Tíminn - 18.08.1988, Qupperneq 20
0
Auglýsíngadeild hannar
auglýsinguna fyrir þig
Okeypis þjónusta
RIKISSKIP
NUTIMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Tryggvagöfu,
S 28822
086300 Tíminn
Timinn
Um fjóröungs aukning á innflutningi lyfja milli 1986 og 1987:
Hvað hef ur orðið af 10
tonnum af f úkkalyfjum?
Hvað varð um rúmlega 10 viðbótartonn af fúkkalyfjum,
sem flutt voru til landsins árið 1987? Enginn vill kannast
við að hafi verið notuð, hvorki af mönnum né skepnum.
1 verslunarskýrslum Hagstof-
unnar var innflutningur „skráðra
sérlyfja sem innihalda fúkkalyf"
(antibíótíka) 36,5 tonn á árinu
1987. Það var rúmlega tíu tonna
aukningfrá árinu 1986, en innflutn-
ingur þessa lyfjaflokks var þá svip-
aður og næstu ár þar á undan.
Viðtöl við fólk í Tollinum, Hag-
stofunni og Lyfjaeftirliti rtkisins
færðu Tímann ekkert nær skýringu
á þessari miklu aukningu á inn-
flutningi fúkkalyfja.
Deildarstjóri í heilbrigðisráðu-
neytinu kom af fjöllum. Hann
kvaðst hins vegar geta fullyrt að
notkun fólks á þessum lyfjum hafi
a.m.k. fremur verið að minnka
heldur en að aukast - en aukningin
gæti varðað nýjustu búgreinina,
laxeldið.
Ðýralæknar voru álíka undrandi Helstufl. Tonn Tonn Tonn hvort umtalsverð aukning hafi
yfir spurningunni um þessi 10 við- 1982 1986 1987 kannski orðið á notkun annarra
bótartonn af fúkkalyfjum. Enda . ................................... lyfja en fúkkalyfja handa dýrum
reyndu þeir að hamla gegn notkun Fúkkalyf 25,8 27,3 38,1 eða fiskum þetta ár, svaraði yfir-
fúkkalyfja eins og mögulegt væri, Ö.skr.sérl. 163,4 155,8 165,3 dýralæknir neitandi.
og þarna væri ekki um neitt smá- Óskr.sérlyf 11,4 16,9 23,6 Innflutningsverð þessara 387
ræði að ræða. Þau fúkkalyf sem Lögbókarlyf 1,4 37,7 37,7 tonnaaflyfjum var um 838 milljón-
leyfthafiveriðaðblandaífiskafóð- Önnurlyf 54,8 60,5 105,5 ir króna, sem var 195 milljónum
ur, sem aðeins væri leyfð notkun á ................................. króna meira en árið áður. Aukning
undir ströngu eftirliti, skýri ekki Lyfsamtals: 277 313 387 er fyrst og fremst vegna meiri
þessi ósköp. ................................ innflutnings, en bein verðhækkun
Eftir 13% aukningu heildarinn- hefur aðeins verið rúm 5% að
Það voru þó ekki aðeins fúkka- flutnings á fjórum árum, 1982-86, meðaltali milli ára.
lyfin sem jukust stórlega í innflutn- verður síðan um 24% aukning á Miðað við 838 milljóna kr. inn-
ingsskýrslum á síðasta ári. Helstu einu ári, milli 1986-87. Auk mikill- flutningsverð er líklegt að lyfja-
liðir lyfjainnflutnings hafa verið ar aukningar fúkkalyfja er mest reikningur þjóðarinnar hafi ekki
sem hér segir á undanförnum árum áberandi 74% aukning á einu ári á ver‘ð 'angt undir 2.000 milljónum
í tonnum talið: flokknum önnur lyf. Spurninguum króna í fyrra. - HEI
Ingvar hlýtur
viðurkenningu
Ingvar Helgason, sem varð sex-
tugur fyrir skömmu, hlaut í gær
einstaka viðurkenningu frá austur-
þýskum yfirvöldum fyrir störf sín að
viðskiptum milli Austur-Þýskalands
og íslands. f hátíðarræðu af þessu
tilefni sagði Klaus Bredow, sendi-
ráðsritari A-Þýskalands, að í viður-
kenningarskjalinu fælist ekki ein-
ungis viðurkenning á þeim viðskipt-
um sem Ingvar Helgason hefur lagt
mikla rækt við í gegnum fyrirtæki
sitt, heldur og viðurkenning á störf-
um hans að eflingu og þróun al-
mennra viðskipta milli landanna.
Þar vegur þyngst seta hans í við-
skiptanefnd ríkjanna sem fulitrúi
Verslunarráðs íslands.
Viðurkenningunni fylgdi heið-
ursskjal frá Kammer fúr Aussen-
handel Þýska alþýðulýðveldisins og
sérstakt merki undir kjörorðinu:
„Viðskipti tengja þjóðir". Við af-
hendingu viðurkenningarinnar hlaut
kona Ingvars, Sigríður Guðmunds-
dóttir, sérstakar þakkir og ham-
ingjuóskir með þeim orðum að sam-
eiginleg hamingja sé tvöföld
hamingja.
