Tíminn - 08.12.1988, Blaðsíða 10

Tíminn - 08.12.1988, Blaðsíða 10
m Tíminn FimmtnHflrmr ft Hocpmhor iQfií? FimmtudaQur 8. desember 1988 Handknattleikur: Naumur sigur KR KR-ingar unnu nauman en átaka- lítinn sigur á botnliði Breiðabliks, 26-23, í 1. deildinni í handknattleik í Digranesi í gærkvöld. Leikurinn var ákaflega rólegur og KR-ingar voru jafnan yfir. Þeir breyttu stöðunni úr 4-3 í 9-3 í fyrri hálfleik, en eftir það hresstust Blik- amir nokkuð, þó aðallega Hans Guðmundsson, sem skoraði hvert markið af öðru. Forskot KR var 4 mörk, 14-10, í leikhléinu. Breiðabliksmenn tóku þá Pál Ólafsson og Alfreð Gíslason úr um- ferð allan leikinn og gekk sú leikað- ferð upp eins langt og hún nær, mikið losnaði um hornamenn KR, en þeir eru engin lömb að leika sér við. KR-ingar beittu þessari leikað- ferð gegn Hans Guðmundssyni í síðari hálfleiknum, en félagar hans tóku þá við því hlutverki að skora. LiSTUNARÁÆTIUN - Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: Aarhus: Alla þriðjudaga Svendborg: Annan hvern þriðjudag Kaupmannahöfn: Alla fimmtudaga Gautaborg: Alla föstudaga Varberg: Annan hvern miðvikudag Moss: Annan hvern laugardag Larvik: Alla laugardaga Hull: Alla mánudaga Antwerpen: Alla þriðjudaga Rotterdam: Alla þriðjudaga Hamborg: Alla miðvikudaga Helsinki: Hvassafell . . . 10/12 Portsmouth: Jökulfell Skip Skip . . . 27/12 . . . 16/1 '89 . ... 6/2 '89 New York: Jökulfell Skip Skip . . . 27/12 . . . 16/1 '89 . ... 6/2 '89 Gloucester: Skip Skip Skip . . . 27/12 . . . 16/1 '89 . ... 6/2 '89 llg* SKIPADEILD ^ASAMBANDSINS LINDARGÖTU 9A • 101 REYKJAVlK SlMI 698100 k. L X A X A A X . IAKN IRAUSTRA LLIJININGA Munurinn lengst af var þetta 4-5 mörk, en undir lokin óx Blikum ásmegin og þeir náðu mest að minnka muninn í 2 mörk. KR-ingar unnu leikinn með 3 mörkum, 26-23. Ótrúlega átakalftill sigur, þrátt fyrir lítinn mun í lokin. Áberandi var hvað varnarleikur Blikanna var lakari en KR-inga. Það tók aldrei nema 10-20 sek. fyrir KR-ingana að skora, en Blikarnir tóku sér góðan tima til að finna glufur á KR-vörninni. Bestu menn KR voru þeir Guðmundur Alberts- son, Leifur Dagfinnsson markvörð- ur, Stefán Krístjánsson og Konráð Olavson, en Hans Guðmundsson Landslið ísland í körfuknattleik undirbýr sig nú af krafti fyrir leiki sem verða ytra seinna í þessum mánuði. Liður í þeim undirbúningi var leikur gegn úrvalsliði undir stjóm Torfa Magnússonar. Leikur- Handknattleikur: Stjornusigur Stjarnan vann Gróttu 24-19 i 1. deildinni í handknattleik í Digranesi i gærkvöld. t hálfleik var staðan 10-9 fyrir Stjömuna, en í síðari hálfleik náðu Garð- bæingar afgcrandi yfirráðum sem þeir létu ekki af hendi. Munurínn var 5 mörk þegar upp var staðið. BL Lið Calgary Flames stendur nú best að vígi í NHL-deildinni, at- vinnumannadeildinni í íshokkí í N- Ameríku. Kanadamenn era sterkir í þessari íþrótt og þarlend lið leika í sömu deild og þau bandarísku. Cal- gary liðið hefur aðeins tapað 4 Ieikjum það sem af er keppnistíma- bilinu, en næsta lið, Detroit Red Wings hefur tapað 8 leikjum. Úrslit í leikjum deildarinnar síð- ustu daga eru þessi: Boston Bniins-Pittsburgh Peng .... 