Tíminn - 13.10.1988, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 13. október 1988
Tíminn 15
VETTVANGUR
Þórarinn Þórarinsson:
Endurheimta baltnesku
ríkin sjálfstædi sitt?
Mikil tíðindi hafa veríð að gerast í baltnesku ríkjunum
við Eystrasalt síðustu mánuði og bendir margt til þess, að
Rússar muni veita þeim sjálfstæði, en vafasamara geti
orðið, hvort Bandaríkin vilja viðurkenna slíkt sjálfstæði
þeirra, ef til kæmi, t.d. með því að fallast á, að þau fengju
aðild að Sameinuðu þjóðunum, líkt og Úkraína og
Hvíta-Rússland, en það gætí styrkt stöðu Sovétríkjanna á
alþjóðlegum vettvangi.
Ekki er ólíklegt, að hugmyndin
um að Rússar veittu baltnesku
ríkjunum sjálfstæði, hafi kviknað
eftir að Gorbatsjov heimsótti Eist-
land á síðastliðnum vetri. Náið
samstarf tókst þá með honum og
Vaino Váljas, formanni Kommún-
istaflokks Eistlands. Rétt á eftir
var farið að skipuleggja svokallaða
alþýðufylkingu Eistlands með
stofnun deilda víða um landið.
Markmið hennar var tvíþætt eða í
fyrsta lagi að vinna að sjálfstæði
Eistlands og í öðru lagi að koma í
framkvæmd umbótastefnu Gorba-
tsjovs, perestrojku. Stefnt hefur
verið að vissum tengslum milli
þessarar nýju hreyfingar og
Kommúnistaflokksins,m.a. áþann
hátt, að um helmingur þeirra, sem
eru félagsbundnir í henni séu einn-
ig flokksbundnir í Kommúnista-
flokknum. Formaður Kommún-
istaflokks Eistlands, Vaino Váljas
hefur frá upphafi tekið þátt í
störfum alþýðufylkingarinnar.
Stofnþing alþýðufylkingarinnar
var svo haldið í Tallin, höfuðborg
Eistlands, fyrstu helgina í þessum
mánuði. Þingið sóttu um 3000
fulltrúar, kjörnir í deildum víðs
vegar um landið. í ályktun, sem
þingið samþykkti, segir að stefnt sé
að þvt', að Eistland verði sjálfstætt
ríki innan Sovétríkjanna, sem búi
við lýðræðislegt skipulag. Stefnt sé
að því, að Eistland verði sjálfstætt
í áföngum. Fáni Eistlands verði
viðurkenndur sem þjóðfáni. Eist-
neskan verði viðurkennd sem þjóð-
tunga og komið verði á eistneskum
ríkisborgararétti, sem menn fá
ekki, nema þeir hafi verið búsettir
í landinu í fimm ár.
Á stofnþinginu skýrði Vaino
Váljas, formaður Kommúnista-
flokks Eistlands frá því að hann
hefði rætt um þessi mál við Gorba-
tsjov, sem hefði tekið þeim vel,
eins og sást líka á því, að í lok
þingsins var tilkynnt, að þjóðfáni
Eistlendinga hefði verið viður-
kenndur og eistneskan viðurkennd
sem þjóðtunga og aðalmál Eist-
lands. Þá var tilkynnt, að fánar og
þjóðtungur Lettlendinga og Litháa
myndu hljóta svipuð réttindi. Þessi
tilkynning vakti mikinn fögnuð í
ríkjunum þremur.
Eftir síðari heimsstyrjöldina hef-
ur innflutningur fólks til Eistlands
frá öðrum héruðum Sovétríkjanna
farið mjög vaxandi og er talið að
Eistlendingar séu nú ekki nema
um 65% íbúa landsins. Meðal
innflytjenda veldur það nokkrum
ugg, ef tekinn verður upp eistnesk-
ur ríkisborgararéttur, því Eistlend-
ingar munu notfæra sér hann til að
þrengja að innflytjendum. Það hef-
ur átt verulegan þátt í fólksflutn-
ingum til Eistlands að iðnaður
hefur aukist þar hraðar en annars
staðar í Sovétríkjunum og því
Vaino Váljas og Gorbatsjov.
verið þar skortur á vinnuafli.
