Tíminn - 01.03.1989, Qupperneq 13

Tíminn - 01.03.1989, Qupperneq 13
Miðvikudagur 1. mars 1989 Tíminn 13 Stjórnarherinn í Eþíópíu að missa öll tök í norðri: Tígerhérað nú á valdi skæruliða Skæruliðar í Tígerhéraði hafa barist gegn stjórnarher Eþíópíu í fjórtán ár. Nú hafa þeir krakið stjórnarherinn frá Tíger. Skæruliðar í Tígerhéraði í norður Eþíópíu fullyrða að stjórnarherinn hafi yfirgefíð borgina Mekele sem er höfuðstaður héraðsins. Því sé héraðið nú allt á valdi skæruliða. Ekki hafa borist fréttir frá hlut- lausum aðilum af þessu, en Þjóð- frelsishreyfing Tíger staðhæfir að hreyfingin hafi nú allt héraðið á valdi sínu, en í því búa nú fimm milljónir manna. -Stjórnarherinn flaug með vopn stórskotaliðsins, embættismenn stjórnarinnar og leiðtoga flokksins frá Mekela 500 km norður af Addis Ababa á sama tíma og 15 þúsund hermenn þrömmuðu suður á bóginn í átt að Wollo héraði, sagði Yemane Kidani talsmaður skæruliða í samtali við Reuter. -Þetta er í fyrsta sinni sem Tíger er frelsað í fjórtán ára valdatíð núverandi ríkisstjórnar Eþíópíu, sagði Yemane og bætti við: -Ég hef ekki séð Mekele í fjórtán ár. Yfirstjórn Þjóðfrelsisfylkingar- innar og hersveitir hennar hafa nú þegar tekið yfir Mekele og stjórna þaðan málum Tígers. Núverandi ríkisstjórn marxista í Eþíópíu hafa haft Mekele á valdi sínu frá því Haile Selassie keisara var steypt af stóli af hernum árið 1974. í síðustu viku náðu skæruliðar Þjóðfrelsishreyfingarinnar bænum Inda Selassie á sitt vald og naut við það dyggrar aðstoðar hersveita frá Frelsishreyfingu Erítreu sem berst fyrir sjálfstæði nágrannahéraðs Tíger. Þá féllu um 9 þúsund stjórnar- hermenn og rúmlega 12 þúsund voru teknir höndum eftir tíu daga bar- daga. Tveir hershöfðingjar féllu þar og sá þriðji var handtekinn. Tígerhérað sem er ntjög fjöllótt hefur alla tíð verið menningarsvæði og yfirleitt sjálfstætt ríki, en þar var konungdæmið Axum stofnað fyrir um það bil 2500 árum. Tígerhérað féll undir Eþíópíu í þeirri mynd sem nú er upp úr síðustu aldamótum. Skósmíðaverkstæöiö „Duckers“ í Oxford: 75 ára skuld Rauða barónsins afskrifuð Eftir 75 ár hefur skósmiöur í Oxford á Englandi loks getaö afskrifað skuld „Rauða barónsins“ hins þekkta þýska flug- manns sem skaut niður fleiri flugvélar bandamanna í fyrri heimsstyrjöldinni en nokkur annar. Manfred von Richthofen barón pantaði par af gaddaskóm hjá hinu virðulega skósmíðafyrirtæki „Duckers" á meðan hann var við nám í Oxfordháskóla árið 1914. Baróninn hélt hins vegar heim í snarhasti þegar drungaleg ófriðarský tóku að hrannast upp yfir Evrópu og láðist honum að greiða skó sína. -Þetta er færsla í viðskiptabók okkar sem ekki er auðvelt að gleyma, sagði George Purves eig- andi Duckers á fimmtudaginn eftir að skuld “Rauða barónsins" hafði verið afskrifuð. Skuldin var afskrifuð eftir að send- iherra Vestur-Þýskalands, Hermann von Richthofen, náfrændi „Rauða barónsins" hafði litið inn hjá “Duckers" ásamt vini sínum Sir Julian Bullard, sem er breskur diplómat sem nú er kominn á eftir- laun. Þeir hjá „Dukcers" notuðu tæki- Suður-Afríka: Blökkumenn í Natal myrða hver annan Mikil ólga ríkir nú í Natalhéraði í Suður-Afríku þar sem blökkumenn vega hver annan í átökum Zulumanna og stuðningsmanna Sameinaða lýðræðisfíokksins sem er vinstri sinnaður flokkur blökkumanna. Sjö blökkumenn voru myrtir í héraðinu í gær. Gatið á skrokki farþegaþotu United Airlines: Sprengja ekki orsaka- valdur Ljóst eraðekki var um sprengju- tilræði að ræða þegar gat kom á skrokk Boeing 747 farþegaþotu bandaríska flugfélagsins United Airlines með þeim afleiðingum að níu farþegar soguðust út í tómið