Tíminn - 18.08.1988, Page 12

Tíminn - 18.08.1988, Page 12
12 Tíminn ——— FRÉTTAYFIRLIT . Islamabad - Forseti Pak-i ' istan Mohammad Zia-ul-Haq[ lést í gær, er flugvél hansf' hrapaði rétt fyrir utan borgina j Multan. Forsetinn var 64 áraij gamall og hafði verið við völd'! síðan 1977. | í ' London - Verkalýðsfélög í! Bretlandi hafa boðist til að i greiða lækniskostnað blökku- j mannaleiðtogans Nelsons; Mandela, með því skilyrði að honum verði sleppt og sendur1 á sjúkrahús í Bretlandi. Mand- ela sem er sjötugur að aldri, l þjáist af berklum. Hann var' dæmdur í lífstíðarfanqelsi árið 1964 fyrir tilraun til ao steypa stjórn hvíta minnihlutans í Suður-Afríku. Jastrzebie - Fjögur hundr- uð kolanámumenn hófu í gær verkfall í suðurhluta Póllands til að sýna 3000 námamönnum sem hófu verkfall í fyrradag, stuðning sinn. Námamennirnir krefjast þess að hin ólögleqa verkalýðshreyfing, Samstaða hljóti viðurkenningu. Beirút - Gífurleg spenna. ríkti í Líbanon í gærog vopnuð átök virtust vera á næsta leiti þar sem kristnir öfgamenn hót- uðu að grípa til vopna til að koma í veg fyrir að Suleiman Franjieh, sem lengi hefurverið studdur af Sýrlendingum, verði kosinn. Hersveitir kristinna, manna í Líbanon(LF) hvöttu stjórn landsins til að mæta ekki á þingið, en þar á að kjósa forseta á morgun. Khartoum - stjórnvöid í Súdan hófu í gær brottflutning, fólks frá Khartoum, höfuðborg landsins þar sem gífurleg. flóðahætta ríkir. Peking - Leiðtogi kínverska: kommúnistaflokksins Zhao Ziayang segir að Skæruliða- samtök Rauðra khmera ættu: ekki að komast aftur til valda í; Kampútseu eftir að herlið Víet-! nama væru farin á brott.j Skæruliðasamtök Rauðrai khmera hafa lagt fram tillögu í, fjórtán liðum um að koma á: friði í Kampútseu. Singapore - Boðað hefur verið til kosninga í Singapore í, næsta mánuði, 15 mánuðum áður en áætlað var. Tímasetn-; ingin kemur ekki á óvart þari sem efnahagur landsins er mjög góður, laun há, verðbólga lítil og atvinnuleysi óverulegt. Stjórnarflokkurinn mun því; væntanlega styrkja stöðu sínai í kosningunum. London - Hersveitir ísra-l elsmanna hafa misþyrmt þús- undum Palestínumanna á; hernumdu svæðunum á síö-i ustu átta mánuðum og aðj minnsta kosti átta manns hafa; látið lífið, segir í nýrri skýrslu! sem Amnesty International, al- þjóðleg baráttusamtök fyrir' mannréttindum hafa sent frá ■ sér. Fimmtudagur 18. ágúst 1988 illlllllllllllllllillllli ÚTLÖND lllllllllllllllllllllllllllillllllilllllilll Vopnahlé í augsýn á Persaflóa: Efnahagur hins vegar í molum Formlegt vopnahlé milli írana og fraka tekur gildi næstkomandi laug- ardag og stjórnvöld í Teheran ein- beita sér nú að því að finna lausn á því hvernig bæta megi efnahag landsins, scm er í rúst eftir átta ára styrjöld. Haft er eftir embættismönnum í fran að fyrir utan þann gífurlega mannskaða, sem orðið hefur í stríð- inu á Persaflóa, hafi stríðið lamað efnahag landsins og skapað óyfir- stíganleg vandamál. Ríkisstjórn landsins hefur þegar komið saman til að reyna að finna lausn á því hvernig enduruppbygg- ing geti farið fram. Vestrænir stjórn- arerindrekar segja að áætlunin sem stjórn landsins hafi í huga byggist á þeirri ósk frana að verða fjárhags- lega sjálfstæðir og grundvallist því á litlum verkefnum sem þeir geti fjár- magnað sjálfir, í þeim tilgangi að koma verksmiðjum í gang á ný, endurbyggja heimili og koma lífi í landbúnaðinn. Stjórnarerindrekar segja að 30% landsmanna séu atvinnulausir eða um það bil fjórar milljónir og verð- bólga sé hátt í 70%. Áætlað er að sala á olíu, sem er helsta uppistaða efnahags landsins, færi sjö milljarða dollara í ríkiskass- ann í ár, sem er lægsta upphæð sem heyrst hefur um áraraðir. Á móti kemur hins vegar að ekki mun þurfa jafn mikið fé í stríðsrekstur. IDS Stjóm landsins hefur komið saman til að finna ráð til að leysa úr efnahagsvandanum. Meira en helmingur selastofnsins orðinn plágunni að bráð: Um 130 selir Ástandið í stórum hluta Norður- sjávar og Eystrasalts, þar sem selir og aðrar lífvcrur sjávar hafa drepist unnvörpum að undanförnu, er miklu vcrra cn talið var, að sögn sænskra vísindamanna. Pessar upplýsingar komu fram í skýrslu scm kynnt var á ncyðarfundi í Stokkhólmi sem haldinn var í tilefni þessarar miklu piágu. Fund- inn sóttu starfsmenn umhverfismála frá 14 löndum. „Seladauðinn er áhrifarík viðvör- un