Tíminn - 23.02.1989, Page 2

Tíminn - 23.02.1989, Page 2
2 Tíminn Fimmtudagur 23. febrúar 1989 Niðurstöður ískönnunarflugs Landhelgisgæslunnar fyrir norðan land: Megin ísjaðarinn um 45 sjómílur frá landi Flugvél Landhelgisgæslunnar TF- SYN fór í ískönnunarflug úti fyrir Norður- og Norðvesturlandi á þriðju- dag og liggur mcgin ísjaðarinn og þéttar ísrastir samfellt frá um 115 sjómílum vestur af Látrabjargi og um 58 sjómílur norður af Rauðanúpi á Melrakkasléttu. Búast má við norðaustan áttum í dag, sem gæti þá fært ísdreifarnar nær siglingaleiðinni fyrir Horn. ísinn er næst landi frá Straumnesi að Horni og er meginísjaðarinn um 45 til 50 sjóntílur frá landi. Þéttar ísrastir og ísdreifar voru um 15 sjómílur norður frá Horni og Kögri. Eins og sést á kortinu er ísinn orðinn ansi mikill fyrir norðan land, en allar megin siglingaleiðir voru opnar, þó svo að stakir jakar geti verið á siglingaleiðum. Á undanförnum fjórum dögum hcfur ísinn verið að færast í suðaustur við Kolbeinsey og hefur hann aukist talsvert á þcim slóðum. í gær var tilkynnt um staka jaka fyrir utan Súgandafjörð sem eru hættulegir litlum skipum og bátum í myrkri. Búast má við norðaustanátt- um í vikulokin og því líklegt að ísinn færist nær siglingaleiðinni fyrir Horn. -ABÓ Kort sem Landhelgisgæslan gerði eftir ískönnunarflug á þriðjudag. ísdreifar eru stutt frá landi við Horn, um 15 til 20 sjomdur og vestur af Vestfjöiðuin, (stjörnurnar) eru nýísmyndanir. Megin ísjaðarinn er um 45 til 50 sjómílur norður af Horni. Ráð- stefna um öldrun- arfræði Næstkomandi föstudag efna Heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytið og Samstarfsnefnd um málefni aldraðra til opins kynning- arfundar um öldrunarfræði, öldrunarfræðslu og mennt- un í öldrunarþjónustu á ís- landi. Á ráðstefnunni verður fjallað um leiðir til að sjá landsmönnum fyrir nægilegri þekkingu til að mæta þörfum í öldrunarþjónustu á kom- andi árum. Framsögumenn eru dr. Andrew Blaikie og frú J. Cridon sem bæði koma frá Lundúnaháskóla. Einnig Guðrún Jónsdóttir frá Félagsvís- indadeild Háskólans og Hrafn Pálsson deildarstjóri í Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Ráðstefnan er sem fyrr segir öllum opin og er haldin að Borgar- túni 6 í Reykjavík. Hún hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 16:00. Þátttakend- um ber að greiða 1500 krónur fyrir hádegisverð, morgun- og síðdegis- kaffi. SSH Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra: Reglur hertar um bindingu innlána Jón Sigurðsson, viðskipta- ráðherra, telur nýjustu vaxtahækkanir viðskipta- bankanna frekar óheppilegar og í sumum tilfellum ekki nægilega vel rökstuddar. „Það er ekki véfengt að það er á valdi bankaráðanna að taka slíkar ákvarðanir, en mér finnst ástæða til að staldra þarna við, út frá af- komu bankanna,u sagði Jón. Eftir því sem næst verður komist er ætlunin að Seðlabankinn herði reglur um lágmarkslengd á verð- tryggðum skuldbindingum með sam- þykki ráðherra, líkt og gert er ráð fyrir í frumvarpi sem liggur nú þcgar fyrir Alþingi. „Mér finnst þessar hækkanir ekki nægilega vel rökstuddar í öllum greinum. Pað er ljóst að sá flokkur innlána sem bankarnir keppa mest um spariféð með, eru skiptikjara- reikningarnir. Þar er nú ákveðin skrúfa í gangi þar sem afkoma bankanna er í nokkurri hættu ef fram heldur sem horfir. Ég tel því að á það mál þurfi að líta alveg sérstak- lega,“ sagði Jón. Afkomuskilyrði þessi hafa verið rædd í ríkisstjórn og hefur viðskiptaráðherra þegar tekið upp viðræður við Seðlabanka íslands um vaxtakjör sem bankarnir bjóða á innlánunum. Að mati ráðherra er ekki þörf á lagasetningu til að breyta því svigrúmi sem bankarnir virðast vera að komast á enda með, varð- andi skiptikjaravexti. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp þessara skiptikjarareikninga. „Ég tel að við þetta atriði sé full ástæða til að staldra." Benti ráðherrann einnig á að með því að kanna sérstaklega binditíma slíkra reikninga, gæti ým- islegt komið í ljós um áhrif þess þáttar á sjálfan vaxtakostnað bank- anna og þörf bankanna á vaxtamun sem hér á landi hefur verið talinn í hærra lagi. „Það þarf að tryggja samkvæmt þessu nýja uppfærslu, vegna þess að bankaráð geta t.d. ekki tekið nægi- lega langt sjónsvið í tímanum þegar þau ákveða vextina. Þetta mál er í athugun núna," sagði Jón Sigurðs- son, viðskiptaráðherra. KB Framsóknarfélögin Siglufirði: MÓTMÆLA SÖLU SÍLDAR- VERKSMIÐJU Framsóknarfclögin í Siglufirði samþykktu á fundi þann 14.02. 1989 að lýsa andstöðu sinni við hugmynd ríkisstjórnarinnar að selja Síldarvcrksmiðjur ríkisins á Siglufirði, og nota andvirði til að fjármagna úrcldingarsjóð skipa sem væru þá e.t.v. frá annarri grein fiskiskipaflotans en loðnutlotans, eins og kont fram í tillögum Hall- dórs Ásgrímssonar sjávarútvegs- ráðhcrra. Jafnframt gerir fundurinn þá kröfu til þeirra sem verður falið að endurskoða lögin um Síldarverk- smiðjur ríkisins, að þess verði gætt að verksmiðjunum vcrði gert mögulegt að kaupa og gera út skip til eigin hráefnisöflunar. Funduritin minnir á samþykkt bæjarstjórnar Siglufjarðar unt nauðsyn þess að lögum unt verk- smiðjurnar frá 1938 verði breytt þannig að S.R. geti keypt og gert út skip. Fundurinn tekur undir áhyggjur sern felast í samþykkt starfsmanna- félags S.R. á Siglufirði og Vcrka- lýðsfélagsins Vöku og minnir á að S.R. eru annað stærsta atvinnu- fyrirtæki í Siglufirði og af þeim sökum nauðsynlcgt að búa því sem best rekstrarskilyrði. Jón Sigurðsson, viöskiptaráöhcrra, lætur nú skoöa sérstaklega ákvarð- anir hanka um binditíma verð- tryggöra innlána. þar sem kveðið er á að Seðlabankinn geti ákveðið lágmarkslengd verð- tryggra skuldabréfa, en slík heimild er þegar fyrir hendi að nokkru leyti samkvæmt bráðabirgðalögum frá s.l. vori. „Nú er verið að gera tillögu um rýmri heimild til þess að ákveða þessa lágmarkslengd. Það gæti kom- ið að haldi núna í þessum vaxta- ákvörðunum sem framundan eru,“ sagði ráðherrann. í því sambandi stendur núna yfir athugun á vegum viðskiptaráðuneytis og Seðlabanka á þeim kjörum sent í boði hafa verið á sviði verðtryggðra bankareikn- inga, en þó sérstaklega hvað varðar jafnvægi á innláns- og útlánshlið Styrkir til heimildarmyndarinnar „Lífsbjörg í Noröurhöfum“: Ekkert ákveðið Hagsmunaaðilar og stjórnvöld virðast eiga erfitt með að taka ákvörðun um hvort leggja eigi fé í heimildarmynd Magnúsar Guðmundssonar “Lífsbjörg í Norðurhöfum“, þrátt fyrir að myndin sé hugsanlega sterkasta vopn íslendinga gegn áróðri grænfriðunga. Tíminn flutti frétt þess efnis í gær að Magnús væri að ljúka við gerð heimildarmyndarinnar „Lífsbjörg í Norðurhöfum" sem fjallar um mál- stað norðlægra smáþjóða og baráttu þeirra gegn starfsaðferðum græn- friðunga. Við vinnslu myndarinnar hefur Magnús komist að stórfelldum síendurteknum fölsunum grænfrið- unga og eru þeim gerð skil í mynd- inni. Magnús hefur að öllu leyti fjármagnað myndina sjálfur. Þó að Magnúsi standi til boða ýmsir kostir varðandi dreifingu á myndinni þá er kostnaður við textun og dreifingu gríðarlegur. í gær hafði Tíminn samband við hina ýmsu aðila sem eiga hagsmuna að gæta varðandi útflutning á sjávar- afurðum. Myndin hafði þá ekki verið kynnt þeim sérstaklega og enginn þeirra virtist hafa borið sig eftir því að kynna sér efni þessarar myndar eða hvaða möguleika hún gæfi sem mótleikur við áróðri græn- friðunga. Theodór Halldórsson hjá Sölustofnun lagmetis sagði að hann teldi það ekki vera verkefni Sölu- stofnunarinnar að kynna málstað íslendinga í hvalamálinu, það væri hlutverk stjórnvalda. 1 Sjávarútvegsráðuneytinu feng- ust þær upplýsingar að menn þar hafa séð stutta búta úr myndinni en ekki væri hægt að segja um það á þessu stigi málsins hvort peningum verði veitt í að styrkja dreifingu á henni erlendis og slíkt yrði ekki ákveðið fyrr en myndin hefði verið skoðuð í heild. SSH

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.