Tíminn - 10.03.1989, Qupperneq 7
Föstudagur 10. mars 1989
Tíminn 7
DEYR LANDSBYGGÐIN SMÁTT OG SMÁTT ÚR ELLI?
Sjöunda hvert
unamenni fór
suour $.1.5 ár
Um sjöundi hluti þeirra 20-24 ára ungmenna (fæddir
1959-63) sem bjuggu úti á landi fyrir fimm árum hefur síöan
flutt „suður“. Fólki af þessum árgöngum hefur t.d. fjölgaö
um 10-11% í Reykjavík. Af öllum milli tvítugs og þrítugs
sem bjuggu úti á landi 1983 hefur síðan níundi hver (nær
2 þúsund manns) nú flutt suður. Eðlilega hefur börnum þar
stórfækkað samhliða. Öldruðum hefur aftur á móti
hlutfallslega ekki fækkað og t.d. eru aldraðar ekkjur og
ekklar nú mun fleiri úti á landi, en fyrir fimm árum.
Spurningin er hvort landsbyggðin deyi smám saman úr elli.
Til höfuðborgarinnar flytja hins vegar miklu fleiri en þar
deyja.
Hin hlið biðlistans?
Sýnist ekki þarna kominn a.m.k.
hluti skýringarinnar á því af hverju
svo gífurlegur meirihluti þeirra
sem sótt hafa um lán Húsnæðis-
stofnunar ætlar þau til byggingar
eða íbúðakaupa á höfuðborgar-
svæðinu? En yfirgnæfandi meiri-
hluti þeirra stendur í íbúðakaupum
er einmitt fólk milli tvítugs og
þrítugs.
Um 2.000ungmenni flúin
Hagstofan raðar mannfjöldan-
um í landinu niður f 5 árganga
flokka. Þeir sem voru 25-29 ára á
síðasta ári (fæddir 1959-1963) eru
því t.d. sama fólkið og var í hópi
20-24 ára árið 1983 og lítið fækkað
enn.
Fyrir fímm árum bjuggu 9.200
ungmenni úr þessum hópi utan
R-kjördæmanna. Fimm árum eldri
(1988) voru aðeins innan við átta
þúsund þeirra eftir úti á landi.
Sjöundi hver (13,3%) var fluttur
suður (þ.e. umfram fjölda jafn-
aldra sem kann að hafa komið í
staðinn). Hlutfallslega mestur var
flóttinn af Suðurlandi, þar sem nær
16% þessara árganga var farinn.
en minnstur tæp 12% af Austur-
landi.
Af öllum fslendingum fæddum
árin 1959-63 bjuggu 43% úti á
landi fyrir áratug, yfir 41% fyrir
fimm árum, en nú eru þar aðeins
eftir um 36% þess sama hóps. Og
þetta er ekki eini hópurinn sem
flytur.
Árið 1983 skráði Hagstofan
42.700 fslendinga fædda á árunum
1954-1963 og nær allir voru þeir
enn á skrám nú fimm árum síðar.
Sú stóra breyting hefur aftur á móti
orðið, að af þeim rúmlega 17.200
sem bjuggu úti á landi 1983 eru
næstum tvö þúsund fluttir suður nú
fimm árum síðar.
Og þúsund börn...
Far sem þarna er um að ræða
fólk á þeim aldri sem hvað dugleg-
ast er að fjölga mannkyninu, hefur
börnum eðlilega fækkað um leið
og unga fólkinu. Fyrir fimm árum
bjuggu t.d. um 18 þús. börn fædd
1973-1983 úti á landi. Af þessum
sama hópi hafa um 1.000 börn (nú
á aldrinum 5-14 ára) flutt suður
með foreldrunum, sem þýðir þá
samsvarandi fjölgun þessara fæð-
ingarárganga þar.
