Tíminn - 01.03.1989, Qupperneq 6
6 Tíminn
Miðvikudagur 1. mars 1989
Rut Árnadóttir tekur við viðurkenningu fyrir nafnið Fjörgyn úr hendi forstöðumanns félagsmiðstöðvarinnar Soffíu Pálsdóttur. Timamynd: \mi Bjama
Ný félagsmiöstöö tekin í notkun:
Foldafjör í Fjörgyn
Á föstudaginn var formlega tekin í notkun menningar-
og félagsmiðstöðin í Foldaskóla. Þetta er í fyrsta sinn sem
skólabygging er samnýtt á þennan hátt. Um leið voru
veittar viðurkenningar í samkeppni um nafn á félagsmið-
stöðina sem hér eftir ber nafnið Fjörgyn.
Félagsmiðstöðinni er ætlað það
hlutverk, að vera félagsmiðstöð
allra íbúa hverfisins og þeirra fé-
lagasamtaka sem þar eru, auk þess
að vera félagsmiðstöð unglinganna
í hverfinu. Daglegur rekstur er á
vegum íþrótta- og tómstundaráðs.
Húsnæðið er hins vegar skólahús-
næði undir umsjón Skólamálaráðs
og stjórn skólastjóra Foldaskóla.
Samnýting skólahúsnæðis á þenn-
an hátt á sér stoð í grunnskóla-
lögunum en hefur ekki verið reynt
í Reykjavík áður.
„Hér verður opið á daginn og
þrjú kvöld í viku fyrir skólakrakk-
ana. Tvo rúmhelga daga vikunnar,
auk laugardaga geta síðan hin
ýmsu félagasamtök fengið húsnæð-
ið til afnota. Til dæmis verða
skátar hérna en þeirra starf er
geysilega öflugt í hverfinu. Við
verðum einnig með ýmsar óvæntar
uppákomur eins og ferð út í
buskann, hér verða fræðslukvöld
og aðstaða fyrir krakkana til
heimanáms, við höldum böll og
margt fleira. Við reynum að sinna
mjög breiðum hópi, verðum með
tíu til tólf ára krakka einu sinni í
mánuði og svo verður farið af stað
með mæðra-morgunn. Þá verður
reynt að fá heimavinnandi hús-
mæður í hverfinu til að koma,
rabba saman og drckka kaffi með-
an börnin leika sér“, sagði for-
stöðumaður miðstöðvarinnar Soff-
ía Pálsdóttir í samtali viðTímann.
Við opnunina veitti Soffía viður-
kenningar til vinningshafa í sam-
keppni sem efnt var til um nafn á
félagsmiðstöðina. í dómnefnd sátu
auk Soffíu, Guðmundur Kristins-
son formaður ungmennafélagsins
Fjölnis, Bára Jóhannsdóttir kenn-
ari við Foldaskóla, Valgerður
Kristín Guðbjörnsdóttir fulltrúi
áttundu bekkinga skólans og Jón
Pór Bjarnason fulltrúi sjöundu
bekkinga. Fyrir valinu varð nafnið
Fjörgyn sem þýðir jörð og er
sérnafn fyrir móður Þórs í Goða-
fræðinni. Tillaga að nafninu barst
frá Rut Árnadóttur. Annað nafn
Foldafjör fékk einnig viðurkenn-
ingu og verður notað sem nafn á
dagskrá félagsmiðstöðvarinnar, sú
tillaga barst frá íris Viglund Péturs-
dóttur. Þá var Guðbirni Einarssyni
veitt viðurkenning fyrir tillögu að
nafninu Foldaból.
Fjörgyn er alls átta hundruð
fermetrar að stærð. Húsnæðinu er
skipt niður í samkomusal, setu-
stofu, tómstundaherbergi, her-
bergi forstöðumanns, nemenda-
ráðs, og starfsmanna auk snyrting-
ar, fatageymslu og fleira. Fullkom-
in hljómflutningstæki verða í saln-
um og sjónvarp og myndbandstæki
í setustofunni.
„Ég er vitaskuld hæstánægð með
að þessi aðstaða skuli vera komin
í gagnið. Þetta getur orðið mikil
lyftistöng fyrir hverfið" sagði Sig-
rún Magnúsdóttir borgarráðsfull-
trúi Framsóknarflokksins. Fyrir ári
mælti hún fyrir tillögu um að
borgarstjórn keypti húsnæði undir
félagsstarf í hverfinu. „Pess vegna
er mér mjög umhugað um málið.
Sérstaklega finnst mér ánægjulegt
að hin frjálsu félög fái þarna að-
stöðu undir starfsemi sína. Einnig
er þetta afskaplega mikilvægt fyrir
börn og unglinga í hverfinu einkum
þar sem húsnæði til íþróttaiðkana
fyrirfinnst ekki. Mér finnst þetta
afskaplega glæsilegt, alveg til fyrir-
myndar. Ég vildi gjarnan sjá svona
samstarf og aðstöðu víðar og von-
ast til að í framtíðinni verði tekið
mið af þessu“ sagði Sigrún.
Til stendur að byggja upp sams-
konar aðstöðu í Seljaskóla. En
fjöldi barna er þar svo mikill að
talið er að fyrst um sinn verði
húsnæðið nýtt sem viðbót við
kennslurými skólans.
