Tíminn - 23.02.1989, Blaðsíða 7

Tíminn - 23.02.1989, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 23. febrúar 1989 Tíminn 7 Skipt um umboðsmenn Ríkisskips á Patreksfirði: Geymsluaðstaða veldur óánægiu Um manaöamótin veröur skipt um umboðsmenn Ríkis- skips á Patreksfirði. Kristinn Friðþjófsson núverandi umboðsmaður lætur af störfum og við taka Helgi Auðunsson og Guðfinnur Pálsson. Samkvæmt heimildum Tímans hefur almennrar óánægju gætt hjá fyrirtækjum á Patreksfirði vegna stopullar afgreiðslu vöru. Þá hefur geymslurými ekki verið talið full- nægjandi. Afgreiðslan hefur verið meira og minna út um allt þar sem meðal annars hefur verið gripið til þess að geyma vörurnar í gámum utan dyra, á hafnarbakkanum. Gera má ráð fyrir að aðstaðan batni til muna um mánaðamótin. „Við erum með þrjú hundruð fer- metra skemmu sem verður notuð sem geymslupláss," sagði Helgi Auðunsson í samtali við Tímann. Forstjóri Ríkisskips Guðmundur Einarsson staðfesti að skortur á geymsluplássi væri ein helsta ástæða umboðsmannaskiptanna. „Þessi að- staða var ekki eins og við vildum helst hafa hana,“ sagði hann. Nokkuð hefur verið um skipti á umboðsmönnum fyrirtækisins úti á landi. Bæði að frumkvæði umboðs- mannanna sjálfra og eins samkvæmt ósk fyrirtækisins sem var raunin í þessu tilviki. „Pað liggja að baki allskonar ástæður sem við viljum ekki ræða neitt frekar. Þetta er spurnmg um hvernig þjónustu og hagsmunum fyrirtækisins sem slíks er best borgið þarna á staðnum að okkar mati." sagði Guðmundur. Samkvæmt heimildum Tímans hafði núverandi umboðsmaður hug á að koma upp betri geymsluaðstöðu í samráði við Ríkisskip. „I lögum um skipaútgerðina er ákvæði sem í raun útilokar að við getum tekið þátt í slíku. Ég veit hins vegar ekki til að umboðsmaðurinn hafi farið fram á það. Hafi hann hins vegar gert það hefur hann væntanlega fengið þau svör að samkvæmt lögum eigum við ekki að vera með afgreiðslur úti á landi. Það hefur verið túlkað þannig að við megum ekki heldur eiga húsnæði undir þær,“ sagði Guð- mundur þegar Tíminn hafði sam- band við hann. jkb Marianne Danielsen á strandstað við Grindavík. Tímamynd i’jeiur Umboðsmaöur eigenda og tryggingarfélags til landsins: TILBOÐ ATHUGUÐ Fjöldi manns hefur gert tilboð í brottflutning skipsins Marianne Danielsen sem strandaði fyrir utan Grindavík. Umboðsmaður tryggingarfélags skipsins kemur hingað til Iands um mánaðamótin. Hann mun í sam- ráði við Valgarð Briem hæstarétt- arlögmann athuga tilboðin og af- ráða hvort nokkru þeirra verður tekið. Lögfræðingur bæjaryfirvalda í Grindavík hefur lagt fram ítrekun á þeirri kröfu bæjarstjórnarinnar að skipið verði fjarlægt hið fyrsta. Fyrirtækið Björgun hf. sendi eignaraðilum skipsins tilboð í brottflutning þess en tilboðinu var hafnað. Björgun gerði ráð fyrir að eigendur Marianne og tryggingar- félag hennar myndu leggja fram nauðsynlegt fjármagn við fram- kvæmdina. Auk geidds kostnaðar gerði Björgun tilkall til að eignast skipið en því hefur sem kunnugt er verið heitið hverjum sem tekst að ná því burt. „Ég tel að núverandi eigendur og tryggingarfyrirtækið verði óhjákvæmilega að standa undir kostnaði við brottflutning skipsins," sagði Valgarð í samtali við Tímann. Hann sagði flesta þá sem lagt hafa fram tilboð vera sjálfstæða verktaka en einnig væru nokkur fyrirtæki í hópnum. jkb FRÆÐSLUMIÐSTÖD RAUDA KROSSINS HEFUR STARF Fræðslumiðstöð Rauða kross ís- lands hefur nýverið tekið til starfa. Hlutverk hennar er meðal annars að samræma og annast heildarskipu- lag á fræðslustarfi RKÍ. Boðið er upp á margs konar námskeið, bæði ætluð almenningi og sjálfboðaliðum Rauða krossins. Fjögur námskeið eru í boði fyrir almenning. Það eru námskeið í skyndihjálp. ummönnun barna, for- eldranámskeið og námskeið í að- hlynningu aldaðra. Námskeiðin fyrir sjálfboðaliða RKÍ eru neyðarvarn- arnámsstefna, námskeið um fundar- sköp og