Tíminn - 23.12.1988, Síða 15
Föstudagur 23. desember 1988
Tíminn 15
llllllllllilllllli MINNING l'" 'ljH'
Hjálmur
Þorsteinsson
frá Skarði í Lundarreykjadal
Hjálmur á Skarði, sveitungi minn,
frændi og vinur, er látinn. Hann
andaðist 8.12. á Borgarspítalanum í
Reykjavík eftir mjög erfiða sjúkra-
húsvist.
Hann var fæddur á Skarði 2.
febrúar 1912. Foreldrar hans voru
Þorsteinn Tómasson, bóndi og
hreppstjóri á Skarði, og Árný Árna-
dóttir frá Þingnesi í Bæjarsveit.
Þessi hjón voru frábærir gáfumenn.
Þau bjuggu á þessari jörð allan sinn
búskap við einstaka rausn og prýði.
Þau létu félagsmál sveitarinnar
mikið til sín taka og félagsmálastarf
Þorsteins náði langt út fyrir takmörk
sveitarinnar. Þau voru bæði með í að
stofna ungmennafélag í sveitinni og
unnu því af alhug meðan kraftar
þeirra entust. Þegar Þorsteinn
andaðist vakti það undrun manna að
honum höfðu verið falin næstum öll
trúnaðarstörf, sem eitt sveitarfélag
þarf að skipa mönnum í og allstaðar
hafði hann unnið með hinni mestu
reglusemi og alúð.
Þorsteinn lést á besta aldri langt
um aldur fram. Útför hans fór fram
frá sóknarkirkjunni á Lundi og
aldrei sá ég sveitunga mína jafn
harmi slegna né fjölmenna svo til
jarðarfarar, sem í þetta sinn.
Þau hjón eignuðust tvo syni:
Friðjón, fæddan 21. ágúst 1909, d.
26. maí 1932, og Hjálm, fæddan 2.
febrúar 1912, sem ég er nú að
kveðja. Þorsteinn á Skarði átti al-
systur, Ingibjörgu að nafni. Hún
andaðist 29. júní 1918, aðeins 35 ára
að aldri. Hún var fögur kona og vel
gefin á allan hátt.
Þegar Þorsteinn heitinn lést var
Friðjón sonur hans 18 ára en Hjálm-
ur 15. Þessir ungu bræður hjálpuðu
móður sinni við búskapinn en að
fimm árum liðnum féll Friðjón fyrir
sömu sigðinni. Það var eins og hvíti
dauðinn eirði engu á þessum bæ.
Þegar þau Árný og Hjálmur voru
orðin tvö ein eftir af þessu merka
fólki á Skarði bjuggu þau saman á
jörðinni en þá kom til þeirra ágætur
ungur maður, Pétur Guðmundsson
frá Snartastöðum, næsta bæ við
Skarð, og vann hann hjá Árnýju af
mikilli trúmennsku meðan hún lifði.
Hjálmur kvæntist konu sinni,
Petru Pétursdóttur, 1953. Hún var
dóttir Péturs Georgs Guðmundsson-
ar en hann var þekktur maður í
Reykjavík. Hann vann þar að fræði-
mennsku og verkalýðsmálum.
Hjálmur var síðari maður Petru,
fyrri maður hennar var Guðni Krist-
inn Guðmundsson, málari í Reykja-
vík. Þau skildu.
Þegar hér var komið sögu var
jörðinni skipt í tvær jarðir. Þau
Hjálmur ög Petra bjuggu í nýreistu
íbúðarhúsi, sem byggt var úti á
„Skarðsgrundum“, sem varð nú
Skarð I. Árný og Pétur byggðu sér
hús á gamla bæjarstæðinú á Skarði
og það varð Skarð II.
Þau Hjálmur og Petra bjuggu á
Skarði I til ársins 1966 en þá fluttu
þau í Borgarnes. Hjálmur vann þar
ýmsa verkamannavinnu, mest á veg-
um KaupfélagsBorgfirðinga, meðan
heilsa og kraftar entust. Petra vann
þar skrifstofustörf en greip í fræða-
grúsk í tómstundum.
