Tíminn - 18.01.1989, Síða 14
14 Tíminn
Miðvikudagur 18. janúar 1989
AÐ UTAN
Stuðst við galdra
við stjórn Brasilíu!
111 öfl ógnuðu embættisbústað José Sarney forseta
Brasilíu. Að því komst presturinn Inocencio Pereira de
Souza og lagði þess vegna á sig að ferðast frá hinum trygga
söfnuði sínum í Copacabana til höfuðborgarinnar, Brasilíu,
til að reka djöfulinn á dyr úr forsetahöllinni.
„Það tókst svo vel að reka hið illa burt að síðan hefur
allt gengið í haginn,“ sagði vinkona Marly forsetafrúar
skömmu síðar. A.m.k. gat Sarney komið í veg fyrir tilraun
vinstri sinnaðra þingmanna til að stytta kjörtímabil hans
um eitt ár.
Leitað á náðir
yfirskilvitlegra afla
Brasilískiforsetinn leitaraðstoð-
ar yfirskilvitlegra afla þegar mikið
liggur við. Einu sinni í mánuði
stökkvir hallarpresturinn vígðu
vatni á öll herbergi embættisbú-
staðarins. Spámaðurinn Moacir
Neves í Maranhao, heimahéraði
forsetans, hefur nefnilega komist
að því að einhver ber illan hug í til
forsetans og vill vinna honum illt
með einhverjum ðularbrögðum.
Marly forsetafrú þekkir vel til þess
hvílík hætta getur verið samfara
slíkum helgisiðum. Hún er álitin
„Filha de Exu“, þar sem hún er
áhangandi Candomblé-átrúnaðar,
sem þrælar fluttu með sér frá
Afríku, en sá átrúnaður er blanda
af kristilegum og afríkönskum trú-
aráhrifum.
Brasilísku forsetahjónin ein-
skorða sig alls ekki við éina yfir-
skilvitlcga uppsprettu til aðstoðar
við að komast undan hættum um-
heimsins. Auk þess að njóta að-
stoðar kaþólska prestsins sem rek-
ur djöfulinn á braut, spámannsins
úr heimabyggðinni og afrísku guð-
anna slá þau ekki hendinni á móti
neinum sem gæti verið þeim innan
handar í baráttunni við illu öflin.
Þannig var t.d. um tíma stjörnu-
spckingur í starfi blaðafulltrúa
forsetaembættisins.
Svo virðist sem hjátrú stjórni lífi
forsetahjónanna í smáatriðum.
Hann klæðist t.d. aldrei brúnum
fötum, uppstoppuð dýr fá ekki
aðgang að sömu húsakynnum og
hann og aðstoðarmenn hans verða
að gæta þess að hann gangi alltaf
út úr herbergi um sömu dyr og
hann kom inn í það.
„Ef ég á engan hund nota
ég bara köttinn til veiða“
Brasilísku þjóðinni finnst þessi
afstaða forsetahjónanna hvorki
hlægileg né aumkunarverð. „Bras-
ilíumenn eru mjög trúað fólk,“
segir bandaríski trúboðinn og sér-
fræðingur í sértrúarflokkum David
Jones. „En þeir eru líka raunsæir,
þeir laga sig að aðstæðum skv.
meginreglunni: Ef ég á engan
hund, nota ég bara köttinn til
veiða!
1 viðskiptum með hjátrú er velt
ótrúlegum upphæðum í höfuð-
borginni. Alls staðar eru hengd
upp skilti þar sem auglýst er þjón-
usta þeirra sem spá í spil eða
stjörnurnar, þeirra sem hafa sam-
skipti við aðra hnetti eða dýrka
austurlandaguði. í musterum þess-
ara fjölskrúðugu lífshjálparmanna
umhverfis borgina má oft finna
embættismenn og þingmenn.
Fyrrverandi orkumálaráðherra
var þekktur að því að hafa leitað
upplýsinga hjá spákonu af sértrúar-
flokknum „Dalur morgunroðans"
um hvar ríkisolíufyrirtækið Petro-
brás ætti að bora fyrir olíu. José
Aparecido de Oliveira, fyrrverandi
ríkisstjóri Brasilíu og núverandi
menntamálaráðherra, vitnar til
ójarðbundinna vera í opinberum
ræðum. Og Amzonino Mendes,
ríkisstjóri Amazón-héraðs lét
andalækninn „Dr. Fritz", sem
starfar í gegnum Edson Queroz
lækni í Recife, skera sig upp árið
1987.
Færðar fórnir til handa
góðri stjórnarskrá
Þegar vinstri sinnaðir þingmenn
vildu gera nýja stjórnarskrá alltof
framfarasinnaða pantaði dóms-
málaráðherrann, Paulo Brossard,
andlega særingarathöfn í musteri
töframannsins José Paiva de Oli-
veira til að bægja hættunni frá.
Með æfðum höndum risti æðsti
presturinn „Paiva pabbi“ með hnífi
á háls nauts, fjögurra geita og átta
hæna. Fórninni til handa Xangó,
hinum hungraða guði réttlætisins
sem endur fyrir löngu fylgdi þræl-
um frá Nígeríu til Nýja heimsins,
fylgir rammur reykelsisilmur og
háværar flugeldasprengingar.
Áður en Paiva pabbi komst til
þeirra metorða að hafa áhrif á
málefni ríkisins til góðs var hann
búinn að ávinna sér frægð fyrir
meðal til að auka kyngetu, sem
hann flutti m.a. út til Evrópu.
En einn er sá sem veigrar sér við
að koma nálægt þeim gauragangi
sem tíðkast í Brasilíu í baráttunni
við illa anda sem sitja um
stjórnvöld. Það erJúlio Negrizzolo
prestur, sá maður sem fæst við
útrekstur djöfulsins fyrir hönd kaþ-
ólsku kirkjunnar í höfuðborginni.
Hann hefur neitað að koma til
embættisbústaðar forsetans til að
hreinsa hann af illum öndum á
þeim forsendum að þar sé iðkuð
fjölgyðistrú. „Ég rek djöfulinn
ekki á braut frá fólki sem vill í
hvorugan fótinn stíga,“ segir hann.
„Paiva pabbi“ galdramaður reyndist
forsetanum betri en enginn þegar
sjálf stjórnarskráin var í húfí.