Tíminn - 17.01.1989, Side 15
Þriðjudagur 17. janúar 1989
Tíminn 15
AÐLJTAN
Exciusive: A strange at-home visit with tmeida
War & fíemembranæ's hunky Hart Bochner
■1 OF3, f . fweekiy
■ ■
No fancy Nancy,
loyal, unflappable
BARBARA BUSH brings
a simpler Yankee style,
10 lively grandchiidren
and the first man she
ever kissed to the
White House
og tveggja ára gamlan son þeirra
George W. til Odessa í Texas þar
sem hann gerði sér vonir um að
verða fljótt ríkur á blómlegum
olíuviðskiptum. „Þá langaði mig
ekki að flytja þangað, en daginn
eftir að ég kom þangað fannst mér
það reglulega spennandi." Árið
eftir fæddist þeim dóttir, Robin, og
4 árum síðar annar sonur, Jeb. A
meðan Barbara var önnum kafin
við að ala böm í þennan heim hafði
George sett á stofn fyrirtæki sem
seldi tæki til olíuborunar og var á
góðri leið með að verða milljóna-
mæringur. Þetta voru tímar grósku
og allsnægta, ef þau hefðu ekki
orðið fyrir miklum missi. Robin dó
úr hvítblæði 1953 og varð móður
hennar svo mikið um að hún segist
varla hafa getað sett annan fótinn
fram fyrir hinn. En George var
ekki á því að láta hana hafa frið til
að sökkva sér ofan í depurð. Og
eldri sonurinn greip líka til sinna
ráða til að hugga mömmu sína.
Barbara segist einn góðan veður-
dag hafa heyrt hann segja við
leikfélaga sinn: „Ég get ekki leikið
mér við þig í dag vegna þess að ég
verð að vera hjá mömmu, hún er
svo óhamingjusöm." „Þá vissi ég
að það var ekki nema um tvennt að
ræða, annað hvort yrði ég að ná
tökum á mér eða ég félli alveg
saman,“ segir hún.
„Pabbi var
aðalforstjórinn
- en mamma aðal-
framkvæmdastjórinn“
1959 flutti fjölskyldan sig um
set, til Houston þar sem George
gerði misheppnaða tilraun til að ná
kosningu til öldungadeildar banda-
ríska þingsins. Þessi flutningur var
Barböru enn meira á móti skapi en
sá fyrri enda höfðu nú bæst í
fjölskylduna Neil, 5 ára og Marvin
3 ára. Auk þess var hún ófrísk að
Dorothy. En aftur tókst henni að
aðlagast nýju heimili. 1966 náði
svo George kosningu til fulltrúa-
deildarinnar og fjölskyldan fluttist
til Washington. Nú tók við þingseta
hans í tvö kjörtímabil en á meðan
lék Barbara súpermömmu. Hún
tók skátaflokk í fóstur, skiptist á
við aðrar mömmur um að keyra
krakkana fram og aftur og kenndi
í sunnudagaskóla. „Pabbi var aðal-
forstjórinn en mamma var aðal-
framkvæmdastjórinn," segir Jeb
sonur þeirra sem starfar nú sem
fasteignasali í Florida. „Við gáfum
henni öll skýrslur og henni tókst
vel að halda fjölskyldunni saman.“
Og Barböru tókst að halda þess-
um fjölskylduböndum sterkum þó
Barbara og George Bush héldu
brúðkaup sitt 1945. „Hann er enn
fallegasti maðurinn sem ég hef
séð,“ segir hún.
að nú færu f hönd tímar þar sem
þau hjón voru meira og minna á
faraldsfæti. Hún flutti heimili sitt
til New York þegar George var
skipaður sendiherra Bandaríkj-
anna við Sameinuðu þjóðirnar
1971, og aftur til Washington þegar
hann var útnefndur flokksformað-
ur repúblikana 1973. Og enn fluttu
þau hjón 1974 þegar George var
skipaður sendifulltrúi í Kína. „Ég
elskaði Peking,“ segir Barbara, en
börn þeirra hjóna, sem nú voru
komin á fullorðins ár fylgdu ekki
foreldrum sínum til Kína. „Nú
hafði ég George út af fyrir mig,“
segir Barbara. Sú dýrð stóð þó
ekki lengi, að ári liðnu kallaði
Gerald Ford forseti mann hennar
aftur til Washington til að gerast
yfirmaður CIA.