3-3 Philadelphia Flyets-NJ.Devils.. 6-2 Edmonton 0liers4I.Y.Rangen..... 10-6 Calgary Flames-Winnipeg Jets... 6-3 Montreal Can.-Detroit Red Wings ... 7-2 Hartford Whaiers-Buffalo Sabres ... 94) Pfttsburgh Peng.-Chicago Blackh .. 7-6 Washington Capit-Philadelphia F1 .. 4-3 Boston Bruins4iew York Islanders . 4-3 St.Louis Blues-Minnesota North S .. 34) Calgary Flames-Quebec Nordiques . 3-2 Winnipeg Jets4os Angeles Kings .. 5-4 NewYorftRangers-VancouverCan . 5-3 Staðan í deildinni er nú þessi: Wales-deildin var mjög ógnandi hjá Kópavogsbú- um og Andrés Magnússon slapp einnig vel frá leiknum. Blikarnir léku oft vel í þessum leik og virðast allir vera að færast í aukana, þrátt fyrir að vera í botnsætinu sem stendur. KR-ingarnir virtust áhuga- litlir og voru heppnir að mótspyrnan var ekki meiri. Mörkin UBK: Hans 10, Andrés4, Jón Þórir 4/4, Kristján 3 og Sveinn 2. KR: Stefán 8/1, Guðmundur 6, Konráð 4, Alfreð 3, Páll Ól. 2, Páll Ó1. yngri 2 og Sigurður Sveinsson 1. Dómarar voru þeir Guðlaugur Hjálmarsson og Óli Ólsen. BL inn fór fram í íþróttahúsi Keflavíkur í gærkvöldi, landsliðið sigraði 71-55, staðan í hálfleik var 37-29. Leikurinn var ekkert fyrir augað, hann var jafn framan af, þar til um miðjan hálfleikinn að landsliðið seig fram úr og hafði yfirhöndina allan leikinn og mestur var munurinn 20 stig. Úrvalið náði illa saman, enda ekki við öðru að búast, menn koma sitt úr hvorri áttinni. Landsliðið var ekki sannfærandi í þessum leik þrátt fyrir öruggan sigur. Bestur var Guð- mundur Bragason, Tómas Holton átti góðan fyrri hálfleik. Stigin; landsliðið: Guðmundur Br. 14, Valur 12, Tómas 12, Ivar Ás. 10, Jón Kr. 8, Guðjón 5, Magnús 4, Henning 2, Matthías 2 og Birgir 2. Úrval: Pálmar 17, Helgi 10, Sturla 8, Sigurður Ingim. 6, Ivar Webster 4, Jóhannes 4, Teitur 4 og Hreinn 2. Dómarar voru þeir Gunnar Val- geirsson og Kristinn Albertsson. MS/BL Patrick-riðill: Pittsburgh Penguins . 2615 110122-133 31 New York Rangers ... 2714 310113-104 31 Washington Capitals.. 26 12 3 11 93- 93 27 Philadelphia Flyers ... 3012 216 113-107 26 New Jersey Devils.... 26 8 4 14 92-107 20 New York Islanders... 26 7 217 77-111 16 Adams-riðill: Montreal Canadiens .. 2916 4 9114- 98 36 Boston Bruins...... 2811 710 95- 84 29 Buffalo Sabres .... 27 11 2 14 96-11124 Hartford Whalers... 2510 1 14 86- 93 21 Quebec Nordiques .... 28 9 217101-132 20 Campbell-deild Norris-riðill: Detroit Red Wings.... 2614 4 8100- 98 32 St. Louis Blues ... 24 10 4 10 84- 84 24 Toronto Maple Leafs .. 2711 1 15 82-108 23 MinnesotaNortbStars. 26 9 4 13 87-10122 Chicago Blackhawk ... 27 6 4 17 106-134 16 Smythe-riðill: Calgary Flames..... 27 19 4 4 123- 70 40 Los Angeles Kings.... 27 18 0 9 148-110 36 Edmonton Oliers.... 28 16 3 9 129-11135 Vancouver Canucks .. 2911 513 96- 9127 Winnipeg Jets ..... 