Efnahagur er almennt betri í
baltnesku ríkjunum en í öðrum
hlutum Sovétríkjanna. Eistneska
alþýðufylkingin leggur á það mikla
áherslu, að Eistland verði eflt sem
efnahagslega sjálfstæð heild innan
Sovétríkjanna. Þá verði dregið úr
miðstýringu og efnahagslífið
endurskipulegt í anda perestrojk-
unnar. Þá vill alþýðufylkingin að
Eistland fái neitunarvald varðandi
fyrirmæli frá Moskvu.
Flest bendir til þess að Vaino
Váljas hafi stjórnað þeim breyting-
um, sem hafa orðið í Eistlandi í
samráði við Gorbatsjov. Vaino
Váljas starfaði áður í utanríkis-
þjónustunni og hefur bæði verið
sendiherra í Venezúela og Nikar-
agúa.
Ef vel tekst til í Eistlandi, er ekki
ósennilegt, að það vaki fyrir þeim
Gorbatsjov og Váljas að þar skap-
ist fordæmi, sem þyki til fyrirmynd-
ar. Það gæti líka orðið Sovétríkjun-
um til styrktar, að fulltrúar frá
ríkisstjórnum baltnesku ríkjanna
gættu hagsmuna þeirra innan ým-
issa ríkjasamtaka og oft haft sam-
skipti við önnur ríki fyrir hönd
Sovétríkjanna. Svo getur því farið,
að innan ekki langs tíma verði
baltnesku ríkin þrjú aftur komin í
hóp sjálfstæðra ríkja í Evrópu.
Það þykir benda til, að Gorba-
tsjov og Váljas hafi hugsað sér
Eistland sem fyrirmynd, að um
seinustu helgi var haldið í Riga
stofnþing alþýðufylkingar Lett-
lands og að unnið er nú í Litháen
að stofnun alþýðufylkingar Lithá-
ens.
Haft er eftir Vaino Váljas, að
það hefði orðið til að greiða fyrir
stofnun alþýðufylkingarinnar í
Eistlandi, að andstæðingum Gor-
batsjovs var vikið úr framkvæmda-
stjórn Kommúnistaflokks Sovét-
ríkjanna. í kjölfar þess megi vænta
meiri breytinga.
Vesturland
Sunnlendingar
- viðtalstími
Guðni Ágústsson alþingismaður verður til viðtals
áeftirtöldumstöðumföstudaginn 14. októbern.k.:
Selfossi að Eyrarvegi 15 frá kl. 10 til 12, sími
98-22547.
Hvolsvelli að Hlíðarenda frá kl. 15 til 17, sími
98-78187.
Aðalfundur
Aðalfundur Framsóknarfélags Árnessýslu verður haldinn að Eyrar-
vegi 15, Selfossi þriðjudaginn 25. okt., n.k. kl. 21.00.
Venjuleg aðalfundarstörf, lagabreytingar. Önnur mál.
Stjórnin.
Sveitastjórnarkonur!
Við minnum sveitastjórnarkonur okkar á matarspjallsfundinn fimmtu-
dagskvöldið 13. okt. n.k. í Lækjarbrekku kl. 19.00.
Landsstjórnarkonur einnig velkomnar.
Framkvæmdastjórn LFK
Kjördæmisþing framsóknarmanna á Vesturlandi verður haldið á
Akranesi 5. nóvember n.k.
KSFV
Árnesingar
Hin árlega 3ja kvölda framsóknarvist Framsóknarfélags Árnessýslu
hefst föstudaginn 21. okt. n.k. kl. 21.00 að Flúðum, föstudaginn 28.
okt. í Þjórsárveri og lýkur 11. nóv. í Aratungu.
Aðalvinningur er ferð fyrir 2 með Samvinnuferðum/Landsýn.
Einnig vegleg kvöldverðarlaun.
Stjórnin.
Framsóknarvist
Framsóknarvist verður haldin að Hótel Lind
sunnudaginn 16. október kl. 14.
Stutt ávarp flytur Guðmundur G. Þórarinsson,
alþingismaður.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Aust rland
Kjördærr :ng framsóknarmanna á Austurlandi verður haldið í Hótel
Valaskjé gilsstöðum dagana 14. og 15. október n.k. og hefst kl.
20.00. N auglýst síðar.
KSFA
Norðurlandskjördæmi vestra
Kjördæmisþing verður haldið dagana 29. til 30. okt. n.k. í félagsheimil-
inu á Blönduósi. Þingið hefst kl. 14.
Dagskrá auglýst síðar.
KFNV
Gæöamerki sem veiöi-
menn eru öruggir meö.
Fyrirliggjandi í ýmsum
stærðum.
Kaupfélögin um land allt
og sportvöruverslanir í
Reykjavík