Tíminn - 16.08.1988, Qupperneq 2

Tíminn - 16.08.1988, Qupperneq 2
2 Tíminn cpp • 4 \ ■; i » ♦ t j v ' Þriöjudagur 16. águst 1988 Sjúkrahús Keflavíkur: Svæfingalækni vantað í 2 ár Keflavíkurlæknishérað hefur aug- lýst stöðu svæfingalæknis í um tvö ár án árangurs. Á sjúkrahúsinu er vel útbúin skurðstofa, en ef svæfinga- lækninn vantar er lítið hægt að framkvæma þar. Hefur þetta verið leyst með aukastörfum svæfinga- lækna frá Reykjavík. Um árabil hefur verið nokkuð um það að sjúklingar sem gera hefur þurft minniháttar aðgerðir á, eða sem komið hafa á heilsugæsluna með minni háttar meiðsl hafa verið sendir inn til Reykjavíkur, þrátt fyrir að sex læknar starfi á heilsugæslustöð- inni og þar sé vakt allan sólarhring- inn. Rætt var við Ólaf Björnsson, stjórnarformann Sjúkrahúss Kefl- avíkurlæknishéraðs og hann spurður um vanda sjúkrahússins. Hann sagði að sæmilega hefði gengið að manna hjúkrunar- og sjúkraliðastöðurnar í sumar. Skurðstofunni hefði verið lokað yfir sumartímann síðustu ár, og væri ástæðan sú að afleysingafólk vantaði. Heilbrigðisráðherra skipaði í vet- ur nefnd til að veita ráðgjöf um hagræðingu í rekstri sjúkrahúsa. Sagði Ólafur að þeir hjá Sjúkrahúsi Keflavíkur hefðu átt von á að fá ábendingar þessarar nefndar um miðjan apríl síðastliðinn en hafi ekkert heyrt frá henni ennþá. SH SKÚLAGATAN er heldur betur að breyta um svip, gömul hús eru rifin og ný eru á leiðinni í staðinn. Bílstjórar neyðast til að taka aukahring um hringtorgið því þeir gleyma því að umferðin er ekki lengur í báðar áttir, og gamli bragginn við Skúlagötuna, þar sem þessir sömu bilstjórar fylltu á bensíntanka sína, víkur nú fyrir nýrri bensínstöð sem búið er að byggja aðeins austar við götuna. Tímamynd:Pjetur. löntæknistofnun íslands: Upplýsingaþjónusta á sviði umbúðamála Iðntæknistofnun Islands hcfur nú hleypt af stokkunum upplýs- ingaþjónustu á sviði umbúðamála með það að markmiði að auka þekkingu á umbúðum og flutning- um og byggja upp gagnabanka sem nýst getur íslenskum fyrirtækjum. Það er rekstrartæknideild Iðn- tæknistofnunar sem sér um um- búðaþjónustuna. Samstarf er í gangi við Umbúða- og llutninga- stofnunina í Danmörku til að ís- lensk fyrirtæki eigi þar greiðari aðgang að tækjakosti til prófunar á umbúðum sínunt. Þá hefur Iðn tæknistofnun gerst aðili að Sam- tökum umbúðastofnana á Norður- löndum. 1 fréttatilkynningu frá Iðntækni- stofnun segir að ætlunin sé á næst- unni að gefa út fréttabréf með ■ völdum greinum um umbúðamál auk þess sem fyrirtæki eigi kost á upplýsingum um ákveðin efni úr gagnabankanum. iðntæknistolnun mun skipu- leggja hópferð umbúðaframleið- enda og -notenda á sýninguna Scanpack 88, sem fram fer í Gauta- borg í Svíþjóð í október nk. I framhaldi af því verður ferðinni haldið áfram yfir til Danmerkur og danska umbúðastofnunin og fyrir- tæki á þessusviði m.a. heimsótt. óþh Horft í norðurátt frá Skógeyjarskerí.Á Skógeyjarsvæði var sáð í 250 ha.í vor. Búið er að sá í og bera á um 2000 ha. á þessu svæði síðan varnargarðar voru byggðir við Hornafjarðarfljót og Hoffellsá. Tímamynd:Agnar.. Landgræðsla við Skógey í Hornafirði: 1200 HEKTARAR GRÆDDIR UPP Miklar landgræðsluframkvæmdir hafa staðið yfir á Skógeyjarsvæðinu í Hornafirði undanfarin ár og er nú svo komið að þar sem áður var örfoka sandur, hefur gróður tekið við á um 1200 ha. sem grætt hefur verið upp, auk þess sem borið hefur verið á til að styrkja þann gróður sem fyrir er á um 800 hekturum. Áfok af Skógeyjarsvæðinu á Höfn var oft svo mikið að loka varð fískvinnslunni og ekki var hægt að hafa opna glugga á húsum vegna sandfoks. Eftir að byrjað var á byggingu varnargarða við Hornafjarðarfíjót og Hoffellsá samhliða landgræðslu á svæðinu á inilli ánna, hefur tekist að græða upp landið að miklu leyti og koma þannig í veg fyrir frekara sandfok og gróðureyðingu. Fyrstu sandgræðsluaðgerðir í Austur-Skaftafellssýslu