Tíminn - 09.07.1988, Page 20
20 Tíminn1
ÍÍ&Íj g á rdág'u r . cj u I í: i’ 9é8
DAGBÓK
WIIIIIIIIIIII
iiiiiiniiiiiiii
60 ára afmæli
Guðrún Bcnediktsdúttir bóndi á
Grundarási í V.Hún. verður 60 ára á
morgun, sunnudaginn 10. júlí. Hún tekur
á móti gestum ásamt ciginmanni stnum,
Aðalbirni Benediktssyni, að Hvamms-
tangabraut 33 á afmælisdaginn.
Áttræður
samvinnustarfsmaður
Pórður Einarsson á ísafirði verður
áttræður á mánudaginn kemur. í sept-
ember n.k. verður hann búinn að vinna
samfellt hjá Kaupfélagi ísfirðinga í 60 ár.
Hann er borinn og barnfæddur á ísafirði,
og lengst af hefur hann unnið sem pakk-
húsmaður hjá kaupfélaginu. Síðustu 12-
15 árin hefur hann þó starfað við inn-
heimtustörf hjá skrifstofu félagsins. Þórð-
ur er mikill samvinnumaður og hefur
verið í mörg ár í stjórn ísafjarðardeildar
félagsins og fulltrúi á aðalfundum þess.
Hann býr á dvalarheimilinu Hlíð á ísa-
firði, og þar tekur hann á móti gestum á
sunnudaginn.
Dagsferðir
Ferðafélags fslands
Sunnud. 10. júlí kl. 10:00: Klóarvegur/
gömul þjóðleið milli Grafnings og Ölfuss.
(1000 kr.)
Sunnud. 10. júlí Itl. 13:00: Reykjafjall
við Hveragerði.(800 kr.)
Miðv.d. 13. júlí kl. 08:00: Þórsmörk -
dagsferð. (1200 kr.)
Miðv.d. Kl. 20:00: Búrfellsgjá Kaldár-
sel, létt kvöldganga. (400 kr.)
Laugard. 16. júlí kl. 08:00: Hekla.
Gengið á Heklu frá Skjólkvíum (1200 kr.)
Brottför í dagsferðirnar er frá Umferð-
armiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar
við bfl.
Áttræðisafmæli
Jón Bjamason, Þórístúni 7, Selfossi
verður áttatíu ára mánudaginn 11. júlí.
Jón tekur á móti gestum á afmælisdaginn
á heimili dóttur sinnar að Blikahólum 12,
Reykjavík, frá kl. 16:00.
Sunnudagsferðir
Útivistar 10. júlí
Kl. 08:00 Þórsmörk. Stansað 3-4
klukkustundir í Mörkinni (1200 kr.)
Kl. 13:00 Strandganga í landnámi Ing-
ólfs 17. ferð: Hópsnes - Hraunsvík.
Gengið verður um fjölbreytta strönd milli
Grindavíkur og Festarfjalls. Merkileg
jarðfræðifyrirbæri. Fróðleg ferð og létt
ganga. Ætlunin er að ganga með strönd-
inni frá Reykjavík að Ölfussárósum í 22
ferðum. Brottför frá BSÍ, bensínsölu (í
Hafnarfirði kl. 13:15 við Sjóminjasafnið.
Farmiðar við bíl (800 kr.) Frítt f. börn m.
fullorðnum.
Miðvikudagskvöldfcrð 13. júlí kl. 20:00
í Strompahella.
Sýningar í Norræna húsinu
í sýningarsölum Norræna hússins
stendur enn sýning á málverkum og
grafík eftir Lenu Cronqvist. Sýningin
verður framlengd um eina viku. Henni
lýkur 17. júlí.
í anddyri er sýningin íslenskir steinar.
Hún er opnuð í dag, laugardaginn 9. júlí
kl. 15:00. Að sýningunni standa Félag
áhugamanna um steinafræði í samvinnu
við Norræna húsið. Sýningin stendur
fram til 22. ágúst.
Fjölbreytt sýning
5 ungra listamanna
Frá fréttaritara Tímans á Sauðárkróki,
G.Ó.:
Fimm ungir myndlistarmenn - þar af
þrír fæddir og uppaldir Skagfirðingar -
opnuðu fjölbreytta myndlistarsýningu í
Safnahúsinu á Sauðárkróki um síðustu
helgi og verður hún opin til og með
sunnudagsins 10. júlí. Listamennirnir
hafa allir lokið námi frá myndlista og
handíðaskóla Íslands og flestir hafa þeir
einnig stundað nám við erlenda listaskóla.
