Tíminn - 18.09.1988, Blaðsíða 16
16 Tíminn
Laugardagur 17. september 1988
1234 5tPB 0002 nBB
fcilílliiíi
]► 07/89
JÓN JÓNS80N
0035 8416-3958
SAMVINNUMÁL
Samtök samvinnuverslana
Samtök samvinnuverslana
(SSV) voru stofnuð á fundi í
Holtagörðum í Reykjavík s.i.
miðvikudag. Þessi félags-
stofnun á sér talsverðan að-
draganda, en í júní í sumar
var haldinn í Bifröst undir-
búningsstofnfundur þessara
samtaka. Þar var þeim kosin
undirbúningsstjórn, og sátu í
henni þeir Sigurður Krist-
jánsson á Selfossi, formaður,
Björn Baldursson, Akureyri,
Jörundur Ragnarsson,
Vopnafirði, Örn Ingólfsson,
Reykjavík, og Snævar
Guðmundsson, Reykjavík.
Einnig var þar ákveðið að
Ólafur Friðriksson fram-
kvæmdastjóri Verslunar-
deildar Sambandsins myndi
starfa með stjórninni og sitja
fundi hennar.
Frá stofnfundi Samtaka samvinnuverslana.
Undirbúningsstjórnin boðaði svo
til stofnfundarins í Holtagarðum 14.
september. Þar voru lagðar fram
tillögur að samþykktum fyrir sam-
tökin, samningi milli þeirra og Sam-
bandsins og að samningi milli aðild-
arfélaga þeirra og Verslunardeildar.
Allar þessar tillögur voru samþykkt-
ar einróma og félagið þar með
formlega stofnað. Þá var kosin
stjórn, og sitja sömu nienn í henni
og undirbúningsstjórninni, nema
Ólafur St. Sveinsson kom í stað
Arnar Ingólfssonar. Varamenn í
stjórn voru kosnir Þórir Páll Guð-
jónsson, Borgarnesi, og Guðjón
Stefánsson, Keflavík.
í samþykktunum segir að tilgang-
ur félagsins sé að koma á skipulögðu
samstarfi innan samvinnuhreyfing-
arinnar á sviði smásöluverslunar,
með það fyrir augum að nýta sam-
takamátt hreyfingarinnar, í því skyni
að stuðla að arðbærri og samkeppn-
ishæfri samvinnuverslun. Þar segir
einnig að félagið sé samtök þeirra
samvinnufélaga og fyrirtækja sem
fela Verslunardeild að annast fyrir
sig vöruútvegun og skipulegt sam-
starf um markaðsfærslu, samkvæmt
þessum samþykktum eða sérstökum
samningi. Rétt á félagsaðild eigi
kaupfélög, Sambandið, dóttur- og
samstarfsfyrirtæki þess, svo og aðrir
aðilar sem stjórnin samþykki.
í samningi Verslunardeildar og
aðildarfélaga SSV er Verslunar-
deildin skilgreind sem samheiti
þeirra ördeilda, er samkvæmt samn-
ingnum annist vöruútvegun og sam-
eiginlega þjónustu fyrir SSV. Þessar
ördeildir eru sem hér segir:
Ferskvörudeild.
Almennar matvörur.
Hreinlætis- og snyrtivörur.
Heimilisvörur.
Raftæki.
Þrír fulltrúar KEA á stofnfundi
SSV, Valur Arnþórsson, Jóhannes
Sigvaldason og Magnús G. Gauta-
son. Að baki þeim má m.a. sjá
kaupfélagsstjórana Þóri Pál Guðj-
ónsson í Borgarnesi t.v. og Ólaf
Ólafsson á Hvolsvelli.
Skór og vefnaðarvörur.
Sportvörur.
Fatnaður.
Rekstrarráðgjöf.
Markaðsmál.
Ákveður hvert kaupfélag fyrir sig
í hverjum af ofangreindum vöru-
eða þjónustuflokkum það felur
Verslunardeild að annast fyrir sig
alla vöruútvegun og þjónustu.
