Tíminn - 12.10.1988, Blaðsíða 19

Tíminn - 12.10.1988, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 11. október 1988 Tíminn 19 og víðsýn. í>ó vill hún ekki tala um allt sem þeim Robert hefur farið á milli, vegna þess að hann sé enn tengdur fjölskyldu sinni og Sonia vill ekki særa fólk. - Ég særi aldrei fólk af ásettu ráði og læt heldur ekki særa mig. Þegar maður býr í landi með einvaldsstjórn, eins og Brasilíu, er margt sem ekki má leyfa sér. Nú hefur Sonia hús á leigu í Hollywood, en hún á landareign heima í Brasilíu og lögheimili þar. Þegar hún er spurð, hvers vegna hún hafi ekki gifst, hlær hún og svarar að það hafi einfaldlega eng- inn beðið sín. Hún eigi heldur ekki börn, því hún hafi aldrei hitt mann, sem hana langaði að eignast barn með. Hún var 17 ára þegar hún varð ÓHEPPILEG HUNDANÖFN Flestir eiga hunda sem þeir kalla hundakeppni, en áður en keppnin „Snata“, „Kát“ eða Rex - en ég kalla minn hund „SEX“. Hann er góður vinur minn, en hann hefur oft orðið mér til vandræða og komið mér í klípu - með nafninu einu saman. Þegar ég kom á borgarskrifstof- urnar til að endurnýja hundaleyfið, sagði ég afgreiðslumanninum, að ég vildi fá leyfi fyrir „Sex“. Hann brosti og sagði „Það vildi ég gjarn- an líka!“ Þá sagði ég: „En þetta er hundur!“ Hann sagði þá að sér væri alveg saman hvernig hún liti út! „Þú skilur þetta ekki, ég hef haft Sex á heimilinu síðan ég var 9 ára gamall.“ Hann blikkaði mig og sagði: „Þú hefur aldeilis verið bráð- þroska drengur!“ Þegar ég gifti mig og við fórum í brúðkaupsferð, þá tók ég hundinn með. Ég sagði í afgreiðslu mótels- ins, að ég vildi fá íbúð fyrir mig og konu mína og svo sérstakt herbergi fyrir Sex. Hann sagði „Þið þurfið ekkert sérstakt herbergi. Bara ef þið borg- ið reikninginn þá er okkur sama hvernig þið látið.“ Ég sagði: „Heyrðu þú misskilur þetta. Sex heldur fyrir mér vöku á nóttunni." Afgreiðslumaðurinn sagði: „En fyndið. Ég á við þetta sama vanda- mál að stríða“ Dag nokkurn skráði ég Sex í byrjaði þá hljóp hundurinn í burtu og týndist. Annar hundaeigandi á keppnissvæðinu spurði mig, hvers vegna ég stæði þarna svona von- svikinn og dapur á svipinn. Ég sagði honum, að ég hefði ætlað að taka þátt í keppninni með Sex. Hann sagði: „Þú hefðir þá átt að selja miða á þína eigin sýningu." „En þú skilur mig ekki,“ sagði ég „Ég hafði vonast til að sýna Sex í sjónvarpinu." Viðmælandi minn sagði þá: „Ekkert mál, góði minn, Núna þegar kapal-sjónvarpið er komið um allt þá er hægt að sýna allan fjandann! „ Þegar konan mín og ég sóttum um skilnað, fór ég fyrir dómstólana til að berjast fyrir því að fá umráð yfir hundinum. Ég sagði: „Herra dómari, ég hafði Sex áður en ég giftist." Dómarinn sagði: „Réttar- salurinn er ekki neinn skriftastóll. Gjörðu svo vel að halda þér við efnið.