Tíminn - 10.01.1989, Page 10
10 Tíminn
Þriðjudagur 10. janúar 1989
Þriðjudagur 10. janúar 1989
Tírhinri 11
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
Handknattleikur:
Stormasamt jaf ntef li
hjá nágrannaliðunum
Vítakast á síðustu sekúndum færði FH annað stigið
FH og Stjarnan, liðin scm berjast
um þriðja sæti 1. deildarinnar ■
handknattleik, skildu jöfn á sunnu-
dagskvöldið, 25-25, er þau mættust
í íþróttahúsinu í Hafnarfirði. Áhorf-
endur sem fylltu húsið urðu vitni að
spennandi og skcmmtilegum leik,
en í lokin voru stuðningsmcnn
Stjörnunnar mjög æstir og óhressir
með störf dómaranna.
Leikurinn fór af stað með látum.
Guðjón Árnason gerði fyrsta markið
fyrir FH og Gunnar Beinteinsson
bætti öðru marki við skömmu síðar.
Skúli Gunnsteinsson minnkaði mun-
inn fyrir Stjörnuna. FH-ingar höfðu
áfram undirtökin eftir þessa góðu
byrjun og tvö mörk frá Guðjóni og
Héðni Gilssyni gáfu Hafnarfjarðar-
liðinu þriggja marka forystu 4-1. FH
náði fjögurra marka forystu 7-3 og
8-4, en þeir Skúli og Axel Björnsson
minnkuðu muninn í 8-6. Stjörnu-
menn gerðu þrjú síðustu mörkin í
fyrri hálfleik og brcyttu stöðunni úr
14-11 í 14-14 þegar gengið var til
búningsherbergja í hálfleik.
Óskar Ármannsson gerði fyrsta
mark FH ísíðari hálflcik úrvítakasti
en í kjölfarið komu fjögur mörk
Garðabæjarliðsins og staðan var því
orðin 18-15 l'yrir Stjörnuna, scm
komin var yfir i fyrsta sinn í lciknum.
Á þessu kafla lciksins gekk hvorki
né rak hjá FH-ingum. Stjarnan virt-
ist hafa leikinn í hendi sér og hafði
yfir 23-20 þegar um 8 mín. voru til
leiksloka. I'á urðu aftur kaflaskipti í
leiknum og FH-ingar náðu að jafna
og komast yfir 24-23. I>ar voru þcir
Þorgils Óttar, Héðinn Óskar Helga-
son og Guðjón Árnason að verki.
Gylfi Birgisson jafnaði fyrir Stjörn-
una og stuttu síðar misnotuðu
Stjörnumenn vítakast. Sóknir FH
runnu út í sandinn og Gylfi Birgisson
var aftur á ferðinni með 25. mark
Stjörnunnar. FH-ingar hófu sókn
þegar um 45 sek. voru til leiksloka
og reyndu ákaft að brjóta sér leið
gegnum vörn Stjörnunnar en án
árangurs. Gunnar Beinteinsson átti
lokatilraunina þegar 4 sekúndur
voru til leiksloka. Gunnar vatt sér
innúr vinstra horninu en Stjörnu-
menn brutu á honum. Dómarar
leiksins, þeir Rögnvaldur Erlingsson
og Gunnar Kjartansson, dæmdu um-
svifalaust vítakast, Garðbæingum til
mikillar gremju. Óskar Ármannsson
fékk það erfiða hlutverk að taka
vítakastið og hann tryggði FH-ing-
um annað stigið með því að skora af
öryggi. Úrslitin urðu því jafntefli
25-25.
