Tíminn - 18.01.1989, Blaðsíða 12
12 Tíminn
Miðvikudagur 18. janúar 1989
FRÉTTAYFIRLIT
VÍN - Utanríkisráðherra
Bandaríkjanna George Shultz
sakaði tékknesk stjórnvöld um
að hafa brotið gegn glænýjum
mannréttindasamningi sem
utanríkisráðherrar Evrópu-
ríkja, Bandaríkjanna og Kan-
ada munu undirrita í dag. Um-
mæli þessi koma í kjölfar þess
að óeirðalögregla leysti upp
minningarathöfn stjórnarand-
stæðinga í Prag um helgina..
Tékkar létu þetta ekki á sig fá |
því í gær réðst tékkneska lög-.
reglan að mótmælendum í'
Prag þriðja daginn í röð. Lög-
reglan beitti táragasi og vatns-
byssum gegn mannfjöldanum
í gær sem fyrri daga.
Fjórtán leiðtogar tékknesku
mannréttindasamtakanna
Charter 77 voru enn í haldi.
BRUSSEL - Hin dularfullu
sem segjast hafa rænt fyrrum !
forsætisráðherra Belgíu kröfð-
ust 750 þúsund dollara lausn-
argjalds. Hluti fjárins á að
renna til fátækra.
SEOUL - Háttsettir liðsfor-
ingjar herja Bandaríkjanna,
Suour-Kóreu og Norður-Kóreu
áttu leynilegar viðræður sem
miða eiga að því að slaka á
spennu á landamærum Kór-
euríkjanna tveggja.
PEKING - Kínverjar og
Víetnamar ræddu viðkvæm
mál í samskiptum ríkjanna á
fundi háttsettra embættis-
manna sem nú er haldinn í
Peking. Meðal annars var rætt
um eyjar þær í Kínahafi sem
Vietnamar halda en Kínverjar
gera tilkall til. Fundurinn eru
fyrstu beinu samskipti ríkjanna
í níu ár, utan þess að nokkrum
sinnum hafa landamæraverðir
skipst á skotum.
JERÚSALEM - Varnar-
málaráðherra ísraels, Yitzhak
Rabin, kynnti nýjar og hertar
i aðgerðir gegn grjótkösturum
af kynþætti Palestínumanna á
sama tíma og hermenn jöfn-
uðu við jörð hús þriggja araba
sem sakaðir eru um að hafa
kastað grjóti í landnema af
kynþætti gyðinaa á hinum
■ hernumdu svæðum í Palest-
i ínu.
! VATIKANIÐ - Jóhannes
1 Páll páfi II tók á móti forsætis-
I ráðherra írans, Mir-Hossein
: Mousavi. Páfinn hvatti írana
i og Iraka til að skiptast á stríðs-
! föngum úr Persaflóastríðinu
! hiðfyrsta.
ÚTLÖND
Blökkumenn gengu berserksgang eftir að hvít lögregla skaut blökkumann til bana:
Oeirðalögreglan við
stjómvölinn á Miami
Óeirðalögregla heldur nú
uppi lögum og reglu í blökku-
mannahvcrfum Miami þar
sem götuóeirðir brutust út í
fyrrinótt eftir að hvítur lög-
regluþjónn skaut blökku-
mann til bana. Blökkumað-
urinn fékk skot lögreglu-
mannsins í höfuðið þar sem
hann var á flótta undan lög-
reglunni á vélhjóli sínu.
Hann var grunaður um að
hafa framið rán ásamt félaga
sínum sem var farþegi á vél-
hjólinu.
Atburður þessi átti sér stað aðeins
klukkustund eftir að þúsundir
manna höfðu í næsta nágrenni tekið
þátt í göngu til minningar um mann-
réttindafrömuðinn séra Martin
Luther King.
Það voru á annað hundrað manns
manns sem stóðu fyrir óeirðunum í
kjölfar drápsins. Múgurinn kveikti í
bílum, rændi búðir og kastaði stein-
um og flöskum að lögreglumönnum.
Rúmlega hundrað lögreglumenn
sérlega útbúnir til átaka voru kallað-
ir á staðinn til að skakka leikinn í
Overtown í Miami, en þar hefur oft
og tíðum soðið upp úr milli kynþátta
undanfarin ár.
Leyniskyttur reyndu að granda
lögreglumönnum, en tókst ekki.
Hins vegar varð skothríð þeirra til
þess að slökkvilið komst ekki að
tveimur brennandi húsum sem
óeirðaseggirnir höfðu kveikt í. Ungl-
ingar stormuðu um hverfið í bílum
sínum og köstuðu grjóti og flöskum
að lögreglu.
Þó nokkrir særðust í þessum
óeirðum, þar með taldir lögreglu-
menn sem grýttir voru.
Lögreglan skýrði frá því að félagi
hins látna blökkumanns hafi slasast
lífshættulega. Hins vegar vildi hún
ekki segja hvort blökkumaðurinn
hefði orðið fyrir skoti og þess vegna
misst stjórn á vélhjólinu.
Mikil spenna hefur að undanförnu
ríkt milli blökkumanna og hins mikla
fjölda fólks sem að undanförnu hef-
ur flúið borgarastyrjöldina í Níkar-
agva og flust til Miami.
