Tíminn - 22.03.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 22. mars 1989
Lifandi brandugla
fannst við Lögberg
Brandugla, sem vegfarandi fann
fyrir ofan Lögberg á laugardag er
nú í vörslu Náttúrufræðistofnunar.
Ævar Petersen fuglafræðingur
sagði í samtali við Tímann að í
sjáll'u sér væri það ekkert óeðlilegt
að brandugla finnist hér á landi,
enda væru þetta staðfuglar sem
verptu hérlendis, en hins vegar
fyndust þær ekkert allt of oft og
allra síst lifandi.
Komið var með ugluna til lög-
reglunnar í Árbæ, en sá sem fann
hana og tók hana með sér, sagði að
hrafnar hefðu verið að gera aðsúg
að henni. Ævar sagði að uglan væri
sködduð á væng og því hefðu þeir
tekið hana að sér. Það yrði síðan
bara að koma í Ijós hvort mögulegt
væri að bjarga henni, en ef ekki þá
yrði að svæfa hana. - ABÓ
Samband ungra framsóknarmanna lýsir áhyggjum sínum
yfir fyrirsjáanlegu atvinnuleysi ungs fólks:
Sveitarfélög skapi
skólafólki atvinnu
Atvinnumál ungs fólks bar á góma á miðstjórnarfundi Sambands
ungra framsóknarmanna sem haldinn var í Viðey á laugardag.
Samþykkti fundurinn sérstaka ályktun þar sem lýst er áhyggjum yfir
slæmum sumaratvinnuhorfum skólafólks og skorað á sveitarfélög að
veita fjármagni í sérverkefni er skapi skólafólki atvinnu n.k. sumar.
- Það er ljóst að stórir hópar
skólafólks munu verða atvinnulausir
í sumar verði ekkert að gert, sagði
Hallur Magnússon formaður ungra
framsóknarmanna í Reykjavík.
Af þessu höfum við þungar
áhyggjur. Þetta hefur einnig verið
rætt í borgarmálaráði Framsóknar-
flokksins í Reykjavík, enda var
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi
okkar framsögumaður þegar
minnihlutinn í borgarstjórn lagði til
við fjárhagsáætlun að fjárframlög til
Vinnuskóla Reykjavíkurborgar yrði
aukið í stað þess að úr því yrði
dregið, eins og sjálfstæðismenn
lögðu til og raunin varð á.
- Nú er ljóst að ástandið í atvinnu-
málum skólafólks sem komið er yfir
þann aldur sem vinnuskólinn tekur
við, er mjög slæmt. Því höfum við í
borgarmálaráði Framsóknarflokks-
ins komist að þeirri niðurstöðu að
borgarstjórn bcri skylda til að veita
muyndarlegri aukafjárveitingu til
framkvæmda þar sem vinnuafl skóla-
fólks nýtist og skapi þannig atvinnu-
tækifæri. Ef mikið atvinnuleysi verð-
ur meðal skólafólks fylgja því alvar-
leg samfélagsleg vandamál. Það hef-
ur sýnt sig í nágrannalöndunum.
- Þetta vandamál ríkir víðar en á
höfuðborgarsvæðinu og því miður
eru staðir þar sem fullvinnandi fólk
gengur atvinnulaust. Það gengur fyr-
ir með atvinnu að sjálfsögðu. En þar
sem sveitarfélög hafa bolmagn til er
það að mati okkar ungs framsóknar-
fólks skylda þess að skapa atvinnu-
tækifæri. Næg eru verkefnin, sagði
Hallur. - AG
Jón Helgason alþingismaður sakar starfs-
bræður sína um hugsunarleysi og skammsýni:
Ríkið hætti
að veita vín
Þeir sem reka meðferðar-
stofnanir hér á landi telja að
samkvæmt fenginni reynslu,
að næstum þriðji hver ferm-
ingardrengur ársins 1988
muni fara í áfengis- eða vímu-
efnameðferð áður en hann
nær sjötugu. Þetta kom fram
í ræðu Jóns Helgasonar í
sameinuðu Alþingi í gær, þar
sem hann veittist harðlega að
starfsbræðrum sínum á þingi
fyrir andvaraleysi í áfengis-
málum.
Jón Helgason er fyrsti flutnings-
maður að þingsályktunartillögu um
að dregið verði úr vínveitingum á
vegum ríkisins, með það fyrir augum
að þær verði afnumdar á næstu þrem
árum. Jón mælti fyrir tillögu sinni í
gær og sagðist vona að aðgerðir og
aðgerðarleysi alþingismanna í áfeng-
ismálum á undanförnum árum sem
leitt hefðu til þess ástands er nú ríkti
í þjóðfélaginu, stöfuðu ekki af öðru
en hugsunarleysi og skammsýni.
