Tíminn - 18.01.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 18. janúar 1989
Bankastofnanir hlutfallslega álíka margar hér og í Danmörku og Finnlandi en:
Bankastarfsmenn lang
flestir hér á landi
Bankastarfsmenn á íslandi eru frá 50% og allt upp í
140% fleiri á íslandi heldur en á hinum Norðurlöndunum
að teknu tilliti til íbúafjölda í hverju landi. Bankastarfs-
menn eru 15 af hverjum 1.000 íbúum hér á landi, en frá
6,2 til 10 á hverja þúsund í hinum löndunum. Þessi munur
virðist ekki endilega vera vegna þess hve bankar og
sparisjóðir eru margir á íslandi, heldur miklu fremur vegna
þess að starfsmenn eru hér miklu fleiri í hverjum banka,
eða að meðaltali 21 á hverjum afgreiðslustað miðað við
tæplega 12 til 18 á hinum Norðurlöndunum.
Fjölda bankastarfsmanna og af-
greiðslustaða innlánsstofnana í
hverju Norðurlandanna er að finna
í fréttabréfi norræna bankamanna-
sambandsins. Þar má m.a. sjá að
félagsbundnum bankastarfsmönn-
um fjölgaði um 38% hér á landi s.l.
fimm ár en frá 15-22% í hinum
aðildarlöndunum.
Fjöldi bankastarfsmanna til
þjónustu fyrir hverja 10.000 íbúa
og heildarfjöldi þeirra var sem hér
segir árið 1988:
Land Á 10.000 íbúa Fjöldi
ísland 150 3.770
Danmörk 100 51.670
Finnland 85 41.960
Noregur 75 32.700
Svíþjóð 62 52.000
Fjöldi landsmanna að baki hvcrs
afgreiðslustaðar banka eða spari-
sjóðs og síðan meðalfjöldi starfs-
manna í hverri afgreiðslu er scm
hér segir í þessum löndum:
íbúar/ Starfsm./
Land afgr. afgr.
ísland 1.380 21,0
Danmörk 1.440 14,5
Finnland 1.390 11,8
Noregur 2.390 17,7
Svíþjóð 2.430 15,0
Afgreiðslustaðir eru sem sjá má
hlutfallslega nánast jafn margir í
Danmörku og Finnlandi eins og
hér á landi. Hver þeirra virðist hins
vegar jafnaðarlega komast af með
þriðjungi til allt að helmingi færri
starfsmenn. Hver afgreiðsla hér á
landi hefur meira að segja mun
fleiri starfsmenn heldur en í Noregi
og Svíþjóð þar sem bankar eru
hlutfallslega um 40% færri en hér.
Til dæmis rekur Landsbankinn 42
afgreiðslur með um 1.050 stöðu-
gildum, eða 25 starfsmenn að með-
altali á afgreiðslu, eins og fram
kom þegar kynntar voru fyrirætlan-
ir bankans um úttekt á rekstri hans
í síðustu viku.
Heildarfjöldi banka og spari-
sjóða annars vegar og síðan fjöldi
afgreiðslustaða er sem hér segir í
hverju Norðurlandanna:
Land Bankar Afgreiðsl.
