Tíminn - 18.01.1989, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 18. janúar 1989
Tíminn 13
ÚTLÖND
Thorvald Stoltenberg utanríkisráöherra Noregs:
Hernaðarbandalögin í
Evrópu leggjast niður
Thorvald Stoltenberg utanríkis-
ráðherra Noregs telur að hernaðar-
bandalögin tvö, NATO og Varsjár-
bandalagið, verði lögð niður í núver-
andi mynd í náinni framtíð. Þetta
kom fram í viðtali sem birtist í
norska dagblaðinu „Dagbladet".
Stoltenberg sagðist ekki geta sagt
til um hvenær nákvamilega hernað-
arbandalögin yrðu lögð niður, en
Thorvald Stoltenberg utanríkisráð-
hcrra Noregs.
sagði að stjórnmálamenn í Austur-
Evrópu og á Vesturlöndum ynnu nú
að þessum málum.
- Við lifum nú á tímum þar sem
breytingar eru svo skjótar að við
verðum að gera ráð fyrir að hernað-
arbandalög eins og NATO og Var-
sjárbandalagið verði lögð niður í
núverandi mynd, sagði Stoltenberg.
Stoltenberger nú ásamt Jóni Bald-
vini og öðrum utanríkisráðherrum í
Evrópu staddur í Vín þar sem þeir
munu undirrita lokasamning „Ráð-
stefnu um öryggi og samvinnu í
Evrópu" sem kveður á um aukin
mannréttindi í ríkjum álfunnar.
Farteski frambjóðenda til þingkosninga á Sri Lanka:
Frír sími og skammbyssur
Frír sími og tvær skammbyssur. Þetta er framlag ríkisins á
Sri Lanka til frambjóðenda sem hyggjast bjóða sig fram til
þings í þingkosningum sem fram fara í landinu 15. febrúar.
Ástæða þess að hinir 1393 fram-
bjóðendur sem berjast um 225 þing-
sæti fá tvær skammbyssur frá ríkis-
stjórninni er það viðkvæma ástand
sem ríkt hefur á Sri Lanka vegna
uppreisnar Tamíla á norður og norð-
vestur hluta eyjarinnar undanfarin
fimm ár og átján mánaða óróa
Shingalesa í suðri.
Allir stjórnmálaflokkar Tamíla að
Tígurskæruliðum undanskildum
hafa fordæmt og svarið af sér allt
ofbeldi fyrir kosningarnar. Fram-
bjóðendur Tígra voru afvopnaðir af
sveitum ríkisstjórnarinnar á síðasta
ári eftir áralanga vopnaða baráttu,
en fá nú tvær skammbyssur frá
ríkisstjórninni til að verjast árásum
öfgafullra Tamíla.
Tígrarnir hafa hvatt alla Tamíla til
að sniðganga þingkosningarnar og
fréttir berast af að skæruliðar marx-
ista meðal Shingalesa í suðri ætli
einnig að hafa ofbeldi í frammi til að
hindra kosningar.
Ranasinghe Premadasa sem ný-
lega var kjörinn forseti eftir tíu ára
setu í stól forsætisráðherra Sri Lanka
hefur fullyrt að allir frambjóðendur
fái trygga lögregluvernd fram að
kosningum. Hins vegar hafa fjórir
frambjóðendur þegar verið drepnir,
aðeins hálfum mánuði eftir að fram-
boðsfrestur rann út. Pá hafa sjö
stjórnmálamcnn, er hafa haft sig
mjög í frammi, verið drepnir á sama
tíma.
Premadasa hefur skorað á kjós-
endur að fylkja liði í kringum flokk
sinn, Sameinaða þjóðarflokkinn,
svo flokkurinn nái tveimur þriðju
hlutum þingsæta. Þanniggeti Prema-
dasa komið róttækum umbótum í
framkvæmd, að hans sögn.
Meginandstæðingur Premadasaer
Sirima Bandaranaike. Hún telur að
núverandi stjórnarfyrirkomulag þar
sem forsetinn hefur mikil völd sé
ekki hið rétta, heldur beri að taka
upp fyrirkomulag er var við lýði árin
1960 til ’65 og 1970 til '11 þegar hún
var forsætisráðherra. Þá hafði for-
sætisráðherra mun meiri völd.
