Tíminn - 14.03.1989, Page 20
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 —686300
RlKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Halnarhúsinu v/Tryggvagölu,
S 28822
„LÍFSBJÖRG f NORDURHÖFUM"
v?> Útvegsbankinn Seltj.
VHRÐBRlffllftfiSKIF'TI Gíró—1990
SAMVINNUBANKANS SUÐURLANOSBRAUT 18, SÍMi: 683568 Gegn náttúruvernd á villigötum
Asr0
ÞRÚSTUR
685060
VANIR MENN
Tíminn
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 1989
ifciHilMii iiii'iMlWHWlWM
Starfsfólk fullyrðir í einkasamtölum að húsnæðiskerfið leiti jafnvægis:
Upplýsingar kyrrsettar
hjá Húsnæðisstofnun
Starfsmönnum Húsnæöisstofnunar þykir sumum hverj-
um hart að þurfa aö horfa upp á núverandi húsnæðiskerfi
lagt í rúst á fölskum forsendum - þ.e. stöðugum
yfirlýsingum um að allt sé það krosssprungið og ónýtt - á
meðan þeim er svo harðbannað að skýra frá þeirri
vitneskju, sem fyrir liggur í stofnuninni og gefur allt annað
til kynna. Af þeim upplýsingum má ráða að kerfið sé síður
en svo sprungið, heldur sé þvert á móti að komast í
jafnvægi, þannig að biðtími eftir lánum geti jafnvel farið
að styttast á ný áður en langt um líður, svo framarlega að
ekki verði því meira fjármagn tekið af Byggingarsjóði
ríkisins. Með því að fínpússa núverandi lög svolítið frekar
mætti svo gera núverandi kerfí ennþá virkara.
Hvað varðar lánsumsóknir er árlega. Þeir sem sækja um lán
staðan nú þannig að fjöldi
(virkra) óafgreiddra lánsum-
sókna er kominn niður í um
5-6.000. Og fjöldi nýrra lánsum-
sókna niður í um 300 á mánuði,
sem er álíka fjöldi og ráð var fyrir
gert í upphafi og álíka fjöldi og
stofnunin ræður við afgreiðslu á
þessa dagana til kaupa á fyrstu
íbúð geta búist við að fá lánslof-
orð í hendur eftir u.þ.b. hálft
annað ár og fyrri hluta lánsins
borgaðan út eftir 2 til 2 og 1/2 ár.
Þeir sem eiga íbúð fyrir bíða um
hálfu ári lengur.
Fjöldi lánsumsókna er rúmlega
300 að meðaltali á mánuði s.l.
hálft ár. Öfugt við það sem ýmsir
höfðu spáð að þeim mundi fara
fjölgandi á ný í byrjun þessa árs,
reyndust nýjar umsóknir rúmlega
300 talsins nú í janúar og febrúar.
Af rösklega 17.000 umsóknum
sem borist hafa frá því kerfið tók
gildi fyrir tveim og hálfu ári, eru
rúmlega 7.000 umsækjendur þeg-
ar búnir að fá lán annað hvort allt
eða fyrrihluta láns. Þar við bætast
á 3. þúsund sem þegar hafa
fengið í hendur lánsloforð með
ákveðinni dagsetningu og fjár-
upphæð sem greidd verður út á
þessu ári, þannig að um 10.000
umsóknir hafa þegar fengið af-
greiðslu á rúmlega tveim árum.
Það eru því um 7.000 umsóknir
sem nú bíða afgreiðslu. Af þeim
er talið að reikna megi með um
25% afföllum, þannig að óaf-
greiddur biðlisti sé raunverulega
ígildi um 5-6.000 fullgildra lána.
Þessi afföll skiptast í þrjá
höfuðflokka. Um 2-5% detta út
vegna þess að umsækjendur eiga
ekki lánsrétt þegar að er gáð,
annað hvort vegna ófullnægjandi
greiðslu í h'feyrissjóð eða að þeir
hafa ekki nægar tekjur. Síðan eru
2-3% umsækjenda sem fá láns-
loforð en nýta sér ekki lánarétt-
inn og falla því út. Stærsti hlutinn
er svo vegna fólks sem fær loforð
um fullt lán en getur ekki nýtt
það nema að hluta vegna þess að
það kaupir íbúðir með áhvílandi
eldri lánum frá stofnuninni - oft
á bilinu 500 til 700 þúsund - sem
þá dragast frá nýja láninu.
Annað atriði sem bendir til
jafnvægis og stöðugleika er það,
að stærri og stærri hluti umsókna
er frá fólki sem búið er að
skipuleggja fram í tímann, frem-
ur en að því sé sérstakt kappsmál
að fá lár.ið sem allra fyrst. Þetta
fólk hefur sett sér markmið um
sparnað og síðan íbúðarkaup á
ákveðnum tíma og leggur inn
lánsumsókn í samræmi við það.
I ljósi þess að íbúðakaup eru
jafnan lang stærstu framkvæmdir
sem almenningur leggur í á lífs-
leiðinni hefur starfsmönnum
Húsnæðisstofnunar hins vegar
þótt það í meira lagi hlálegt hve
fjöldi lánsumsókna hefur oft
stjórnast mikið af fjölmiðlaum-
ræðunni.
Einna broslegasta dæmið um
þetta var í kosningabaráttunni
1987, sem framan af snérist að
stórum hluta um húsnæðismál,
og umsóknir streymdu inn í stríð-
um straumum. Síðan upphófust
Albertsmál og yfirskyggðu flestar
fréttir aðrar - og um leið duttu
niður umsóknirnar í Húsnæðis-
stofnun. -HEI
Lausn fengin á deilum stjórnarflokkanna
um skipan húsnæöismála?
