Tíminn - 22.12.1988, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 22. desember 1988
Tíminn 9
BÓKMENNTIR
Oyndisleg
aðalpersóna
Ólafur Jóhann Ólafsson:
Markaðstorg guðanna,
Vaka-Helgafell, Rv. 1988.
Það er margt gott um þessa nýju
skáldsögu Ólafs Jóhanns Ólafssonar
að segja, en hún hefur líka galla. Svo
að byrjað sé á kostunum þá er ljóst
að höfundur hefur gott vald á máli
og stíl, svo og á því að draga upp
myndir af söguumhverfi sínu. Þarna
eru margar allve! gerðar og skýrar
myndir úr viðskiptalífinu í Banda-
ríkjunum, þar sem sagan gerist, og
reyndar frá íslandi líka.
Aðalpersónan, Friðrik Jónsson,
er guðfræðingur sem heldur vestur
um haf til framhaldsnáms í heim-
speki. Þar lýkur hann doktorsprófi
og kvænist dóttur forríks lögfræð-
ings. Tengdafaðirinn útvegar honum
vinnu við iðnaðarnjósnir hjá jap-
önskum auðhring, sem er athafnas-
amur í Bandaríkjunum, og allt geng-
ur vel framan af. Þegar fram í sækir
fær Friðrik þó hinn mestá leiða á
bæði starfi sínu og hjónabandi. f
öngum sínum leiðist hann út í að
selja keppinautum vinnuveitenda
sinna leyniskjöl frá fyrirtækinu. í
bókarlok er hann svo kominn í
vonda klípu, annað hvort heldur
hann áfram að afhenda leyniskjöl
eða keppinautarnir fletta ofan af
honum og starf hans fer veg allrar
veraldar.
Það vekur hins vegar athygli að
eigi að skilja þetta þannig að Friðrik
sé hér að fletta ofan af glæpsamlegu
atferli vinnuveitenda sinna þá eru
rök sögunnar fyrir því vægast sagt
ekki ýkja sannfærandi. Eftir því sem
málinu er lýst þarna þá er ekki að sjá
að þar sé annað á ferðinni en
vinnubrögð sem séu viðtekin í hinu
frjálsa markaðskerfi vestra og þeir
sem í því vinni verði að lifa við,
hvaða skoðun sem menn vilji hafa á
því kerfi að öðru leyti. Fyrir vinnu-
veitendum Friðriks vakir að kaupa á
frjálsum markaði meirihluta hluta-
bréfa í fyrirtæki keppinautanna og
ná þannig yfirráðum í því. Þegar
Friðrik lætur keppinautana fá skjöl
sem varða kaupáformin er hann
vitaskuld að gera þeim góðan greiða.
En að hjá honum ráði ferðinni til
dæmis einhver pólitísk hugsjóna-
sannfæring, hvað þá að hann sé að
vinna að almannaheill með þessum
verknaði, er ekki að sjá af bókinni.
Þvert á móti er það fyrst og fremst
bæld andstyggð hans á starfi sínu og
vinnuveitendum sem ræðurgjörðum
hans.
Nú má svo sem vitaskuld vera að
einhverjir vilji segja sem svo að
vinnuveitendur Friðriks hafi ekki átt
annað en þetta skilið. Og má svo
sem vel vera talsvert til í slíku eftir
því sem þeim er þarna lýst. En hitt
er annað mál að okkur hefur víst
flestum verið innrætt það frá barn-
æsku að þegar menn ráði sig í starf
þá eigi þeir að reyna að skila þeim
verkum sem þeir láta borga sér fyrir
að vinna. Ef þeim líki ekki starfið þá
eigi þeir að leita sér að öðru betra og
skipta um vinnu. Út frá þessu sjónar-
miði er atferli Friðriks vitaskuld
með öllu óréttlætanlegt.
Við það bætist svo hitt að Friðrik
reynist alls ekki vera maður til að
taka afleiðingum gjörða sinna þegar
á reynir. Það sést hvað skýrast á því
þegar besta vini hans í fyrirtækinu er
kennt um lekann, eftir að hann
hefur uppgötvast, og honum sparkað
umsvifalaust. Þá hreyfir Friðrik ekki
litla fingur honum til bjargar þó
hann viti upp á sig skömmina. Þegar
upp er staðið fer þannig ekki á milli
mála að Friðrik er mannleysa og alls
ófær um að takast á við erfiðleika
daglegs lífs. Þegar hann er í bókar-
lok kominn í það öngstræti að starfið
virðist honum með öllu glatað þá er
Ólafur Jóhann Ólafsson rithöfund-
ur.
erfitt að verjast þeirri tilhugsun að
þetta sé nú ekki annað en það sem
hann hafi kallað yfir sig sjálfur og
eigi skilið.
