Tíminn - 18.01.1989, Síða 6
6 Tíminn
Miðvikudagur 18. janúar 1989
Ögmundur Einarsson framkv.stjóri Sorp-
eyöingar höfuðborgarsvæðisins: Öllum
reglum í sambandi við staðsetningu og
starfsemi flokkunarstöðvar verður fylgt:
Kókmenn
kvíða sorp-
stöðinni
Eftir því sem næst verður komist hafa borgaryfirvöld
ekki haft neitt samband við þá sem hagsmuna eiga að gæta
í nágrenni við fyrirhugaða flokkunarstöð fyrir sorp, sem
valinn hefur verið staður í Hádegismóum.
„Það hefur ekki verið leitað álits
okkar svo ég viti og mér finnst að
þetta lykti heldur illa. Það fer ekki
vel á því að matvælaframleiðsla og
sorpflokkun sem þarna á að fara
fram, séu í nágrenni hvor við
aðra,“ sagði Lýður Friðjónsson
framkvæmdastjóri Vífilfells en
flokkunarstöðin verður steinsnar
frá kókverksmiðju Vífilfells.
„Það er langur aðdragandi að
því að fá úthlutað lóð og ekkert um
það að ræða að við hjá Sorpeyð-
ingu höfuðborgarsvæðisins ákveð-
um eitthvað í þessu, heldur eru
það reglur og reglugerðir sem stýra
þessu máli. Það eru mjög skýrar
reglur um hvernig að þessu á að
standa og menn geta verið alveg
rólegir að þær verða ekki brotnar,"
sagði Ögmundur Einarsson fram-
kvæmdastjóri Sorpeyðingar.
ögmundur sagði að Hollustu-
verndin og félagsmálaráðherra
veittu endanlegt staðsetningarleyfi
og borgin hefði þannigekkert úrsl-
itavald.
„Ef álit þeirra aðila sem um
málið fjalla verður neikvætt, þá
verður vitanlega að finna flokkun-
arstöðinni annan stað,“ sagði Ög-
mundur.
Hann sagði að um væntanlega
stöð og starfsemi hennar ríktu
miklir fordómar. Engin minnsta
hætta væri á að lykt fyndist af
starfseminni og helst yrðu menn
varir við hana af umferðinni í kring
um hana.
„Golfklúbbnum hefur ekkert
verið tilkynnt um sorpflokkunar-
stöðina en út af fyrir sig býst ég
ekki við að hún eigi eftir að snerta
starfsemi Golfklúbbsins með þeirri
tækni og þekkingu sem nú er fyrir
hendi," sagði Hannes Guðmunds-
son formaður Golfklúbbs Reykja-
víkur.
í næsta nágrenni við þann stað
sem stöðinni er ætlaður eru mjög
mörg fyrirtæki sem fjöldi manns
vinnur hjá og af fyrirtækjum sem
framleiða, eða versla með matvæli
og neysluvörur má nefna Kaffi-
brennslu O. Johnson & Kaaber,
Coca Cola verksmiðjuna, ÁTVR,
Mjólkurstöðina og ísl. ameríska.
Þá er þvottahús ríkisspítalanna í
næsta nágrenni og vart meir en 250
metrar í milli. f þvottahúsinu er
allur þvottur rikisspftalanna þveg-
inn og sumt af honum dauðhreins-
að. Einnig er þar geymdur ýmis
varningur sem tilheyrir rekstri
sjúkrahúsa.
Davíð Á. Gunnarsson forstjóri
ríkisspítalanna sagði að ekki hefði
verið leitað umsagnar stofnunar-
innar um væntanlega staðsetningu
flokkunarstöðvarinnar og sagðist
hann ekki hafa kynnt sér málið og
gæti því ekki tjáð sig um hvort eða
hvaða áhrif hún gæti hugsanlega
haft á starfsemi þvottahúss ríkis-
spítalanna.
Jón Óskarsson yfirverkfræðing-
ur Vatnsveitu Reykjavíkur sagði
Tímanum að hann teldi að óathug-
uðu máli að lítil hætta væri á
mengun þess vatns sem tekið er úr
vatnsbólunum Bullaugum.
Bullaugun hefðu upphaflega
verið hugsuð sem iðnaðarvatn og
Vatnsveitan gæti auðveldlega kom-
ist af án vatnsins úr þeim. Auk þess
lægi grunnvatnsborðið við Bullaug-
un trúlega hærra en lóð flokkunar-
stöðvarinnar þannig að vart gæti
mengunarhættu stafað frá stöðinni.
Jón tók þó skýrt fram að þetta
hefði ekki verið athugað en það
yrði gert hið fyrsta í framhaldi af
lóðarúthlutuninni. -sá
Sjúklingur Rauða krossins í flóttamannabúðum í Thailandi.
Hjálparstarf Rauða krossins
1 byrjun þessa árs fara fjórir
íslendingar til hjálparstarfa í Asíu
og Afríku á vegum Rauða kross
íslands.
Þrjú þeirra Vigdís Pálsdóttir, Lilja
Steingrímsdóttir og Jón Karlsson
eru hjúkrunarfræðingar.
Vigdís er reyndar þegar farin til
Thailands en þar mun hún starfa í
flóttamannabúðum við landamæri
Kamputseu. Lilja hefur verið ráðin
til sex mánaða starfa í bænum Qu-
etta í Pakistan við landamæri Afg-
hanistan. Jón fer til starfa á skurð-
sjúkrahúsi í Kabul, höfuðborg Afg-
hanistan. Sá fjórði er Jónas Valdi-
marsson eðlisfræðingur að mennt.
Hann er sjálfboðaliði og kemur til
með að starfa í Eþíópíu í Gojjam-
héraði. jkb
Heildarfiskveiðar íslendinga aukast nokkuð á milli
áranna 1987 og 1988:
Togveiðarauk-
ast á kostnað
bátanna
Samkvæmt bráöabirgðatölum námu fiskveiðar íslendinga
samtals um 1.7 milljörðum tonna á árinu 1988 á móti rúmlega
1.5 milljörðum tonna á árinu 1987. Þorskafli var svipaður á
milli áranna eða um 361.000 tonn á s.l. ári en aðeins meiri á
árinu 1987 eða 375.000 tonn.
Þetta kemur fram í yfirliti yfir
fiskveiðar á undanförnum tveimur
árum sem gefið er út af Fiskifélagi
íslands. Samkvæmt skýrslunni fer
afli togara vaxandi á kostnað afla
báta. Smábátar virðast standa nokk-
urn veginn í stað, aflinn eykst lítil-
lega á umræddu tímabili. Heildarafli
togara var á síðasta ári rúmlega
400.000 tonn en heildarafli báta
tæpur 1.3 milljarður tonna. Sam-
bærilegar tölur frá árinu 1987 eru
385.000 tonna afli togara á móti 1.6
milljarða tonna afla báta.
Nú er spáð 7% aflasamdrætti á
þessu ári frá árinu 1988 og 3%
aflasamdrætti á árinu 1990. Standist
sú spá mun heildarfiskafli minnka á
næsta ári um 119.000 tonn. Sam-
kvæmt upplýsingum er forsætisráðu-
neytið lét vinna fyrir sig eru fiskveið-
ar nú reknar með verulegu tapi,
bátaveiðar með um 14% tapi, en
togaraútgerðin rekin með 1/2-11/2%
tapi. Hins vegar er áætlað að fisk-
vinnslan í landinu verði rekin á
núllinu eftir síðustu gengisfellingu.
-ág