Ragnheiður Þórisdóttir sýnir þrjú verk
í myndvef- veggteppi - og auk þess þrjár
myndir þar sem hún fléttar í pappírsvef
litaðar með krít og kolum.
Sólveig Baldursdóttir sýnir fimm skúl-
ptúra, þrjá í granft og tvO í marmara.
fris Friðriksdóttir er hér með þrjár
blíantsteikningar og eina lágmynd f
steypu.
Gréta Sörcnsen frá Ólafsfirði mun nú í
fyrsta sinn taka þátt í opinberri sýningu.
Hún sýnir leðurverk, fjórar kápur.
Ragnar Stefánsson frá Reykjavík sýnir
þrjú akrílmálverk á striga.
Kjarvalsstaðir:
-Síðasta sýningarhelgi á „Maðurinn í
forgrunni"
Sýningin á Kjarvalsstöðum „Maðurinn
í forgrunni", sýning á íslenskri fígúratífri
list frá árunum 1965-1985. Sýningin er
einn af dagskrárliðum Listahátíðar 1988.
Nú er síðasta sýningarhelgi á „Manninum
í forgrunni" - en Kjarvalsstaðir eru opnir
alla daga vikunnar kl. 14:00-22:00.
Nýjungar í Árbæjarsafni
í sumar var opnuð sýning um Reykja-
vík og rafmagnið. Hún er í Miðhúsi, áður
Lindargata 43a, en það hús var flutt í
safnið 1974 og er til sýnis í fyrsta skipti í
ár.
Auk þess er uppi sýning um fornleifa-
uppgröftinn í Viðey sumarið 1987.
„Gömlu“ sýningamar um m.a. gatna-
gerð, slökkvilið, hafnargerð og jámbraut-
ina em að sjálfsögðu á sínum stað.
Árbæjarsafn er opið kl. 10:00-18:00
alla daga nema mánudaga. Leiðsögn um
safnið er kl. 14:00 á virkum dögum, kl.
11:00 og 14:30 laugardag og sunnudag.
Veitingar í Dillonshúsi kl. 11:00-17:30.
Léttur hádegisverður framreiddur kl.
12:00-14:00.
Fyríriestur í Fomleifasal
Mánudaginn 11. júlí heldur Thomas H.
McGovem fyrirlestur í Fornlcifasal
Þjóðminjasafns íslands. Fyrirlesturinn fer
fram á ensku og hefst kl. 20:30. Hann er
öllum opinn. Fyrirlesturinn heitir “North
Atlantic Zooarchæology: Greenland and
lceland „ á frummálinu, og fjallar um
rannsóknir McGoverns á dýrabeinum
sem fundist hafa við fornleifarannsóknir
á Norður-Atlantshafssvæðinu, einkum á
Grænlandi og á íslandi.
Thomas H. McGovern er aðstoðar-
prófessor við Mannfræðideild Hunter
College í New York. Hann hefur stundað
uppgröft og rannsóknir á dýrabeinum frá
Norður-Atlantshafssvæðinu frá því árið
1975. I sumar hefur hann verið við
rannsóknir á bænum Svalbarða við Þistil-
fjörð ásamt hópi Bandaríkjamanna og
fslendingi.
Rjómabúið á Baugsstöðum opið
Eins og undanfarin sumur verður gamla
rjómabúið hjá Baugsstöðum austan við
Stokkseyri opið almenningi til skoðunar í
sumar síðdegis á laugardögum og sunnu-
dögum í júlí og ágústs milli kl. 13:00 og
18:00.
Tíu manna hópar eða fleiri geta fengið
að skoða rjómabúið á öðrum tíma, ef haft
er samband við gæslumenn í síma 98-
22220 (Ólöf), 98-21972 (Ingibjörg og
98-21518 (Guðbjörg) með góðum fyrir-
vara.
Sumarferðalag Verkakvenna-
félagsins Framsóknar
Hið árlega sumarferðalag Verka-
kvennafélagsins Framsóknar verður farið
7.-9. ágúst nk. Farið verður um Skagafj-
örð og gist á Sauðárkróki.
Nánari upplýsingar á skrifstofu félags-
ins. Sími er 688930.
SUMARHAPPDRÆTTI
HEYRNARLAUSRA1988
Dregið var í Sumarhappdrætti heyrnar-
lausra 1988 þann 1. júlí sl.
Vinningsnúmer eru þessi:
1. 10208 5. 1310
2. 1817 6. 1504
3. 5358 7. 12505
4. 17622 8. 13251
Vinninga má vitja á skrifstofu Félags
heymarlausra, Klapparstíg 28, kl. 09:00-
17:00 alla virka daga, sími 13560. Félagið
þakkar veittan stuðning.