Meðal annars var hún ein af
aðalmönnunum í að skrifa manntal
í Borgarfjarðarsýslu, Mýrasýslu og
Borgarnesi. Síðar bættist Akranes
við. Þessi bók er endurnýjuð á fimm
ára fresti vegna búsetubreytinga og
svo eru menn alltaf að fæðast og
deyja og það þarf sífelldlega leiðrétt-
inga við. Þetta manntal greinir frá
heimilisfangi manna, fæðingardegi
og ári, hjúskaparstétt og atvinnu
allra íbúa þessa svæðis. Eg ætla að
þessi bók sé til í nær allri byggðinni
á hverjum bæ og það er hyggja mín
að henni sé oftar flett en öðrum
orðabókum, sem þó kunna að vera
til í bókasöfnum heimilanna. Menn
fýsir að vita upp á dag hvenær þessi
eða hinn vinurinn fyllir fimmta eða
sjötta eða jafnvel áttunda eða ní-
unda áratuginn en í þessari bók er
hægt að sjá það. Petra vann að
þessari bók meðan hún enn bjó búi
sínu að Skarði; þessvegna er þetta
rit oft nefnt „Skarðsbók" á tungu
okkar Borgfirðinga og þykir það
réttnefni.
Hjálmur á Skarði, en svo nefndum
við sveitungar hans hann oftast þó
hann væri fluttur í Borgarnes og ætti
þar heimilisfang til dauðadags, var
prýðilega gefinn maður eins og sagt
er. Þó hann berðist ekki í kappræð-
um fyrir skoðunum sínum, varð
honum ekki hnikað frá sannfæringu
sinni þegar hann hafði skoðað mál
til hlítar. Oft sagði hann skemmtileg-
ar setningar sem enn lifa í minnum
manna. Hann var sívinnandi hvar
sem hann átti heima og hver sem
vinnuveitandi hans var.
Hjálmur var hlýr og góður í um-
gengni við alla sem kynntust honum.
Það var sannarlega gott að eiga hann
að vini. Ég veit ekki betur en öllum,
sem hann vann með eða deildu geði
við hann, þætti vænt um hann.
Hjálmi þótti vænt um öll dýr, sem
hann átti og hirti. Hann vildi sannar-
lega láta þeim líða vel.
Ég kveð svo þennan frænda minn
og vin með hjartans þökk fyrir
samfylgdina og það er trú mín að
hann verði boðinn velkominn til
þeirra heimkynna, sem hann sækir
nú heim.
Skálpastöðum á
jólaföstu 1988
Þorsteinn Guðmundsson
Ragnheiður
Aðalsteinsdóttir
Jólaalmanak SUF 1988
Eftirtalin vinningsnúmer hafa komið upp:
1. des. 1. nr. 1851 2. nr. 4829 9. des.
2. des. 3. nr. 7315 4. nr. 1899 10. des.
3. des. 5. nr. 6122 6. nr. 1500 11. des.
4. des. 7. nr. 2993 8. nr. 8376 12. des.
5. des. 9. nr. 1780 10. nr. 3258 13. des.
6. des. 11. nr. 1984 12. nr. 8352 14. des.
7. des. 13. *ir. 8240 14. nr. 7307 15. des.
8. des. 15. nr. 1340 16. nr. 7485 16. des.
17. nr. 6401 17. des. 33. nr. 784
18. nr. 5984 34. nr. 1932
19. nr. 6305 18.des. 35. nr. 4457
20. nr. 1398 36. nr. 2933
21. nr. 4671 19. des. 37. nr. 7299
22. nr. 5488 38. nr. 5351
23. nr. 714 20. des. 39. nr. 1068
24. nr. 7300 40. nr. 5818
25. nr. 4456 21. des. 41. nr. 1733
26. nr. 1016 42. nr. 174
27. nr. 3260 22. des. 43. nr. 154
28. nr. 6725 44. nr. 6533
29. nr. 808 23. des. 45. nr. 6501
30. nr. 6106 46. nr. 1242
31. nr. 3764
32. nr. 7229
Velunnarar! Látið ekki happ úr hendi sleppa. Gerið skil og leggið
baráttunni lið.
Allar frekari upplýsingar eru veittar í síma 91-24480 eða 91-21379
og á skrifstofu Framsóknarflokksins, Nóatúni 21, Reykjavík.
