Tíminn - 14.03.1989, Síða 12
12 Tíminn
Þriðjudagur 14. mars 1989
í Líbanon
FRETTAYFIRLIT
ÚTLÖND
ísraelskir vel á verði:
Fella þrjá
skæruliða
PEKING - Kínversk yfirvöld
reyna nú aö lægja öldurnar í
Tíbet, en vika er liðin frá því
kínverska lögreglan réöst aö
mótmælendum í Lhasa með
vélbyssuskothríð. Nú segjast
Kínverjar gjarnan vilja ræða
málin við Dalai Lama hinn
andlega leiðtoaa Tíbeta, en
hann er í útlegð í Indlandi.
BEIRUT - Hermenn úr hin-
um klofna her Líbanons og eru
undir stjórn múslíma vörpuðu
sprengju á höfnina i Beirút, en
hana hafa kristnir menn á valdi
sínu. Áður hafði Michel Aoun
leiðtogi kristinna manna aflétt
tveggja daga lokun millilanda-
flugvallarins í Beirút, en músl-
ímar hafa hann á valdi sínu.
KANAVERALHÖFÐI -
Geimskutlan Discovery hélt út
í geiminn með 100 milljón
króna gervihnött, fótbrotnar
mýs og hænuegg innanborðs,
auk áhafnar.
WASHINGTON - Moshe
Arens utanríkisráðherra ísra-
els átti viðræður við James
Baker utanríkisráðherra
J Bandaríkjanna og er það fyrsti
| fundur háttsettra embættis-
manna þessara ríkja eftir að
ríkisstjórn Bush tók við valda-
taumunum. Baker er talinn
ihafa þrýst á Arens um að
ísraelar komi með nýjar og
raunhæfar hugmyndir sem
verði til þess að slaka á spennu
á hernumdu svæðunum. Eins
að ísraela hefji viðræður við
Araba um framtíð mála í mið-
austurlöndum.
KABUL - Afganski stjórnar-
herinn hefur hrundið árásum
skæruliða á borgina Jalalabad
og hrakið þá frá borginni.
Skæruliðar halda þó áfram
linnulausri eldflaugaárás á
borgina. Skæruliðar ætluðu að
ná Jalalabad á sitt vald og
koma þar upp bráðabirgða-
höfuðborq bráðabirgðastjórn-
arinnar. íbúar Jalalabad hafa
, flúið borgina í þúsundavís og
' haldið yfir landamærin til Pak-
i istans.
RIYADH - Saudi-Arabar
hvöttu íslömsk ríki til þess að
í viðurkenna bráðabirgðastjórn
iskæruliða í Afganistan, en
fundur utanríkisráðherra ísl-
amskra ríkja stendur nú yfir í
Riyadh. Saud al-Faisal prins
utanríkisráðherra Saudi-Ara-
bíu opnaði fundinn og minnti á
að málefni Palestínumanna
væru eitt aðaláhyggjuefni ríkja
múslíma. Hann minntist ekki
einu orði á Salman Rushdie
sem gert hefur allt vitlaust hjá
múslímum víða um heim. íran-
ar hafa hvatt til þess að fundur
utanríkisráðherranna taki und-
ir dauðadóm yfir Rushdie.
Franskir kjósendur kusu í sveitarstjórnarkosningum
um helgina:
Sósíalistar halda
fylgi í Frakklandi
Michel Rocard forsætisráðherra
Frakklands ætti að geta glaðst yfir
úrslitum fyrri umferðar frönsku
sveitarstjórnarkosninganna, sem
fór fram á sunnudaginn, því fransk-
ir kjósendur veittu hægri öflunum
í Frakklandi ekki brautargengi, en
oftast hafa stjórnarandstöðuflokk-
ar unnið mjög á í sveitarstjórnar-
kosningum. Síðast gerðist það 1983
þegar sósíalistar guldu afhroð. Nú
bættu sósíalistar nokkuð við sig
miðað við þá og fengu vinstrimenn
svipað fylgi og í þingkosningunum
í fyrra.