Félag heymarlausra
mollcbock;
huse
UM HELGINA MILU
KL. 13 OG 17
Langarþig ekki í góðan sumarbústað? Svona einn alvöru.
Hefurðu hugleitt hvað sumarhúsið getur orðið notalegt í vetrarkyrrðinni líka...
Sýnum fullinnréttað frístundahús í Brautarholti laugardag og sunnudag kl. 13 til 17 og aðra
daga á verslunartíma.
6 ára góð reynsla ííslenskri veðráttu.
ELDASKÁLINN
Brautarholtl 3, 105 R.
S 621420
ÚTVARP/SJÓNVARP
lllllllllll
©
Rás I
FM 92,4/93,5
Laugardagur
9. júlí 1
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Valdimar Hreiðars-
son flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 „Góðan dag, góðir hlustendur“ Pétur Pét-
ursson sér um þáttinn. Fréttir á ensku kl. 7.30.
Fréttir sagöar kl. 8.00, þá lesin dagskrá og
veðurfregnir sagðar kl. 8.15. Að þeim loknum
heldur Pétur Pétursson áfram að kynna morg-
unlögin fram að tilkynningalestri laust fyrir kl.
9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund barnanna. Umsjón: Gunnvör
Braga. (Einnig útvarpað um kvöldið kl. 20.00).
9.20 Morguntónleikar.
10.00 Fróttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir
10.25 Ég fer í fríið. Umsjón: Inga Eydal. (Frá
Akureyri)
11.00 Tilkynningar.
11.05 Vikulok. Fréttayfirlit vikunnar, hlustenda-
þjónusta, viðtal dagins og kynning á dagskrá
Útvarpsins um helgina. Umsjón: Sigrún Björns-
dóttir.
12.00Tilkynningar. Dagskrá.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir.
13.10 í sumarlandinu með Hafsteini Hafliðasyni.
(Einnig útvarpað nk. miðvikudag kl. 15.03).
14.00 Tilkynningar.
14.05 Sinna. Þáttur um listir og menningarmál.
Umsjón: Magnús Einarsson og Þorgeir Ólafs-
son.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Óperukvnnina - Rigoletto eftir Guiseppe
Verdi.
18.00 Sagan: „Hún ruddi brautina“ Bryndís Víg-
lundsdóttir þýddi, samdi og les (10).
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Óskin. Þáttur í umsjá Jónasar Jónassonar.
(Einnig útvarpað á mánudagsmorgun kl. 10.30).
20.00 Morgunstund barnanna. Umsjón: Gunnvör
Braga. (Endurtekin frá morgni).
20.15 Harmoníkuþáttur. Umsjón: Einar Guð-
mundsson og Jóhann Sigurðsson. (Einnig út-
varpað á miðvikudag kl. 14.05).
20.45 Land og landnytjar. Umsjón: Finnbogi Her-
mannsson. (Frá Isafirði) (Einnig útvarpað á
föstudag kl. 15.03).
21.30 íslenskir einsöngvarar. Sólrún Bragadóttir
syngur norræna og franska söngva. Jónas
Ingimundarson leikur á píanó.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Stund með P.G. Wodehouse. Hjálmar
Hjálmarsson les söguna „Frænkur eru frændum
verstar" úr safninu „Áfram Jeeves" eftir P.G.
Wodehouse. Sigurður Ragnarsson þýddi.
23.25 Danslög.
24.00 Fréttir.
00.10 Um lágnættið. Sigurður Einarsson kynnir
sígilda tónlist.
01.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
i&
FM 91,1
02.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af
veðri og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
8.10 Á nýjum degi. með Erlu B. Skúladóttur sem
leikur létt lög fyrir árrisula hlustendur, lítur í
blöðin og fleira.
10.05 Nú er lag. Gunnar Salvarsson tekur á móti
gestum í morgunkaffi, leikur tónlist og kynnir
dagskrá Ríkisútvarpsins.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á réttri rás með Halldóri Halldórssyni.
15.00 Laugardagspósturinn. Umsjón: Rósa
Guðný Þórsdóttir.
17.00 Lög og létt hjal. - Svavar Gests.
19.00 Kvöldfróttir.
19.30 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 Út á llfið. Pótur Grótarsson ber kveðjur milli
hlustenda og leikur óskalög.
02.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og
sagðar fréttir af veðri og flugsamgöngum kí.
5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl.
4.30.
Fréttir kl. 2.00,4.00,7.00,8.00,9.00,10.00,12.20,
16.00,19.00, 22.00 og 24.00.
SJÓNVARPIÐ
Laugardagur
9. júlí
17.00 íþróttlr.