En hitt er svo annað mál að það
er vel þekkt viðfangsefni í skáldsög-
um að lýsa glæpamönnum, reyna að
kryfja eðli þeirra og orsakir afbrot-
anna, og máski að réttlæta þá
þannig, eða í það minnsta afsaka.
En sé leitað að slíkri krufningu í
þessari bók þá verður afraksturinn
þó óneitanlega heldur rýr. Fjárhags-
legar ástæður fyrir gjörðum Friðriks
eru hér ekki sjáanlegar, og við
réttlætiskennd sína er erfitt að segja
að hann styðjist nema þá ákaflega
óbeint. Hann er fyrst og fremst
ráðleysingi sem grípur til hinna
ódrengilegustu örþrifaráða í magn-
leysi sínu þegar hann ræður ekki
lengur við vandamál síns daglega
lífs. Af sjálfu leiðir svo að úr verður
ekki saga um spillingu bandarísks
viðskiptalífs heldur saga sem öll
snýst utan um meinlegan skapgerð-
arbrest í aðalpersónunni.
Það á við um allar bækur að
marktækar ástæður þurfa að vera
fyrir því að þær séu skrifaðar. Til
dæmis þurfa venjulegar ævisögur að
vera um fólk sem hefur upplifað
eitthvað það sem geri sögur þess að
áhugaverðum bókum. Á sama hátt
þurfa aðalpersónur skáldsagna að
vera nægilega burðarmiklar til þess
að gera verkin að áhugaverðu les-
efni. Um Friðrik Jónsson er það hins
vegar að segja að hann er ekki
maður sem er sérstaklega aðlaðandi
til viðkynningar. Hann er rola sem
kvænist inn í feitt starf og veldur svo
ekki tilgangsleysi þess lífs sem á eftir
fylgir. Hann er maður sem ekki er
tiltakanlega forvitnilegt að kynnast.
Hann hrindir fremur frá en að hann
laði að.
Ólafur Jóhann Ólafsson vakti tals-
verðar vonir þegar hann sendi frá sér
smásagnasafn fyrir tveimur árum.
Það var vel gerð byrjandabók, og af
þeim sökum var þessarar frumraun-
ar hans í skáldsagnagerð beðið með
nokkurri eftirvæntingu. Og af sömu
ástæðum verður ekki annað sagt en
að þessi skáldsaga valdi á vissan hátt
vonbrigðum. Þó að bókin sé vissu-
lega vel skrifuð og jafnvel spennandi
þá er aðalpersónan ckki þannig úr
garði gerð að hún kveiki nægilegan
áhuga til að bera uppi verk af þessari
stærð. Vonandi á höfundi eftir að
takast betur til með persónugerð
sína í þeim sögum sem þessi sýnir þó
eigi að síður að hann hefur alla burði
til að skrifa í framtíðinni. -esig
Nýjar formáherslur
Matthías Johannessen:
Dagur af degi, Almenna bókafélagiö, 1988.
Það er einkum tvennt sem vekur
athygli við lestur þessarar nýjustu
ljóðabókar Matthíasar Johannes-
sen. Annars vegar að ljóst er að
hann sýnir hér áberandi tilhneig-
ingu til að yrkja innhverf ljóð, þar
sem jöfnum höndum eru sótt yrkis-
efni inn í manninn og tilfinningalíf
hans sem og aftur í aldir í þjóðar-
söguna. Hins vegar er greinilegt að
hann er hér kerfisbundið að gera
tilraunir með ljóðformið, tilraunir
þar sem hann sækir fyrirmyndir
aftur í gömlu og þjóðlegu Ijóðhefð-
ina. Hann er hér með öðrum
orðum að beita rími og ljóðstafa-
setningu skipulega í formi sínu.
Þetta hefur hann vissulega gert
áður, en mér sýnist þó að hér sé
það talsvert markvissara en fyrr.