Mikill hiti var í stuðningsmönnum
Stjörnunnar eftir leikinn og vildu
þeir meina að vítakastið í lokin hefði
vcrið hrcin gjöf til F’H-inga. Að mati
undirritaðs var dómgæsla þeirra
Rögnvaldar og Gunnars góð í leikn-
um, þó vissulega hafi þeir gcrt sín
mistök eins og aðrir. Atvikið í lokin
er Gunnar fór innúr horninu réð
úrslitum í leiknum þegar upp var
staðið. Undirritaður er þeirrar
skoðunar að það hefði verið veru-
lega ámælisverð dómgæsla að dæma 1
ekki vítakast undir þessum kringum-
stæðum.
Um úrslitin má segja að þau hafi
verið sanngjörn. Leikurinn varmjög
kaflaskiptur og bæði lið áttu sína
góðu spretti. Áhorfendur fengu mik-
ið fyrir aurana sína því leikurinn
bauð uppá mikla spennu og oft og
tíðum ágætan handknattlcik. Nokk-
uð sem því miður hefur verið of lítið
um á mótinu til þessa.
Brynjar Kvaran átti stórleik í
marki Stjörnunnar að þessu sinni og
varði alls 17 skot. Sigurður Bjarna-
son og Skúli Gunnsteinsson áttu
einnig mjög góðan leik og Gylfi
Birgisson var mikilvægur undir
lokin.
Hjá FH voru menn jafnir, en
bestan leik áttu þeir Gunnar Bein-
teinsson, Óskar Ármannsson og
Guðjón Árnason. Héðinn átti all-
mörg skot sem ekki hittu markið og
Þorgils Óttar var lítt áberandi á
línunni. Magnús Árnason kom í
markið undir lokin og varði 8 skot á
stuttum tíma, en Bergsveinn Berg-
sveinsson varði 7 skot í leiknum.
Dómarar voru eins og áður segir
þcir Rögnvaldur Erlingsson og
Gunnar Kjartansson. Þeir skiluðu
erfiðu hlutverki nokkuð vel þegar á
heildina er litið.
Mörkin FH: Óskar Ármannsson
7/4, Guðjón Árnason 5, Héðinn
Gilsson 5, Gunnar Beinteinsson 4,
Þorgils Óttar Mathiesen 3 og Óskar
Helgason 1. Stjarnan: Sigurður
Bjarnason 9/3, Skúli Gunnsteinsson
5, Gylfi Birgisson 4, Hilmar Hjalta-
son 3, Hafsteinn Bragason ^og Axel
Björnsson 2. BL
„Ógeðsleg afgreiðsla“
sagöi einn stuðningsmanna Stjörnunnar um vítakastsdóminn í lokin
Sverrir Sverrisson, bestur Gróttumanna, brýst í gegnum vöm Eyjamanna og skorar eitt af fimm
mörkum SÍnum í leiknum. Tímamynd: Pjetur
„Ég veit ekki hvað fer fram í
hausnum á þessum mönnum. Dóm-
gæsla Rögnvaldar var afgerandi í
leiknum og mjög á móti Stjörnunni.
Það var ógeðsleg afgreiðsla að gefa
FH víti í lok leiksins."
Þetta sagði einn af hörðustu stuðn-
ingsmönnum Stjörnunnar eftir leik-
inn.cn Garðbæingum var mjög heitt
í hamsi. Annar Garðbæingur sagði
að Viggó Sigurðsson þjálfari FH
væri búinn að hræða dómarana svo
þeir þyrðu ckki annan en dæma mcð
FH.
Rögnvaldur Erlingsson dómari:
„Við látum ekki hafa áhrif á okkar
dómgæslu og það er ekki óeðlilegt
að mikið sé skrafað eftir á þegar svo
mikil barátta og spenna er til staðar.
Viggó Sigurðsson á ekki að líða fyrir
það hafa gagnrýnt dómara. Hann
hagaði sér mjög vel í þcssum leik.
Með vítið í lokin þá var það engin
spurning. Ef við hefðum sleppt því
hvað hefðu FH-ingar þá sagt,“ sagði
Rögnvaldur Erlingsson.