til okkar allra. Okkar helsta verkefni núna er að finna leið til að ráða niðurlögum vandans og það er ekki einungis verk umhverfisráðu- neyta, heldur verða ríkisstjórnirnar í hcild að reyna að finna lausn,“ sagði ingvar Carlsson forsætisráð- herra Svía. Talið cr 3.300 selir hafi orðið plágunni að bráð við vesturströnd Svíþjóðar, en það er meira en helm- i ngur selastofnsins á þessum slóðum. „Þetta er miklu verra en við George Bush forsetaframbjóðandi repúblikana hefur valið Dan Quayle - öldungardeildarþingmann sem varaforsctaefni sitt. deyja á viku héldum," sagði Tero Herkonen líf- það bil 130 dauðum selum skolaði á fræðingur. Hann bætti því við að um land í viku hverri. IDS Bush velur sér varaforsetaefni George Bush forsetaframbjóð- andi Repúblikanaflokksins hefur valið sér varaforsetaefni, J. Dan- forth Quayle öldungardeildarþing- mann frá Indiana. Dan Quayle sem hefur setið í öldungadeild Bandaríkjaþings í átta ár'nýtur stuðnings íhaldssamari rep- úblikana og herma fregnir að hann sé þekktari fyrir glæsilegt útlit en þá stefnu sem hann fylgir. Áður en Quayle tók sæti í öld- ungadeildinni hafði hann setið tvö ár í fulltrúadeildinni, en bauð sig fram til öldungadeildar árið 1980 á móti einum efnilegasta frambjóðanda Demókrataflokksins og vann óvænt- an sigur, þá aðeins 33 ára að aldri. Þann tíma sem hann hefur setið á þingi hefur hann einbeitt sér að utanríkis-, hernaðar- og efnahags- málum og hefur ávallt lagt mikla áherslu á sterkar varnir Bandaríkja- manna. „Ég hef valið þennan framúrskar- andi öldungadeildarþingmann til að vera varaforsetaefni mitt í væntan- legum kosningum. Hann er leiðtogi í málum er varða þjóðaröryggi. Hann erbrautryðjandi,“ sagði Bush, er hann kom til New Orleans upp Mississippi ána með fljótabáti. Eiginkona varaforsetaefnisins heitir Marilyn Quayle og eiga þau þrjú börn. IDS Vísindamenn risavelda Bandarískir og sovéskir vísinda- ntenn lögðu í gær lokahönd á undir- búning sameiginlegra kjarnorkutil- rauna í Nevadaeyðimörkinni með það að markmiði að með tímanum fái staðfestingu tveir samningar um tilraunabann á kjarnorkuvopnum, sem gerðir voru 1973 og 1976. Kjarnorkutilraunin sem gerð var neðanjarðar er önnur tveggja sem Bandaríkjamenn og Sovétmenn hafa fallist á að framkvæma í samein- ingu til að finna áreiðanlegar aðferð- ir við að sanna umfang kjarnorkutil- rauna hvor annars. Fyrirhugað er að síðari tilraunin verði gerð um miðjan september nálægt Semipalatinsk í Sovétríkjun- sprengja í sameinmgu um. „Veðrið er tilvalið núna til að framkvæma tilraunina og Jtað er allt tilbúið svo hún geti hafist," sagði Chris West talsmaður Orkustofnun- ar Bandaríkjanna. Sovésku vísindamönnunum var ekki tilkynnt nákvæmlega um eðli tilraunarinnar, en þeir fengu að koma upp ýmsum mælitækjum i grennd við tilraunastaðinn og á honum. Að sögn vísindamanna átti til- raunasprengingin að vera rétt merkj- anleg í Las Vegas, en tilraunastaður- inn er um 200 kílómetra norðvestur af borginni. IDS Lestarslys tíö í Sovétríkjunum á þessu ári: Kviknar í hraðlest á leið til Moskvu Eldur kom upp í sovéskri hraðlest eftir árekstur er hún var á leið frá Leningrad til Moskvu í gær, að sögn opinberu fréttastofunnar Tass þar í landi. Slysið átti sér stað um 250 kílómetra norðvestur af Moskvu, milli Berszaika og Poplavenets. Eldurinn kom upp í matsal lestar- innar og breiddist út á svipstundu, svo lestin var skömmu síðar alelda. Að sögn Tass fréttastofunnar var unnið að því í gær að koma slösuðum undir læknishendur. Ekki var getið um fjölda látinna farþega en ljóst er að margir urðu eldinum að bráð. Slæmt ástand vega í Sovétríkjunum kom í veg fyrir að slökkvilið kæmist að lestinni svo gripið var til þess ráðs að senda aðra lest með búnað til að ráða niðurlögum eldsins. Ekki tókst þó betur til en svo að lestin sem send var á staðinn varð vatnslaus, að sögn Tass fréttastofunnar. Nefnd hefur verið skipuð af sjórn landsins til að rannsaka orsök slyssins. 1 Lestarslys hafa, verið tíð í Sovét- ríkjunum undanfarið ár. í júní létu yfir 80 manns lífið er eldur kom upp í lest sem hlaðin var sprengiefnum, er hún kom inn á lestarstöðina í Arzamas, sem er iðnaðarborg fyrir austan Moskvu. Það var versta slys síðan í ágúst í fyrra er 106 manns létu lífið í lestarslysi. IDS

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.