Tíminn - 23.02.1989, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 23. febrúar 1989
Tíminn 5
Ögmundur Jónasson formaöur BSRB segir aö launþegasamtökin
fljúgi ekki með Arnarflugi innlimuðu í Flugleiöir:
Leitum annarra kosta
veroi af sameiningu
Sem kunnugt er leggur
samgönguráðherra, Stein-
grímur J. Sigfússon mikið
kapp á að sameina Arnar-
flug Flugleiðum og eru við-
ræður um sameininguna
þegar hafnar undir stjórn
nefndar sem ráðherra skip-
aði.
t>ær raddir hafa heyrst að verði
af þessari sanieiningu muni laun-
þegasamtökin, sem nú leíta samn-
inga við Arnarflug með milligöngu
Samvinnuferða-Landsýnar um að
Arnarflug flytji félagsmenn í
sumarleyfi til Evrópu í sumar,
kippa að sér höndum og leita
samninga við erlend flugfélög.
Launþegasamtökin slitu sem
kunnugt er viðræðum um þessi mál
við Flugleiðir þegar málaferli fé-
iagsins gegn Verslunarmannafélagi
Suðurnesja hófust.
Tíminn ræddi við Tómas Tómas-
son fulltrúa hjá Samvinnuferðum-
Landsýn og sagði hann að af hálfu
ferðaskrifstofunnar væru engir
fyrirvarar um viðræðuslit við Arn-
arflug ef af sameiningu yrði.
Ögmundur Jónasson var spurður
þessarar spurningar og hann svar-
aði: „Já, af okkar hálfu eru alveg
hreinar og kristaltærar línur hvað
þetta varðar. Það gerum við.“
Ögmundur Jónasson,
formaður BSRB.
Ögmundur sagði ennfremur að
ekkf yrði gengið til samninga við
Flugleiðir og ef Arnarfiug verður
innlimað þar, þá yrðu aðrar leiðir
skoðaðar. Hann sagði síðan.
„Við viljurn helst skipta við ís-
lenska aðila og Samvinnuferðir-
Landsýn eru nú að kanna þessi mál
fyrir launþegasamtökin hjá Arn-
arflugi.
Að sjálfsögðu viljum við kaupa
íslenskt eins og aðrir íslendingar
en vegna málaferla Flugleiða við
launafólk þá skiptum við ekki við
þá og verði þeir einasta íslenska
millilandaflugfélagið, þá erum við
nauðbeygð til að skoða aðra kosti,
því miður,“ sagði Ögmundur Jón-
asson formaður BSRB. -sá
Hvað
kostar
bjórinn?
Nú þegar vika er í bjórdag-
inn hefur ÁTVR ákveðið
verð á íslenskum bjór sem
seldur verður í verslunum
fyrirtækisins. Verðið verður
sem hér segir:
Tegund í dós flösku
EgilsGull 100 kr. 95 kr.
Sanitas Pilsner 93 kr. 87 kr.
Sanitas Lageröl llOkr. 105 kr.
Löwenbrau 105 kr. 100 kr.
Inní verði bjórs á flöskum er gert
ráð fyrir 5 króna skilaverði. Einnig
verður skilaverð fyrir bjórdósir en
það kentur ekki strax til fram-
kvæmda.
Verð á erlenda bjórnum hefur
endanlega ekki verið ákveðið, en að
öllum líkindum kemur dós af Bu-
dweiser til með að kosta um 105 kr.,
dós af Tuborg 112 kr. og Kaiser 120
kr. -PS
Unnið að skipulagi náms í sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri:
Færanlegt húsnæði?
Um næstu áramót er ráðgert að
hefja kennslu í sjávarútvegsfræði
við Háskólann á Akureyri en mikill
áhugi virðist vera fyrir þessu námi.