Erfitt að snúa
aftur til Washington
Það reyndist Barböru enginn
leikur að snúa aftur til Bandaríkj-
anna. Kvenfrelsishreyfingin lét
mikið að sér kveða á þessum árum
og málstaður hennar var Barböru
framandi. Nú fann hún líka í fyrsta
skipti til aðskilnaðar frá bónda
sínum sem ekki gat rætt um starf
sitt við hana. Henni fannst hún nú
ekki duga til eins eða neins og að í
rauninni hefði hún ekkert afrekað
í lífinu. „En ég komst yfir þessa
tilfinningu, sem betur fer,“ segir
hún. Hún bjó til skuggamyndasýn-
ingu um Kína og ferðaðist með
hana um landið r' fjáröflunarskyni
fyrir kirkjuna í Houston þar sem
hún hafði kennt í mörg ár. Og
þegar George lagði út í baráttu um
útnefningu til forsetaembættisins
1980 var hún reiðubúin að skella
sér í slaginn við hlið hans. Hún lét
ekki sitt eftir liggja, hvorki í út-
nefningarbaráttunni né síðar í
kosningabaráttu Reagans og Bush.
Það var þó ekki fyrr en í kosn-
ingabaráttunni í haust sem Barbara
naut sín fyllilega. Margir ráðgjafar
Bush, sem hefðu óskað þess að
eiginkona frambjóðandans væri
glæsilegri og tæki sig betur út á
mynd, urðu undrandi á hæfileika
Barböru til að afla atkvæða þrátt
fyrir allt látleysið. Barböru tókst
líka að vinna hjarta blaðamann-
anna með því að gera svolítið grín
að sjálfri sér. Þegar hún reiddist
óvæginni gagnrýni Roberts Dole á
George í keppninni um útnefning-
una 1988 var hún reiðubúin að
svara í sömu mynt þar til hún
minntist þess eina atviks þegar hún
hafði gripið til hvassyrða í kosn-
ingabaráttunni 1984. Þá brást hún
við árásum demókrata vegna auð-
æfa Bush-fjölskyldunnar með því
að kalla Geraldine Ferraro „fjög-
urra milljóna dollara — ég get ekki
sagt það en það hljómar líkt og
auðug!“ Hún stóðst mátið að svara
Dole á svipaðan máta og sagði
einungis: „Ég held ég ætti heldur
að ganga nú til sætis. Orðsnillingur-
inn dregur sig í hlé.“
Lævísar sögur særahana
Því er þó ekki að neita að
Barbara Bush á sínar viðkvæmu
hliðar. Hún syndir eða hjólar á
þrekhjóli dag hvern en viðurkennir
að henni sárni gagnrýni á hvað hún
líti ömmulega út og verði jafnvel
að þola ráð velmeinandi fólks um
að hún ætti að lita á sér hárið,
léttast og hætta að klæðast lit-
skrúðugum kjólum sem hún kaupir
beint af herðatrjánum. í staðinn
ætti hún að velja sérhönnuð föt í
daufari litum sem klæddu betur
reisulegan 170 cm háan líkama
hennar. „Fólk á það til að vera svo
dónalegt þegar það kemur með
athugasemdir um hvað George sé
unglegur og ég gamalleg. Það er
ekkert gaman að fá að heyra það,“
segir hún. Mest sárnar henni þó
þegar á kreik fara sögur um meint
ástarævintýri Georges bæði með
ekkju sem er fjölskylduvinur og
konu sem lengi hefur verið í starfs-
liði hans. Barbara hefur bara lýst
því yfir að slíkar sögur séu „lævís-
ar“, en þeir sem unnu með þeim
hjónum í kosningabaráttunni segja
að þessar kviksögur hafi bæði sært
hana og reitt hana til reiði.
Bæði hjónin segja að ástin milli
þeirra hafi styrkst með árunum.
„Ég gæti ekki lifað án hennar og
hún gæti ekki lifað án mín,“ hefur
George sagt - en þau hafa ekki lagt
það í vana sinn að sýna tilfinningar
sínar opinberlega. Það þykir ekki
góð háttvísi í þeim auðuga hópi f
Nýja Englandi sem þau eru upp-
runnin úr. Sjaldgæf undantekning
var þó á síðustu mánuðum kosn-
ingabaráttunnar þegar Bush-hjón-
in reyndu að feta í fótspor Dukak-
is-hjónanna og tóku til við að
kyssast og haldast í hendur í augsýn
fjölmiðlamanna. Nú búast vinir
þeirra við að þau leggi þennan sið
af þegar kosningarnar eru afstaðn-
ar og þau þurfa ekki lengur að sýna
kjósendum á sér þessa hlið. Náungi
sem skrifar ræður fyrir Bush segir
þó frá því að einu sinni hafi hann
verið ásamt hjónunum í lyftu sem
festist milli hæða. Öryggisverðirnir
voru alveg að tapa sér en hjónin
höfðu ofan af fyrir sér með því að
klípa í bakhlutann hvort á öðru!
