Tíminn - 13.10.1988, Page 3
Fimmtudagúr 13. október 1988
Tíminn 3
Á tímum þrenginga í landbúnaði:
Framleiðsla kaplamjólkur
ný leið í hrossaræktinni?
Framleiðsla á kaplamjólk sem ný tekjulind fyrir íslenska
hrossabændur? Hljómar kannski framandi en dr. Karl
Korstsson, fyrrverandi héraðsdýralæknir á Hellu, telur fulla
ástæðu til að þessi möguleiki verði kannaður. Hann segist
reyndar hafa verið á þeirri skoðun í þrjátíu ár en menn hafi
ekki séð ástæðu, enn sem komið er, til að skoða þetta dæmi.
„Menn verða auðvitað að bregða sér út fyrir landsteinana og
sjá hvernig að þessu er staðið með eigin augum til þess að
sannfærast um að þetta sé yfirleitt mögulegt hér á landi,“
segir Karl. Hann segist t.d. rétt að íhuga hvort bændur sem
afsali sínum framleiðslurétti á mjólk geti ekki nýtt það
fjármagn til að koma upp nauðsynlegri tækni við framleiðslu
á kaplamjólk. „Á þessum búum,“ segir Karl, „er t.d. til
staðar húsrými og kælitankur fyrir mjólkina.“
Karl bendir á að á hrossabýlinu í
Brackel hjá Winsen við ána Luhen í
Vestur-Pýskalandi, sé m.a. unnin
kaplamjólk úr lágvöxnu fjallahesta-
kyni, Haflingerhrossum, með góð-
um árangri. „Þar eru merar mjólkað-
ar með nútíma mjaltavélum," segir
Karl. Hann segir ennfremur að þetta
sé einnig alþekkt í Sovétríkjunum
og megi í því sambandi geta hress-
ingardrykksins vinsæla, Kumysz,
sem er lítillega áfeng sýrð kapla-
mjólk.
Kaplamjólkin er afar sæt á bragðið
enda rík af mjólkursykri og vítamín-
um, einkum A-vítamíni. Hún mun
auðmelt og því að mörgu leyti lík
móðurmjólkinni. í henni er einnig
hið verðmæta eggjahvítuefni, glyko-
protein og varnarefnið Immunglo-
buline, sem eykur mjög viðnáms-
þrótt þess sem mjólkina drekkur og
minnkar hættuna á að viðkomandi
fái ýmsa smitsjúkdóma. Þess eru
einnig dæmi að börn með ofnæmi
fyrir kúamjólk hafi snúið sér að
drykkju kaplamjólkur í staðinn.
Vitað er að t.d. í Sovétríkjunum
og Austur-Þýskalandi eru börn alin
á kaplamjólk frá blautu barnsbeini.
Þar er litið á hana sem lyf til að
fyrirbyggja sjúkdóma eins og skar-
latsótt og mislinga.
Að sögn Gunnars Bjarnasonar,
hrossaræktarráðunautar, kom hing-
að til lands árið 1960, þýskur bú-
fræðikandidat, Helmuth Ossman að
nafni, (síðar ráðunautur og skóla-
stjóri þýsks reiðskóla) til að kynna
sér hérlenda hrossarækt með sér-
stöku tilliti til framleiðslu kapla-
mjólkur. Gunnar segir Ossman hafi
gert sínar prófanir á Hvanneyri og
hafi hann mjólkað 2 merar á 5 klst.
fresti í þrjá mánuði efir að þær
köstuðu. Sólarhringsnytin reyndist
vera um 8 kg á sólarhring. „Þessi nyt
meranna reyndist vera mjög sam-
bærileg við smærri hestakyn út í
Evrópu," segir Gunnar. Hann segist
á sínum tíma, í Ijósi fenginna niður-
staðna, hafa vakið máls á þessum
möguleika en undirtektir hafi verið
litlar. „Það var með þetta eins og
annað sem ég vakti máls á að
Búnaðarfélagsmenn hlutstuðu ekki
á það. Þeim þótti þetta svo langt
fyrir utan allan raunveruleika. Það
hefur ekkert þýtt fyri mig að orða
þessa nýjung sem aðrar nýjungar.
Þröngsýni Búnaðarfélagsins sem op-
inberrar stofnunar í forystu bænda
er á heimsmælikvarða. Jú, ég er
sammála dr. Karli í því að þennan
möguleika á vissulega að athuga. Ég
skyldi sjá til þess að þeir menn sem
vilja kynnast þessu ættu kost á
samfylgd á slík hrossaræktarbú í
annaðhvort Rússlandi eða Austur-
Þýskalandi. Menn verða að sjá þetta
með eigin augum," segir Gunnar
Bjarnason.
Einar E. Gíslason, formaður Fé-
lags hrossabænda, segist telja fulla
ástæðu til að kanna til hlítar hvort
framleiðsla kaplamjólkur geti talist
hagkvæm. Einar segir að sér vitandi
hafi hrossabændur ekki rætt þennan
möguleika fyrr, en það breyti því
ekki að ástæða sé til að kanna þetta
frekar. „Ég tel að þarna geti verið
um verðugt verkefni að ræða fyrir
RALA, bæði hvað varðar frumat-
huganir og athugun á mörkuðum
fyrir mjólkina. Ef að nægilegt verð
fengist fyrir kaplamjólkina get ég
ekki séð að sé neitt vitlausara að
mjólka merar en kýr,“ segir Einar.
