð vera að eyðileggja kornrækt í Kanada og Bandaríkjunum, er að stöðva mengunina, sem veldur gróður- húsaloftslagi. Sameiginlegt átak iðnvæddra þjóða þarf til slíkra aðgerða. En á meðan skógar eyðast vegna mengunar og fiskur drepst í súrum vötnum um norðanverða Evrópu, og að auki kemur til mengun í Rússlandi, sem næsta lítið er vitað um, er ekki von að nokkur fari í fyrstu lotu að taka alvarlega skrælnaða jörð af völd- um þurrka, sem herja vegna aðgerða manna. Ástandið þarf að verða alvarlegra, en þá verð- ur erfiðara að bæta skaðann. Fjölmargar þjóðir um norðan- verða Afríku, á Indlandsskaga og í Asíulöndum eru á mörkum hungurs. í stað þess að leita lausna fyrir fólkið virðast ráða- menn hafa lagt meiri áherslu á að ná völdum í þessum löndum og halda þeim, oft í nafni stjórn- málastefnu, sem hefur eftir sín- um helsta leiðtoga að Guð sé ópíum fyrir fólkið. En þurrkar

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.