Síðari hluti kosninganna fer
fram í næstu viku, en þá verður
kosið um þau embætti bæjarstjóra
þar sem ekki náðust ótvíræð úrslit
nú. Kosningabandalag hægriflokk-
anna sem ekki náði þeim árangri
sem þeir stefndu að hafnaði í gær
samstarfi við Fjóðarbandalagið,
hinn hægrisinnaða öfgaflokk Le
Pens, en Þjóðarbandalagið missti
mikið fylgi, sérstaklega ef miðað er
við kjörfylgi Le Pens í fyrri umferð
forsetakosninganna í fyrra. Því eru
líkur á því að vinstri menn nái enn
betri árangri í síðari umferðinni.
Það voru hins vegar græningjar
sem helst komu á óvart í þessum
kosningum, en þeir náðu víða
lykilaðstöðu í sveitarstjórnarkosn-
ingunum. Er þetta í fyrsta sinn sem
græningjar bjóða fram í kosning-
um. Þá unnu víðs vegar staðbundin
óflokksbundin framboð góða sigra.
Þar sem einn flokkur náði ekki
hreinum meirihluta verður kosið
aftur um næstu helgi eins og áður
segir, en þá geta einungis listar er
hlutu 10% atkvæða eða meira
boðið fram.
BANDARIKJAMENN
VILJA SOVÉTRÍK-
EKKI í GATT
Sovétmenn hafa sýnt áhuga á því
að gerast aðilar að svokölluðu
GATT samkomulagi, en það er
samkomulag um afnám tolla og
viðskiptahindrana sem er einn meg-
ingrunnur frjálsrar verslunar í heim-
inum. Bandaríkjamenn voru ekki
lengi að bregðast við þessum áhuga
Sovétmanna og setja sig harkalega
upp á móti því að Sovétríkin fái
aðild að Gatt.
Það var Ivan Ivanov aðstoðarfor-
stöðumaður Ríkisnefndar Sovétríkj-
anna um erlend efnahagssamskipti
sem skýrði frá þessum áhuga Sovét-
manna á blaðamannafundi í Noregi
í gærmorgun. Ivan sagði að Sovét-
menn hefðu mikinn áhuga á því að
gerast aðilar að Gatt og að stjórn-
völd í Moskvu vonuðust til þess að
samningaviðræður þessa efnis gætu
hafist innan tveggja ára.
Ivan sagði að viðræður gætu hafist
eftir að endurskipulagning sovéska
hagkerfisins hefði gengið yfir, en
það yrði að líkindum síðari hluta
ársins 1991.
Eins og áður sagði voru Banda-
ríkjamenn ekki lengi að bregðast við
þessum hugmyndum Sovétmanna:
- Afstaða ríkisstjórnar Bandartkj-
anna er sú að Sovétríkin hafa ekki
efnahagskerfi sem gengur innan
GATT, sagði Clayton Yeutter land-
búnaðarráðherra Bandaríkjanna í
fjölmiðlum vestanhafs í gær.
Þó flest hinna 96 aðildarríkja
GATT séu með kapftalísk eða
blönduð hagkerfi þá er þar að finna
kommúnistaríki eins og Kúbu,
Tékkóslóvakíu, Ungverjaland,
Pólland. Rúmeníu og Júgóslavíu.
Norðmenn hætta
útflutningi
á þungu vatni
Norðmenn hafa nú ákveðið að
hætta algerlega útflutningi á þungu
vatni enda hefur hvert söluhneykslið
af öðru sett ríkisstjórn landsins í
vandræði að undanförnu. Þungt vatn
er nauðsynlegt til að smíða kjarna-
sprengju.