23 10 4 9 95- 93 24 BL Körfuknattleikur: Landsliðið vann öruggan sigur Frá Margréti Sanders fréttamanni Tímans: Íshokkí: Calgary stendur best að vígi 8800 220-159 16 7700 185-152 14 8 5 0 3 171-164 10 7 4 0 3 184-170 8 8 4 0 4 183-180 8 8 3 1 4 212-226 7 8 2 1 5 170-178 5 8 1 3 4 171-199 4 8116 160-190 3 8 1 0 7 168-204 2 Valur . KR . . . Stjaman FH . . . KA . . . Víkingur Grótta . Fram . ÍBV . . UBK . Þetta er hið frækna lið Tímamanna er lenti í öðra sæti í keppni fjölmiðlanna í knattspyrnu síðastliðinn sunnudag. Úrslitaleikurínn sem var við lið DV tapaðist naumlega 3-0, enda var þá orðið vart þreytu í liðinu. Túnaliðið sigraði lið Dags frá Akureyrí 1-0, gerði jafntefli 0-0 við Frjálst Framtak og 1-1 við Stöð 2. Lið Þjóðviljans og Stjörnunnar gáfu sína leiki. Alls. tóku 9 lið þátt í keppninni og bar Halldór Halldórsson hitann og þungann af skipulagningu mótsins. Silfurlið Tímans var þannig skipað: Efri röð frá vinstri, Sigurður Lárússon, Halldór Jóhannsson, Agnar Birgir Óskarsson, Pjetur Sigurðsson, neðri röð f.v. Gunnar Sverrisson, Kristján Grímsson og Egill Már Markússon. Körfuknattleikur: Njarðvík og Kef lavík mætast í fyrstu umferð Það er óhætt að segja að stórleikir verði í 16 liða úrslitum bikarkeppni KKÍ. Suðurnesjarisarnir Njarðvík og Keflavík niætast og í Reykjavík mætast lið Vals og KR. Þá drógust Grindvíking- ar gegn Haukum. f undankeppni leika Njarðvík b og Laugdæiir annars vegar og USVH og UBK hins vegar um 2 laus sæti í 16 liða úrslitunum. stórleikir í fyrstu umferð bikarkeppni KKÍ Eftirtalin lið leika því saman í 16 liða j kvennaflokki drógust eftirtalin lið úrslitum: USVH/UBK-Þór Kormákur-ÍR ÍS b-Léttir UMFN-ÍBK Valur-KR UMFG-Haukar ÚÍA-UMFN b/UMFL UMFT-fS a sainan: Haukar-KR ÍR-UMFG UMFN-ÍS b fS a-ÍBK Lcikið verður heima og heiman og fyrri leikirnir fara fram 11.-13. janúar og scinni leikirnir 18.-20. janúar. í fyrra var bikarkeppnin ákaflega spennandi og nægir þar að minna á leik Keflvikinga og Njarðvíkinga í 8 liða úrslitum og 2 jafnteflisleik ÍR og Grínd- víkinga i sömu umferð, spennandi undanúrslitaleiki og frábæran úrslita- leik. Spennan ætti ekki að verða minni þegar bikardrátturínn nú er skoðaður, þrjár spennandi viðureignir þegar í 16 liða úrstitunum. BL Handknattleikur Valssigur gegn FH Valsmenn unnu FH-inga í gær- kvöldi, 30-25. En sigur Valsmanna var alls ekki eins öruggur og loka- tölurnar sýna því þegar um átta mínútur voru til leiksloka höfðu FH-ingar tveggja marka forskot 21- 23. Strax á fyrstu mínútum leiksins var það ljóst að hvorugt liðið ætlaði að gefa eftir og ætluðu sér bæði stigin. Leikurinn var í jafnvægi allt frá upphafi og skiptust liðin á að hafa forystu. Valdimar Grímsson var í miklum ham í upphafi leiksins og skoraði þrjú fyrstu mörk Vals. Héðinn Gilsson, FH-ingur, var drjúgur og átti Einar Þorvarðarson oft í miklu basli með að verja dúndurskot hans. Þegar 15 mín. voru liðnar var staðan 7-7, og liðin skiptust á að skora og í hálfleik var staðan 13-13. Valsmenn hófu seinni hálfleik af hörku og náðu tveggja