Tíminn - 10.01.1989, Qupperneq 2
2 Tíminn.
Þriðjudagur 10. janúar 1989
Hluti þeirra er voru viðstaddir uppboðið á Hótel Borg. Helgi V. Jónsson hæstaréttarlögmaður bauð hæst, eða
fímmtíu milljónir króna. Hann er lengst til vinstri á myndinni og við hlið hans stendur Kagnar Aðalsteinsson einnig
hæstaréttarlögmaður. Jónas Gústafsson borgarfógeti sá um framkvæmdina og auglýsti eftir boðum. Hann sést hér
lesa upp uppboðsbeiðnina. Tímamynd Áma Bjama
Þriðja og síðasta uppboð á Hótel Borg fór fram í gær:
Hótel Borg á
50 milljónir
Þriðja og síðasta uppboð á Hótel Borg í Reykjavík var
haldið þar í gær kl. 15:00.
Það var fasteignin sjálf að Pósthússtræti 11 sem boðin var
upp en ekki lausafjármunir innan veggja hennar.
Helstu kröfuhafarnir, og þar með
uppboðsbeiðendur voru; Helgi V.
Jónsson hrl. fyrir hönd allra sem eru
á sjötta veðrétti, en það eru fyrst og
fremst hluthafar „gömlu" Hótel
Borgar hf., þ.e. þess félags er seldi
núverandi eigendum húseignina.
Aðrir aðilar voru m.a., Landsbank-
inn, Ásgeir Thoroddsen, Gjald-
heimlan, Gjaldskil og Útvegsbank-
inn svo einhverjir séu taldir.
Á öðru uppboði sem haldið var
12. desember s.l. var hæsta boð í
eignina sjö milljónir og var það
Helgi V. Jónsson sem það átti fyrir
hönd handhafa sjötta veðréttar.
Á uppboðinu í gær var leitað eftir
hærri tilboðum og bauð Gunnar
Jónsson í Gunnars-majonesi 10
milljónir, Helgi bauð þá 11. Þvínæst
var það Valdimar Bergsson sem
hækkaði boðið og átti hann 12
milljóna króna boð. Helgi bauð þá
20 millj., Valdimar 22, Helgi 30,
Gunnar 40 og Helgi 50 milljónir. Að
því tilboði loknu var leitað eftir
hærri tilboðum í fyrsta, annað og
þriðja sinn, sem ekki komu fram og
þvf var Hótel Borg slegin Helga V.
Jónssyni hrl. fyrir hönd handhafa
sjötta veðréttar.
í upphafi uppboðsins var lesin
bókun sem gerð hafði verið. Inni-
hald hennar var í grófum dráttum
það að samkvæmt samkomulagi sem
leigusali. þ.c. Hótel Borg hf., ann-
arsvegar og leigutaki, Ólafur Lauf-
dal Jónsson, hinsvegar hcfðu gert
með sér hefði gildistímabi! leigu-
samningsins verið stytt og rynni
hann því út þ. 31. ágúst 1989. Það
kom fram að Ólafur Laufdal hefur
þegar greitt fyrir leigutímabilið allt
auk þess sem hann hefur á leigutím-
anum lagfært húsnæðið þónokkuð,
jafnt herbergi hótelsins sem og
stækkað dans- og veitingasali hússins
svo mikið að þeir taka nú 50% fleiri
gesti en áður.
Að lestri bókunarinnar loknum
lét Helgi V. Jónsson bóka athuga-
semd þess efnis að hann, fyrir hönd
umbjóðenda sinna véfengdi efni
skjalsins og samninga þá er leigu-
sali og taki hefðu gert mcð sér.
Helgi sagði í samtali við Tímann
að ástæða þess að hann véfengdi
þetta plagg væri fyrst og fremst sú að
það væri spurning hvort fyrirfram-
greiðsla sú er tíunduð væri í plagginu
væri lögmæt eður ei. Ólafur Laufdal
hafi borgað níu mánuði fyrirfram og
eðlilegra hefði verið að sú greiðsla
lenti í höndum umbjóðenda sinna.
- Telurðu líkur á því að sú starf-
semi sem Ólafur rekur í húsinu komi
til mcð að þurfa að víkja fyrir 31.
ágúst eins og um var samiö milli hans
og fyrrum eigenda?
„Nei ég geri ekki ráð fyrir því.“
Átturðu von á því að boðið yrði í
húsið á móti þér?
„Já já, maður getur alltaf átt von
á því. Þessir menn hafa hinsvegar
áttað sig á því strax að þeir yrðu að
fara mjög hátt.“
- Varstu viðbúinn því að fara
hærra?
„Já það var ég, þetta er heilmikil
eign.“
- Má ekki segja að þetta sé gott
kaupverð?
„Jú það er það, þó þetta sé
kannski frekar nokkurs konar forms-
atriði."
Á uppboðinu var lýst eftir um-
boðsmönnum uppboðsþola og vakti
það nokkra athygli að enginn slíkur
gaf sig fram.
Með uppboðsþola er átt við þann
aðila sem fyrir húsinu er skráður. í
þessu tilfelli er það Hótel Borg hf.
Ekki reyndist unnt að fá uppgefið
hverjir hluthafar í því fyrirtæki eru
en prókúruhafarnir eru tveir, þeir
Sigurður Kárason og Pálmar Magn-
ússon, með tilkynningu dagss. 2.
maí 1983. í stjórn Hótel Borgar hf.
eru þeir Sigurður og Pálmar auk
Sigfríðar Pálmarsdóttur. Varamað-
ur er Guðríður Guðjónsdóttir.
-áma.
Hækkun á áfengi og tóbaki liggur fyrir:
Reykingamenn
hamstra tóbak
Þessi ætlaði að snúa á fjármálaráðherra og keypti mánaðarskammt af
tóbaki í gær. Tíminn Pjetur
Áfengis- og tóbaksverslunin hef-
ur enn ekki nýtt heimild til hækk-
unar á útsöluverði áfengis og tób-
aks sem var samþykkt á Alþingi
síðastliðinn föstudag. Almenning-
ur hefur brugðist hratt við og
hamstrar þessa dagana tóbak jafnt
sem áfengi.
Svava Bernhöft innkaupastjóri
hjá ÁTVR sagði það gerast iðulega
þegar hækkanir stæðu fyrir dyrum
að fólk hamstraði áfengi og tóbak
en birgðir ÁTVR væru þó nægar
enn sem komið er. Aðspurð sagðist
Svava ekki vita hvenær hækkanirn-
ar yrðu en gamla verðið yrði a.m.k.
í gildi í dag. Fólk hefur því enn
möguleika á að birgja sig upp.
Tíminn hafði samband við
nokkra söluturna í Reykjavík og
höfðu kaupmennirnir almennt orð-
ið varir við söluaukningu á sígarett-
um, vindlum og tóbaki. Kartonið
af algengustu sígarettutegundun-
um kostar í dag 1450 krónur,
þannig að ef hækkunin verður 15%
eins og heyrst hefur, þá sparar fólk
tæpar220 krónur á hverju kartoni.
Inni í breytingartillögum við
bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar
var heimild til hækkunar sem þess-
arar, en þar sem bráðabirgðalögin
verða væntanlega ekki afgreidd
sem lög frá þinginu fyrr en í byrjun
febrúar þurfti sérstaka heimild Al-
þingis fyrir hækkuninni.
Áætlað er að á þessu ári verði
um 450 milljóna króna tekjuaukn-
fng af sölu áfengis og tóbaks um-
fram almennar verðbreytingar.
SSH
Ölduselsskóli í Breiðholti:
Utilaug vígð
Síðastliðinn föstudag var ný úti-
sundlaug við Ölduselsskóla vígð.
Hún er tæpir sautján metrar að
lengd og tíu og hálfur metri að
breidd, flísalögð með yfirfallskanti.
Vatnið er hitað upp með varmaskipti
og í 260 fermetra húsnæði laugarinn-
ar eru m.a. sturtur og búningsher-
bergi. Hönnuðir hússins eru teikni-
stofa Gunnars Hanssonar, Verk-
fræðistofa Stefáns Ólafssonar hf. og
Verkfræðistofan Rafhönnun hf,.
Umsjón með hönnun, gerð útboðs-
gagna og byggingareftirlit hafði
byggingardeild borgarverkfræðings.
Framkvæmdir við byggingu laug-
arinnar hófust í september 1987.
Háfell hf. sá um alla jarðvinnu,
Valvirki hf. um uppsteypu húss og
laugar og Scl sf. um allan lokafrá-
gang. Heildarkostnaður er um 55,3
milljónir króna.
Skólarnir í Seljahverfi munu nýta
laugina til klukkan 18 alla virka daga
þaö sem eftir er skólaársins. Sund-
Ný sundlaug við Ölduselsskóla sem
vígð var síðastliðinn föstudag.
Tímamynd Árni Bjarna
félög koma til með að halda uppi
sundkennslu og sundþjálfun fyrir
börn og unglinga í hverfinu eftir að
skólasundi er lokið og um helgar. f
júní og júlí verða haldin sundnám-
skeið fyrir börn og fullorðna og í
athugun eru möguleikar á afnotum
vistmanna í Seljahlíð af lauginni
utan kennslutíma. jkb
Kona kærir nauðgun:
TVEIRÍ
GÆSLU
Kona í Reykjavík hefur kært
tvo menn fyrir nauðgun og sitja
þeir nú í gæsluvarðhaldi grunaðir
um verknaðinn.
Rannsóknarlögreglan rannsak-
ar nú málið og verst allra frétta af
atburðum. -sá