Gunnar Kjartansson dómari:
„Þetta var ekki erfiður leikur að
dæma. Við höfðum það að leiðar-
ljósi að láta leikinn ganga og vera
ekki að dæma óþarflega mikið. Það
eru kannski 3-4 atriði sem deila má
um og við hugsanlcga átt að dæma
öðruvísi. Það var engin spurning um
vítakastið í lokin. Það sáu það allir
í húsinu að þetta var víti og ekkert
annað. Við höfum það mikla reynslu
í dómgæslu að við látum ekki menn
hafa áhrif á okkur. Við erum ekki
hræddir við Viggó Sigurðsson. Sumir
halda að við dæmum gegn Viggó af
því hann hefur gagnrýnt dómara, en
það væri ósanngjarnt að hann liði
fyrir það,“ sagði Gunnar Kjartans-
son.
Viggó Sigurðsson þjálfari FH:
„Þetta var hörkuleikur sem gat
farið á hvorn veginn sem var. Þetta
var kaflaskipt og það var slæmt að
við skyldum slaka á eftir góða
byrjun. Um dómgæsluna má segja
að Stjarnan hagnaðist á grófum
brotum á tímabili, en þetta var víti í
lokin, alveg klárt,“ sagði Viggó Sig-
urðsson.
Gunnar Einarsson þjálfari Stjörn-
unnar:
„Það var sárt að. missa annað
stigið eftir að hafa átt síðari hálfleik-
inn og verið yfir í lokin. Ég vil ekki
kenna dómurunum um, þeir eru
mannlcgir og gera sín mistök eins og
aðrir. Vítið í lok leiksins var vafa-
samt, en það er svona heimavöllur-
inn hefur alltaf áhrif og ég er klár á
því að hefði FH verið að spila á
útivelli hefðu þeir ekki fengið víti,“
sagði Gunnar Einarsson. BL
Enska knattspyrnan:
Vals- og Víkingssigrar
Víkingar unnu stóran sijjur á KA-mönnum cr
lidin mættust í 1. dcildinni í handknattlcik í
Laugardalshöllinni á sunnudagskvöld.
Víkingar unnu hægt og sígandi upp forskot
sitt, sem var 5 mörk í hálflcik, 15-10. Víkingar
bættu viö í síöari hálflcik og unnu 8 marka sigur.
32-24. Árni Friðleifsson fór á kostum og gcröi 11
mörk, Bjarki Sigurðsson og Guömundur Guð-
mundsson gcröu 5 mörk hvor. Erlingur Krist-
jánsson gcrði 7 mörk fyrir KA og Jakob Jónsson 6.
Enn sigra Valsmenn
Valsmcnn unnu öruggan sigur á Brciöabliks-
mönnum í Digranesi á sunnudaginn, 28-23. cftir
að hafa haft yfir í hálfleik 16-13.
Jakob Sigurösson átti sannkallaöan stjörnu-
leik. brcnndi vart af skoti og skoraði 12 niörk.
Andrcs Magnússon skoraöi 6 mörk fyrir Blikana
og Hans Guðmundsson 5.
Blikarnir cru nú neðstir í deildinni mcö 3 stig,
cn Valsmenn tróna á toppnum sem fyrr mcö 22
stig og varla nema formsatriði fyrir þá að tryggja
sér titilinn úr því scm komiö cr. BL
Sutton sló Coventry út
Það gerasf oft ævintýri í bikarleikjum,
það hcfur hvað eftir annað komið Ijós. Á
þessu varð engin breyting á laugardaginn
í 3. umferö ensku bikarkeppninnar í
knattspyrnu.
Óvæntustu úrslit dagsins voru þau að
hálfatvinnumannaliðið Sutton gerði sér
lítið fyrir og sló bikarmeistarana 1987,
Coventry, úr keppninni. Lið Sutton er úr
úthverfi Suður-London og leikur í áhuga-
mannadeild. Leikurinn fór fram á heima-
velli liðsins Gander Green Lane og þar
þurfti 1. deildarliðið að hirða knöttinn
tvívegis úr neti sínu. Tony Rains og
múrarinn Matthew Hanlan gerðu mörk
liðsins en velski landsliðsmaðurinn David
Phillips gerði mark Coventry.