SUF
Sll
«■*«* H
MF Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatnamálastjórans í
Reykjavík og Hitaveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í gatnagerð,
lagningu holraesa og gröft fyrir vatnslögnum ásamt lögn hitaveitu-
lagna, í nýju íbúðarhverfi í Grafarvogi norðan núverandi byggðar
vestan Gullinbrúar. Heildarlengd gatna er um 1.450 m og samanlögð
lengd holræsa um 4.400 m. Verkinu skal að fullu lokið 1. júlí 1989.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, að Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 11. janúar 1989,
kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVlXURBORGAR
Fr(kirkjuv«gi 3 — Sími 25800
tff Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatnamálastjórans í
Reykjavík, óskar eftir tilboðum í kaup á umferðarljósum.
Um er að ræða alls 5 stk. með möguleika á kaupum á allt að 5 til
viðbótar á árinu 1989.
Afhending skal hefjast 1. júlí næstkomandi.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, að Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 7. febrúar 1989, kl.
11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKUAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Fædd 19. ágúst 1916
Dáin 12. desember 1988
Mig langar til að minnast Rögnu
uppáhalds frænku minnar í nokkrum
orðum.
Það var í kalsaveðri snemma vors,
fyrir rúmum tuttugu og fjórum
árum, að lítill drengur, sjö ára
gamall, steig út úr flutningabíl við
hliðið á Hlíð, eftir langt ferðalag að
sunnan. Hér var ég kominn langt í
burt frá mömmu og átti að vera allt
sumarið. Kannski svolítið smeykur,
en það reyndist ástæðulaus ótti, því
mér var tekið innilega opnum örm-
um þeirra: Rögnu, Helgu, Mundu
og Nanna. Og það fór svo að ég var
hjá þeim í ein sjö eða átta sumur og
hefði helst viljað vera allan ársins
hring í „sveitinni hjá Rögnu“, eins
og ég sagði alltaf, því að ég tók
ástfóstri við allt heimilisfólkið og þó
sérstaklega Rögnu mína, hún var
mér sem önnur móðir. Hún hafði
alveg sérstakt lag á að hæna að sér
börn og reyndar allt sem lífsandann
dró. Létt í skapi, aldrei umvöndun-
arsöm, gaf mér nógan tíma til alls
sem ég vildi gera og skildi allt sem
ég sagði, sem er ekki svo lítið þegar
smáfólk á í hlut og er sá eiginleiki
fáum gefinn.
Þegar ég svo heimsótti hana á
spítalann fyrir stuttu, þá var hún
alveg eins, létt í skapi og sátt og
ánægð með lífið og allt í kringum sig
eins og hún var alla tíð, kannski
vitað að hverju dró, þó hún talaði
ekki um það. Hún ætlaði sér hinsveg-
ar að fara heim fyrir jól og sagðist
ætla að taka með sér jólarósina sem
henni hafði verið gefin. Af því varð
því miður ekki, hún réð ekki sínum
hinsta næturstað frekar en við ráðum
okkar.
Mig langar í lokin að þakka Ragn-
ari Ágústssyni í Halakoti á Vatns-
leysuströnd og hans fjölskyldu, alveg
sérstaklega fyrir alla þá vináttu sem
þau sýndu Rögnu þau ár sem hún
bjó hjá þeim. Ég held að óhætt sé að
segja, að það voru hennar bestu ár.
Élsku Ragna, ég veit að þér hefur
verið vel tekið hinum megin. Guð
blessi þig alla tíð.
Þinn frændi,
Hörður Magnússon
Afmælis- og
minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og eða minningar-
greinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast
a.m.k. tveim dögum fyrir birtingardag. Þær þurfa að
vera vélritaðar.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför sambýl-
iskonu, móður, tengdamóður og ömmu
Ragnheiðar Aðalsteinsdóttur
Halakoti, Vatnsleysuströnd
Ragnar Ágústsson
Mundhildur B. Guðmundsdóttir Grétar B. Ingvarsson
Ingvar K. Grétarsson Ragnheiður H. Grétarsdóttir
Guðmundur S. Grétarsson Þuríður K. Grétarsdóttir
t
Þökkum af alhug öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýju vegna
andláts og jarðarfarar
Jakobs E. Jakobssonar
Sléttahrauni 26, Hafnarfirði
Sérstakar þakkir viljum við færa Jóni Níelssyni lækni ásamt starfsfólki
Borgarspítalans sem annaðist hann af stakri alúð. Einnig þökkum við
starfsfólki Áburðarverksmiðju ríkisins fyrir samfylgdina við hann
síðustu starfsár hans.
Guð blessi ykkur öll.
Kristín Sigurjónsdóttir
Elínbet Jónsdóttir
börn, stjúpsonur, tengdabörn og barnabörn.