má rekja allt aftur til 1884 þegar sr. Sveinn Eiríks- son á Sandfelli hóf ræktun á um einum hektara lands. Hins vegar verða kaflaskil í landgræðsluaðgerð- um með tilkomu þjóðargjafarinnar 1974. Uppgræðsla Skógeyjarsvæðis- ins var eitt af þeim verkefnum sem sérstaklega var tilgreint í land- græðsluáætlun I 1974 til 1979 og einnig í síðari landgræðslu- og land- verndaráætlunum II og III fyrir árin 1982-1986 og 1987-1991. Hér er um að ræða umfangsmikið, samverk- andi landgræðsluverkefni. Fyrst : varð að beisla vötnin sem ýmist i flæmdust um allt svæðið frá þjóðvegi og suður að Skógey, eða þá að svæðið var allt þurrt þegar lítið var í. vötnum með tilheyrandi sandfoki og gróðureyðingu. Ljóst var að fyrir- hleðslur við Hornafjarðarfljót og Hoffellsá myndu leiða af sér aukna hættu á sandfoki nema jafnóðum væri hægt að rækta gróður og landið þornaði. Frá árinu 1982 hafa verið byggðir varnargarðar austan og vestan Hornafjarðarfljóts og austan og vestan við Hoffellsá, samtals um 15 km. að lengd, auk þess sem grafinn var 12 metra breiður og 4,2 km langur stokkur fyrir Hoffellsá. Með þessum varnargörðum hcfur tekist að koma í veg fyrir að árnar fari úr farvegi sínum og landið á milli þeirra ræktað upp í áföngum. Samtals hef- ur verið sáð og borið á um 2000 hektara lands á Skógeyjarsvæðinu. VISA ísland fagnaði fimm ára afmæli sínu fyrr í vikunni en það var stofnað 8. ágúst 1983. Óhætt er að segja að íslendingar hafi tekið vel á móti VISA því samkvæmt upplýs- ingum frá VISA ísland lætur nærri að um 70% h£imila í landinu noti sér þessa þjóhustu. VISA-kortin eru nú um 100 þúsund talsins og á hverjum tíma eru um 80.000 þeirra í virkri notkun. Það er mat þeirra sem að þessum framkvæmdum standa, að þegar búið er að fullgera þá varnargarða sem þegar hafa verið byggðir, sé hægt að halda áfram uppgræðslu á Skógeyjarsvæðinu. Menn merkja að eftir að Skógey er tekin að gróa upp að nýju hefur fuglalíf á eynni aukist jafnt og þétt, þó ekki sé enn vitað um hreiðurgerð. Búist er við að stór hluti þessa svæðis muni síðar meir breytast í mýrarflóa, vegna lágrar stöðu og ætti því að verða athvarf votlendisfugla. Einnig merkja menn aukna fiskgengd í Hoffellsá, eftir að henni var veitt í þrengri farveg. Sérstaklega athyglisvert er hve oft íslendingar nota VISA-kortin sín í samanburði við útlendinga, en VIS A tengist VISANET sem er alþjóðlegt greiðsluskiptakerfi. Korthafar í heiminum nota kortið sitt að meðal- tali þrisvar sinnum í mánuði. íslend- ingar með kort nota hins vegar kortið sitt að meðaltali 10 sinnum í mánuði, eða meira en þrisvar sinn- um oftar en gengur og gerist annars staðar. -ABÓ VISA ísland fimm ára um þessar mundir: íslendingar nota VISA kortin oftar en aðrir Keyrt á lögguna.Smávægilegur árckstur lögreglubifreiðar og fólksbíls varð á mótum Bæjarbrautar og Hraunbæjar á föstudag. Lögreglubifreiðin var þó í fullum rétti því fólksbifreiðin virti ekki biðskyldumerki. Átta lögreglubifreiðar voru teknar úr umferð á dögunum sökum lélegs ástands og hér bætist sú níunda í liópinn. -gs Tímam) VISA fsland hefur á sínum 5 ára ferli stöðugt verið að bæta við þjón- ustu sína og enn er von á nýjungum frá fyrirtækinu. T.d er nú unnið að því að koma upp svokölluðum búða- og símskanna, sem færslum og upp- lýsingum um heimildir er miðlað til verslana og annarra þeirra sem taka VISA í gegnum tölvutengsl, þannig að pappírsflóð minnka^mikið. f stjórn VISA eiga sæti fulltrúar eigenda fyrirtækisins sem eru fimm bankar og 13 sparisjóðir. Núverandi stjórn skipa Jóhann Ágústsson frá Landsbanka, Sólon R. Sigurðsson frá Búnaðarbanka, Sigurður Haf- stein frá Samb. ísl. sparisjóða, Gunnar Sigurjónsson frá Samvinnu- bankanum, Flalldór S. Magnússon frá Iðnaðarbanka og Ólafur St. Ottósson frá Alþýðubanka. Framkvst. er Einar S. Einarsson. -BG

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.