marka for- skoti 19-17. En þá vöknuðu FH-ing- ar aftur til lífsins og náðu að jafna leikinn og komast yfir 20-22. Þegar 8 mínútur voru til leiksloka voru FH-ingar enn yfir 21-23, en þá tóku Valsmenn mikinn kipp og á sex Leiðinlegt í Höllinni Leikur Fram og Víkings í 1. deiid karla í handknattleik í gærkvöldi var ekki mikið skemmtilegur á að horfa. Leikurinn endaði með jafntefli, 29- 29, eftir að Víkingar höfðu haft tveggja marka forskot í leikhléi, 16-14. Jafnræði var með liðunum í byrjun og skiptust liðin á að skora en Víkingar náðu tveggja marka for- skoti eftir tuttugu mín. leik og héldu því til leikhlés. Strax í byrjun síðari hálfleiks eða eftir sex mín. leik náðu Víkingar sjö marka forskoti. Fram- arar gáfust ekki upp og söxuðu jafnt og þétt á forskot Víkinga og þegar 1 1/2 mín. var til leiksloka náði Júlíus Gunnarsson að jafna metin 29-29. Víkingar hófu sókn og fiskuðu víta- kast og virtust ætla að gera út um leikinn. Karl Þráinsson skoraði úr vítakastinu en dómarar leiksins dæmdu markið af og Framarar fengu boltann. Framarar náðu skoti að marki Víkinga en Sigurður varði vel. Bestur í liði Víkinga var mark- vörður þeirra Sigurður Jensson. Birgir Sigurðsson var bestur Fram- ara. Hákon Sigurjónsson og Guðjón L. Sigurðsson dæmdu þennan leik og gerðu þeir mistök eins og leik- menn. Mörk Fram: Birgir 9, Júlíus 5, Agnar 5, Tryggvi 3, Hermann 3 lv., Egill 2 og Ragnar 1. Mörk Víkinga: Guðmundur 7, Ámi 7 3v., Bjarki 4, Sigurður 4, Jóhann 3, Karl 2 og Siggeir 2. GS. Góður sigur KA Frá Jóhanncsi Bjaraasyni fréttamanni Tímans: „Ég þakka ykkur fýrir leikinn strákar, hann var góður á köflum,“ sagði Aðalsteinn Jónsson formaður handknattleiksdeildar KA við leik- menn liðsins, er þeir höfðu lagt Eyjamenn að velli með 24 mörkum gegn 19 í gærkvöldi. Þar rataðist Aðalsteini satt orð í munn, því leikur KA var mjög sveiflukenndur, en leikurinn var einnig mjög fjörugur allan tímann og brá oft fyrir fjörugum sóknum, en varnir liðanna vora slakar lengst af. Jafnræði var með liðunum allan fyrri hálfleik, en heimamenn þó alltaf með fmmkvæðið. í hálfleik var stað 12 mörk gegn 10 þeim í vil. Úrslit leiksins réðust svo í upphafi síðari hálfleiks, en skomðu KA- menn 3 mörk í röð og má segja að sigrinum hafi ekki verið ógnað eftir það. Mest náðu KA-menn 8 marka forskoti, en eftir það minnti leikur- inn töluvert á fyrirtækið sem Billy Smart rak og rekur enn. Sigurður Gunnarsson var tekinn úr umferð í fyrri hálfleik og var þá óstöðvandi, en síðan hættu KA-menn að gæta hans sérstaklega og þá var hann viðráðanlegur. Hjá KA áttu þeir Erlingur, Guðmund- ur og Friðjón allir ágætan leik og Axel markvörður varði stórvel, eða 23 skot, þar af 3 víti. Það er gleðilegt fyrir KA-menn að Friðjón fyrirliði Jónsson virðist vera að komast í sitt rétta form, efir nokkra slka leiki. Einnig virkaði liðsstjómunin mun skynsamlegri en í undanfömum leikjum. Hjá iBV vom mínútna kafla jöfnuðu þeir og kom- ust sex mörkum yfir 30-24. Héðinn náði svo að minnka