Tíminn - 18.01.1989, Blaðsíða 2
2 Tíminn
MlðvikuciaguV 1'8.'január'Í989
Fjármálaráðherra segir Sverri Hermannsson tala af furðulegri vanþekkingu í grein sinni í Tímanum í
gær, en þar sagði hann m.a. að Ólafur vældi eins og stunginn grís um of dýran rekstur bankakerfisins:
„Sverrir opinberar
vanþekkingu sína“
„Það er ótrúlegt að bankastjóri Landsbankans skuli
opinbera vanþekkingu sína á svo augljósan hátt,“ sagði
Óiafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra er Tíminn spurði
hann álits á grein Sverris Hermannssonar í blaðinu í gær, þar
sem Sverrir svarar „ósannindavaðli“ Ólafs. „Sverrir hreykti
sér af því fyrir skömmu að hann hefði fengið erlendan
sérfræðing til að taka út rekstur bankans, hann hefði getað
fengið þær upplýsingar með einu símtali við hagdeild
Landsbankans.
Það er furðulegt að Sverrir skuli
ekki hafa fylgst með umræðunni um
umframkostnað í bankakerfinu og
þann skýra talnagrundvöll sem ligg-
ur að baki þeirri niðurstöðu að
íslenska bankakerfið kosti tveimur
milljörðum meira en eðlilegt er“,
sagði Ólafur Ragnar. Hann sagði að
þetta hefði verið athugað eftir ýms-
um leiðum og sama niðurstaða alltaf
fengist. Til dæmis mætti athuga mun
innlánsvaxta og útlánsvaxta hjá ann-
ars vegar innlendum og hins vegar
erlendum bönkum. Vaxtamunurinn
í íslenskum bönkum væri á bilinu
7-7,5% og sumir segðu miklu meiri.
Vaxtamunurinn í hliðstæðri starf-
semi erlendis væri yfirleitt á bilinu
4,5-5%. Þarna væri um 2% vaxta-
mun að ræða og væri haft í huga að
innlán í bankakerfinu væru hér á
landi um það bil 80 milljarðar, sæist
Ólafur Ragnar Grímsson.
að þetta samsvaraði u.þ.b. 2 millj-
örðum króna.
Þá væri einnig hægt að líta á
rekstrarkostnað sem hlutfall af
niðurstöðu efnahagsreiknings. í
starfsemi banka í Vestur-Evrópu
væri rekstrarkostnaður um það bil
3% af niðurstöðutölum efnahags-
reiknings, en hér á landi væri sam-
bærileg tala 4,7%. Miðað við stöðu
efnahagsreiknings í lok október-
mánaðar 1988 mætti sjá að unnt væri
að spara um 2,2 milljarða ef hlutfall-
ið væri hið sama hér og í nágranna-
löndunum.
Ólafur Ragnar benti einnig á að
árið 1973 hefði kostnaður vegna
bankakerfisins í landinu verið 1,7%
af landsframleiðslu. Nú tæpum ein-
um og hálfum áratug síðar væri hann
orðinn 3.5% , eða tæplega helmingi
meiri. - ág
Smygl
í Lax-
fossi?
Laxfoss kom til hafnar í
Reykjavík í fyrrinótt og leikur
grunur á að í skipinu sé smygl-
varningur og voru tollgæslumenn
að störfum í skipinu í gærkvöldi.
„Ég þræti ekki fyrir að eitthvað
hafi gerst og það er verið að vinna
í þessu skipi. En ég má ekkert
segja meira í sambandi við þetta
mál þar sem það gæti spillt fyrir
hugsanlegum árangri rannsókn-
arinnar," sagði Kristinn Ólafsson
tollgæslustjóri í gærkvöldi.
„Við getum aldrei sagt fyrir um
hvað búist er við að finna; það
væri að renna fullkomlega blint í
sjóinn,“ sagði hann.
Kristinn vildi heldur engu svara
þeirri spurningu hvort verið væri
að kanna farm skipsins og að það
væru því einhverjir aðrir en skip-
verjar sem stæðu fyrir smyglinu.
Hann sagðist ekki búast við nein-
um niðurstöðum fyrr en í fyrsta
lagi í dag og fyrr gæti hann ekkert
tjáð sig um málið. -jkb
j
Þorramaturinn kominn í verslanir:
FRÁ 480 KRÓNUM
FYRIR MANNINN
Þorrinn hefst á föstudaginn og nú
eru verslanir í óða önn að leggja
síðustu hönd á undirbúning fyrir
þorrablótsvertíðina. Algengt verð á
þorrabökkum sem ætlaðir eru alla
jafna fyrir tvo, eða einsog einn
verslunareigandinn orðaði það,
„mjög góð kvöldstund fyrir einn“, er
á bilinu 980-1100 krónur eftir þyngd
og innihaldi.