fundarstjórn, bókhaldsnám- skeið, sérnámskeið fyrir félaga ung- mennahreyfingar Rauða krossins og námskeið um sögu og störf Rauða krossins. Þá verða haldin námskeið fyrir leiðbeinendur í skyndihjálp, námskeið fyrir sjúkraflutningamenn og endurmenntunarnámskeið fyrir þessa tvo hópa. Leiðbeinendur á námskeiðunum eru allir sérfræðingar á sínu sviði. Námskeiðin eru haldin víða um land, en allra nánari upplýsinga varðandi þau má leita á skrifstofu Rauða krossins í Reykjavík. jkb Flutningaskip á leið til Islands með saltfarm: Sautján Sautján manna áhafnar af flutningaskipinu Sicil Angola er saknað eftir að skipið sökk snemma i gærmorgun um 180 sjómílur vestur af N- írlandi. Sicil Angola sem er 2.600 tonn að stærð var á leiðinni til íslands frá Spáni með 4000 tonna saltfarm til Saltsölunnar og var áætlað að skipið kæmi til Vestmannaeyja í lok vikunnar. Mikill stormur og brotsjór var á þessum slóðum í fyrrinótt og er talið víst að sjór hafi komist í lestar skipsins og í vélarrúm, sem leiddi síðan til að skipið sökk. Bresk Nimrodþota fór þegar á staðinn í gærmorgun þegar neyð- arkall barst frá skipinu á sjötta tímanum og sveimaði yfir því. Kastað var út þrem gúmmíbjörg- unarbátum, auk þess sem áhöfn skipsins hafði komið þrem björg- unarbátum á flot. Að sögn tals- manns bresku strandgæslunnar sást ekkert lífsmark um borð í flutn- ingaskipinu, né björgunarbátunum og sökk skipið um hálf átta. Mjög slæmt veður var á leitarsvæðinu og lítið skyggni. Tvær Sea king þyrlur frá Bret- landi og tvær þyrlur frá varnarlið- inu á Keflavíkurflugvelli voru sendar á vettvang ásamt Herkúl- esvél og voru fyrstu þyrlurnar komnar á slysstað á tíunda tíman- unt. Leitað var á svæðinu og björg- unarbátar athugaðir, en ekkert lífs- mark sást og var leit hætt. Þyrlurn- ar frá varnarliðinu voru komnar til Islands síðdegis í gær. Flugið frá fslandi tók rúma fjóra tíma hvora leið, en vegalengdin er rúmar 600 mílur. Sicil Angola var skráð í Panama og er talið að skipverjar hafi allir verið frá Suður-Kóreu. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort frekari leit verði gerð. -ABÓ Námsstyrkir Verslunarráds Á viðskiptaþingi Verslunarráðs íslands fyrir skömmu voru afhentir tveir styrkir úr námssjóði ráðsins. Hvor styrkur nemur 135 þúsund krónum og voru umsækjendur 38 talsins. Tilgangur námssjóðsins er að efla íslenskt atvinnulíf og stuðla aö framþróun þess með því að styrkja einstaklinga til fanrhalds- náms erlcndis. Styrkina hlutu Helga Guðmunds- dóttir og Páll Harðarson. Helga er 38 ára gömul, tveggja barna móðir. Hún stundar nú annars árs nánt við Viðskiptaháskólann í Kaupmanna- höfn. Þar hyggst hún ljúka fyrrihluta náms í rekstrarhagfræði vorið 1990. Páll er 23 ára og lauk BA-prófi í hagfræði fá Macalester College í St. Paul í Minnesota í Bandaríkjunum á síðastliðnu ári. Hann býr sig nú undir doktorsnám í hagfræði við bandarískan háskóla. jkb Svart á hvítu aö ná sér upp úr rekstrarerfiðleikum: Umsvif minnkuð Bókin um Jónas Hallgrímsson er væntanleg frá bókaforlaginu Svart á hvítu í apríl næstkomandi, en sem kunnugt er hel'ur Svart á hvítu gefið út íslendingasögurnar og Sturlungu. Að sögn Björns Jónassonar fram- kvæmdastjóra er forlagið á leið út úr almennri bókaútgáfu, en þess í stað er ætlunin að einbeita sér að viða- meiri verkum, sem gefa þeim mestar tekjur. „Þetta er bara svo mikið mál að halda utan um svona stórverk að það er ekki tími til að sinna öðru svo vel sé,“ sagði Björn. Svart á hvítu átti í miklum greiðsluerfiðleikum í haust, en Björn sagði að nú væri hagurinn heldur að vænkast. Hann sagði að þeir hefðu dregið mikið saman í rekstrinum og endursantið við marga lánardrottna. -ABÓ Frá foreldranámskeiði Rauða kross fslands. Herdís Storgaard deildarstjóri slysadeildar Borgarspítalans sýnir hvernig losa á aðskotahluti úr koki barns.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.