Tíminn - 18.09.1988, Blaðsíða 15

Tíminn - 18.09.1988, Blaðsíða 15
Laugardagur 17. september 1988 Tíminn 15 Viðtal við háttsettan talsmann PLO í Jerúsalem Post: PLO vill semja við israelsmenn Háttsettur aðstoðarmaður Yassir Arafats Ieiðtoga Frelsissamtaka Pal- estínu staðfesti í viðtali við dagblað í ísrael að PLO væri reiðubúið til samningaviðræðna við ísraela um málefni Palestínumanna. Bassan Abu Shariff sagði í viðtali við Jerusalem Post að PLO vilji koma á fót Palestínuríki á hernumdu svæðunum á vesturbakka Jórdan og á Gazasvæðinu, en ekki eyðileggja gyðingaríkið ísrael. „Við erum reiðubúnir að hefja viðræður við alla þá fulltrúa ísraela sem eru nógu hugrakkir að setjast niður og ræða um frið“ sagði Shariff. “PLO vill semja við ísrael. Haldið þið að við tækjum þátt í alþjóðlegri friðarráðstefnu til að ræða við Hussein konung? Eða semja við Frakka eða Bandaríkjamenn? Við viljum alþióðlega ráðstefnu til að semja við fsrael". Abu Sharif hefur að undanförnu leitt þann hóp er vill samkomulag sem byggist á því að ísraelar og Palestínumenn skipti hinni sögulegu Palestínu í ríki Gyðinga og ríki Araba. Arafat hefur að undanförnu gefið í skyn að Palestínumenn væru reiðu- búnir til að viðurkenna tilveru fsra- elsríkis en ekki sagt það berum orðum. Hann hefur þó ítrekað að hann vilji gjarnan ræða við ísraela um málefni Palestínu á friðarráð- stefnu á vegum Sameinuðu þjóð- anna. ísraelar þverneita hins vegar að ræða við PLO, hverjarsem kringum- stæðurnar séu enda telja þeir PLO eingöngu hryðjuverkasamtök. Þrátt fyrir það hefur Shimon Peres utan- ríkisráðherra ísrael gefið í skyn að Verkamannaflokkur hans gæti hugs- að sér að eiga viðræður við PLO ef samtökin viðurkenna tilverurétt ís- raelsríkis án skilyrða. Abdulfattahs ijölskyldan til vinstri og Zoreas Ijölskyldan til hægri. Undanfar- in fjörutíu ára hafa þessar fjölskyldur staðið andspænis hvor annarri, líkt og þúsundir annarra fjölskyldna vegna illdeilna í Palestínu. Abdulfattahs fjölskyldan eru Palestínuarabar en Zoeras fjölskyldan eru Gyðingar. Nú vill PLO semja við fsraela um stofnun Palestínuríkis á vesturbakkanum og í Gaza gegn því að viðurkennaa tilveru Ísraelsríkis. Ef það næði fram að ganga ættu fjölskyldurnar að geta lifað í sátt og samlyndi sem nágrannar ■ framtíðinni. Óvænt uppákoma á ólympíuleikunum: Abu Nidal býður öryggissveit Abu Nidal hinn ógnvekjandi skæruliðaforingi A1 Fatha skæru- liðasamtakanna sagði í gær að enginn þyrfti að óttast að Palest- ínuskæruliðar muni trufla ólymp- íuleikana í Seoul og bauðst til að senda öryggissveit frá A1 Fatha til að aðstoða við öryggisgæslu á leikunum. Abu Nidal er einn eftirsóttasti hryðjuverkamaður heims enda hefur hann staðið fyrir hryðjuverk- um víða um heim. Má þar nefna hryðjuverkin á Rómarflugvetli í desember 1985 þegar samtök Abu Nidal skutu 16 manns til bana. „Til að sýna góðan vilja okkar, þá er hópur okkar tilbúinn að senda öryggissveit til að aðstoða við öryggisgæslu á leikunum, ef stjórnvöld í Seoul æskja þess,“ sagði í yfirlýsinu Byltingarráðs Fatha sem Abu Nidal leiðir. Öryggisgæsla í Seoul er sú mesta sem sögur fara af á íþróttaleikum, enda eru hryðjuverkin á olympíu- leikunum í Múnchen 1972 enn í fersku minni, en þá drápu skæru- liðar Palestínumanna 11 ísraelska íþróttamenn. BÆSUÐ EIK - VERÐ KR. 64.500 HÚSGÖGN OG * INNRÉTTINGAR eo CQ .SUÐURLANDSBRAUT 32 ÖO OíJ Vandaðar og ódýrar Veggskápasamstæður frá Finnlandi j 4 MUSAFÆLUR 220 volt ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SfMI 38900 IIIÍOSSADÆIMDA BÆNOAIIÖLLINNI IIAGAIOMGI 107 BEYKJAVlK ISLANO Félag hrossabænda hefur ákveðið útflutning hrossa með flugi vikulega frá og með 27. septemb- er. í þessu sambandi eru eftirfarandi atriði auglýst: 1. Útflutningur reiðhrossa. 27. september verður flug til Billund í Danmörku og hrossum ekið þaðan til Svíþjóðar. í það minnsta 2 aðrar ferðir verða farnar til Ostende í Belgíu. Þeir sem vilja flytja út hross með þessum ferðum leiti nánari upplýsinga í síma 91-687699 eða í síma 98-78960. 2. Útflutningur sláturhrossa. Jafnhliða reið- hrossaútflutningi verða sláturhross flutt út. Skrán- ing sláturhrossa fer fram hjá formönnum deilda F. hrb. og markaðsnefnd félagsins, svo og hjá sláturhússtjórum kaupfélaga, í Búvörudeild SlS og hjá Zóffaníasi Márussyni í Rvík, síma 40157. Reiknað er með útflutningi á 200 hrossum og verður farið eftir skráningu með töku hrossanna. Fullt grundvallarverð verður greitt fyrir hrossin í janúar 1989, um 16.000 - kr., sem skilaverð á hross. 3. Útboð fyrir keyrslu á sláturhrossum. Óskað er eftir skriflegu tilboði fyrir 22. september á flutningi hrossanna þarsem komi fram annarsveg- ar kílómetragjald fyrir ekna km og stærð bíla og hinsvegar gjald fyrir hvert flutt hross úr tilteknum landshlutum á Keflavíkurflugvöll. Tilboðin séu stíluð á F. hrb., Bændahöllinni v/Hagatorg, 107 Reykjavík. Áskilið er að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Utboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrirhönd Hitaveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í lyftur og uppsetningu þeirra í útsýnishús Hitaveitu Reykjavíkur í Öskjuhlíð. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000.- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 11 október 1988 kl 11. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.