yfir Kyrrahafi fyrir helgi. Allar iíkur eru á að bilun í lokunarbún- aði hurðar í farangursrými hafi valdið slysinu. Hurðin opnaðist og varð það til þess að gat kom á farþegarými flugvélarinnar þar sem farþegarnir soguðust út. Þrír skóladrengir voru stungnir til bana í Cleremont, en þeir voru taldir fylgja Sameinaða lýðræðis- flokknum að málum. Múgurinn elti þá uppi eftir að þeir höfðu kveikt í húsi Zulumanna í KwaDabeka. Fjórir menn létu lífið í átökum í Edendale nærri Pietermaritzburg, færið og sýndu Hermanni von Richt- hofen reikning frænda síns. Eins og sönnum herramanni og barón sæmdi bauðst sendiherrann til þess að greiða reikning frænda síns. Hljóð- aði reikningurinn upp á 54 pence. Þeir hjá „Duckers" tóku slíkt ekki á mál heldur gáfu Richthofen ættinni eftir skuldina og geta nú loks afskrif- að þau 54 pence sem verið hafa útistandandi í 75 ár. Rauði baróninn flaug þriggja vængja herflugvél af Fokker gerð í fyrri heimsstyrjöldinni og skaut nið- ur áttatíu flugvélar bandamanna. Hann féll í flugorrustu árið 1918. en þar hafa átök brotist út nær daglega að undanförnu. Þar beitti lögregla táragasi gegn stríðandi hóp- um blökkumanna. Talið er að rúmlega þúsund manns hafi verið drepnir í átökum í Natal- héraði sfðastliðin tvö ár. ■ - lr«" i r C ■ «nr FÉLAGSMÁLASKÓLI Gissur Pétursson Egill H. Gíslason Finnur Ingolfsson Arnar Bjarnason Hrólfur Ölvisson Helgi Pétursson Samband ungra framsóknarmanna og Kjördæmissambönd Framsóknarflokksins hafa ákveðið að fara á stað með Félagsmálaskóla þar sem boðið verður uppá eftirfarandi námskeið: A. Grunnnámskeið í félagsmálum: Efni: Fundarsköp og ræðumennska, tillögugerð, stefnumál Framsóknarflokksins o.fl. Tímalengd: 8 klst. Leiðbeinendur verða: Gissur Pétursson, Egill HeiðarGísla- son, Finnur Ingólfsson, Arnar Bjarnason og HrólfurÖlvisson. Stefnt er að því að halda námskeiðið í febrúar og mars á eftirtöldum stöðum ef næg þátttaka fæst: Reykjavík, Keflavík, Selfoss, Vestmannaeyjar, Höfn, Egilsstöðum, Akureyri, Sauð- árkróki, (safirði, Ólafsvík og Akranesi. B. Fjölmiðlanámskeið: Efni: Framkoma í sjónvarpi og útvarp. Undirstöðuatriði í frétta- og greinaskrifum. Áhrif fjölmiðla. Tímalengd: 16 klst. Leiðbeinandi: Helgi Pétursson, fréttamaður. Stefnt er að því að halda námskeið í Reykjavík og á Akureyri. Þeir aðilar sem hafa áhuga á þessum námskeiðum eru hvattir til að hafa samband við eftirtalda aðila: Reykjavík: Skrifstofa Framsóknarflokksins, s. 91-24480 Reykjanes: Ágúst B. Karlsson, sími 91-52907 Vesturland: Bjarni Guðmundsson, sími 70068 Vestfirðir: Sigurður Viggósson, sími 94-1389 Norðurland vestra: Bogi Sigurbjörnsson, sími 95-71527 Norðurland eystra: Snorri Finnlaugsson, sími 96-61645 Austurland: Olafur Sigurðsson, sími 97-81760 Suðurland: Guðmundur Búason, sími 98-23837 Samband ungra framsóknarmanna Kjördæmissambönd Framsóknarflokksins Framsóknarfélag Árnessýslu boðar fil félagsfundar um málefni Samvinnuhreyfingarinnar mánudaginn 6. mars kl. 21 að Eyrarvegi 15, Selfossi. Frummælandi verður Guðjón B. Ólafsson forstjóri Sambandsins. Félagsmenn og aðrir áhugamenn um málefni Samvinnuhreyfingar- innar eru hvattir til að mæta. Stjórnin Framsóknarvist í Kópavogi Framsóknarfélögin í Kópavogi efna til 3ja daga spilakeppni í Félagsheimili Kópavogs Fannborg 2. Spilað verður þrjá sunnudaga í röð og í fyrsta sinn sunnudaginn 5. mars n.k. kl. 15. Góð verðlaun verða veitt alla dagana og síðasta daginn 19. mars verða veitt glæsileg verðlaun til stigahæsta einstaklingsins. Kaffiveitingar verða á staðnum. / Framsóknarfélögin í Kópavogi

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.