“ Ég sagði honum, að fyrst eftir að ég kvæntist hefði Sex horfið. Hann sagði: „Sama sagan hjá mér“ í gærkvöldi strauk Sex eitthvað út í buskann. Ég leitaði um bæinn í marga klukkutíma. Lögreglu- þjónn kom til mín og spurði: „Hvað ert þú að gera hér úti á götu ' klukkan fjögur að nóttu? Ég sagði honum að ég væri að leita að Sex. - Mál mitt kemur fyrir rétt á föstudaginn! „Hvað þú skalt ekki skíra hundinn þinn Redford stjarna í heimalandi sínu og segist hafa litið út eins og hippi, með úfið hár niður á rass og rnest lítið klædd. Þá hafi hún stundað gleð- skap frani undir morgun og borðað morgunverðinn upp úr hádegi. Það var svo ekki fyrr en 1985 að hún varð hcimsfræg þegar mótleik- ari hennar í „Kossi kóngulóarkon- unnar“, William Hurt, fékk Ósk- arsverðlaun. Einn gagnrýnandi skrifaði þá um hana, að hún væri ein mest heillandi leikkona í heim- inum, fyrsta raunverulega stjarnan síðan Sophia Loren kom fram á sjónarsviðið. Ekki er vitað hvort gagnrýnend- ur hafa séð hana í Playboy, en vissulega er það líklegt, því hún hefur hvorki meira né minna en fjórum sinnum verið nakin á síðum þess ágæta rits, seinast 1983. Datt henni aldrei í hug að slíkt gæti skaðað leikframa hennar? f Brasilíu tekur enginn til þess þó listamanneskja sýni sig bera, svarar hún og ypptir öxlum. - Hvers vegna ætti fólk að gera það? Við erum blóðheitt fólk og engar teprur. Ég skammast mín heldur ekki fyrir líkama minn. Þegar ég birtist fyrst nakin, 18 ára og á sviði í söngleiknum „Hair“, varð afi minn fyrstur til að standa upp og klappa. Sonia og Robert hittust fyrst fyrir tveimur árum, þegar hann hafði valið hana til að leika í mynd sem hann stjórnaði. - Ég veit ekki því hann valdi mig, ég hef aldrei spurt hann, segir Sonia. Þó hjónaband þeirra Roberts og Lolu hafi staðið í nær 30 ár, hefur það ekki alltaf verið dans á rósum. Fyrir nokkrum árum gengu miklar sögur um samband Roberts við ákveðna, franska sýningarstúlku og hún tilkynnti heiminum, að þau væru elskendur í leynum. Meðan viðtalið var tekið, sat Sonia með krosslagða fætur uppi í sófa og borðaði kartöfluflögur með fingrunum, klædd þvældum bol og snjáðum gallabuxum og berfætt. - Ég veit ekki hvernig leikkona á að vera, segir hún. -Ég hef aldrei lært neitt um leiklist. Satt að segja finnst mér rniklu heilbrigðara að læra til dæmis garðyrkju. Robert með Lolu eiginkonu sinni, meðan hjónabandið var og hét. Sonia og Robert eru löngu liætt að fara í felur með samband sitt og cru afar ástfangin. Hún gómaði Sonia Braga heitir hún, brasil- íska söngkonan sem nú lifir í synd með kvennagullinu Robert Redford. Óvíst er að hún verði frú Redford, að minnsta kosti á næst- unni, því Lola, eiginkona hans, er mormóni og skilnaðir eru ekki vel séðir hjá því fólki. En Robert og Sonia láta sér það í léttu rúmi liggja og eru afskaplega ástfangin. Hann er 52 ára og hún 37 eða um það bil. Svo mikið hefur verið skrifað um Robert Redford um árabil, að heimurinn gjörþekk- ir hann, en öllu minna er vitað um Soniu. í nýlegu viðtali við breskt blað, sagði hún þó heilmikið frá sjálfri sér og verður sitthvað af því tínt tii hér. Hún hefur m.a. komið fram í þætti af Fyrirmyndarföður hjá Bill Cosby og var það fyrsti leikur hennar í sjónvarpi. Sonia Itefur aldrei verið gift. Hún málar sig sjaldan utan vinnu og hefur aðeins einu sinni á ævinni látið klippa hár sitt og segist ekki ætla að gera það aftur. Henni er nákvæmlega sama um allar slúður- sögur, þær snerta hana ekki. Hún fullyrðir að bæði hún og öll sín fjölskylda sé afskaplega frjálslynd

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.