Það var talsmaður norska utanrík-
isráðuneytisins sem skýrði frá þess-
ari ákvörðun sem ríkisstjórnin tók á
fundi sínum á föstudaginn. Sagði
hann að einungis yrði leyfður út-
flutningur á örsmáum skömmtum til
rannsóknarstarfa, en ekki það mikið
ísraelskir hermenn drápu þrjá
skæruliða í suðurhluta Líbanon í
gær. Skæruliðamir voru komnir al-
veg upp að landamærunum að Israel
þegar hermenn urðu þeirra varir.
Skæruliðar hafa ekki komist svo
nærri landamærunum síðan Arafat
fordæmdi öll hryðjuverk í desember-
mánuði.
ísraelski herinn hafði ekki endan-
lega borið kennsl á skæmliðana sem
voru drepnir í bardaga við þorpið
Meiss aj-Jabal sem er aðeins 1 km
frá landamærunum.
Árásin er að minnsta kosti sú
fimmta sem gerð er við landamæri
ísrael frá því Arafat gaf út yfirlýs-
ingu sína í því skyni að brjótast út
úr þrettán ára einangmn Frelsissam-
taka Palestínu frá stjórnvöldum í
Bandaríkjunum.
Bush finnur mann í stað
Johns Tower:
Cheney varnar-
málaráðherra?
George Bush var ekki lengi að
velja sér nýtt varnarmálaráðherra-
efni eftir að öldungadeild Banda-
ríkjaþings hafnaði John Tower fyrir
helgi. Á laugardaginn kynnti hann
hinn nýja kandídat, Dick Cheney,
en hann á sæti í fulltrúadeild Banda-
ríkjaþings fyrir repúblikana í Wy-
oming.
Þó demókratar hafi unnið orrnst-
una um John Tower eru allar líkur á
því að það hafi verið tvíbentur sigur
þar sem almenningsálitið hafi snúist
gegn þeim vegna harkalegra aðfara
að einkalífi Towers.
magn að hægt væri að nota það til
kj arnorkusprengj usmíði.
Norðmenn hafa að undanförnu
reynt að finna út hvar 15 tonn af
norsku þungu vatni væru niðurkom-
in, en það var að líkindum flutt
ólöglega frá Sviss til Indlands. Þá
vita þeir ekki hver urðu endanleg
örlög 20 tonna af þungu vatni sem
ísraelar keyptu á sínum tíma. ísrael-
ar neita því að vatnið hafi verið
notað í kjarnorkusprengju en neita
Norðmönnum um upplýsingar varð-
andi það hvar vatnið sé niðurkomið.
Suður-Afríka:
Botha ríg-
heldur í for-
setastólinn
P.W. Botha ætlar að sitja sem
fastast í forsetastólnum í Suður-
Afríku þrátt fyrir að flestir þing-
menn Þjóðarflokksins hafi skor-
að á hann að segja af sér vegna
heilsubrests. Botha fékk hjarta-
áfall fyrir stuttu, en hann er 73
ára að aldri.
Botha er staðráðinn í að sitja
út kjörtímabil sitt sem lýkur í
mars á næsta ári. Hann sagði þá
afstöðu flokksmanna að vilja láta
hann hætta nú vera til þess fallna
að grafa undan stjórnmálum í
Suður-Afríku.
Það voru 120 af 133 þingmönn-
um Þjóðarflokksins sem skrifuðu
undir áskorun á Botha um að
hann léti af forsetaembættinu svo
að F.W. de Klerk formaður
flokksins gæti tekið við stjórnar-
taumunum. De Klerk var kjörinn
formaður flokksins í febrúar eftir
að Botha hafði afsalað sér þeirri
stöðu vegna heilsubrestsins.
Helstu leiðtogar Þjóðarflokks-
ins á þingi hafa krafist þess að
sérstakur fundur verði haldinn í
miðstjórn flokksins á mánudag til
að fá Botha frá völdum og koma
de Klerk í forsetastólinn.
ISPENNUM
i BELTIN
sjálfra okkar
vegna!