Einar segist minnast þess úr sinni
æsku að folöld hafi verið færð frá
merum og þær mjólkaðar. „Þetta
var sæt og yndisleg mjólk á bragðið,“
segir Einar E. Gíslason.
Kristinn Hugason, hrossaræktar-
ráðunautur hjá Búnaðarfélagi
íslands, segir að menn hafi aldrei
Alþingi:
Þingsályktunartillögur
Valgerður Sverrisdóttir (B
Nl.ey.) hefur lagt fram ásamt þeim
Hjörleifi Guttormssyni (G. Aust
url.), Kristinu Einarsdóttur (V
Reykv.), Aðalheiði Bjamfreðs
dóttur (S. Reykv.) og Árna Gunn
arsyni (A. Nl.v.) þingsályktunartil
lögu um jafnréttisráðgjafa. Hún
gerir ráð fyrir að Alþingi feli ríkis
stjórninni að ráða á vegum félags
málaráðuneytisins, þrjá jafnréttis
ráðgjafa til þriggja ára sem haf
það verkefni að vinna að leiðrétt
ingu á stöðu kvenna í stofnunum
og fyrírtækjum um aUt land
samvinnu við starfsmenn og stjórn-
endur.
í greinargerð með tillögunni seg-
ir að henni sé ætlað að vera liður í
átaki til að fylgja eftir lögum um
jafna stöðu og jafnan rétt karla og
kvenna.
Þá hafa þau Hjörleifur Gutt-
ormsson (G. Austurl.) og Guðrún
Agnarsdóttir(V. Reykv.)lagtfram
þingsályktunartillögu þess efnis að
ríkisstjórnin beiti sér fyrir og styðji
á alþjóðavettvangi bann við geim-
vopnum. Þetta er í fjórða sinn sem
tillagan er lögð fram.
Kvennalistakonurnar Kristín
Halldórsdóttir, Danfríður Skarp-
héðinsdóttir, Guðrún Agnarsdótt-
ir, Guðrún J. Halldórsdóttir, Krist-
ín Einarsdóttir og Málfríður Sig-
urðardóttir hafa lagt fram tillögu
til þingsályktunar um umhverfis-
fræðslu. Þar er lagt til að(Alþingi
feli menntamálaráðherra að efla
og samræma umhverfisfræðslu í
grunn- og framhaldsskólum lands-
ins og á meðal almennings. Tillaga
þessi var flutt á síðastliðnu þingi,
en var þá ekki afgreidd. -ág.
litið á framleiðslu kaplamjólkur sem
möguleika í hrossarækt á íslandi og
því hafi menn ekki hugað að þessu í
alvöru. Hann telur þó hugmyndina
ekki fráleita og segir þetta hugsan-
legan möguleika hjá þeim bændum
þar sem fjárfestingar séu allar til
staðar og hestastóð mikil en eigið
verð gripa lágt. „Það er spurning
hvort bændur í t.d. Landeyjunum og
víðar á Suðurlandi, þar sem fram-
leiðsluréttur er takmarkaður en
landrými mikið, gætu nýtt sínar
byggingar að einhverju leyti fyrir
meramjaltir.“ óþh
VETRARSKOÐUIM
NISSAN SUBARU
I
ÞAÐ MARGBORGAR SIG AÐ FARA í VETRARSKOÐUN
ÞVÍALLT ÞETTA ERINNIFALIÐ:
1 SKIPT UM KERTI 0G PLATÍNUR 12
2 SKIPT UM BENSÍNSÍU 13
3 VÉLARSTILLING
4 ÁSTAND LOFTSÍU ATHUGAÐ 14
5 VIFTUREIM STREKKT
6 KÚPLING STILLT 15
7 OLÍA MÆLD Á VÉL 0G GÍRKASSA
8 RAFGEYMIR MÆLDUR 16
0G RAFPÓLAR HREINSAÐIR 17
9 FR0STÞ0L KÆLIVÖKVA VÉLAR MÆLT, 18
FROSTLEGI BÆTT Á EF MEÐ ÞARF
10 ÁSTAND PÚSTKERFIS ATHUGAÐ 19
11 BREMSUR REYNDAR 20
ÍSVARA BÆTTÁ RÚÐUSPRAUTUR
HURÐALÆSINGAR 0G LAMIR
SMURÐAR
SILIKONBORNIR ÞÉTTIKANTAR
ÁHURÐUM
LOFTÞRÝSTINGUR HJÓLBARÐA
MÆLDUR
STÝRIBÚNAÐUR KANNAÐUR
HJÓLALEGUR ATHUGAÐAR
ÁSTAND RÚÐUÞURRKNA
SKOÐAÐ
UÓSASTILLING
REYNSLUAKSTUR
Verð aðeins kr. 5.200.-
Betur verður vart boðið. Sama verð um iand allt.
Hafið samband við þjónustuaðila Ingvars Helgasonar hf.
og ykkur verður vel tekið.
Ingvar
Helgason hf.