Bókin skiptist annars í átta
hluta, og í tveim þeim fyrstu eru
einkum Ijóð sem leita inn á við, í
mannshugann, og flytja þá gjarnan
minningar og hugleiðingar af ýmsu
tagi. í þriðja hluta er hins vegar
haldið aftur í gamla tímann, því að
þar eru mestpart á ferðinni ljóð um
efni úr íslendingasögum og Sturl-
ungu. Fjórði hlutinn ereinnaefnis-
mestur, og þar fer mest fyrir heldur
smágerðum ljóðmyndum, með efni
úr ýmsum áttum, en áfram eru þó
mest áberandi ljóð með hug-
leiðingum og endurminningum
margs konar. í fimmta hluta eru
Ijóð um efni úr Sturlungu. Loks
koma svo þrír ljóðaflokkar, einn
um atómsprengjuna, annar um
Viðey og sá þriðji sem nefnist
Tunglið er spegill tímans. Er þar
róið á einna dýpst mið í bókinni,
og má mikið vera ef ekki vefst fyrir
ýmsum að fylgja skáldinu hér á
fluginu, þótt orðgnótt og hrynjandi
séu þar vissulega áhugaverðir
þættir.
Annars voru það ljóðin í fjórða
hluta bókarinnar sem undirrituð-
um varð einna lengst staldrað við.
Þar er meðal annars áhugavert ljóð
um Egil í Jórvík (Vor Jórvík), og
annað myndrænt um málverk eftir
Rembrandt (Næturvörður
Rembrandts). Þá er þarna einlæg-
lega ort hugleiðing um dauðann
(Febrúardagur) og önnur býsna
vel hnitmiðuð sem heitir Stef:
Trén safna
árhríngjum
fjörusteinar
hrúðurköríum
og við þessum gleymdu
minningum.
Fleira er þarna áhugavert, svo sem
ljóðið Á fardögum, sem kom
reyndar í Ljóðaárbók AB nú í
sumar og er eiginlega eitt af þeim
sem vefjast fyrir manni án þess að
auðvelt sé að tilgreina ástæðuna;
máski er hún hin hnitmiðaða lýsing
Ijóðsins á tilfinningum manns sem
finnur sig vera að verða miðaldra.
En þó má meir en vera að það
áhugaverðasta við þessa bók felist
hreint ekki í þessu heldur í þeim
formtilraunum sem Matthías er
hér að gera og sjá má fjölvíða í
bókinni. Þeir sem kunnugir eru
eldri skáldskap veita því nefnilega
fljótt athygli hve víða er hér
stuðlað, t.d.:
Hægt koma blómin í heimsókn
hægt eins og þú komir langa
leið eftir hallandi heiði
hvarflir auga til sólar
haldir svo áfram engi
sem anga af vori og grösum...
(Fögnuður)
En hitt er þó jafnljóst að hér er
ekki ort undir neinum þrælaklafa
ljóðstafasetningar. Henni er hér
beitt skipulega, en hún er þó
langtífrá algild. Þannig bregður
ljóðstöfum fyrir í mörgum ljóðun-
um, ýmist tveimur eða þremur
saman eins og hvortveggja tíðkað-
ist hér áður, en annars staðar
vantar þá með öllu. Með öðrum
orðum notar skáldið þá, án þess að
beygja sig skilyrðislaust til hlýðni
við þá.
Og þá eru ýmsar rímtilraunir hér
ekki síður áhugaverðar. Um það
gildir svipað, rímið er hér notað án
þess að það sé gert að kvöð. Meðal
annars eru hér dæmi þess að rím sé
í sumum línum en ekki öðrum,
t.d.:
Hvergi grænna, hóllinn
hálmstrá tímans Ifkt
og kirkjugarðurinn gamli
sé gróin sögn og ýkt.
(Á Staðarhóli.)
En fleiri tilbrigði eru þarna, til
dæmis:
Tunglið varpar gulum geisla
á gráa veggi líkt og fari
sól á myrkum svörtum himni
silfurstaf um þang og báru.
(Daisy Miller.)
Hér er rímað með skothendingum,
líkt og í gömlu dróttkvæðunum,
nema hvað hér eru þær í endarími
í annarri og fjórðu línu, og er þessu
haldið ljóðið á enda. Og fleiri
afbrigði eru þarna, svo sem að
rímað sé í endarími með fyrra
atkvæði orðs en ekki því seinna,
sem er nýjung, þótt þetta þekkist í
innrími í rímum:
Nýr dagur og flæða Ijósbláir
strengir
um sumarlegt vatn sem er blárra
lengur.
(Viðey á Sundum.)
Matthías Johannessen skáld.
Af dæmum á borð við þessi úir
og grúir í bókinni. Þau sýna að hér
er á ferðinni í það minnsta mark-
viss tilraun til þess að endurnýja
Ijóðformið með því að sveigja
hrynjandi þess og klið allan aftur í
áttina við það sem fyrrum tíðkað-
ist.