Að sögn Péturs Péturssonar í
Kjötbúri Péturs á Laugaveginum er
reiknað með að hver skammtur sé
frá 650-850 gr. Innihaidið er mis-
jafnt eftir því hvað beðið er um, en
fjölbreytni þorramats hefur aukist á
undanförnum árum og hafa bæst við
réttir sem ekki eru upphaflega taldir
til þorramats en samt sem áður
góður og gildur íslenskur matur,
eins og hangikjöt, jafningur, rófu-
stappa og reykt síld. Misjafnt er
hvað verslanir bjóða upp á. í Múla-
kaffi er t.d. boðið upp á 1200 gr
hjónabakka er innihalda 14 tegundir
af þorramat á 1100 krónur. Kjötbúr
Péturs býður upp á 1200-1400 gr
bakka á 980 kr. stykkið og 22
tegunda þorrabakka fyrir stærri
hópa á 850-950 kr. fyrir manninn.
Én þorramatur er borðaður víðar
en á Islandi. íslendingafélög út um
allan heim panta þorramat í stórum
stíl héðan að heiman og t.d. sögðust
menn í Múlakaffi senda utan þorra-
mat fyrir á bilinu 300-500 manns á
hverjum vetri. Sömu sögu var að
segja í Kjötbúri Péturs og að sögn
Péturs Péturssonar fer frá þeim ár-
lega um 1,5 tonn af þorramat út um
allan heim.
Pétur sagði að þó að hann af-
greiddi helst ekki þorrabakka nema
á þorranum sjálfum væri hann með
íslenskan mat á boðstólum alla daga
ársins. Hann kvað þessa þjónustu
vel séða af erlendum ferðamönnum
þó misjafnt væri hvað þeir þyrðu að
smakka íslensku þjóðarréttina.
-ág
Árlega streymir íslenskur þorramatur í tonnavís út um allan heim, aðallega
til íslendinga búsettra erlendis. Þó hafa fleiri komist á bragðið og hér sjáum
við glaðhlakkalcgan Kampútseumann með helgarskammtinn í fanginu.
Tímamynd: Ámi Bjama
Sjálfsskoðun
sérfræðinga
í læknastétt
Læknafélag Reykjavíkur hefur
samþykkt nauðsyn þess að bæta
faglegt og reikningslegt eftirlit með
störfum lækna.
Þessi athugun mun ná til saman-
burðar á reikningum við unnin
verk samkvæmt sjúkraskrá, skila á
læknabréfum og annars aðbúnaðar
og aðstöðu á stofum sérfræðinga.
Hvaða mál verður athugað
hverju sinni mun tilviljun ráða. En
vonast er til að þetta eftirlit leiði til
samræmingar í vinnubrögðum og
reikningshaldi og veiti læknum
nauðsynlegt og sjálfsagt aðhald.
í athugunarnefndinni munu
hverju sinni sitja einn fulltrúi úr
L.R., einn fulltrúi úr samninga-
nefnd scrfræðinga og einn fulltrúi
frá viðkomandi sérgrein eða undir-
grein. Er þess vænst að allir sér-
fræðingar sýni málinu áhuga og
samstarfsvilja, þegar til þeirra
verður leitað. jkb
Óánægja með langan „fæðingartíma“ Bifreiðaskoðunarinnar:
Byrjunarörðugleikar
hjá Bifreiðaskoðun
Uppi hafa verið raddir um að
ómögulegt væri að ná sambandi við
Bifreiðaskoðun Islands eða nokkurn
forsvarsmanna hennar. Væri við-
kvæðið sýknt og heilagt að þeir sætu
fundi eða tækju ekki síma.
Starfsmannastjóri Bifreiða-
skoðunar fslands Skúli Guðmunds-
son þvertók fyrir alla óeðlilega örð-
ugleika við að ná sambandi við
skoðunina eða forsvarsmenn hennar
er Tíminn bar það undir hann. En
hann var sá eini sem var viðlátinn þá
stundina.
„Fyrirtækið er nýtt og það tekur
sinn tíma að koma hlutunum í gang.
Framkvæmdastjórar hafa undanfar-
ið setið fundi hjá dóms- og fjármála-
ráðuneytunum varðandi rekstur
Bifreiðaskoðunarinnar þannig að
ekkert er óeðlilegt við það þó þeir
séu ekki við eða taki ekki síma.“
Landsbyggðarfólk hefur einnig
kvartað undan því að ekki hefði
verið kynnt nægilega starfsemi fyrir-
tækisins varðandi kostnað og fram-
kvæmd skoðunar bifreiða.
„Skoðun utan Reykjavíkur er
ekki hafin en hana stendur til að
auglýsa um eða eftir næstu helgi.
Skoðunarverð getur fólk fengið upp-
lýsingar um hjá símastúlkunni, en
það er það sama fyrir innanbæjar-
menn sem utan,“ sagði Skúli.
Auk þessa hafa heyrst óánægju-
raddir fyrrverandi starfsmanna Bif-
reiðaeftirlitsins sem ekki segjast vita
hvaðan á sig standi veðrið þegar
þeim er sagt upp störfum og vinnu-
húsnæðið leigt öðru fyrirtæki.
Skúli svaraði því til að hjá Bifeiða-
eftirliti ríkisins hefði verið vitað með
þriggja mánaða fyrirvara um að til
stæði að leggja skoðun bifreiða hjá
fyrirtækinu niður. „Starfsmönnum
ætti því öllum að vera vel kunnugt
um stöðu mála.“
Það sem eftir stendur af starfsenii
Bifreiðaeftirlits ríkisins eru meðal
annars ökupróf og sagðist Skúli þá
hjá Bifreiðaskoðuninni ekkert hafa
með þau að gera. jkb