18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Prúðuleikararnir (Muppet Babies) Teikni-
myndaflokkur eftir Jim Henson. Þýðandi Guðni
Kolbeinsson.
19.25 Smellir. Umsjón Ragnar Halldórsson.
19.50 Dagskrárkynning.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Lottó.
20.40 Fyrirmyndarfaðir (Cosby Show) Þýðandi
Guðni Kolbeinsson.
21.10 Maður vikunnar.
21.25 Svengali. (Svengali) Bandarísk bíómynd frá
1983. Leikstjóri Anthony Harvey. Aðalhlutverk
Peter O’Toole, Jodie Foster, Elizabeth Ashley
og Larry Joshua. Söngkennari tekur að sér að
þjálfa unga rokksöngkonu og ætlar sér að gera
hana að stjörnu. Hann svífst einskis til að ná
tilætluðum árangri og áður en langt um líður er
unga stúlkan orðin algjörlega háð kennara
sínum. Þýðandi Reynir Harðarson.
23.00 Allt önnur saga. (A Different Story) Banda-
rísk bíómynd frá 1978. Leikstjóri Paul Aaron..
Aðalhlutverk Perry King og Meg Foster. Hommi
og lesbía ákveða að ganga í hjónaband þegar
vísa á öðru þeirra úr landi. Það hefur ýmsar
ófyrirséðar afleiðingar í för með sér. Þýðandi
Þorsteinn Þórhallsson.
00.45 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
srm
Laugardagur
• 9. júlf
09.00 Með Körtu. Kart’askemmtir og sýnir börnun-
um stuttar myndir: Kátur og hjólakrílin, Lafði
Lokkaprúö, Yakari, Júlli og töfraljósið, Depill, I
Bangsalandi, Selurinn Snorri og fleiri teikni-
myndir. Gagn og gaman, fræðsluþáttaröð.
Allar myndir sem börnin sjá með Körtu eru með
íslensku tali. Leikraddir: Guðmundur Ólafsson,
Guðný Ragnarsdóttir, Guðrún Alfreðsdóttir,
Guðrún Þórðardóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Júl-
íus Brjánsson, Kolbrún Sveinsdóttir, Randver
Þorláksson og Saga Jónsdóttir._________________
10.30 Kattanórusveiflubandið. Cattanooga Cats.
Teiknimynd. Þýðandi: Ágústa Axelsdóttir.
11.10 Henderson krakkarnir. Leikinn myndaflokk-
ur fyrir börn og unglinga. Systkini og borgarböm
flytjast til frænda síns upp í sveit þegar þau
missa móður sína. Þýðandi: Gunnar Þorsteins-
son.
12:00 Viðskiptaheimurinn Wall Street Journal
Endursýndur þáttur frá fimmtudeginm 7. júlí.
12.30 Hlé.
13.30 Laugardagsfár. Tónlistarþáttur. Plötusnúð-
urinn Steve Walsh heimsækir vinsælustu
dansstaði Bretlands og kynnir nýjustu popplög-
in. Musicbox 1988.
14.35 Á gelgjuskeiði. Mischief. Myndin segir frá
nokkrum unglingum á sjötta áratugnum þegar
miklar breytingar voru í aðsigi. Þá kom Elvis
Preslley fram á sjónarsviðið, tískan breyttist og
tíðarqndinn með. Aðalhlutverk: Doug McKeon,
Catherine Mary Stewart, Kelly Preston og Chris
Nash. Leikstjóri er Mel Damski. Þýðandi: Ragn-
ar Ólafsson. 20th Century Fox 1985. Sýningar-
tími 95 mín.
16.10 Listamannaskálinn. The South Bank Show.
Söngkonan og lagasmiðurinn Suzanne Vega er
líklega best þekkt hérlendis fyrir lag sitt „Luka“
en um hana hefur verið sagt að hún hafi flutt
poppheiminum Ijóðlistina á nýjan leik. Við
nánari kynni kemur þó í Ijós að söngkonan hefur
ekki mjög háar hugmyndir um sjálfa sig. í
þættinum flytur Suzanne Vega nokkur af þekkt-
ustu lögum sínum í sérstakri útsetningu og
fylgst er með henni á hljómleikum. Síðari hluti
þáttarins er tileinkaður listagagnrýnandanum
Frank Rich sem starfar við „The New York
Times“. Rich er valdamikill maður í listaheimin-
um því að með einni setningu getur hann komið
því til leiðar að sýningar sem hafa verið
uppfærðar með mikilli fyrirhöfn og ærnum
tilkostnaði eru samstundis stöðvaðar. Samtal
þeirra Melvyn Bragg er hið fróðlegasta enda
lætur gagnrýnandinn sér ekkert óviðkomandi
og umræðuefnið spannar allt frá lóðabraski
miðstéttafólks í Bandaríkjunum til menningar-
áhrifa hins illræmda sjúkdóms alnæmis. Þýð-
andi: örnólfur Ámason. Umsjónarmaður er
MelvinBragg. LWT.