Á ekkert eigið heimili enn
Nú, þegar Barbara Bush er að
búa sig undir að flytjast inn í Hvíta
húsið á hún aðeins eitt metnaðar-
mál óuppfyllt. Hún á ekkert heimili
sem hún getur kallað sitt eigið. Þá
löngu mánuði sem kosningabarátt-
an stóð skynjuðu fréttamenn að
Barbara er á báðum áttum varð-
andi framtíðina. Nánir vinir henn-
ar álíta að hún óski helst að verja
meiri tíma með fjölskyldunni á
sveitasetri Bush-fjölskyídunnar í
Kennebunkport í Maine en þar
þykir henni gaman að halda grill-
veislur og á næðisstundum að grípa
í góðan reyfara eða bók af metsölu-
lista eins og „Bonfire of the Vanit-
ies“ eftir Tom Wolfe. „Ég er farin
að skjóta rótum í þessu húsi. Þegar
ég er að bauka í garðinum við að
setja niður bóndarósir sem eiga
eftir að lifa í hundrað ár er ég að
gera það fyrir börnin mín og barna-
börn.“
En nú verður hún að slá þessu
áhugamáli sínu á frest. Það gerir
hún vafalaust, eins og alltaf hingað
til, glöð í lund og án þess að sýna
nokkur merki óánægju. „Látið
ekki líta út eins og ég hafi fært
fórnir," segir hún. „Ég er mjög
ánægð með líf mitt og lít svo á að
ég sé heppnasta kona í heimi.“
rb\/m\uð i Mnr
Steingrímur Sigrún
Þorrablót Framsóknarfélaganna
í Reykjavík
verður haldið laugardaginn 21. janúar kl. 20 í Vetrarbrautinni,
Þórscafé. Húsið opnar kl. 19.30.
Ræðumaður kvöldsins: Steingrímur Hermannsson.
Veislustjóri: Sigrún Magnúsdóttir.
Jóhannes Kristjánsson og Áslaug Brynjólfsdóttir flytja gamanmál.
Miðapantanir og nánari upplýsingar eru hjá Þórunni í síma 24480.
Framsóknarfélögin
Keflavík - Suðurnes
Jóhann Einvarðsson, alþm., verður til viðtals
á eftirfarandi stöðum:
2. Þriðjudaginn 17. jan. kl. 20.30 í félagsheim-
ilinu í Sandgerði.
3. Miðvikudaginn 18. jan. kl. 20.30 í Fram-
sóknarhúsinu í Keflavík.
4. Fimmtudaginn 19. jan. kl. 20.30 í Festi,
Grindavík (litla sal).
5. Föstudaginn 20. jan. kl. 20.30 í Aragerði 7, Jóhann
Vogum.
Akranes
Almennur fundur með Alexander Stefánssyni
verður að Sunnubraut 21, fimmtudaginn 19.
jan. kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Stjórnin
Þorrablót framsóknarfélaganna
í Reykjavík
verður haldið laugardaginn 21. janúar.
Takið frá daginn. Nánar auglýst síðar.
FR.
Alexander
Þorrablót í Kópavogi
Hið árlega þorrablót Framsóknarfélaganna í Kópavogi verður haldið
að venju 1. laugardag í þorra 21. janúar n.k. kl. 20 í Félagsheimili
Kópavogs. Hin landsþekkta hljómsveit Lúdó og Stefán leikur fyrir
dansi.
Mætum öll og tökum með okkur gesti.
Miðapantanir: Einar (s. 41590 og 43420)
Ásta(s. 40229)
Skúli (s. 41801)
Jón (s. 46724)
Framsóknarfélögin í Kópavogi
Jólahappdrætti Framsóknarflokksins
1988
Dregið hefur verið í Jólahappdrætti Framsóknarflokksins. Vinningsnúmer eru:
1. Nr. 1311 2. Nr. 22646 3. til 6. Nr. 26073, 12506, 9750, 23800 7. til 12. Nr. 20893, 20890, 3571,34359, 13. til 15. Nr. 21426, 3587, 23141 12261,34014
Vinninga skal vitja innan árs. Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofum Framsóknar- flokksins, Nóatúni 21, Reykjavík, í síma 91-24480 og/eða 91-21379.
Framsóknarflokkurinn