Að sögn stúlku úr nemendaráði
Foldaskóla eru krakkarnir hæst-
ánægð með aðstöðuna. „Við fórum
og kynntum okkur starfsemi félags-
miðstöðvar í Hafnarfirði og stefn-
um að samstarfi við aðrar félags-
miðstöðvar í framtíðinni" sagði
hún. jkb
Formlegar viðræður milli
íslenskra og amerískra
stjórnvalda um mengun
á Miðnesheiði:
Endurnýjun
vatnsbóla
á dagskrá
Ákveðið hefur verið að hefja
formlegar samningaviðræður milli
fulltrúa íslenskra stjórnvalda og
bandarískra vegna mengunar í
vatnsbólum Njarðvíkurog Keflavík-
ur af völdum atvinnustarfsemi á
Keflavíkurflugvelli. Ákvörðun þessi
kemur í framhaldi af viðræum þeirra
Jóns Baldvins Hannibalssonar og
James A. Baker utanríkisráðherra
Bandaríkjanna í Leifsstöð fyrir
skömmu, en vatnsból þessi eru talin
í verulegri hættu.
Utanríkisráðherra hefur skipað í
samninganefndina af íslands hálfu
þá Porstein Ingólfsson skrifstofu-
stjóra í varnarmáladeild, Guðmund
Eiríksson þjóðréttarfræðing, og
Hannes Einarsson, form. bæjarráðs
Keflavíkur.
Dómsmálaráðuneytið
skrifar lögreglustjórum
umburðarbréf:
Hvetur til
eftirlits
Dómsmálaráðuneytið hefur sent
öllum lögreglustjórum á landinu bréf
þar sem þess er óskað að endur-
skipulagt verði eftirlit með ölvuðum
ökumönnum.
Pessa er óskað þar sem vænta
megi fleiri ölvunarakstra en áður,
með tilkomu bjórsins og að ölvunar-
aksturinn dreifist meira á virka daga
en hingað til hefur verið. Reynslan
af bjórlíkissölunni á sínum tíma
sýndi ótvírætt að töluverð brögð
voru af akstri undir áhrifum áfengis
á virkum dögum, segir í tilkynningu
frá dómsmálaráðuneytinu.
í bréfinu til lögreglustjóranna er
þess farið á leit að fylgst verði með
veitingastöðum er hafa vínveitinga-
leyfi og að ungmennum undir tví-
tugsaldri verði ekki selt áfengt öl.
-ABÓ
Reglugerð menntamálaráðherra:
Námslán hækka
Menntamálaráðherra, Svavar Gestsson hefur gefið út
reglugerð um hækkun á framfærslugrunni Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna.
Kemur hækkunin sem nemur 7,5% til framkvæmda í dag
1. mars. Þá er gert ráð fyrir því að námslánin hækki aftur
síðar á árinu. Er þetta einkum gert til að bæta þá skerðingu
sem varð á metnum framfærslukostnaði á árunum 1984-1986.
Samkvæmt áliti vinnuhóps um
Lánasjóð íslenskra námsmanna er
gert ráð fyrir að skerðingin verði að
fullu afnumin á næsta ári. Vinnuhóp-
urinn var skipaður í nóvember á
síðasta ári og hefur þegar skilað
lokaáliti.
Stjórn LÍN hefur mótmælt þessari
hækkun. Pó ber að geta þess að ekki
var samstaða innan stiórnarinnar
um mótmælin. í stjórn LÍN sitja þrír
menn skipaðir í tíð Birgis ísleifs
Gunnarssonar sem menntamálaráð-
herra, þeir voru allir á móti hækkun-
inni. Einnig sitja þrír fulltrúar
námsmanna í stjórninni og voru þeir
hlynntir þessari hækkun. Meirihluti
stjórnarinnar stendur engu að síður
að baki mótmælunum þar sem at-
kvæði formanns stjórnarinnar ráða
úrslitum. En formaðurinn er Sigur-
björn Magnússon sem situr í stjórn
gegn vilja núverandi menntamála-
ráðherra.
Vinnuhópurinn hefur lagt fram
fleiri tillögur. Par á meðal er að
finna tillögu þcss efnis að skrifstofu
og stjórn LÍN verði falið að hefja
athugun og undirbúning að því að
námsmönnum á fyrsta námsári verði
veitt Ián þegar á fyrsta misseri. „Við
höfum verið andvíg því að taka
málið upp. Pað er gífurlega mikið
fall á fyrsta ári og eins að námsmenn
skipti um grein. Við teljum engan
sérstakan ávinning að því að menn
stofni til skulda á þessum tíma.
Námsmenn reyna í ríkari mæli að
komast hjá því að stofna til fjár-
skuldbindinga ef við veitum ekki lán
strax. Þeir reyna ef til vill frekar að
fjármagna nám sitt með sama hætti
og þeir gerðu í menntaskóla. Þetta
fyrirkomulag með samstarfi við
bankana hcfur gengið mjög vel og
lítið verið um kvartanir. Pað er
mikill akkur í því fyrir lánasjóðinn
að losna við allt umstangið sem því
fylgir að fá alla fyrsta árs nemana
yfir sig en helmingurinn stenst síðan
ekki námskröfurnar" sagði Sigur-
björn Magnússon í samtali við
Tímann. jkb
Menntamálaráðherra á fundi með vinnuhóp um Lánasjóð íslenskra náms -
manna þar sem hópurinn skilaði lokaáliti sínu. Tímamynd: Ámi Bjama