„Þetta er ævintýri líkast. Allir sögðu
að það væri ómögulegt og fjarstæðukennt
að við ynnum. Það hefur hinsvegar gerst
og það veröur skráð á spjöld sögunnar
sem ein óvæntustu úrslit bikarkeppninn-
ar,“ sagði Barry Williams framkvæmda-
stjóri Sutton eftir leikinn.
Tottenham varð að þola ósigur er liðið
sótti 2. deildarlið Bradford heini. í fyrra
féll liðið einnig snemma úr bikarkeppn-
inni, en 1987 lék liðið til úrslita og tapaði
þá fyrir Coventry. Sigurmark Bradford
gerði Brian Mitchell nteð þrumuskoti af
20 m færi eftir 42 mín. leik. Guðni
Bergsson lék með Tottenham í leiknum
þrátt fyrir að vera með flensu. Hann lék
þó aðeins fyrri hálfleikinn, bað um skipt-
ingu í leikhléinu enda kominn með hita.
Enn eitt 1. deildarlið var slegið út af
liði úr neðri deildum. Middlesbrough
tapaði 1-2 á heimavelli gegn 4. deildarliði
Grimsby. Barnie Slaven kom heima-
mönnum yfir í byrjun, en varamaðurinn
Marc North jafnaði með sinni fyrstu
snertingu á 72. mín. Þremur mín. fyrir
leikslok var North aftur á ferðinni með
sigurmark Grimsby.
Liverpool voru ekki í neinum vandræð-
um með 4. deildarlið Carlisle þátt fyrir að
á útivöll væri að sækja. Steve McMahon
skoraði tvívegis og John Barnes einu
sinni í 3-0 sigri Liverpool.
Topplið 4. deildar, Crewe Alexandra,
var nærri því að slá Aston Villa úr
keppninni er liðið var 2-0 yfir í fyrri
hálfieik. Aston Villa náði að jafna í síðari
hálfleik og síðan að skora sigurmarkið og
komast áfram.
Sigurður Jónsson gerði eitt marka
Sheffield Wednesday í 5-1 sigri liðsins
gegn Torquay. Þar með vann liðið sinn
fyrsta heimasigur síðan í október. Imre
Varadi gerði tvö mörk, David Hodgson
eitt og Mark Proctor eitt, auk marksins
sem Sigurður Jónsson gerði. Dean
Edwards kom Torquay yfir á 3. mín
leiksins.
Brian Robson fyrirliði enska landsliðs-
ins rotaðist í leiknum gegn QPR. Hann
lenti í samstuði við vamarmann QPR.
Hann var borinn af leikvelli og fluttur á
sjúkrahús, eftir skoðum og myndatökur
kom í Ijós að hann er ekki alvarlega
slasaður, en fékk heilahristing og mun
dvelja á sjúkrahúsinu áfram fram á
þriðjudag. Hann mun því missa af auka-
leiknum við QPR á morgun, en leiknum
á laugardag lauk með markalausu jafn-
tefli. Paul McRath verður heldur ekki
með vegna meiðsla. Hjá QPR voru
einnig meiðsl. Báðir framherjar liðsins
urðu að yfirgefa völlinn vegna meiðsla,
þeir Mark Falco og Trevor Francis fram-
kvæmdastjóri liðsins. Þeirverða hvorugir
með í leiknum á morgun.
Á sunnudag voru tveir leikir. West
Ham og Arsenal gerðu 2-2 jafntefli og
Norwich vann Port Vale 3-1 á útivelli.
Aukaleikirnir í keppninni verða leiknir
í kvöld og á morgun.