muninn í lokin er skoraði um þrem metrum fyrir utan punktalínu. Leiknum lauk því með sigri Vals 30-25. Hjá Valsmönnum var Einar Þor- varðarson góður sem og þeir Júlíus og Valdimar. Sigurður Sveinsson var góður í seinni hálfleik og skoraði þá nokkur stórglæsileg mörk. Héðinn Gilsson var helsti sóknar- broddur FH-inga, hann skoraði mörg stórglæsileg mörk og var góður í vörninni. Óskar Ármannsson tók vítaköst FH af miklu öryggi og Bergsveinn varði oft mjög vel í markinu. Dómarar voru .þeir Stefán Am- aldsson og Ólafur Haraldsson. Dæmdu þeir leikinn vel, enda var hann prúðmannl.ega leikinn af hálfu beggja liða. Mörk Vals: Valdimar 8, Júlíus 7/1, Sigurður Sv. 6, Jón 4, Jakob 3 og Geir 1. Mörk FH: Héðinn 9, Óskar Á. 8/4, Óskar H. 3, Guðjón 3 og Þorgils L FH Körfuknattleikur: Velskur dómari kemur í janúar - Styrr um Kristin Albertsson dómara! Körfuknattleikssamband íslands hefur ákveðið að fá einn þekktasta dómara heims, Wales-búann William Jones, til þess að dæma hérlendis frá janúar og út keppnis- túnabilið. Frá samningum við Jones verður gengið ■ vikunni, er forráðamenn KKI koma við í London á lcið landsliðsins til Möltu. Jafnframt því að dæma, mun Jones halda námskcið fyrir nýja dómara og fylgjast með dómgæslu þeirra reyndari eftir því sera færi gefst. Dómararaefnd KKÍ vonast til þess að koma Jones verði körfu- knattleiksiþróttinni hérlendis til framdráttar. Þá hefur Gunnar Valgeirsson formaður dómaranefndar KKÍ, sent frá sér eft irfarandi yfirlýsingu: „Vcgna frétta í fjölmiðlum undanfaraa daga um að Kristinn Aibertsson körfuknattleiksdómari hafi veríð beðinn um að hætta að dæma leiki hjá ákveðnum féiögum, en hann neitað þeirri bón, vill undirritaður taka eftirfandi fram: Krístinn hefur ekki verið beðinn um að hætta að dæma leiki hjá neinu félagi og því aiis ekki verið í þeirri aðstöðu að neita siíkri bón.“ Formaður dómarancfndar KKf, Gunnar Valgeirsswn. Málið mun tilkomið vegna yfir- lýsinga Keflvíkinga um að Kristinn sé mikill vinur leikmanna KR og í ieik KR og ÍBK um síðustu helgi mótmælti Lee Nober þjálfarí ÍBK, dómgæslu Krístins á mjög tákn- rænan og spaugiiegun hátt. Þá hefur heyrst að Ilaukar séu allt annað en búnir að gleyma umdeildu atviki á síðustu sekúndu i leik KR og Hauka í siðustu viku. Aðgerðir munu vera á prjónunum í herbúðum Hauka til að mótmæia dómgæslu Kristins, sem dæmt hef- ur fjöldan allan af Haukaleikjum í vetur. Það er því óhætt að segja að vinsælli menn finnist innan dóm- arustéttarinnar hérlendis, en Kríst- inn er nú samt cinn af bestu dómuram landsins. BL þeir Sigurður Gunnarsson og Sigurður Friðriksson langbestir. Dómarar voru þeir Vigfús Þorsteinsson og Steinþór Baldurrson og voru þeir mjög mistækir. Mörkin KA: Erlingur 7/4, Guðmundur 5, Friðjón 4, Jakob 3, Ólafur 2, Pétur 1, Sigurpáll 1 og Haraldur 1. ÍBV: Sigurður Gunn. 6, Sigurður Friðr. 