...en aldraðir ekki
á faraldsfæti
Aftur á móti virðast þeir ekki á
faraldsfæti sem nú eru að nálgast
eða komnir á ellilaunin, þ.e. fyrr
en þeir kveðja að fullu og hverfa
þar með úr mannfjöldatölum Hag-
stofunnar.
Umskiptin virðast hjá þeim sem
náð höfðu sextugu árið 1983 og því
komnir yfir 65 ára aldur nú. í
þessum árgöngum hefur fólki hlut-
fallslega ekki fækkað meira á
landsbyggðinni heldur en í R-kjör-
dæmunum samanlögðum.
Áttræðir hlutfallslega
flestir
Athygli vert virðist að af öllum
fslendingum yfir áttrætt búa nú vel
yfir 42% úti á landi, samanborið
við aðeins 35-36% fólks á besta
starfsaldri, þ.e 25-45 ára. Áralang-
ur barlómur borgarbúa/yfirvalda
yfir því að þangað streymi aldraðir
landsbyggðarmenn í leit að hjúkr-
un og ummönnun virðist því,
a.m.k. ekki lengur, á rökum reistur
- þvert á móti eru það hinir ungu
á besta og mesta vinnu-, neyslu-,
fjárfestingar-og skattgreiðslualdri,
sem þúsundum saman hafa hópast
suður nú síðustu árin.
Rúmlega 6 þúsund
„flóttamenn“
Til að iíta á þróunina í heild má
benda á að fyrir fimm árum voru
íslendingar tæplega 238 þúsund.
Af þeim eru rúmlega 231 þúsund
enn á lífi og búsettir í landinu, en
rúmlega 7 þús. látnir eða brottflutt-
ir af landinu.
Árið 1983 bjuggu rúmlega 40%
allra landsmanna utan R-kjördæm-
anna. Ef ekki hefði komið til
neinnar byggðaröskunar (fólks-
flótta) ættu 93.000 manns fæddir
1983 eða fyrr, að búa þar ennþá. í
raun eru þeir aðeins um 86.900
manns (37,6%). Með öðrum orð-
um þá hafa meira en sex þúsund
manns, mest ungt fólk og börn,
flutt suður s.l. fimm ár, umfram þá
sem kunna að hafa flutt út á land á
sama tíma.
í R-kjördæmunum hefur fólki
fæddu 1983 eða fyrr aftur á móti
fjölgað í kringum tvö þúsund
manns, þrátt fyrir að um fjögur
þúsund manns af þessum aldursár-
göngum hafi látist (eða flutt á brott
af landinu) s.l. fimm ár.
Miklar barneignir
duga ekki til
f stað þeirra 8.700 íbúa sem
landsbyggðin hefur misst vegna
dauðsfalla og fólksflótta hafa henni
bæst tæplega 8.000 börn fædd eftir
1983 (af alls 20.400 í landinu). Það
gefur að vísu til kynna að ungt fólk
úti á landi á mun fleiri börn heldur
en syðra - en dugir þó ekki til þess
að koma í veg fyrir beina tölulega
fólksfækkun (um 700) á lands-
byggðinni s.l. fimm ár. Og litlar
líkur virðast á að það breytist haldi
unga fólkið að streyma suður í jafn
stórum stíl og undanfarin ár.
Þeir nýju borgarar sem R-kjör-
dæmunum hafa bæst eftir 1983
koma hins vegar til viðbótar þeim
tvö þúsund (áður fæddu) sem þau
á sama árabili höfðu „unnið“ (um-
fram fjölda látinna). Samtals þýðir
þetta um 14.500 manna fjölgun á
suð-vesturhorni landsins á aðeins
fimm ára tímabili.