Úrslitin í bikarkeppninni:
Barnsley-Chelsea.................. 4-0
Blrmingham-Winibledon............... 0-1
Blackpool-Boumemouth .............. 0-1
Bradford-Tottenham.................. 1-0
Brighton-Leeds...................... 1-2
Cardiff-Hull....................... 1-2
Cariisle-Liverpool.................. 0-3
Charlton-Oldham ....................2-1
Crewe-Aston Villa ..................2-3
Derby-Southampton................... 1-1
Hartlepool-Bristol City............. 1-0
Huddersfield-Sheffield United.......O-l
Kettering-Halifax .................. 1-1
Manchester Cíty-Leicester City...... 1-0
Manchester United-Q.P.R.............0-0
Middlesbrough-Grimsby............... 1-2
Millwall-Luton...................... 3-2
Newcastle-Watford...................0-0
Notth. Forest-lpswich...............3-0
Plymouth-Cambridge United...........2-0
Portsmouth-Swindon.................. 1-1
Sheffield Wed.-Torquay..............5-1
Shrewsbury-Colchester...............0-3
Stoke-Crystal Palace................ 1-0
Sunderland-Oxford .................. 1-1
Sutton-Coventry.....................2-1
Tranmere-Reading.................... 1-1
Walsall-Brentford................... 1-1
Welling-Blackbum....................0-1
West Bromwich-Everton............... 1-1
Port Vale-Norwich .................. 1-3
West Ham-Arsenal.................... 2-2
Úrslitin í skosku úrvalsdeildinni:
Aberdeen-Hibemian . — ..............2-0
Celtic-Hamilton.................. 2-0
Dundee-Dundee United ........... JiMÚO-1
Hearts-St. Mirren .............. WU.r 2-0
Motherwell-Rangers...............5v 2-1
Sanngjarnt jafntef li
Það voru Gróttumenn sem náðu
að lokum að merja jafntefli 21-21 í
gífurlega sveiflukenndum, en hörku-
spennandi vígsluleik í hinu nýja,
stórglæsilega íþróttahúsi þeirra Sel-
tirninga á sunnudag.
Það voru Eyjamenn sem skoruðu
fyrsta markið í hinu nýja húsi og
tóku jafnframt forystuna í leiknum.
En það stóð ekki lengi því að næstu
fimm mörk voru Gróttumanna og
virtust heimamenn ætla að bursta
Vestmannaeyinga. Héldu Gróttu-
menn þetta 4-5 marka forskoti allt
þar til skömmu fyrir hálfleik er
Eyjamenn tóku kipp og náðu að
minnka muninn í tvö mörk 12-10.
Vestmannaeyingar mættu gífur-
lega ákveðnir til leiks í síðari hálfleik
og með Sigurð Gunnarsson fremstan
í flokki náðu þeir 2 marka forystu og
héldu henni allt þar til um sjö
mínútur voru til leiksloka. Þá náðu
Gróttumenn að jafna 18-18 og eftir
það var jafnt á öllum tölum, en
ávallt höfðu Eyjamenn þó frum-
kvæðið, og síðast náðu Gróttumenn
að jafna er um 30 sek. voru til
leiksloka og var tíminn of skammur
fyrir Eyjamenn til að knýja fram
sigur.
Aðalsmerki beggja liða var tví-
mælalaust varnarleikur og taumlaus
barátta, enda lífsspursmál fyrir bæði
lið. Ekki var leikinn áferðarfallegur
handknattleikur og má með sanni
segja að úrslitin hafi þegar upp er
staðið verið sanngjörn.
I liði Gróttu var Sverrir Sverrisson
hvað bestur, en einnig ber að minn-
ast á þá Stefán Arnarsson og Pál
Björnsson sem voru drjúgir Gróttu-
liðinu jafnt í sókn og vörn. Þá var
Gunnar Gíslason þrumusterkur í
vörninni.
