Tíminn - 13.10.1988, Blaðsíða 5
Tíminn 5
Fimmtiidagur 13. október 1988
OTRULEGA LANLAUS
STJÓRNARANDSTAÐA
Við kosningu fastanefnda neðri deildar Alþingis í gær
gerðist sá fáheyrði atburður að stuðningsmenn ríkisstjórnar
Steingríms Hermannssonar unnu við hlutkesti um val manna
í nefndir níu sinnum í röð. Tíminn hafði samband við Magnús
Jónsson veðurfræðing, sem er maður tölfróður og innti hann
eftir því hverjar væru tölfræðilegar líkur á að þetta gerðist og
sagði hann þær 512 á móti 1. Það virðist því Ijóst að
stjórnarandstaðan er mjög
þinghalds.
Nefndirnar eru níu og eru sjö
menn í hverri. Því hagar svo til að í
neðri deild hafa stjórn og stjórnar-
andstaða jafnt vægi atkvæða, 21
mann. Við kjör í nefndir bárust svo
tveir listar í hverja nefnd, annar frá
stjórnarliðum og hinn frá stjórnar-
andstöðu, sem bauð fram sameigin-
lega. Á hverjum lista voru nöfn
fjögurra manna, þannig að varpa
varð hlutkesti um neðstu menn á
hvorum lista. Sú athöfn fer þannig
fram að í þingsalnum eru tveir
kassar með 62 kúlum, merktum frá
einum upp í sextíu og tvo. Þeir
þingmenn sem þarf að varpa hlut-
kesti um fara upp að öðrum kassan-
um og taka úr honum kúlu og sá sem
fær kúlu með hærra númeri hreppir
hnossið.
Fyrsta nefnd er kjörið var í var
fjárhags- og viðskiptanefnd. Þar
háðu þeir einvígi Páll Pétursson og
Friðrik Sophusson. Páll dró fyrstu
kúluna og reyndist hún númer 46 á
móti 26 hjá Friðrik. Þessi dráttur
reyndist táknrænn fyrir það sem á
eftir skyldi koma, því að í hvert
einasta skipti sem nefndarkandídat-
lánlaus nú á fyrstu dögum
ar drógu úr kassanum höfðu stjórn-
arliðar betur. Þannig fór Páll Péturs-
son einnig inn í iðnaðarnefnd á
hlutkesti, Guðni Ágústssson í sam-
göngu- og sjávarútvegsnefnd, Alex-
ander Stefánsson í landbúnaðar-
nefnd, Geir Gunnarsson í allsherjar-
nefnd, Ólafur Þ. Þórðarson í
menntamálanefnd, Jón Sæ-
mundur Sigurjónsson í heilbrigðis-
og trygginganefnd og Jón Kristjáns-
son í félagsmálanefnd.
Eftir að kosið hafði verið í fimm
nefndir kvaddi Albert Guðmunds-
son sér hljóðs og sagði að þar sem
búið væri að afgreiða meirihluta
nefndanna og huldumaður Stefáns
Valgeirssonar ekki kominn í ljós
ennþá væri ljóst að þessi ríkisstjórn
væri mynduð á fölskum forsendum.
En eins og Stefán sagði huldumenn
eru huldumenn og ef þeir kæmu í
ljós þá væru þeir ekki huldumenn og
þegar hér var komið sögu var þing-
heimur orðinn æði brosleitur og
gengu manna á milli hvíslingar um
að nú væri loks búið að staðsetja
huldumann Stefáns, hann væri nefni-
lega inni í kassanum og rétti mönn-
Ótrúleg úrslit í hlutkestinu.
um kúlur með réttum tölum.