Um 35% ungra
en 43% gamalla
Ýmsum, landsbyggðarmönnum
a.m.k., hefur þótt nóg um þá 700
manna fækkun sem þar hefurorðið
á sama tíma og þjóðinni hefur
fjölgað um nær 14.000 manns. En
eins og hér hefur verið rakið segja
þær beinu tölur aðeins lítinn hluta
sögunnar. Þegar aðeins 35-36%
fólks á barneignaraldri er eftir á
landsbyggðinni (og virðist enn fara
hraðfækkandi) þá bjargar það ekki
þótt 43% áttræðra og eldri sitji þar
um kyrrt. Flóttamennirnir hafa
nær allir farið á höfuðborgarsvæð-
ið. Suðurnesin eru eini landshlut-
inn þar sem segja má að íbúafjölg-
un hafi verið í jafnvægi á þessu
tímabili. - HEI
London City Ballet í Þjóðleikhúsinu
Aukasýning
vegna mikillar
aðsóknar
Föstudaginn 31. mars og laugar-
daginn 1. apríl mun London City
Ballett sýna í Þjóðleikhúsinu. Samt-
als koma þrettán dansarar úr flokkn-
um hingað og dansa atriði úr Hnotu-
brjótnum, Celebrations ogTransfig-
ured Night.
Uppselt er á báðar sýningar ball-
ettsins. „Við erum að kanna mögu
leika á því að hafa aukasýningu
vegna þessarar miklu aðsóknar.
Endanleg ákvörðun um það verður
tekin í dag, föstudag" sagði Gísli
Alfreðssor. leikhússtjóri í samtali
við Tímann.
í samræmi við stefnu forsætisráð-
herra Bretlands hefur mjög verið
dregið úr opinberum styrkjum til
listastarfsemi. Ballettflokkurinn er
nú að mestu styrktur af einkaaðilum,
fyrirtækjum og einstaklingum.
Landsbanki Islands og Scandinavian
Bank í London styrkja komu dansar-
anna hingað.
„Bankastjóri Scandinavian Bank
John Quitter á sæti í styrktarstjórn
flokksins. Quitter hefur haft mikil
tengsl við ísland og mikið verið hér
á landi. Er það einkum fyrir hans
tilverknað að flokkurinn sækir okkur
heim. Þau sýna eingöngu klassískan
ballett og eru að mínu mati mjög
góð. Þá eru þau vön að dansa á sviði
af svipaðri stærð og er í Þjóðleikhús-
inu sem kemur sér vel“ sagði Salvör
Nordal í samtali við Tímann. En
hún hefur haft milligöngu um komu
flokksins hingað.
Salvör sagði að til greina hefði
komið að flokkurinn kæmi á Lista-
hátíð í fyrra. En áður en til þess
kæmi var koma Black Ballet Jazz
fastsett. Á listahátíð hefurvenjulega
aðeins verið fenginn einn dansflokk-
ur og var því komu balletsins frá
Bretlandi frestað.
London City Ballet var stofnaður
1978 og er nú talinn einn fremsti
dansflokkur Bretlands. Dansævin er
að jafnaði mjög stutt og var upphaf-
Beverly Jane Fry og Steven Annegarn, tveir aðaldansara London City Ballet. En þrettán dansarar hópsins sækja
Þjóðleikhúsið heim i lok þessa mánaðar.
legt markmið með stofnun flokksins
að gefa ungum og hæfileikaríkum en
atvinnulausum dönsurum tækifæri
til að spreyta sig áður en það yrði of
seint. Verndari ballettflokksins er
Diana prinsessa af Wales sem hefur
fylgst mjög náið með uppbyggingu
hans. En hún hefur verið mikið
hraðari en búist var við miðað við
stuttan starfsaldur.
Flokkurinn hefur ferðast víða og
hvarvetna notið mikilla vinsælda. Af
þeim þrettán dönsurum sem hingað
koma eru fjórir aðaldansarar ball-
ettsins. Þau eru Jane Sanig, Steven
Annegarn, Beverly Jane Fry og Jack
Wyngaard. Þessir dansarar eiga það
öll sameiginlegt að búa yfir mikilli
reynslu og hafa dansað mörg stærstu
hlutverk klassískra balletta.