Þetta er áhugavert vegna þess að
á síðustu árum hefur það naumast
dulist nokkrum, sem eftir hefur
gáð, að íslensk ljóðagerð hefur
verið í talsverðri lægð. Þetta hefur
ekki hvað síst verið ljóst ef borið
hefur verið saman við skáldsagna-
gerðina, þar sem gróskan hefur
verið margfalt meiri.
Meðal annars af þeim ástæðum
hlýtur þessi bók að vekja upp þá
spurningu hvort verið geti að það
sé frjálsa formið í Ijóðagerðinni
sem sé farið að ganga sér til húðar.
Er hugsanlegt að það sé nú fra-
mundan að skáldin fari aftur að
leita til fortíðarinnar eftir fyrir-
myndum um form og Ijóðaklið?
Þessari spurningu verður ekki svar-
að hér, en hitt dylst þó ekki að hér
eru athyglisverðar tilraunir á ferð-
inni og forvitnilegt verður að sjá
hvort fleiri ljóðskáld eiga eftir að
halda út á svipaðar brautir. -esig
Gert upp við kerfið
Baráttusaga athafnamanns
Endurminningar Skúla Pálssonar á
Laxalóni.
Eðvarö Ingólfsson ritaöi
Bókaútgáfa Æskunnar
Eðvarð Ingólfsson ritar sögu at-
hafnamannsins Skúla Pálssonar.
Sannanlega stendur bókin undir titli
sínum. Þetta er baráttusaga manns
við kerfið, þar sem orrustur bæði
vinnast og tapast.
Það er töggur í Skúla, eins og
hann sjálfur ítrekar í bókinni - hann
gefst ekki upp.
Barátta sú er Skúli hefur háð við
kerfið allt frá fyrstu tíð, hlýtur að
vekja menn til umhugsunar um það
embættismannakerfi sem þjóðfélag
okkar grundvallast á. Skúli hlífir
engum, enda hefur honum ekki
verið hlíft. Hér er á ferðinni uppgjör
manns við kerfið sem sífellt hefur
verið honum þrándur í götu.
Ég hef þó eitt og annað við bókina
að athuga. Flestir sem lesa Baráttu-
sögu athafnamanns munu sakna ævi-
sögu Skúla.
Eðvarð Ingólfsson tekur fyrsta
kafla bókarinnar nýstárlegum
tökum. Hann allt að því biðst af-
sökunar á að viðmælandi hans skyldi
ekki vilja ræða nokkuð annað en
Skúli Pálsson, Laxalóni.
fiskeldi og þá baráttu sem hann háði
við kerfið. Slík afsökunarbeiðni er
að mínu viti óþörf. Bókin er vel
skrifuð og eftir stendur heilsteypt
frásögn af Laxalónsdeilunni.
Lýsingar Skúla á mótbyr þeim er
hann mætti, sem ungur athafnamað-
ur í leit að nýjum tækifærum fyrir
íslenskt atvinnulíf, eru átakanlegar.
Lesandanum svíður með Skúla
óréttlæti það og valdníðsla sem hann
mætir á leið sinni um völundarhús
kerfisins, þar sem þröngsýni og geð-
þóttaákvarðanir virðast hafa ráðið
framgangi mála.
Það er erfitt að sjá fyrir sér að
ungir athafnamenn í dag gætu lent í
aðstöðu þeirri er Skúli var í, er
sífelld boð og bönn dundu á við-
kvæmu fyrirtæki hans þar sem hann
stundaði tilraunaeldi á regnbogasil-
ungi, með háleit markmið í huga.
Skúli er mjög trúaður maður og
segist ekki bera haturshug í brjósti
vegna þeirra atburða er hann rekur
í bókinni. Skúli er meiri maður eftir.
Heimildasöfnun í baráttusögu
Skúla var auðveld. Eðvarð segir
sjálfur frá því í bókinni að öll bréf
og blaðaúrklippur hafi verið til stað-
ar þegar vinnan hófst. Skúli hélt vel
utan um allt sem ritað var í tengslum
við Laxalónsdeiluna. Skúli segist
sjálfur hafa haldið skjölum þessum
til haga, því hann hafi vitað frá
fyrstu tíð að uppgjörið færi fram og
nú er Baráttusaga athafnamanns
komin út.
Bókaútgáfan Æskan á þakkir
skildar fyrir útgáfu þessarar bókar,
sem vissulega er til þess fallin að læra
af. Saga Skúla á að vera embættis-
mönnum, stjórnmálamönnum og
lesendum lærdómsrík lexía. - ES