í framtíðinni munu Samtök sam-
vinnuverslana starfa við hlið Versl-
unardeildar Sambandsins, með lík-
um hætti og Félag Sambandsfrysti-
húsanna hefur um árabil starfað við
hlið Sjávarafurðadeildar og Félag
sláturleyfishafa hin síðari ár við hlið
Búvörudeildar. Eru miklar vonir
bundnar við þetta nýja félag, sem
kom raunar vel fram í ræðum manna
á stofnfundinum. Gera menn sér
vonir um að með stóraukinni sam-
vinnu í innkaupum fyrir smásölu-
verslun samvinnuhreyfingarinnar og
með sameiginlegri markaðssetningu
megi tryggja neytendum hagstæðast
vöruverð og vörugæði. -esig
SAMK0RT HF.
Hið nýja greiðslukortafyr-
irtæki samvinnuhreyfingar-
innar, Samkort hf., var stofn-
að á fundi í Holtagörðum 14.
sept. Á stofnfundinum gerð-
ust 17 félög stofnaðilar, en
einnig var ákveðið þar að
þeir sem gerast hluthafar í
fyrirtækinu innan mánaðar
teljist einnig til stofnfélaga.
Hefur tæplega 40 félögum,
þar á meðal kaupfélögunum
og samstarfsfyrirtækjum
Sambandsins, verið boðin
þátttaka í fyrirtækinu. Hluta-
fé þess verður allt að 40
miljónir króna.
Upphaf þessa máls er það að
forstjóri Sambandsins, Guðjón B.
Ólafsson, skipaði nefnd í janúar
1987 til þess að kanna útgáfu félags-
mannakorts fyrir félagsmenn í sam-
vinnufélögunum. í þeirri könnun
kom í ljós að hagfelldara yrði að
stofna til fyrirtækjakorts sem gæfi
möguleika á víðtækari þjónustu en
(Tímamynd: Gunnar.)
Samkortið hefur verið teiknað og er nú í framleiðslu erlendis. Það mun líta
út eins og hér sést.
hitt formið. Hér á landi hefur til
þessa ekki verið boðin slík þjónusta,
sem þó er vel þekkt víða erlendis.
Tilgangurinn með samkortunum
verður m.a. að nýta þau á öllum
þeim sviðum sem samvinnuhreyfing-
in er með þjónustu á. Með því móti
verður m.a. mögulegt að draga úr
lánastarfsemi og stjórnunarkostn-
aði, en ýmsir fjölþættir möguleikar
hafa nú þegar skapast í greiðslu-
kortastarfsemi með víðtækri notkun
á tölvutækni. Er þegar búið að
tryggja hugbúnað sem skapar þessa
möguleika.
Stefna hins nýja greiðslukortafyr-
irtækis er sú að korthafar hafi sem
mestan ávinning af þátttöku sinni í
því. Meðal annars eru möguleikar á
því að veita korthöfum sértilboð,
afsláttarkjör og jafnvel arð af við-
skiptum með kortunum. Með því að
auðkenna kortin aðildarfélögum,
t.d. með númeri kaupfélags, skapast
einnig möguleiki á því að veita
þjónustu í ýmsum félagslegum til-
gangi innan hvers félagssvæðis.
Þá eru einnig uppi hugmyndir um
að hafa greiðslutímabilin tvö, sem
yrði m.a. til hagræðis fyrir þá laun-
þega sem ekki fá greidd laun um
mánaðamót heldur t.d. um miðjan
mánuð. Eins og áður sagði verða
þau félög sem gerast aðilar að Sam-
kortum hf, fyrir 15. október talin
stofnaðilar' félagsins. Sá sem unnið
hefur að undirbúningi þessa máls
fyrir samvinnuhreyfinguna er Hall-
dór Guðbjarnason viðskiptafræðing-
ur.
Samkorti hf. var kosin stjórn á
stofnfundinum. Hana skipa Margeir
Daníelsson frkvstj., Ólafur Friðriks-
son frkvstj., Geir Magnússon banka-
stjóri, Þröstur Ólafsson formaður
KRON og Sigurður Kristjánsson
kfstj. -esig
Mmnum
hvert annað á -
Spennum beltin!
IUMFERÐAR
RÁÐ