Nú er unnið að skipulagi námsins og
meðal annars er leitað leiða til að
leysa húsnæðisskort Háskólans á
Akureyri. í því sambandi hefur
komið til tals að festa kaup á færan-
legu húsnæði sem mun koma til með
að kosta 45 milljónir.
Tíminn hafði samband við Harald
Bessason rektor Háskólans á Akur-
í dag verður tilkynnt val á athygl-
isverðustu auglýsingum ársins 1988.
Lokahóf keppninnar fer fram í
veitingahúsinu Broadway. Keppt er
í átta flokkum og eru fimm auglýs-
eyri og sagði hann að nú væri tekinn
til starfa sjávarútvegsfræðingur sem
mun skipuleggja það nám sem fyrir-
hugað er að bjóða upp á. Allt bendir
til þess að námstíminn verði 4 til 5
ár en forkröfur verða þær að auk
þess að hafa lokið stúdentsprófi
verða væntanlegir nemendur að hafa
starfsreynslu. Ekki hefur verið
ákveðið hve mörgum verður veitt
innganga í þetta nám til að byrja
með.
Nú er unnið að því að kanna
ingar tilnefndar í hverjum flokki. Af
flokkunum átta má til dæmis nefna
sjónvarpsauglýsingar, herferðir,
auglýsingar í dagblöðum, óvenjuleg-
ustu auglýsingarnar og fleira. jkb
möguleika á að auka húsnæði Há-
skólans á Akureyri, en í núverandi
húsnæði er ekki rými fyrir sjávarút-
vegsdeildina. Komið hefur til tals að
í stað þess að hefja nýbyggingu verði
fest kaup á færanlegu húsnæði, sam-
bærilegu því sem komið hefu verið
upp við Ólafsfjarðarmúlann vegna
gangagerðarinnar. Hér er um að
ræða eins konar „skúra“ þó það sé
varla rétta orðið, því húsnæði þetta
inniheldur bæði rannsóknarstofur og
kennslurými. Telja menn að með
þessu sparist fé til lengri tíma litið,
þó um sé að ræða fjárfestingu upp á
45 milljónir. - Ráðgert er að kaupa
þrjá „skúra" sem hver um sig kostar
um 15 milljónir.
Húsnæði af þessu tagi hefur verið
notað við sjávarútvegsdeildir víða í
Noregi og hefur gefið góða raun.
Fjárveiting til húsnæðiskaupa er
ekki inn í fjárveitingu Háskólans
fyrir þetta ár en þetta mál er í
athugun í ráðuneytunum og hjá
fleiri aðilum.
SSH
Athyglisverðasta
auglýsing ársins
Nefndarslátrun hjá borginni:
Launanefnd
TiIIaga um að leggja niður launanefnd borgarinnar var
lögð fyrir borgarráð á fundi þess á þriðjudaginn var og var
henni frestað.
í launanefnd sitja fjórir borgarf-
ulltrúar og er núverandi formaður
hennar Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son.
Að sögn Gunnars Eydal var
tilgangur nefndarinnar að annast
kjarasamninga við Starfsmannafc-
lag Reykjavíkurborgar. Kjara-
samningarnir voru síðan stáðfestir
af borgarráði.
Þróunin heíur síðan orðið sú að
þáttur nefndarinnar í kjarasamn-
ingum hefur farið rýrnandi og eru
ástæður þess helstar að brcyting
hefur orðið á högum opinberra
starfsmanna og þeir skiptast í
fjölda félaga.
Þar má nefna ýmis félög há-
skólantanna, fóstrur, hjúkrunar-
lræðinga og marga fleiri. Við þetta
hefur samningagerð af hálfu borg-
arinnar rneir og meir færst til
embættismanna borgarinnar, á
saina hátt og er hjá ríkinu og hafa
þessir menn nána samvinnu við
samninganefnd rfkisins.