REAGAN KVEÐUR
Bush tekur við
Þann 20. janúar n.k. kveður for-
seti Bandaríkjanna, Ronald Rea-
gan, Hvíta húsið og heldur til bú-
garðs síns t' Kaliforníu. Þar með er
lokið tímabili íhaldssamasta forseta
Bandaríkjanna frá tíma Herberts
Hoovers. Hann hefur á átta árum
sem forseti stóraukið hernaðarupp-
byggingu landsins, eflt þjóðernis-
kennd og komið efnahagslífinu af
stað aftur eftir stöðnun Carter-tíma-
bilsins.
Á hinn bóginn hafa fylgt ýmsar
aukaverkanir sem ekki þykja æski-
legar í löndum sem kenna vilja sig
við velferðarríki. Það er samdóma
álit flestra að fátækt hafi aukist og
bilið milli ríkra og snauðra hafi
breikkað. í landinu séu nú ekki
lengur þrjár stéttir heldur tvær, það
er efnamenn og fátækir. Þeim hafi í
raun stórfjölgað sem lífa verði af
súpuskömmtum frá hinu opinbera
eða góðgerðarfélögum.
Þrátt fyrir vaxandi áhyggjur
manna af þessari þróun hefur Rea-
gan ekki verið tilbúinn til að taka á
þessu vandamáli þar sem hann hefur
ekki verið tilbúinn til að fórna grund-
vallaratriði í hugmyndafræði sinni.
í nýjasta hefti hins virta tímarits
Newsweek var farið yfir feril forset-
ans og honum gefin einkunn. Tíma-
ritið komst að þeirri niðurstöðu að
Reagan teldist framarlega í öðrum
flokki forseta landsins. í fyrsta flokk
skipaði það forsetum eins og Lincoln
og Rooseveit. Forsetum sem siglt
hefðu þjóðarskútunni út úr erfið-
leikatímum. Donald Regan, fyrrum
starfsmannastjóri hans, gaf honum
einkunnina b plús eða jafnvel a
mínus.
Bush tekur við.
Hvað breytist?
Það má greinilega sjá hér í Banda-
Bréf
frá rj
Banda-
ríkjunum
Kristinn Sv. Helqason
ríkjunum að nýr forseti er að taka
við. Daglega birtast myndir af Bush
við hin ýmsu tilefni. Hann skipar
nýja menn í lykilembætti daglega og
stendur þess á milli í öldurótinu við
fiskveiðar eða sést skjótandi fugla
úti í náttúrunni. Fólk á greinilega að
fá það á tilfinninguna að hér sé að
koma til valda kraftmikill leiðtogi.
Mikið hefur verið rætt um hugsan-
legar breytingar sem hann kunni að
gera á stefnu Bandaríkjanna. Hann
hefur sjálfur verið afar varkár í
yfirlýsingum sínum og stafar það
sjálfsagt af því að hann vilji ekki
valda Reagan erfiðleikum á síðustu
dögum hans sem forseta. Þó er ljóst
að hann mun gera breytingar á
stefnu Bandaríkjanna í nokkrum
veigamiklum málum. Hann þykir
líklegur til að auka framlög til
menntamála, umhverfismála og til
þeirra sem teljast húsnæðislausir.
Einnig er talið víst að hann muni
hverfa frá þeirri raunaukningu til
varnarmála sem nýjasta fjárlaga-
frumvarp Reagans gerir ráð fyrir.
Hann muni því stíga skref til móts
við Sovétmenn til minnkunar hern-
aðaruppbyggingar. Það er einnig
talið eina leiðin til að auka ofan-
greind framlög án þess að auka
fjárlagahallann enn frekar án skatta-
hækkana. Skattahækkun virðist vera
bannorð sem ekki megi heyrast frá
forseta repúblikana.
