Tíminn - 18.01.1989, Blaðsíða 20
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 — 686300
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FUJTNINGAR
Hatnorhúsinu v/Tryggvagötu,
S 28822
_ fiármál eru
okkar fog'-
tfEBÐBRÉFfttflBSiOPTt
SAMtflNNUBANKMIS
SUÐURLANDSBRAUT 18, SÍMI: 688568
ÞRfiSTUR
685060
VANIR MENN
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1989
Áætlunarbifreið fer út af
Frá slysstaö í gær. Eins og sjá má var mikið umstang á og við veginn þegar sjúkrabifreiðar og slökkvibifreið
komu á vettvang. Tímamynd Ámi Bjaraa
á sama stað og í fyrra:
10 manns
slasast
Áætlunarbifreið frá Mosfells-
leið fór út af veginum skammt frá
Keldnaholti um þrjúleytið í
gærdag. Flytja þurfti tíu af tólf
j farþegum bifreiðarinnar á slysa-
deild. Meiðslin voru ekki alvar-
leg, þó mun einn maður hafa
fótbrotnað og var hann lagður á
sjúkrahús.
Hið furðulega er að hinn 18.
mars í fyrra varð slys á þessum
sama stað með mjög svipuðum
hætti, munurinn er sá að þá voru
engir farþegar í vagninum og
slasaðist bílstjórinn lítillega.
Slysið í gær varð rétt við ána
Korpu og var vagninn á leið til
Reykjavíkur. Á þessum vegar-
kafla er dálítil beygja á Vestur-
landsveginum og töluverð hálka
var. Einhverra hluta vegna missti
bílstjórinn stjórn á bifreiðinni og
rann hún töluverðan spöl utan
vegar. Mun það hafa verið vegna
þess að bílstjórinn leitaðist við að
forða því að bifreiðinni hvolfdi.
SSH
Timamynd: Árni Bjaraa
/
Rútan stöðvaðist í þessum læk en var þó á það mikilli ferð að hún stakkst í kantinn hinum megin án þess að
koma niður í botn skurðsins. Timamynd Árni Bjaraa
Höggið var mikið þegar rútan loks stöðvaðist.
í mars í fyrra fór þessi rúta, einnig frá Mosfellsleið, út af veginum á sama stað og við svipaðar aðstæður og rútan
í gær. Tímamynd Pjetur
'