Breytingar hafa nú verið gerðar á
helstu bílaframleiðslu A-Þjóðverja
og fer þeirra að gæta hér á landi strax
í haust. Nýr Wartburg er á leiðinni
með nýja vél sem reynst hefur vel í
Volkswagen Golf til fjölda ára. Þá
eru einnig komnar af stað breytingar
í framleiðslu á Trabantinum, á þá
lund að í hann á eftir að koma
„venjuleg" vél og sitthvað fleira
óvænt. KB
Hjónin Ingvar Helgason og Sigríður Guðmundsdóttir taka hér við viðurkenningum úr hendi Klaus Bredlow,
sendiráðsritara A-Þýskalands á Islandi. rímamjnd Gunnar
w Eyjólfur Konráð Jónsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis:
Akvörðun Dana kemur á óvart
Utanríkismálanefnd Alþingis
kemur saman til fundar í dag til að
fjalla um þá ákvörðun dönsku ríkis-
stjórnarinnar að skjóta deilu Dana
og Norðmanna um lögsögumörk við
Jan Mayen til Alþjóðadómstólsins í
Haag. Eyjólfur Konráð Jónsson,
formaður nefndarinnar, telur að ís-
lendingar verði opinberlega að mót-
mæla þessari ráðstöfun dönsku
stjórnarinnar á þeim grunni að ís-
lendingar eigi, samkvæmt gerðum
samningum, einnig tilkall til þessa
svæðis jafnt á við bæði Dani og
Norðmenn. Hann bendir á að samn-
ingur milli Norðmanna og íslendinga
frá 1980 kveði skýrt á um miðlínu
milli íslands og Jan Mayen. Á þeim
samningi byggist skipting á fiskveiði-
réttindum við eyjuna. Eyjólfur
Konráð segir að vert sé að hafa í
huga í þessu sambandi að íslending-
ar hafi nýtt til þessa um 85% af
loðnustofninum við Jan Mayen en
Norðmenn aðeins um 15%.
Steingrímur Hermannsson, utan-
ríkisráðherra, segir að íslendingar
hafi þarna hagsmuna að gæta. „Sam-
kvæmt svokölluðum Jan Mayen-
samningi megum við veiða þá loðnu
sem í okkar hlut kemur á norsku
yfirráðasvæði. Því stærra sem norska
yfirráðasvæðið er því betra fyrir
okkur. Auk þess segir í þeim samn-
ingi að taka skuli tillit til hinna miklu
hagsmuna íslendinga á sjávarútvegs-
sviðinu almennt." Utanríkisráð-
herra segir Norðmenn hafa fallist á
almennt eigi að flýta ákvörðunum
Alþjóðadómstólsins í Haag, þegar
um ágreining landa í milli væri að
ræða. „Við íslendingar höfum hins-
vegar ekki tekið ákvörðun um
þetta,“ bætti utanríkisráðherra við.
Deilur Norðmanna og Dana um
lögsögumörk á svæðinu milli Jan
Mayen og Grænlands hafa verið
uppi allar götur frá 1980. Danir hafa
í sínum málflutningi vísað til þess að
vegna fámennis og afskekktrar
byggðar á Grænlandi beri íbúum þar
200 mílna lögsaga. Norðmenn hafa
aftur á móti viljað láta miðlínu gilda
og hafa þar vísað til alþjóðahafrétt-
arsáttmálans.
Eyjólfur Konráð Jónsson segir að
þessi ákvörðun dönsku stjórnarinnar
hafi komið íslenskum stjórnvöldum
jafnt sem norskum mjög á óvart og
það sé samdóma álit þeirra að mjög
óheppilegt sé að skerist svo í odda
með vinaþjóðum.
Thorvald Stoltenberg, utanríkis-
ráðherra Norðmanna, hefur haft
þau orð um deiluna að þessi staða sé
mjög óheppileg og hann vilji leggja
ofurkapp á að málið þurfi ekki að
koma fyrir Alþjóðadómstólinn,
hægt verði að fara samningaleiðina
á þeim 2, 3 eða 4 árum þangað til
búast megi við að málið verði tekið
þar fyrir. „Ég er mjög sammála
þessari skoðun Stoltenbergs. Vitan-
lega eiga vinaþjóðir að gera allt til
þess að leysa svona mál með sam-
komulagi," segir Steingrímur Her-
mannsso'n, utanríkisráðherra. óþh
Keflavíkurflugvöllur:
Þota lenti
með sjúkling
Bandarísk farþegaþota frá
American Airlines, lenti síðdegis
í gær á Keflavíkurflugvelli vegna
skyndilegs hjartaáfalls eins far-
þegans, 26 ára breskrar stúlku.
Slöklivilið Keflavíkur flutti stúlk-
una á hjartadeild Landspítalans.
Þegar Tíminn leitaði þar frétta af
líðan stúlkunnar í gærkvöldi,
fengust þær fréttir að hún virtist
ekki vera eins alvarlega veik og
útlit var fyrir í upphafi. Var hún
þá talin úr allri lífshættu.
Vélin hélt áfram för sinni, en það
var ekki á áætlun að lenda á
íslandi. KB
/