Spennan óx eftir því sem á leið og
náði hámarki í níundu og síðustu
atkvæðagreiðslunni, þegar varpað
var hlutkesti um sæti sjöunda manns
í allsherjarnefnd neðri deildar Al-
þingis. Þar leiddu þeir saman hesta
sína Geir Gunnarsson stjórnarliði
og Óli Þ. Guðbjartsson stjórnar-
andstöðu. Geir dró sér kúlu á undan
og reyndist hún númer 12. Það hefði
mátt heyra saumnál detta þegar Óli
Þ. rétti Kjartani Jóhanssyni forseta
deildarinnar sína kúlu og Kjartan
bjó sig undir að lesa upp töluna. En
hið ótrúlega gerðist, Óli fékk töluna
9 og þar með hafði stjórnin fengið
meirihluta í öllum deildum neðri
deildar. - áe
Raunvextir ríkisskuldabréfa lækka niður í 7-7,3% eftir innlausnartíma:
Raunvextir lækka
8. umferð Heimsmeistaramóts Stöðvar tvö:
Kortsnoj lagður og
Kasparov að hálfu
Allt ætlaði um koll að keyra í
Borgarleikhúsinu í gærkvöldi þeg-
ar Viktor Kortsnoj stóð upp frá
töpuðu tafli við Jóhann Hjartarson
og var þetta án efa mest spennandi
skák kvöldsins. Var hún mjög
flókin alveg undir það að Kortsnoj
„fingurbraut“ sig í einni fettunni
og nýtti Jóhann sér tækifærið af
snilld.
Jafntefli Margeirs Péturssonar
gegn heimsmeistaranum Garry
Kasparov vakti einnig mikla at-
hygli og þykja íslensku keppend-
urnir hafa staðið sig mjög vel í
þessari umferð.
Eftir tap sitt í sjöundu umferð og
jafnteflið núna í þeirri áttundu
hafa möguleikar Kasparovs dvínað
mjög til að ná því markmiði sínu
að verða hærri að Elo-stigum eftir
þetta mót en Bobby Fischer, fyrr-
um heimsmeistari.
Tvær skákir aðrar vöktu einnig
talsverða athygli á mótinu en það
var fallegur sigur Nunn á Portisch
og ekki síður falleg sigurskák
Ehlvest gegn Nicolic.
Úrslit í áttundu umferð Heims-
meistaramótsins urðu annars þessi:
Nunn-Portisch 1-0
Sax-Júsúpov 1/2-1/2
Margeir-Kasparov 1/2-1/2
Timman-Anderson 1-0
Tal-Sokolov 1/2-1/2
Spassky-Ribli 1/2-1/2
Kortsnoj-Jóhann 0-1
Ehlvest-Nicolic 1-0
Beljavskí-Speelmann 1/2-1/2
Jóhann lagði Kortsnoj í gærkvöldi.
Ekki er staðan alveg ljós þar sem
ein biðskák er ótefld, en ljóst er þó
að Tal er efstur með fimm og
hálfan vinning af átta mögulegum.
Beljavskí, Sokolov og Ehlvest eru
næstir í öðru til fjórða sæti, en
heimsmeistarinn Kasparov er nú
fallinn í 7.-9. sæti. KB
Fyrirhuguð 3% lækkun raunvaxta
á ríkisskuldabréfum fer rólega af
stað. Nú hefur náðst samkomulag
milli ríkissjóðs og söluaðila spari-
skírteina um að lækka raunvexti
þeirra um allt að 0,7%. Munu bréfin
því bera raunvexti á bilinu 7-7,3%.
Kemur þessi ráðstöfun nú í fram-
haldi af lækkun vaxta hjá viðskipta-
bönkum.
Vextir þriggja ára skuldabréfa
lækka mest, eða úr 8% í 7,3%. Þá
lækka vextir á nýjum fimm ára
Steingrímur J. Sigfússon, sam-
gönguráðherra, hefur leyst upp
nefnd þá sem Matthías Á. Mathie-
sen, fyrrverandi samgönguráðherra,
skipaði árið 1986, til að taka þátt í
viðræðum við Bandaríkjaher um
gerð varaflugvallar hér á landi.