ísland 44 179
Danmörk 250 3.570
Finnland 610 3.560
Noregur 184 1.830
Svíþjóð 529 3.470
Bankastofnunum hefur stöðugt
farið fækkandi á öllum Norður-
löndunum frá árinu 1975 - úr um
2.200 niður í um 1.600. Fjöldi
afgreiðslustaða hefur á hinn bóginn
nánast staðið í stað eða jafnvel
fækkað (úr 13.000 niður í 12.600),
nema á Islandi þarsem afgreiðslum
banka og sparisjóða hefur fjölgað
úr 1301 179áþessutímabili. -HEI
Stjórn SVR leggur tiI að keyptir verði Volvo-vagnar á næstu fjögurra ára áaetlun:
ALLIR STRÆTISVAGNAR
SÆNSKIR EFTIR 4 ÁR
Stjórn SVR hefur ákveöið að
mæla með því að keyptir
verði tuttugu nýir strætis-
vagnar af gerðinni Volvo
B10M og B10R á næstu fjór-
um árum og fer málið næstu
daga fyrir borgarráð til
endanlegrar afgreiðslu, eftir
því sem heimildir Tímans
innan SVR herma. Um er að
ræða hefðbundna endurnýj-
un á flotanum sem telur tæp-
lega 80 vagna. Alls sendu 13
aðilar inn 50 tilboð af ólíkum
gerðum strætisvagna, en tvö
af tilboðum Brimborgar hf.
voru lægst.
Með þessari ákvörðun er Ijóst að
eftir fjögur ár verða ekki aðrar
vagntegundir í umferð á sérleiðum
SVR, en Volvo og Scania, sem
báðar eru framleiddar í Svíþjóð, því
þeir vagnar sem eftir eru af Benz-
gerð verða teknir úr umferð á þess-
um tíma vegna aldurs. Með ákvörð-
un sinni hefur stjórn SVR því ákveð-
ið fyrir sitt leyti að einfalda vara-
hlutabirgðir sínar og miða eingöngu
við áðurnefndar tvær tegundir. Það
getur því orðið erfitt fyrir umboðs-
aðila annarra vagntegunda að kom-
ast inn á þennan markað eftir að
þessu samningstímabili lýkur.
Samkvæmt vinnuteikningum sem
verða tvöfaldar og þar verður einnig
gert ráð fyrir mestum fjölda stand-
andi farþega eins og er í eldri
Volvo-vögnum. Öll sæti snúa fram
og er ekki gert ráð fyrir hliðarbekkj-
um.
Lægsta tilboðinu var tekið og var
það annað tveggja tilboða frá Brim-
borg hf. Nam það 6,9 milljónum
króna á hvern vagn, án viðbótarbún-
aðar. Hæsta tilboðið var eitt af ellefu
tilboðum frá Ræsi hf. en þeir eru
umboðsmenn fyrir Benz. Sú gerðin
sem þar um ræðir átti að kosta 11,6
milljónir króna.
Eitt tilboðanna skar sig úr og var
það frá Jugoexport-verksmiðjunum
í Belgrad í Júgóslavíu. Það nam 6,7
milljónum króna miðað við afhend-
ingu í Júgósalvíu og getur því ekki
talist lægsta boð. Þessu tilboði var
vísað frá af hálfu stjórnar SVR
vegna ónógra upplýsinga og ófull-
kominna tilboðsgagna. Að þessu
tilboði slepptu voru aðeins fimrn
tilboð undir níu milljónum króna og
þar af þrjú frá Brimborg hf. Hin tvö
eru frá Isarn hf. sem hefur urnboð
fyrir Scania á íslandi. Þau umboð
sem áttu tilboð á bilinu níu til tíu
milljónir króna voru Brimborg hf.,
ísarn hf., Ræsir hf., Kraftur hf., sem
hefur umboð fyrir MAN, og Bíla-
borg hf., sem hefur umboð fyrir
DAF. Aðrar gerðir sem komu við
sögu í útboðinu voru Renault, Káss-
bohrer, Leyland og Iveco. KB
Tíminn hefur séð, er ekki annað að
sjá en litlar breytingar verði á útliti
vagnanna, ef ákvörðun stjórnar
SVR verður staðfest í borgarráði.
Það sem þó breytist er að útgöngu-
dyr verða bæði í miðju og aftast líkt
og fyrst sást hér á landi í Scania-
vögnunum. Dyrnar í miðju verða þó
aðeins einfaldar, en dyrnar aftast
Stjóm SVR hyggst mæla með því að keyptir verði Volvo vagnar.
Tímamynd Ámi Bjama