6/3, Óskar 3, Jóhann 3 og Tómas 1. JB/BL úlíus Jónasson skorar hér eitt 7 marka sinna gegn FH í gær. Tlmamynd: PJetur Körfuknattleikur - NBA: Meistarar Lakers hafa tapað fæstum leikjum Besta körfuknattleikslið heims, lið Los Angeles Lakers, stendur nú best að vígi í NBA-deildinni. Liðið hefur aðeins tapað 3 af 16 leikjum sínum og hefur afgerandi forystu í Kyrrahafsriðli Vesturdeildarínn- ar. í Miðvesturriðli Vesturdeildarinnar er jöfn og spennandi keppni. DenverNuggets eru í efsta sæti, þrátt fyrir 1 stigs tap fyrir New York Knicks eftir framlengdan leik í fyrrakvöld. Utah Jazz, Dallas Mavericks og Houston Rockets fylgja fast á eftir. í Austurdeildinni er keppni hörð í báðum riðlunum. í Atlantshafsriðlinum eru Charles Barkley og félagar í Phila- delphia 76‘ers í efsta sætinu. Á síðasta keppnistímabiii gerðist það í fyrsta sinn síðan 1975 að liðið komst ekki í úrslita- keppnina. Röð mistaka framkvæmda- stjórnar liðsins hvað kaup og sölu á leikmönnum varðar, gerði það að verkum að liðið var í fyrra lítið annað en Barkley. Þessi mistök náðu hámarki þegar Moses Malone var seldur frá liðinu. Til liðs við Sixers er nú komin háskóla- -óvænt velgengni „Sixers“ stjarnan Hersey Hawkins, sem lék í Ólym- píuliði Bandaríkjanna í Seoul. Hawkins meiddist á hné í riðlakeppninni og gat því ekki leikið með í tapleiknum gegn Sovét- ríkjunum í undanúrslitunum. Fróðir menn töldu að fjarvera Hawkins hefði haft sitt að segja í þeim leik. Hawkins er bakvörður og mikill skotmaður. Aðalboltabakvörður Sixers er sem fyrr Maurice Cheeks, en aðrir í byrjunarliðinu auk Barkley og Hawkins eru miðherjinn Mike Gminski og framherjinn Cliff Robinson. Lið New York Knicks hefur lengi verið í öskustónni, en er nú loks upprisið. Burðarásar liðsins eru miðherjinn Patrick Ewing og bakvörðurinn Mark Jackson, sem valinn var nýliði ársins í fyrra. Liðið leikur stífa pressuvörn og mjög gaman er að fylgjast með leik liðsins. Knicks hafa tapað 6 leikjum eins og Sixers og þessi 2 lið berjast um sigur í riðlinum. í þriðja sæti kemur síðan lið Boston Celtics, sem má muna sinn fífil fegri. f miðriðli Austurdeildarinnar trónir lið Detroit Pistons á toppnum þrátt fyrir stórtap gegn Milwaukee Bucks í fyrra- kvöld. Liðið hefur tapað 4 leikjum eins og Cleveland sem er í öðru sæti. Lið Atlanta Hawks og Milwaukee koma næst með 6 töp hvort lið og Chicago Bulls hefur tapað 8 leikjum. Neðst er síðan lið Indiana Pacers með aðeins 2 sigra. Gífurlega hörð keppni í þessum riðli, eins og í fyrra. Úrslit leikja undanfama daga í NBA- deildinni fara hér á eftir: Cleveiand Cav.-Denver Nugg . . 122-103 Detroit Pistons-N.J.Nets.....102- 99 L.A.Lakers-Washington Bullets . . 119-112 Atlanta H.-Sacramento Kings . 123-113 Portland Trail Bl.-N.J.Nets ... 97- 93 N.Y.Knicks-Denver Nugg.frl . . 124-123 Chicago Bulls-Boston Celtics . . 105-100 Houston Rockets-Qeveland Ca. . . 106-105 Milwaukee Bucks-Detroit Pist . 109- 84 Seattle Supersonics-S.A.Spurs . 112-107 Phoenix Suns-Washington Bull . 115- 85 Golden State Warr.-Utah Jazz . 114-103 L.A.Lakers-L.A.Clippers .... 111-102 BL

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.