Tíminn - 14.03.1989, Qupperneq 13
Þriðjudagur 14. mars 1989
Tíminn 13
llllllll. ÚTLÖND líll
Fyrrum forseti Suður-
Kóreu í yfirheyrslur
Chun Doo Hwan fyrrum forseti t.h. fagnar Roh Tae-Woo núverandi forseta
Suður-Kóreu. Fögnuður Chun hefur eflaust dvínað því nú þarf hann að mæta
fyrir rannsóknarnefnd sem kannar spillingu hans til þess að losa Roh út úr
stjórnmálalegri klípu.
Það kom að því að Chun Doo
Hwan fyrrum forseti Suður-Kóreu
gaf sig og féllst á að bera vitni í
sérstakri rannsóknarnefnd þingsins
sem rannsaka á hvort forsetinn hafi
misnotað sér vald sitt þau átta ár sem
hann sat í valdastól. Með þessu mun
Chun að líkindum leysa alvarlegan
hnút sem verið hefur í stjórnmálum
í Suður-Kóreu, en stjórnarandstað-
an þar hefur krafist þess að hann
standi fyrir máli sínu. Var það farið
að há þingstörfum meirihlutans og
núverandi forseta landsins Roh Tae-
Woo sem tók við af Chun.
Stjórnarandstaðan heldur því
fram að Chun hafi komið af stað
uppreisn sem kennd er við Kwangju
svo hann hefði átyllu til þess að taka
völdin með hervaldi. Tvöhundruð
manns féliu í þeim átökum. Auk
þess er Chun sakaður um spillingu.
Andstaðan gegn Chun var svo
hatrömm í haust að hann varð að
fara í útlegð frá Seoul og dvelur nú
í rólegheitum úti á landi. Þá féllst
hann ekki til að vitna, en þrýstingur
flokksmanna Chun hefur nú fengið
hann til að gefa eftir.
í næsta mánuði á þingið að greiða
atkvæði um embættisferil Roh Tae-
Woos forseta til þessa svo og um
stefnuskrá hans á næstunni. Líkur
voru á því að Roh hefði farið illa út
úr slíkri atkvæðagreiðslu ef Chun
hefði ekki gefið sig.
El Salvador:
Hermenn framseldir
fyrir grimmdarverk
Herinn í E1 Salvador hefur viður-
kennt að hafa myrt tíu óvopnaða
bændur og ætlar að framselja ellefu
hermenn, þar af tvo liðsforingja, til
borgaraiegra yfirvalda sem munu
rétta í máli þeirra.
Þessi ákvörðun er tímamóta-
ákvörðun, því hingað til hafa liðsfor-
ingjar í her E1 Saivador aldrei þurft
að svara til saka fyrir borgaralegum
dómstól vegna morða og hroðaverka
í borgarastyrjöldinni í El Salvador.
Hefur herinn ætíð komist upp með
það að segja morð á sakiausu fólki
vera framin í bardaga gegn skærulið-
um.
Bændurnir tíu voru myrtir í þorp-
inu San Francisco. Dan Quayle vara-
forseti Bandaríkjanna tók það upp
er hann heimsótti El Salvador í
febrúarmánuði þegar hann varaði
yfirstjórn hersins í E1 Salvador við
því að Bandaríkjamenn myndu
endurskoða stuðning sinn við her og
stjórnvöld Salvador ef mannréttindi
yrðu ekki bætt.
- Dauði bændanna var ekki af-
leiðing umsáturs um hryðjuverka-
menn eins og þeir sem fyrir morðun-
um stóðu tilkynntu yfirboðurum
sínum. Mauricio Beltran de Grana-
dos yfirliðsforingi ber ábyrgðina,
sagði í yfirlýsingu hersins.
Vestur-Þýskaland:
Hægri öfgaflokkar
styrkjast verulega
Sífellt stærri hluti Vestur-Þjóð-
verja virðist nú vera að hallast
heldur betur til hægri. Skemmst er
að minnast góðs árangurs nýnasista
í kosningunum í Vestur-Berlín.
Þessum góða árangri var fylgt eftir
um helgina þegar sveitarstjórnar-
kosningar fóru fram í Hessen. Þar
náðu öfgafullir hægriflokkar góðum
árangri. Hinn Kristilegi Demókrata-
flokkur Helmut Kohls kanslara beið
hins vegar afhroð í kosningunum.