Gunnar Eydal sagði að þar sem
samningagerðin er orðin svo miklu
viðameiri en áöur var, væri ekki
hægt að ætla kjörinni nefnd borg-
arfulltrúa að annast Itana, enda
hefði hún, eins og áður sagði verið
að færast sífellt meir í hendur
embættismanna borgarinnar. -sá
Vöruskiptahalli 1988 innan viö fimmtung þess er áætlað var:
Innf lutningur minnkaoi
um 17% í jólamánuðinum
Vöruskiptajöfnuður landsmanna (fob/fob) árið 1988
reyndist þegar upp var staðið aðeins neikvæður um
rúmlega 800 milljónir króna í stað þess u.þ.b. 5.000
milljóna halla sem sérfræðingar höfðu spáð. Þetta er um
1.720 milljóna kr. betri útkoma en 1987.
Skýrjngin felst í hinum gífurlega
samdrætti sem varð í almennum
innflutningi, sérstaklega á síðasta
fjórðungi ársins. Mánuðina okt./
desember var cif. verðmæti inn-
flutnings um 3.300 milljónum
króna minna heldur en á sama
tímabili árið áður reiknað á föstu
gengi.
Þrátt fyrir að innflutningur ykist
töluvert framan af árinu leiddi
þessi mikli samdráttur síðari hlut-
ann til þess að í heild varð almenn-
ur innflutningur um 3% minni
heldur en árið 1987, á föstu gengi
bæði árin. Vart mun hafa átt sér
stað um mörg undanfarin ár að
innflutningur beinlíni drægist sam-
an milli ára.
Ekki hvað síst kemur niðurstað-
an úr sjálfum jólamánuðinum á
óvart. Mun það líklega nær eins-
dæmi að almennur vöruinnflutn-
ingur í jólamánuði hafi ekki verið
meiri heldur en næstu mánuði á
undan.
Milljarðasparnaður
í jólainnkaupum
Almennur innflutningur í des-
ember s.l. var 16,5% minni heldur
en í sama mánuði árið á undan
reiknað á sama gengi. Þrátt fyrir
22% hækkun á meðalgengi var
desemberinnflutningur nú nánast
sá sami í krónum talið og árið
áður. Þessi samdráttur svaraði í
kringum 1.000 milljónum króna á
innflutningsverði, sem vart yrði
undir 2.500 milljónum miðað við
smásöluverð út úr búð. Bendir
þetta til að þjóðin hafi verslað af
meiri hagsýni um síðustu jól heldur
en hún hefur áður átt vanda til.
Um 47% aukning á
skipakaupum...
Heildarinnflutningur á árinu
1988 var 68.970 milljónir króna cif.
en 62.481 milljón krónur að fob.
verði. Þar var um rúmlega 1%
minnkun að ræða, á föstu gengi,
frá árinu áður þrátt fyrir 22%
aukningu í innflutningi svonefndra
sérstakra liða, sem nú nam 8.404
milljónum kr. Þar af voru 5.515
milljónir vegna innflutnings og
breytinga á skipum, sem var 47%
aukning frá fyrra ári á föstu gengi.
Olíuinnflutningur á árinu var
tæplega 4 milljarðar króna, sem
var aftur á móti um 18% minna en
árið áður.
... en 5% samdráttur
í sjávarafurðum
Heildarverðmæti útflutnings á
árinu varð um 61.674 milljónir
króna, sem var tæplega 2% aukn-
ing milli ára á föstu gengi. Verð-
mæti útfluttra sjávarafurða (43,8
milljarðar) minnkaði þó um 5% á
milli ára, en á móti kom að útflutn-
ingur áls jókst um 14% og kísil-
járns um 44% frá árinu áður reikn-
að á föstu gengi. Þá fjórfaldaðist
útflutningur skipa og flugvéla milli
ára, varð nær 2,5 milljarðar. Sú
aukning skýrist einkum af sölu
Flugleiða á 5 þotum á árinu. Annar
innflutningur breyttist lítið milli
ára á föstu gengi. - HEI