Árið 1980 brutust út kynþátta-
óeirðir í þessu sama hverfi í Miami
oglétust þáátján manns í átökunum,
hundruð manna slösuðust og tjón
vegna skemmdarverka var metið á
100 milljónir dollara.
Þess má geta að nú flykkjast
þúsundir aðdáendu amerísks fót-
bolta til Miami því á sunnudaginn
fer fram svokallaður „Super bowl“
leikur, sem er hápunktur fótbolta-
vertíðarinnar í Bandaríkjunum.
Gerir lögreglan ráð fyrir því að
vegna þess verði eiturlyfjasalar sér-
lega stórtækir í viðskiptum sínum.
Mieczyslaw Rakowski forsætisráðherra Póllands:
Hyggst leyfa
Samstöðu með
skilyrðum þó
Forsætisráðherra
Mieczyslaw Rakowski, sagði að hin
óháðu verkalýðssamtök Samstaða
yrðu lögleidd ef samtökin féllust á
að eiga samstarf við kommúnista-
flokkinn í framtíðinni.
Rakowski sagði að leiðtogar Sam-
stöðu yrðu fyrst að tryggja það að
Samstaða myndi ekki leiða Pólland
út í stjórnleysi og verkföll áður en
stjórnarnefnd pólska kommúnista-
flokksins geti undirbúið lög er leyfa
starfsemi Samstöðu.
Rakowski sagði þetta á fundi mið-
nefndar kommúnistaflokksins sem
fjallar nú um málefni Samstöðu.
Póllands, Hann bauð einnig upp a að starfsemi
Samstöðu yrði leyfð þar til 3. maí
árið 1991 til að fá reynslu af samstarfi
kommúnistaflokksins og verkalýðs-
samtakanna.
Starfsemi Samstöðu var bönnuð
þegar herlög voru sett í Póllandi árið
1981. Prátt fyrir það hafa samtökin
haldið áfram starfsemi sinni þó
leiðtogar þeirra hafi verið fangelsað-
ir. Þau hafa staðið fyrir víðtækum
verkföllum og hafa leiðtogar komm-
únistaflokksins hvatt miðstjórn
flokksins til að samþykkja að lög-
leiða Samstöðu á ný, annars gætu
alvarleg átök brotist út í landinu.
Sri Lanka:
50 fórust í lestarslysi
Alvarleg lestarslys eru nú að
verða nær daglegur viðburður. í
gær fórust að minnsta kosti fimm-
tíu og einn þegar lest ók á skólabíl
í Sri Lanka, flestir á barnsaldri.
Skemmst er að minnast lestarslyss-
ins í Bangladesh um helgina en þá
létust hátt á annað hundrað manns
þegar tvær lestir rákust saman.
Lestarslysið á Sri Lanka í gær
varð í 75 km fjarlægð suður af
Colombo. Farþegalest ók inn í
hliðina á skólabíl sem var að aka
áttatíu skólabörnum heim úrskóla.
Ekkert viðvörunarkerfi var á veg-
inum sem lá yfir járnbrautartein-
ana þar sem slysið varð.
Auk hinna fimmtíu og eins er
létust slösuðust að minnsta kosti
hundrað og tíu manns, margir
þeirra alvarlega.
Kóraninn setur
Evrópubandalag
á annan endann
Kóran sem pakkað var inn í
pappír í spænsku fánalitunum setti
allt á annan endann í höfuðstöðv-
um Evrópubandalagsins í Brussel í
gær. Höfuöstöðvarnar voru tæmd-
ar af fólki og lögreglan girti þær af
þegar dularfullur pakki fannst við
fánastöngina sem ber uppi þjóð-
fána Spánar.
Talið var að um sprengju væri að
ræða, en eftir klukkustundar langt
taugastríð belgískra sprengjusér-
fræðinga kom í Ijós að pakkinn
innihclt eintak af Kóraninum, epli.
appelsínu og hálftugginn brauð-
hleif.
- Ég hef það á tilfinningunni að
hér hafi verið um að ræða brand-
ara, sagði talsmaður Evrópu-
bandalagsins. Pakkinn hafi verið
viljandi skilinn eftir.
Atburður þessi sýnir hve hræðsl-
an við hryðjuverk hefur aukist í
kjölfar þess að fyrrum forsætisráð-
herra Belgíu var rænt á sunnudag-
inn. Hann hefur ekki enn fundist,
en áður óþekkt samtök segjast
hafa hann í haldi og hyggist drepa
hann.
Ríkisstjórn skæru-
liða í Afganistan
Afganskir skæruliðar hyggjast
koma á fót nýrri bráðabirgðaríkis-
stjórn í Afganistan áður en sovéskt
herlið verður að fullu horfið frá
landinu í næsta mánuði. Skærulið-
arnir viðurkenna að vonum ekki
Kabúlstjórnina sem þeir hafa barist
gegn í áraraðir.
Það var Sibghatullah Mojaddidi,
sem nú er í forsæti samtaka sjö
skæruliðahreyfinga sem berjast sam-
an gegn Kabúlstjórninni undir nafni
Mujahideen, sem skýrði frá þessu í
viðtali við írönsku fréttastofuna
IRNA.
- Nauðsynleg skref hafa verið
tekin til myndunar bráðabirgðaríkis-
stjórnar, sem vonandi verður í byrj-
un febrúar.
Þá sagði Mojaddidi að friðarvið-
ræður við Sovétmenn væru ekki út
úr myndinni.