Orðrétt sagði Jón: „Hér á hátt-
virtu Alþingi fer mestur tími í um-
ræðu um efnahagsmál og skal síst úr
því dregið að það bíða okkar mörg
og erfið verkefni. En þessi tala um
sjúkrarými sem ég nefndi um af-
leiðingar áfengisneyslu ætti að nægja
til að sannfæra alla um það hversu
gífurlegar efnahagslegar afleiðingar
áfengisneyslan hefur fyrir þjóðfélag-
ið. I mínum huga er þó hinn mann-
legi harmleikur margfalt meira mál.
En hvoru tveggja er svo miklu
alvarlegra mál en það, að meirihluti
háttvirtra alþingsmanna geti haldið
Gissur Pétursson formaður SUF:
Hvar er vaxta-
lækkunin?
„Menn spyrja mjög eftir
vaxtalækkuninni sem núverandi
stjórnvöld hafa boöaö af krafti“
sagði Gissur Pétursson formað-
ur SUF þegar hann var inntur
frétta af miðstjórnarfundi SUF
sem haldinn var í Viðey nú um
helgina.
„í almennu umræðunum um
stjórnmálaviðhorfið og við samn-
ingu stjórnmálaályktunarinnar kom
í Ijós mikil óánægja innan okkar
hóps með framgöngu stjórnvalda í
vaxtamálunum. Við höfum marg-
bent á nauðsyn lægri vaxta en virð-
umst hafa talað fyrir mjög daufum
eyrum. Enda eru atvinnufyrirtækin
komin að fótum fram. Þessi ríkis-
stjórn er ákaflega óstyrk vegna þess
hversu veikan meirihluta hún hefur
á þingi. Nái hún hins vegar ekki
saman um jafn þýðingarmikið mál
eins og að knýja niður vexti þá sér
maður ekki tilganginn í þessu stjórn-
arsamstarfi," sagði Gissur.
Gissur sagði þetta hafa verið góð-
an og málefnalegan fund.
- „Það var samþykkt þarna athygl-
isverð ályktun um atvinnuhorfur
skólafólks þar sem við hvetjum sveit-
arfélögin til að gera sérstakt átak í
atvinnuskapandi verkefnum fyrir
skólafólk í sumar því útlitið er afar
dökkt á þeim vettvangi".
Sérmál fundarins voru bygging
varaflugvallar og bygging nýs álvers,
en þessi tvö mál hafa verið mikið í
umræðunni að undanförnu. Albert
Jónsson framkvæmdastjóri Öryggis-
Gissur Pétursson.
málanefndar fjallaði um varaflug-
völlinn og Guðmundur G. Þórarins-
son alþingismaður um nýtt álver.
„Það eru vitaskuld skiptar skoðanir
um þessi mál en í ályktun um
varaflugvöllinn sem samþykkt var
segir að SUF sé mótfallið frekari
útfærslu á umfangi varnarliðsins hér
á landi sem bygging varaflugvallar
óneitanlega er, verði hann greiddur
út mannvirkjasjóði NATÖ. Hins
vegar telur SUF að lenging flug-
brautanna á Egilsstöðum eða Sauð-
árkróki í 2700 metra fullnægi öllum
öryggiskröfum fyrir almennt far-
þega- og flutningaflug og þá fram-
kvæmd eigum við að borga úr eigin
vasa“ sagði Gissur Pétursson for-
maður SUF. - ÁG
Jón Helgason vill ekki trúa því að
háttvirtir alþingismenn hafi Iátið
áfengið svæfa samvisku sína.
áfram að kynda undir þá elda sem
þar brenna. Ég vil ekki trúa því að
meirihluti alþingismanna hafi látið
áfengi svo svæfa samvisku sína að
þeir vilji ekki rétta æskunni hjálpar-
hönd til að sleppa frá þeim örlögum.
Að þeim finnist það ekki meira virði
en það sem þeir hingað til hafa talið
svo mikið hnoss, að fá vínveitingar
fyrir ekki neitt á opinberum fundum
og mannfagnaði þegar kostur gefst
á“.
Þá vék Jón einnig að markmiði
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar að draga úr áfengisneyslu um
25% á næsta áratug. Ef slíkt mark-
mið ætti að nást þyrfti öflugt átak og
mikið starf. Ekki síst vegna tilkomu
bjórsins hér á landi, sem gjarnan
stæði við hliðina á mjólkinni og
ávaxtasafanum í ísskápnum. - ág