Tíminn - 08.12.1988, Page 5

Tíminn - 08.12.1988, Page 5
Fimmtudagur 8. desember 1988 Tíminn 5 °Viöræður hafa átt sér stað milli íslendinga og Indverja: vtwi9iu noiemnngir Asíu til í samstarf Samkvæmt heimildum Tímans hafa viðræður átt sér stað milli fslendinga og Indverja um hugsanlega samvinnu þeirra á milli, meðal annars í hótelrekstri. Indversk stjóravöld munu renna hýru auga til samvinnu við íslendinga á fleiri sviðum en ekki er, að svo stöddu, hægt að greina frá í hverju sú samvinna yrði fólgin. Það er ljóst að.stærstu hótelkeðj- umar á Indlandi, og þar með Asíu, hafa áhuga á samvtnnu við vönduð íslensk hótel, fimm og jafnvel fjögurra stjömu. Samvinna þessi gæti til dæmis verið fólgin í upp- setningu indverskra eldhúsa innan hótelanna, indverskir kokkar yrðu „lánaðir“, og það sem meira er, tii greina kemur einhverskonar fjár- hags- og markaðsleg samvinna, sem væri þá fólgin í því að þessir indversku aðilar myndu taka að sér markaðssetningu íslensku hótel- anna erlendis. Viðræður hafa átt sér stað, jafnt hér heima sem á Indlandi, og ráð er fyrir gert að það skýríst fljótlega um hvaða íslensk hótel er að ræða. Það er ljóst að um tvo stærstu hótelhringi Indlands og þar með Asíu er að ræða, annar er í einka- eign og hinn ríkisrekinn. Þetta mál mun tengjast þeirri útvíkkun sem á sér stað meðal indverskra fyrirtækja, til dæmis I Bandaríkjunum, og mun ísland hafa þótt álitlegur staður, bæði með tilliti til þeirrar kynningar sem landið hefur fengið erlendis að undanfömu auk þess sem aðstæður hér em, að mati Indverja, ákjósan- legar. Sannköllud himnasending Kunnugir telja ekki ioku fyrir það skotið að hér sé um nokkurs konar himnasendingu að ræða ef af verður. Eins og kunnugt er hefur uppbygging hótela á Stór-Reykja- víkursvæðinu verið með ólíkindum hröð að undanförnu og virðist sem í sumum tilfellum hafi verið ráðist í framkvæmdir af heldur meira kappi en forsjá. Sum þessara hót- ela ramba því jaínvel á barmi gjaldþrots og mörg þeirra eru ein- mitt í þeim gæðaflokki sem minnst er á hér að ofan, þ.e. fjögurra til fimm stjörnu. Ef vöngum cr velt yfir því hvaða hótel koma helst til greina, í þessari fslensk/indversku samsteypu, með tilliti til þess að fimm stjörnu hótel er helst til umræðu, kemur í Ijós að um frekar þröngan hóp er að ræða. Viðmælandi blaðsins sagði í gær að hótel væri í rauninni ckki fimm stjörnu ncma sundlaug væri á staðnum og þá koma fá t il greina v Fimm stjörnu hótelin Þau hótel sem í daglegu tali eru hinsvegar nefnd fimm stjörnu eru t.d. Hótel Holt, Hótel Saga, Hótei Esja, Hótel Loftleiðir, Hótel Örk og Holiday Inn. Þess má geta að í þennan hóp bætist Hótel ísland þegar það vcrður tekið í notkun, sem jafnvel gæti orðið að hluta til á næsta ári. Alit bendir til að eitthvcrt ofan- greindra hótela sé inni í myndinni og jafnvel fleira en eitt. Hvert þeirra hlýtur hnossið er eins og áður sagði ekki hægt að segja að svo stöddu en víst má telja að um hina mestu búbót verði að ræða fyrir þau „heppnu“. Ef litið er til Indlands herrna heimildir Tímans að stærstu hótcl- hringirnir þar séu Taj og Oberoi, sem báðir eru í einkacign og Ash- ok-keðjan sem eru ríkisrekin, eins- konar Edduhótel. Þessar keðjur eru sagðar á heimsmælikvarða og ná til fleiri landa en Indlands þannig að ekki er ólíklegt að um einhverja þeirra sé að ræða. Ema Hauksdóttir, fram- kvæmdastjóri Sambands veitinga- og gistihúsa, sagðist í samtali við Tímann í gær ekkert hafa heyrt um þessa fyrirhuguðu samvinnu og því ekki vilja tjá sig um málið. - En gæti fyrirhuguð markaðs- öflun og kynning ekki komið ís- lenskum hóteleigendum til góða? „Jú, ugglaust, en ég gct bara ekki tjáð mig um málið án þess að vita nokkuð um það. Mér finnst þetta hinsvegar bæði furðulegt og fróðlegt.