BOLHNN HJÁ
ALLABÖLLUM
Húsnæðismál voru rædd á þing-
flokksfundum stjórnarflokkanna í
gær. Eftir stíf fundahöld fulltrúa
Framsóknarflokks og Alþýðuflokks
um helgina og t' gærdag var sæst á að
borin skyldi upp málamiðlunartil-
laga við þingflokkana. Þingflokkar
beggja flokka hafa sæst á tillöguna,
þó með fyrirvara. Er blaðið fór í
prentun í gær hafði þingflokkur
Alþýðubandalagsins ekki enn tekið
afstöðu til málsins.
Helsta breyting frá þeirri mála-
miðlun sem framsóknarmenn settu
fram í síðustu viku er að ráðstöfun-
arfé húsbréfadeildarinnar hefur ver-
ið aukið úr 500 m. kr. í 16.000 m. kr.
Þingflokkur Alþýðubandalagsins
hafði fyrir fund í gærkveldi ekki gert
upp hug sinn, hvorki varðandi frum-
varpsdrög Jóhönnu Sigurðardóttur
félagsmálaráðherra um húsbréfa-
kerfi, né þær málamiðlanir sem
framsóknarmenn hafa lagt fram.
í þeirri málamiðlunartillögu sem
lögð var fram í gær var lagt til að
húsbréfakerfi yrði reynt samhliða
núverandi húsnæðislánakerfi og þá
sem deild í Húsnæðisstofnun ríkis-
ins. Kaupskylda lífeyrissjóðanna á
skuldabréfum verði 55%, eða
óbreytt. 10% af því fé, 16.000 m.
kr., verði veitt í húsbréfadeildina og
verði vextir á húsbréfum aldrei hærri
en á skuldabréfum ríkissjóðs. Upp-
hæðin sem veitt er í húsbréfadeildina
verði endurskoðuð að hálfu ári
liðnu. Tilraun með húsbréfakerfi til
hliðar við núverandi kerfi verði
reynd í tvö ár, en tekin þá til
endurskoðunar. Fyrra árið taki hús-
bréfaviðskipti einungis til kaupa á
eldra húsnæði, en seinna árið verði
heimild til að lána til nýbygginga ef
rétt þyki. Þeir sem eru á biðlista hjá
Húsnæðisstofnun nú gangi fyrir
fyrstu sex mánuðina. Þá hefur verið
sett inn sú breyting frá upphaflegum
málamiðlunartillögum framsókn-
armanna að húsbréf skuli meðhöndl-
uð skattalega séð á sama hátt og
skuldabréf ríkissjóðs.
Ekki náðist í þingmenn Alþýðu-
bandalags í gærkvöld, en eftir þing-
flokksfund fundaði framkvæmda-
;stjórn flokksins og var afstaða Al-
: þýðubandalagsins eitt af þeim mál-
um er þar voru tekin fyrir. -ág
Fyrsti samningafundur ASÍ og VSÍ fór fram í gær. Niðurstöður
fundarins urðu þær að vinnuveitendur höfnuðu algerlega öllum hugmynd-
um ASÍ um kauptryggingarákvæði í komandi kjarasamningum. Viðræð-
urnar snúast því um skammtímasamninga til haustsins að kröfu ASÍ en
VSÍ hefur ekki útilokað þann möguleika. Næsti fundur aðilanna verður
á fimmtudag. — ABÓ Tímamynd Árni Bjarna.
Þyrla Gæslunnar
í sjúkraflug:
Varðfyrir
fjórhjóli
Eldri maður varð fyrir fjórhjóli á
sumarbústaðalandi f Grímsnesinu
síðdegis í gær og fótbrotnaði. Vegna
ófærðar þurfti að kalla til þyrlu
Landhelgisgæslunnar, til að flytja
manninn á sjúkrahús.
Vegna mikillar ofankomu og ís-
ingar á flugleiðinni frá Reykjavík til
Grímsness þurfti þyrlan að sneiða
fram hjá henni við Krísuvík, á
leiðinni austur. Þegar fljúga átti til
baka hafði snjókoman magnast enn
frekar og flugleiðin með öllu lokuð
og þurfti þyrlan að fljúga á haf út til
að komast fram hjá ofankomunni.
Flugið tók um einn og hálfan tíma
en við eðlilegar aðstæður hefði það
tekið um 45 mínútur. Komið var
með manninn á slysadeild Borgar-
spítalans skömmu fyrir klukkan sex.
- ABÓ
Slegist á bílastæði
Til átaka kom milli tveggja manna
á bílastæðinu fyrir framan Heklu við
Laugaveg um fimmleytið í gærdag.
Lögreglan var kvödd á staðinn og
hafa mennirnir kært hvor annan
fyrir skemmdir á fatnaði.
Forsaga málsins er sú að 24 ára
gamall Kópavogsbúi og 35 ára gam-
all Garðbæingur hittast á bílastæð-
inu við Heklu. Kópavogsbúinn hafði
að mati Garðbæingsins ekki lagt
bifreið sinni nægjanlega vel og hindr-
að þannig brottför hans úr stæði í
portinu við Heklu.
Til orðahnippinga kom milli
mannanna og síðan handalögmála,
sem enduðu með því að lögreglan
var kvödd á staðinn vegna fata-
skemmda. Mennirnir hafa kært hvor
annan fyrir skemmdir á fatnaði.
- ABÓ