Steingrímur J. sagði í viðtali við
Tímann að innan fárra ára yrðu
komnir öruggir flugvellir sem sinnt
gætu hlutverki varaflugvallar fyrir
íslenskt flug, án þátttöku erlends
herafla.
Sagði hann að miðað við þróun í
flugvélaflota íslensku flugfélaganna
yrði ekki þörf fyrir lengri brautir en
2.000 metra langar og það væru ekki
mörg ár í að þeir væru komnir upp
á fleiri en einum stað utan Keflavík-
ur og Reykjavíkur. Þetta væri í raun
ekki spurning um annað en að gera
skírteinum úr 7,5%-7,3%, en það
er lækkun um 0,2%. Vextir á átta
ára skírteinum lækka ekki og verða
óbreyttir, en þeir eru nú 7%.
Við síðustu lækkun raunvaxta var
tekið fram að vaxtaákvarðanir til
mislangs tíma tækju mið af því hver
trú viðkomandi forstöðumanna sé á
vaxtaþróun. Er þá jafnan reiknað út
hversu mikill munur er á vöxtum
eftir innlausnartíma. Þessi munur
hefur nú minnkað.
Samhliða þessu samkomulagi var
ráð fyrir lítið eitt lengri völlum á
tveimur til þremur stöðum utan
þessara valla. Nú þegar er gert ráð
fyrir því í flugmálaáætlun að á
nokkrum stöðum verði 1.200 til
1.600 metra langar brautif.
Ákvörðun þessi var ekki rædd í
ríkisstjórn, en Steingrímur segist
hafa skýrt settum utanríkisráðherra,
Jóni Sigurðssyni, frá ákvörðun sinni
áður en hann gaf út bréfið. Það gerði
hann vegna þess að í viðræðunefnd
þeirri sem Matthías skipaði áttu sæti
tveir fulltrúar frá samgönguráðu-
neytinu og tveir skipaðir af utanrík-
isráðuneytinu. í tilkynningu frá
ráðuneytinu segir ennfremur að eng-
ar framkvæmdir séu fyrirhugaðar
við gerð varaflugvallar í samvinnu
við Bandaríkjaher og flotastjórn
Atlantshafsbandalagsins. Sagði
ákveðið að vextir á bankabréfum og
öðrum hliðstæðum bréfum lækki
einnig.
Samkvæmt heimildum í fjármála-
ráðuneytinu hefur verið góð sala í
þriggja ára skuldabréfunum að
undanförnu og er fyrirhugað að
bjóða 300 milljónir króna til viðbót-
ar af þessum bréfum til áramóta.
Vegna jöfnunar greiðlubyrðar ríkis-
sjóðs verða þriggja ára bréfin ekki
til sölu á næsta ári. KB
Steingrímur J. einnig að viðræður í
þessa átt færu ekki fram á meðan
þessi stySrn sæti, jafnvel þótt hinir
erlendu aðilar vildu fyrir sitt leyti
taka upp samninga.
Samgönguráðherra sagði að það
væri brýnt verkefni að haga fram-
kvæmdum við flugvelli þessa í sam-
ræmi við þá nýju þörf sem komin er
upp um vöruflutninga beint frá ýms-
um landshlutum til annarra landa.
Benti hann á nauðsyn þess að flutn-
ingavélar í millilandaflugi gætu lent
og tekið á loft sem víðast um landið,
m.a. með tilliti til þess að nú er farið
í auknum mæli að flytja ferskan fisk
utan með flugi. Þá icæmi það sér
sérstaklega vel fyrir framleiðendur í
fiskeldi að geta sent vöru sína ferska
á erlendan markað, án millilendinga
í Keflavík eða Reykjavík. KB
Steingrímur J. Sigfússon, samgönguráöherra hefur leyst upp viöræðunefnd MatthíasarÁ.:
Ekki rætt vid Nató