“ -áma Gráfíkjur frá „Vijgen Klijnoot" reyndust innihalda eiturefni: Sölubanni íétt af gráfíkjum Hollustuvemd ríkisins hafa boríst niðurstöður rannsokna a gráfíkjum, hvort í þeim fyndist eiturefnið aflatoxin. Niður- staðan varð sú að tvær þeirra vörusendinga, sem nú eru fuUrannsakaðar, reyndust innihalda aflatoxin yfir viðmiðun- armörkum og hefur sala þeirra verið bönnuð. Hér er um að ræða vörusendingu sem ekki hafði verið dreift í verslan- ir, þ.e. ekki tollafgreidd og aðra vörusendingu, sem hafði verið til sölu í verslunum, þar til sala á gráfíkjum var stöðvuð þann 24, nóvember sl. Sala þeirra verður ekki leyfð. Með hliðsjón af þessu hefur sölu- banni á gráfíkjum verið aflétt, öðr- um en framangreindum tveim vöru- sendingum og þeim sem nú eru innsiglaðar vegna frekari rannsókna. Jafnframt mun stofnunin leggja til við heilbrigðis- og tryggingaráðu- neytið að settar verði reglur um innflutning og sölu á gráfíkjum. Verður þar m.a. lagt til að sala á gráfíkjum verði ekki leyfð nema að undangenginni rannsókn fyrir afla- toxíni. Sú vörusending sem var hér á markaði og sem mældist yfir viðmið- unarmörkum, var seld í miklu magni áður en sala var stöðvuð. Er hér um að ræða vörumerkið „Vijgen Klij- noot“ og er geymsluþolsmerking vörunnar 1. apríl 1989. Nettóþyngd umbúða er 300 gr. og eru gráfíkjurn- ar í plastbakka sem vafinn er þunnu plasti. Hollustuvernd sendi sýni til grein- ingar í Svíþjóð, að lokinni forrann- sókn hér. Allar gráfíkjur sem dreift hafði verið til sölu í verslanir voru athugaðar, en ekki er lokið athugun á vörusendingum sem ekki hafði verið dreift til sölu. Vörur sem eru til frekari rannsóknar hafa verið innsiglaðar þar til niðurstöður liggja fyrir. -ABÓ Næturvaktin á brunaæfingu Undraland í Laugardal var brennt til kaldra kola í fyrrinótt og var það slökkviliðið í Reykjavík sem brenndi húsið. Undraland var eitt af síðustu húsum borgarinnar sem stóð á bújörð. Vegna þess hversu stuttan tíma slökkviliðið hafði húsið til æfinga áður en það þurfti að hverfa af sjónarsviðinu, var ákveðið að nýta tímann sem best og því ekki gerður greinarmunur á hvort var nótt eða dagur þegar æfingarnar fóru fram. Slökkviliðinu áskotnaðist húsið í byrjun vikunnar og var þegar hafist handa við að æfa reykköfun. { gær var síðan tekið til við að æfa brunaverðina í að slökkva elda og var því kveikt og slökkt í húsinu á víxl, þar til það var brunnið til kaldra kola um sexleytið í gær- morgun. f gærdag var Undraland síðan jafnað við jörðu. -ABÓ Alþjóðleg samkeppni Rauða krossins í Búlgaríu um myndverk: 9 ára Akumesingur sigrar Nýlega bárust verðlaun og viður- kenningar fyrir þátttöku í 7. alþjóð- legu samkeppninni „Hvernig líst þér Verðlaunahafl íslands, Anna Björk Þorvarðardóttir, er lengst tii hægri á myndinni, í stólnum situr Guðrún Ósk Ragnarsdóttir, sem fékk viður- kenningu, þá Guðmundur Örn Björnsson,sem líka fékk viðurkenn- ingu. Fyrir aftan þau er Helga Garð- arsdóttir, en hún hafði veg og vanda af keppninni á Akranesi. á myndverkið mitt?“, sem Rauði kross Búlgaríu efnir til annað hvert ár, og hlaut Anna Björk Þorvarðar- dóttir, 9 ára fötluð stúlka á Akra- nesi, verðlaun. Myndin hennar prýð- ir nú barnadeild á sjúkrahúsi í Búlg- aríu. Viðurkenningar fengu þau Guð- mundur Örn Björnsson og Guðrún Ósk Ragnarsdóttir, en þau eru ásamt Önnu Björk í Brekkubæjarskóla á Akranesi, og Díana Mjöll Stefáns- dóttir frá Akureyri, en hún lést áður en viðurkenningarnar bárust. Þá fengu börnin einnig viðurkenningar frá Rauða krossi íslands. AIls tóku börn frá 28 þjóðum þátt í keppninni og var ísland eina landið á Norðurlöndunum sem tók þátt núna. Rauði kross íslands vill vekja athygli á þessari samkeppni sent getur verið hvatning til sköpunar listaverka og gott tækifæri fyrir kennara fatlaðra og sjúkra barna að koma þeim á framfæri.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.