Engum blöðum er um það að
fletta að þeir Sigurður Gunnarsson
og Sigmar Þröstur Qskarsson eru
langbestu menn í liði ÍBV. Sigurður
var hreint óstöðvandi á tímabili og
Sigmar varði mjög vel langtímum
g* 7-
jr
Vinningstölurnar 7. janúar 1989
Heildarvinningsupphæð: Kr. 18.286.421,-
Fimm tölur réttar kr. 11.512.352,-. Aðeins einn þátttakandi vai
með 5 tölur réttar.
BÓNUSTALA + fjórar tölur réttar kr. 1.003.651,- skiptast á 11
vinningshafa, kr. 91.241,- á mann.
Fjórar tölur réttar kr. 1.731.240,- skiptast á 280 vinningshafa
kr. 6.183,-á mann.
Þrjár tölur réttar kr. 4.039.178,- skiptast á 10.714 vinningshafa
kr. 377,- á mann.
Sölustaðirnir eru opnír frá mánudegi
til laugardags og loka ekki fyrr en 15
mínútum fyrir útdrátt.
saman þó sérstaklega af línu og úr
hornum, en einnigófá vítaköstin. Þá
átti Björgvin Rúnarsson góðan leik
og vakti athygli er þessi lágvaxni
leikmaður skoraði mörk nteð upp-
stökki fyrir utan.vörn andstæðing-
ana.
Mörk Gróttu: Sverrir Sverrisson
5. Stefán Arnarsson 4 (lv), Willunt
Þór Þórsson 4. Páll Björnsson 3.
Halldór Ingólfsson 3(lv) og Davíð
Gíslason 2.
Mörk ÍBV: Sigurður Gunnarsson
8 (4v), Björgvin Rúnarsson 3, Sig-
urður Friðriksson 3, Sigurbjörn Ósk-
arsson 3, Þorsteinn Viktorsson 2, og
Jóhann Pétursson 2.
Leikinn dæmdu þeir Einar Sveins-
son og Gunnar Viðarsson og voru
'slakir. ' -PS
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111
SKATTLAGNING
ANNARRA
TEKNA
EN LAUNATEKNA
AÐRAR TEKJUR EN LAUNATEKJUR
VERÐA SKATTLAGÐAR MEÐ
VERÐBÓTUM VÐ ÁLAGNINGU
.
Skattlagning annarra tekna en launatekna sem einstaklingar
höfðu á árinu 1988 fer fram við álagningu opinberra gjalda á miðju
ári 1989. Hér er um að ræða söluhagnað, hreinar tekjur af at-
vinnurekstri og sjálfstæðri starfsemi, leigutekjur, tekjur utan stað-
greiðslu skv. 2. gr. reglug. nr. 591/1987, o.fl.
Álagðir skattar á aðrar tekjur ársins 1988 en launatekjur
koma til innheimtu haustið 1989 að viðbættum verðbótum. Verð-
bætur eru reiknaðar í samræmi við breytingar á lánskjaravísitölu
frá 1. júlf 1988 til 1. júlí 1989.
HÆGT ER AÐ KOMAST HJÁ
VERÐBÓTUM VÐ ÁLAGNINGU MEÐ ÞVf
AÐ GERA SKIL FYRIR 31. JANÚAR 1989
Samkvæmt 38. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda má
komast hjá greiðslu verðbóta á álagða skatta af öðrum tekjum
ársins 1988 en launatekjum með því að greiða eigi síðar en
31. janúar 1989 fjárhæð sem ætla má að samsvari sköttum af
tekjum þessum.
Greiðslu skal inna af hendi hjá gjaldheimtum og innheimtu-
mönnum ríkissjóðs. Henni skal fylgja útfyllt eyðublað, “Skilagrein
vegna 38. greinar", merkt RSK 5.22.
Eyðublað þetta fæst hjá skattstjórum, gjaldheimtum, inn-
heimtumönnum ríkissjóðs og ríkisskattstjóra.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI