Tíminn - 10.01.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 10. janúar 1989
Heilbrigðisskoðun á fólki
er ræðst til landbúnaðar-
starfa ábótavant:
„Ertu
ekki
hress?“
Búnaðarfélag fslands hefur rit-
að yfirdýralækni bréf þar sem
þess er farið á leit að embætti
yfirdýralæknis gefi út leiðbeining-
ar til lækna þar sem þeim er
kennt að finna dýrasjúkdóma er
erlendir verkamenn ráðnir til
landbúnaðarstarfa geta hugsan-
lega borið hingað.
Bréf þetta birtist í Læknablað-
inu fyrir skömmu. í því er kvartað
yfir því að héraðs- og heilsugæslu-
læknar viti ekki að hverju þeir
eigi að leita þegar erlent verka-
fólk, sem ráðið er til landbúnað-
arstarfa, kemur í skoðun hjá
þeim, en allir þeir sem hingað
koma í' þeim erindum eru sendir
í læknisskoðun. Þar segir meðal
annars frá bandarískri stúlku sem
fór til heilsugæslulæknis í skoðun.
Það eina sem viðkomandi læknir
gerði var að spyrja hvort að hún
væri ekki hress. Stúlkan játti því
en læknirinn gaf henni vottorð
um heilbrigði.
Ekki segir meira af stúlkunni
frá Ameríku í bréfinu, en þeirri
spurningu er varpað fram í hvers
verkahring væri helst að útbúa
leiðbeiningar til lækna þar sem
þeim er kennt að finna einkenni
algengustu búfjársjúkdóma er
borist gætu með hjúum hingað
erlendis frá. -ág
Menningar-
sjóður K.S.
veitir
styrki
Mannaskipti
í menntamála-
ráðuneytinu
Um áramótin létu þrír af starfs-
mönnum menntamálaráðuneytisins
af störfum. Tveir starfsmenn aðrir
voru gerðir að deildarstjórum.
Þeir sem létu af störfum eru:
Sigurður Briem deildarstjóri, sem
hóf störf í stjórnarráðinu árið 1943;
Runólfur Þórarinsson deildarstjóri,
sem hóf störf á fræðslumálaskrifstof-
unni árið 1956 og kom til mennta-
málaráðuneytisins 1969 er fræðslu-
skrifstofan var lögð niður og Sigríður
Þórðardóttir fulltrúi, sem hóf störf
árið 1968.
Þær Þórveig Þormóðsdóttir og
Svandís Skúladóttir voru gerðar að
deildarstjórum. jkb
Nú stendur yfir á Sauðárkróksfiugvelli vinna við nýja flugstöð sem þar er verið að reisa á vegum
fiugmálastjórnar.
Bygfiing fiugstöðvarinnar hófst um miðjan septembcr sl. og er fyrirhugað að henni Ijúki um miðjan
marsmánuð. Þá verður hinsvegar eftir að koma fyrir í stöðinni nauðsynlegum tækjabúnaði og mun það
væntanlega taka 1-2 mánuði. Flugstöðin er reist úr timbri og verður 240 ferm. að stærð. Verktaki er
Byggingafélagið Hlynur á Sauðárkróki. Stöðin mun leysa af hólmi 40 ferm. stóran skúr sem reistur var til
bráðahirgða á fiugvellinum fyrir mörgum árum og þjónað hefur flugfarþegum og starfsmönnum síðan, mun
lengur en upphaflcga var ráð fyrir gert. OÞ, Fljótum
Á undanförnum árum hefur
Kaupfélag Skagfirðinga veitt nokkra
styrki til ýmissa félagsmálasamtaka í
héraðinu. Snemma á síðasta ári fékk
Náttúrugripasafnið í Varmahlíð út-
hlutað styrk að uppæð rúmlega
81.000 krónur.
Á fundi stjórnar Menningarsjóðs
K.S. í desember síðastliðnum var
samþykkt að veita eftirtöldum aðil-
um styrki.
Rökkurkórinn í Skagafirði hlaut
styrk að upphæð 20.000 kr. Flug-
björgunarsveitinni Varmahlíð og
Leikfélagi Sauðárkróks var úthlutað
styrkjum að upphæð 25.000 krónur.
Karlakórinn Heimir Skagafirði og
Björgunarsveitin Grettir Hofsósi
fengu 30.000 krónur. Hofskirkja á
Höfðaströnd fékk 35.000 krónur.
50.000 krónur fengu Ungmennafé-
lagið Tindastóll, Sögufélag Skagfirð-
inga og Byggðasafnið í Glaumbæ.
Héraðsskjalasafninu var úthlutað
60.000 krónum, Tónlistarfélagi
Sauðárkróks 100.000 krónum og
Ungmennasambandi Skagafjarðar
125.000 krónum. Samtals nam upp-
hæð veittra styrkja í desember
600.000 krónum. jkb
Sinfóníuhljómsveit æskunnar.
„Vítamínsprauta fyrir
íslenskt tónlistarlíf“
Óvíst er með áframhaldandi starfsemi Sinfóníuhljómsveitar
æskunnar. Lokatónleikar, afrakstur mikillar vinnu undanfar-
inna daga, verða haldnir í Háskólabíói í dag klukkan 14:30.
Stjórnandi er íslandsvinurinn Paul Zukofsky.
Síðastliðinn laugardag var hið
stórbrotna verk Mahlers, Sinfónía
nr.6, frumflutt hér á landi.
Hljóðfæraleik annaðist Sinfóníu-
hljómsveit æskunnar undir stjórn
fiðlusnillingsins og stjórnandans
Paul Zukofskys. Þetta er geysi viða-
mikið verk. Hljómsveitin er það
fjölmenn að erfitt reyndist að manna
strengjasveitina þó ekki vanti áhug-
ann. Tónleikarnir tókust í alla staði
mjög vel og var næstum húsfyllir.
Sinfóníuhljómsveit æskunnar
samanstendur af tónlistarnemend-
um hvaðanæva af landinu sem náð
hafa þó nokkurri leikni hver á sitt
hljóðfæri.
Zukofsky er bandarískur gyðing-
ur. Strax á unga aldri uppgötvaðist
að hann væri svokallað undrabarn í
tónlistinni. Til að byrja með var það
faðir hans sem sá um að kenna
honum en sex ára gamall hóf hann
nám í fiðluleik. Sem unglingur vakti
hann þegar mikla athygli fyrir fram-
úrskarandi fiðluleik. Á seinni árum
hefur mest borið á honum sem
einum ötulasta flytjanda tónverka
tuttugustu aldarinnar. Hann er sagð-
ur spila verk sem honum persónu-
lega finnast góð, verk sem ekki
endilega eru almennt viðurkennd.
1964 lauk hann prófi frá Juilliard
tónlistarháskólanum í New York og
sér nú um kammermúsikdeildina
þar. Hann hefur stjórnað mörgum
þekktum hljómsveitum meðal ann-
ars í New York City Ballet.
Til allra heilla fyrir íslenskt tónlist-
arlíf hefur Zukofsky tekið sérstöku
ástfóstri við ísland og íslendinga.
Ekki er það náttúran sem heillar því
hann hefur ekki ferðast mikið um
landið. Frekar eru það þjóðlegir
siðir eins og hákarl og brennivín.
Einn þátttakenda á námskeiðinu,
SifTuliníus.sagði: „Krakkarnirbera
mikla virðingu fyrir honum sem
tónlistarmanni. Hann er strangur,
kröfuharður og geysilegur skapmað-
ur. Ef honum mislíkar við þig færðu
það óþvegið. En það er ótrúlegt
hvað hann getur fengið mislita hjörð
100 krakka til að gera. Hann er
ómissandi vítamínsprauta fyrir ís:
lenskt tónlistarlíf
Til að byrja með voru þessi nám-
skeið haldin einu sinni á ári. Þegar
Sinfóníuhljómsveit æskunnar var
stofnuð fjölgaði þeim upp í þrjú.
Svo allir þátttakendur sitji við
sama borð er ferðakostnaður krakka
utan af landi greiddur úr sjóð nám-
skeiðsins og þeim útvegað húsnæði
hér í Reykjavík. Einnig þarf að
borga leigu tónleikasalar, leigu
nokkurra hljóðfæra, ferðakostnað
og laun stjórnandans, en þeim er
mjög í hóf stillt svo ekki sé meira
sagt, og ýmsa útgjaldaliði fleiri.
Kostnaður er því eins og gefur að
skilja nokkuð mikill.
Þetta er annað árið í röð sem þessi
námskeið eru að hluta til ríkisstyrkt.
Það sem upp á vantar hefur hingað
til fengist með sölu aðgöngumiða,
námskeiðsgjaldi þátttakenda og
styrkjum hinna ýmsu einstaklinga
og fyrirtækja. Samt sem áður hefur
reynst erfitt að láta enda ná saman.
Ætlunin var að næsta námskeið
yrði haldið í febrúar en það reyndist
ekki mögulegt sökum fjárskorts. Það
verður þó haldið annað námskeið í
september en síðan er óvíst með
framhaldið.
Allir þeir sem blaðamaður ræddi
við voru sammála um mikilvægi
þessara námskeiða og það einstaka
tækifæri íslenskra tónlistarnemenda
að vinna með svo mikilhæfum stjórn-
anda.
Hulda Birna Guðmundsdóttir
framkvæmdastjóri námskeiðsins
sagðist vona að fólk tæki nú við sér
og hálpaði upp á reksturinn svo
tónlistarlíf hér á landi fái dafnað
eftir sem áður. jkb