Íran/Contra yfirheyrslur
Um næstu mánaðamót hefjast ef
að líkum lætur ein sögulegustu
réttarhöld í sögu Bandaríkjanna. Þá
hefjast yfirheyrslur yfir hinum fræga
Oliver North ofursta. Hann hefur
óskað eftir því að bæði Reagan
forseti og Bush komi í vitnastúkuna
til að gefa upp hvað þeir viti um
málið. Slíkt á sér engin fordæmi í
sögunni. Verður mjög fróðlegt að
sjá hvernig þessu máli reiðir af og
hvaða afleiðingar það kann að hafa
fyrir þá báða.
Fréttir um ísland
hér í Bandaríkjunum
Það fer ekki á milli mála að áhugi
á íslandi er mikill hér í landi. f hvert
skipti sem greinarhöfundur minnist
á uppruna sinn hellist yfir hann hrina
spurninga um land og þjóð. Leið-
togafundurinn, mikil landkynning
flugfélaga og ferðamálaráðs og auk-
in virkni íslands á alþjóðavettvangi
hafa án efa átt hér stóran hlut að
máli. Sem dæmi um það rakst grein-
arhöfunduf nú nýlega á tveggja
síðna grein um land og þjóð í
víðlesnu dagblaði hér í Virginíu.
Ekki hafa fjölmiðlar heldur gleymt
að geta sigurs Lindu Pétursdóttur
eða uppruna hennar. Einnig virðast
Sykurmolarnir fá vaxandi umfjöllun.
Það sem hvalamálið hefur mikið
verið til umfjöllunar heima þá hef ég
reynt að grennslast fyrir um skoðanir
háskólastúdenta hér í Virginíu á
málinu. Mér virðist sem Greenpeace
samtökin hafi lítinn stuðning, flestir
fordæma vinnubrögð þeirra og virð-
ast hafa skilning á því að eðlilegar
vísindahvalveiðar séu nauðsynlegar
til að rannsaka stofninn.
Félagsmálastyrkir
Evrópuáðsins
Evrópuráðið veitir starfsmönnum stofnana og
samtaka sem veita félagslega þjónustu styrki til
kynnisdvalar í aðildarríkjum ráðsins á árinu 1990.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í félags-
málaráðuneytinu, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu.
Umsóknarfrestur er til 16. febrúar n.k.
Félagsmálaráðuneytið,
16. janúar 1989.
t
Eiginmaður minn
Þorlákur Guðmundsson
frá Hveragerði,
er látinn.
Líney Kristinsdóttir.
t
Þökkum innilega samúðarkveðjur, stuðning og sérstaka hjálp Lion-
essuklúbbs Akraness vegna andláts og útfarar eiginmanns míns og
sonar
Vilhjálms M. Guðjónssonar
Vogabraut 42.
Fyrir hönd fjölskyldu,
Halldóra Lárusdóttir
Una Jóhannesdóttir.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa
Guðmundar Halldórssonar
Hólavegi 10, Sauðárkróki
Klara Lárusdóttir
Jóhann Guðmundsson Anna Pálsdóttir
Guðmundur Sigurður Jóhannsson
Gróa Jóhannsdóttir Arnaldur Sigurðsson
Guðný Jóhannsdóttir Einar Aðalsteinsson
Fríöa Jóhannsdóttir
og langafabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir og afi
Gísli Jónsson
bóndi, Víðivöllum
verður jarðsunginn frá Miklabæjarkirkju laugardaginn 21. janúar kl.
14. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd.
Unnur E. Gröndal
Benedikt Björnsson
Guðbjörg Björnsdóttir Bjarman TeiturGunnarsson
Halldóra Gísladóttir Sigurður Kristjánsson
Gísli Sigurður Gíslason Karólína Gunnarsdóttir
Hólmfríður Amalía Gísladóttir Matthías A. Þorleifsson
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
Jörundar Þórðarsonar
frá Ingjaldshóli.
Sérstakar þakkir til lækna, hjúkrunarkvenna og annars starfsfólks
Hátúní 10B.
Ester Jörundsdóttir
Guðmundur Jörundsson
Óli Jörundsson
Helga Jörundsdóttir
Arndís Jörundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Guðný Magnúsdóttir
Jón Haraldsson
Margrét Þorláksdóttir
Agnes Eiríksdóttir
Ólafur Olgeirsson