17.15 íþróttirá laugardegi. Litið yfir íþróttir helgar-
innar og úrslit dagsins kynnt. islandsmótið, SL
deildin, NBA karfan og fréttir utan úr hinum stóra
heimi. Umsjón: Heimir Karlsson.____________
19.1919.19 Fréttir, veður, iþróttir, menning og
listir, fréttaskýringar og umfjöllun. Allt í einum *
pakka.
20.15 Ruglukollar. Marblehead Manor. Snarrugl-
aðir, bandarískir þættir með bresku yfirbragði.
Það krefst mikillar umhyggju að vera eigandi
glæsilegs sveitaseturs enda fer allur tími og öll
orka Stonehill-hjónanna í að hafa stjóm á
þjónustuliði sínu og kljást við þann vanda sm
því fylgir að vera vellauðugur. Aðalhlutverk:
Bob Fraser, LindaThorson, Phil Morris, Rodney
Scott Hudson og Paxton Whitehead. Þýðandi:
Ragnar Hólm Ragnarsson. Paramount.
20.45 Hunter. Spennuþáttur um leyni-
lögreglumanninn Hunter og samstarfskonu
hans Dee Dee MacCall. Þýðandi: Ingunn Ing-
ólfsdóttir. Lorimar.___________________________
21.35 Hooper. Vöðvabúntið Hooper er ráðinn til
starfa sem staðgengill kvikmyndaleikara í
glæfralegum leiðatriðum. Fyrsta atriðið sem
hann tekst á við lofar góðu en gamalt mein í baki
segir til sín og eru kvalimar deyfðar með lyfjum.
í kvikmyndaverinu eignast hann harðan keppi-
naut og í tvísýnni keppni reyna þeir hæfileika
sína. Það eru fima góðir leikarar sem fara með
aðalhlutverkin í þessari skemmtilegu spennu-
mynd. Aðalhlutverk: Burt Reynolds, Jan-Micha-
el Vincent og Sally Field. Leikstjóri: Hal Ne-
edham. Framleiðndi: Hank Moonjean. Wamer
1978. Sýningartími 100 mín.
23.15 Dómarinn. Night Court. Gamanmyndaflokk-
ur um dómarann Harry Stone sem vinnur á
næturvöktum í bandarískri stórborg og nálgast
sakamál á óvenjulegan máta. Aðalhlutverk:
Harry Anderson, Karen Austin og John Larroq-
uette. Þýðandi: Gunnar Þorsteinsson. Wamer.
23.40 Psycho III. Psycho, myund Alfreds
Hitchcoks, sem frumsýnd var árið 1960 er
sannariega einhver magnaðasta og eftirminni-
legasta hrollvekja sem gerð hefur verið. Eftirlík-
ing einstakra atriða þessa meistaraverks tíðkast
enn þann dag í dag, þó kvikmyndaleikstjórinn
Richard Franklin hafi ekki farið þá leið þréttán
árum síðar við gerð Psycho II. Norman Bates
birtist nú í Psycho III, átján árum frá Psycho
Hitccoks, ásamt „rnóður" sinni og afskekkta
Bates mótelinu, þar sem gestir eru ævinlega
velkomnir. Anthony Perkins er að vanda í
aðalhlutverki og á í þetta sinn einnig heiðurinn
af leikstjóminni. Aðalhlutverk: Anthony Perkins,
Diana Scarwood, Jeff Fahey og Roberta
Maxvell. Leikstjóri: Anthony Perkins. Framleið-
andi? Hilton A. Green. Universal 1986. Sýning-
artími 95mín. Alls ekki við hæfi barna.
01.15 Englaryk. Angel Dusted. Ungur piltur ánetj-
ast fíknilyfjum og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
gengur honum erfiðlega að losa sig úr viðjum
fíkninnar. Myndin lýsir vel því hugarangri og
þeim sálakvöldum sem eiturlyfjaneysla eins
fjölskyldumeðlims hefur á alla fjölskylduna.
Aðalhlutverk: Jean Stapleton, Arthur Hill og
John Putch. Leikstjóri: Dick Lowry. Framleið-
andi: Marían Rees. Warner 1981. Sýningartimi
95 mín.
02.50 Dagskrárlok.