Tíminn - 18.08.1988, Síða 6

Tíminn - 18.08.1988, Síða 6
6 Tíminn Fimmtudagur 18. ágúst 1988 Fegrunarnefnd Hafnarfjaröar: Vesturvangur valin stjörnugata Vesturvangur var valin stjömugata Hafnarfjarðar árið 1988. Sævangur 1 fékk viðurkenningu fyrir fagran garð þar sem tillit er tekið til hraunsins og íslensku flórunnar. Fyrr í vikunni veitti fegrunarnefnd Hafnarfjarðar árlega viðurkenningu sína fyrir fallega garða, snyrti- mennsku og fegrun. Hafnflrðingar höfðu ekki þann háttinn á að velja úr einn garð sérstaklega heldur voru valdir úr nokkrir garðar víðsvegar í bænum sem eru mismunandi að gerð og uppbyggingu. Jafnframt var veitt viðurkenning fyrir fallega uppgert gamalt hús og hlutu Sigríður Harðardóttir og Páll V. Bjarnason, Holtsgötu 4, þann heiður. Esso, Lækjargötu 46, fékk líka viðurkenningu fyrir góðan frá- gang á byggingu og lóð, Vesturvang- ur var valin stjörnugata Hafnarfjarð- ar 1988. Einnig var Kristjáni Inga Gunnarssyni veitt sérstök viður- kenning fyrir frábær störf. Þeir sem fengu viðurkenningu fyr- ir garða sína voru þessir: Reykjavíkurvegur 10, fyrir sérlega fallegan og snyrtilegan garð í gömlu hverfi. Eigendur eru Ágústa Hann- esdóttir og Hallgrímur Steingríms- son. Suðurvangur 9, fyrir fallegan og vel skipulagðan garð sem fellur vel að húsi. Eigendur eru fris Dungal og Elín Eggerz Stefánsson og Árni Friðflnnsson í garði sínum að Herjólfsgötu 10. Tímamyndir Gunnar Ágústa Hannesdóttir og Hallgrímur Steingrímsson í garði sínum að Reykjavíkurvegi 10. Guðmundur Þ. Pálsson. Sævangur 1, fyrir fagran garð, þar sem sérstakt tillit er tekið til hrauns- ins og íslensku flórunnar. Eigendur eru Ingibjörg Sigurðardóttir og Árni Hjörleifsson. Sævangur 3, fyrir fagran garð, þar sem sérstakt tillit er tekið til hrauns- ins og íslensku flórunnar. Eigendur eru Stefanía Jónsdóttir og Jón Guðmundsson. Erluhraun 8, fyrir hlýlegan og falleg- an garð í áraraðir. Eigandi er Rósa Loftsdóttir. Suðurhvammur 1, fyrir stílhreinan og afar vel hirtan garð. Eigendur eru Ingunn Þorsteinsdóttir og Guðjón Valdimarsson. Herjólfsgata 10, fyrir snyrtilegan og gróskumikinn garð unninn við erfið ræktunarskilyrði. Eigendur eru Elín Eggerz Stefánsson og Árni Frið- finnsson. Manni bjargað við Látrabjarg Saga lífríkis og gjóskutímatal í Syðriflóa Mývatns í nýútkominni skýrslu Náttúru- verndarráðs um Mývatn er fjallað um rannsóknir á 6,53 metra löng- um borkjarna sem tekinn var úr botnseti Mývatns í janúar 1985. Kjarninn var tekinn í sunnanverð- um Syðriflóa. Höfuðmarkmið rannsóknanna var að fá yfirlit yfir lífríki Syðriflóa þegar hann var dýpri en hann nú er. Með því móti er talið að vitneskja fáist um áhrif dýpkunar af völdum kísilgúrtöku. Kísilgúr hefur verið numinn úr Mývatni í tvo áratugi. Botnseti er dælt á land og það hreinsað og þurrkað. Innan skamms verður tekin ákvörðum um hvort hefja eigi kísilgúrtöku úr Syðriflóa, en hún hefur hingað til verið bundin við Ytriflóa. Þessir tveir flóar eru tengdir saman af mjóu sundi og er lífríki þeirra ólíkt. Ef hægt er að fá upplýsingar um líf í vatninu fyrr á öldum þegar setlögin höfðu ekki hlaðist upp og vatnið var dýpra, er talið að sjá megi fyrir áhrif dælingar í Syðriflóa. Lífssaga Syðriflóa hef- ur nú verið rakin með greiningu á leifum lífvera í seti. Dýpkun Syðriflóa Mývatns mun rýra stofn grænþörungsins Clado- phora. Nær fullvíst er að í kjölfarið muni stofnar nokkurra botndýra minnka, einkum mýflugunnar Psectrocladius og kornátu, sem er krabbadýr. Þessar dýrategundir eru afar þýðingarmikil fæða vatna- fugla og silungs. Stofnar mýflug- unnar Tanytarsus og svifkrabbans langhalaflóar munu stækka. Um frekari breytingar í kjölfar dýpkun- ar er erfitt að spá fyrr en ljóst verður hvað orsakaði lífríkisbreyt- inguna á 1.-7. öld e.Kr. Rannsóknir á borkjarnanum voru gerðar að tilhlutan Náttúru- rannsóknastöðvarinnar við Mývatn. SH Manni á sex tonna trillu, Blæ, var bjargað naumlega rétt áður en trilla hans sökk. Hann var einn um borð. Maðurinn var staddur um fimm- tán sjómílursuðvesturaf Látrabjargi þegar mikill leki kom að bátnum. Um tíu leytið barst Slysvarnarfélag- inu hjálparbeiðni. Hildur RE 123, tíu tonna bátur sem staddur var tvær Um kl. 13:30 í gær var ekið á tvo gangandi vegfarendur við umferð- arljós á Glerárgötu á Akureyri. Bremsur á bifreið sem kom keyr- andi eftir götunni biluðu með þeim afleiðingum að bifreiðin fór bremsu- laus yfir á rauðu ljósi og tveir vegfarendur urðu fyrir henni. Annar vegfarandinn var fluttur á gjörgæslu en hinn liggur viðbeins- brotinn á sjúkrahúsi. sjómílur frá trillunni, heyrði kallið og fór þegar á staðinn. Stuttu seinna var trillukarlinum bjargað heilu og höldnu upp í Hildi. Og mátti vart tæpara standa því skömmu síðar sökk Blær. Farið var með manninn til Rifs og gekk björg- uninmjögvel. -gs Bifreiðin var ekki á mikilli ferð. Talið er að bremsuvökvi í bifreiðinni hafi skyndilega klárast. 1 Reykjavík var keyrt á gangandi vegfaranda á mótum Hverfisgötu og Klapparstígs um kl. 14:00 í gær. Vegfarqndinn, sem varkona, meidd- ist á fæti og var flutt á slysadeild. Bifreiðin var á eðlilegum hraða. -gs Umferöarslys á Akureyri: Yfir á rauðu og ók á tvo

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.