Þjóðlegi lýðræðisflokkurinn sem
er öfgafullur hægriflokkur og sá
hægrisinnaðasti sem leyfður var í
Vestur-Þýskalandi þar til nýnasistar
fengu að starfa undir merkjum Lýð-
veldisflokksins árið 1985, náði mestu
fylgi í Frankfurt þar sem hann hlaut
6.6% atkvæða. Þetta fylgi fékk hann
út á gegndarlausan áróður gegn
útlendingum líkt og Lýðveldisflokk-
urinn í Vestur-Berlín beitti. Lýð-
veldisflokkurinn bauð hins vegar
ekki fram nema á nokkrum stöðum.
Flokkurinn fékk yfirleitt ágæta út-
komu, sumstaðar allt að 10% at-
kvæða.
Kristilegir demókratar sem hafa
átt borgarstjóra Frankfurt í tólf ár
misstu nú meirihluta sinn f
Frankfurt. Flokkurinn hlaut 35%
atkvæða en hlaut 50% í síðustu
kosningum.
Jafnaðarmenn hlutu hins vegar
góða kosningu. Flokkurinn fékk að
jafnaði 45% atkvæða í Hessen.
Græningjar hlutu 9% að meðaltali
og hafa þessir tveir flokkar nú meiri-
hluta í Frankfurt. Því gæti svo farið
að fleiri „rauðgrænar" samsteypu-
stjórnir sjái dagsins Ijós í Vestur-
Þýskalandi, en jafnaðarmenn og um-
hverfissinnar mynduðu slíka í Vest-
ur-Berlín í síðustu viku.
Einbýlishús
- Til sölu
Ríkissjóður leitar eftir kauptilboðum í fasteignina
Safamýri 18 í Reykjavík. Húsið er 2 hæðir og
kjallari, u.þ.b. 290 fermetrar að stærð.
Tilboð óskast send eignadeild fjármálaráðuneytis-
ins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, í lokuðu umslagi,
merkt „Tilboð-Safamýri“, fyrir kl. 17.00 miðviku-
daginn 22. mars 1989.
Fjármálaráðuneytið, 13. mars 1989.
Kópavogur - Garðabær -
Seltjarnarnes
Jóhann Einvarðsson, alþingismaður, verðurtil
viðtals:
1. Kópavogi miðvikudaginn 15. mars kl. 18.00
að Hamraborg 5.
2. Garðabæ og Bessastaðahreppi miðviku-
daginn 15. mars kl. 20.30 í Framsóknar-
húsinu, Garðatúni 2.
3. Seltjarnarnesi fimmtudaginn 16. mars kl.
20.30 í Félagsheimili framsóknarmanna,
Eiðistorgi 17.
K.F.R.
Jóhann
LEKUR ER HEDDID
BLOKKIN? SPRUNGID?
Viðgerðir á öllum heddum og blokkum.
Plönum hedd og blokkir - rennum ventla.
Eigum oft skiptíhedd í ýmsar gerðir bifreiða.
Viðhald og viðgerðir á iðnaðarvélum - járnsmíði.
Vélsmiðja Hauks B. Guðjonssonar
Súðarvogi 34, Kænuvogsmegin — Sími 84110
/gjk
Aðalfundur mk fej
®q ý*'
Aðalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
verður haldinn miðvikudaginn 15. mars, kl. 20.30
að Hótel Sögu, Átthagasal.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
t Faðir okkar Þorgrímur Maríusson Höfðabrekku 16, Húsavík
andaðist á Sjúkrahúsi Húsavíkur 12. mars.
Brynja Þorgrímsdóttir Guðrún Þorgrímsdóttir
Skjöldur Þorgrímsson María Þorgrímsdóttir
Helga Þorgrímsdóttir Jónína Þorgrímsdóttir
Sigurbjörn Þorgrímsson Sigrún Þorgrímsdóttir Steinunn Þorgrímsdóttir
t
Eiginmaður minn
Þorgeir Þorleifsson
Byggöarholti 21
Mosfellsbæ
lést 12. mars á Borgarspítalanum.
Þorgerður Jónsdóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
Maríu Emilíu Albertsdóttur
frá Sléttu,
Hraunbraut 14, Kópavogi
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn