Tíminn - 22.03.1989, Blaðsíða 20
AUGLYSINGASIMAR:
1 —1
1
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Halnarhúsinu v/Tryggvogölu,
S 28822
.g*n*^0kkarÞ9'
UtRÐBBÉFflVIÐSKIPTI
SAMVINNUBANKANS
SUÐURLANDSBRAUT 18, SlMI: 688568
„LÍFSBJÖRG í
NORÐURHÖFUM"
Útvegsbankinn Seltj.
Gíró—1990
Gegn náttúruvernd
á villigötum
:MOl0IUS^Ö,
ÞRÖSTUR
685060
VANIR MENN
Tíniimi
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 1989
Lagmetisframleiðendur fá aukið fjárframlag til að sinna
betur gæðamálum sínum:
Aldi kaupir enn
Þrír af stærstu kaupendum Sölusamtaka lagmetisiðnaöar-
ins í Vestur-Þýskalandi, Aldi-verslanirnar og Rewe-Leibb-
rand, kaupa ennþá lagmeti frá íslandi þrátt fyrir yfirlýsingar
á opinberum vettvangi um að þeir hafi neyðst til að hætta
innkaupum vegna mótmælaaðgerða Grænfriðunga gegn
hvalveiðum íslendinga.
sem allar eru í V-Þýskalandi og áttu
áður mismikil viðskipti við SL.
Það koro einnig frá á áðurnefnd-
um blaðamannafundi að það sé ekki
rétt að gæðavandantál sé ástæða
þess að tilkynnt var um „riftun"
áðurnefndra sölusamninga, eins og
fram hafi komið í viðtölum við
alþingismanninn Jón Sæmund Sigur-
jónsson í Tímanum ogljósvakamiðl-
um. Sagði Víglundur Þorsteinsson,
formaður FÍI, að um frásagnir al-
þingismannsins af samtölum sínum
við forsvarsmenn Aldi, gilti íslenska
máltækið „ólyginn sagði mér“. Vildi
Víglundur hins vegar ekki bera
brigður á ummæli Jóns Sæmundar á
annan hátt en þann að öll bréfaskipti
SL og Aldi snúist um vandamál Aldi
vegna mótmæla Grænfriðunga, en
ekki gæðavandamál.
SL hefur nú gert opinbert að um
5% allrar rækjusölu SL til V-Þýska-
lands á síðasta ári, hafa verið endur-
send vegna galla eða vandamála á
sviði gæðamála eða sitja föst á
ýmsum stöðum í sölukerfinu vegna
slíkra mála. Talsverður hluti þess
telst þó ekki til gallaðrar vöru og
verður að lokum flokkaður frá til
sölu á þessum markaði.
Nú hefur verið ákveðið að auka
verulega framlag úr Þróunarsjóði
lagmetisiðnaðarins til gæðaeftirlits
og gæðaþróunar. Það byggist á
ákvörðun starfshóps þriggja ráðu-
neyta um vandamál lagmetisiðnað-
arins, er nýlega tók til starfa. Einnig
hefur verið ákveðið að efla samstarf
opinberra aðila og SL í markaðsmál-
um til að leita á markvissan hátt að
frekari markaði fyrir lagmeti í öðr-
um löndum en V-Þýskalandi, þar
sent hópurinn hefur komist að þeirri
niðurstöðu að of mikil áhætta fylgi
því að binda viðskipti að mestu við
eina þjóð.
KB
Fulltrúar SL og íslenskra iðnrekenda á fundinum í gær. Tímamynd: Árni Bjama
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi sem SL hélt í samstarfi við
Félag íslenskra iðnrekenda í gær um
sölu- og gæðamál.
Ástæða þess að Aldi suður og
Aldi norður kaupa ennþá rækju af
íslenskum framleiðendum er sú, að
sögn Theódórs S. Halldórssonar
framkvæmdastjóra SL, að hægt hef-
ur verið að höfða til viðskipta um
langan tíma. Nú hafi þegar tekist að
fá Aldi suður til að taka við allri
þeirri framleiðslu sem um hafði
verið samið, þrátt fyrir riftun þessara
samninga. Þannig eru Aldi suður
búnir að taka við vöru sem fólst í
samningi fram til loka maí og upp-
fylla kaupsamning sinn við SL. Enn
standa yfir samningar við Aldi norð-
ur um svipaða afgreiðslu á þessu
vandamáli, en samningarnir sem rift
var af þeirra hálfu náðu fram í júlí á
þessu ári. Að auki hefur tekist að
halda sölu þeirri sem búið var að
semja urn við Rewe-Libbrand-versl-
unina í V-Þýskalandi, sem er átt-
unda stærsta verslanakeðja Evrópu.
Sala hefur hins vegar stöðvast
alveg við verslanirnar Tengelmann,
Edeka, Karstadt, Co-op og Kafhof,
Akraborgin á siglingu með opinn skut? Tímamynd: Árni Bjarn
Akraborgin:
Opið að aftan?
Meðfylgjandi mynd var tekin í fyrradag, rétt fyrir kl. 19:00 er
Akraborgin var á siglingu miðja vegu milli Reykjavíkur og Akraness. Af
myndinni að dæma bendir allt til þess að farist hafi fyrir að loka skutnum,
en áður en lagt er frá bryggju á að loka bíladekkinu með hlera sem fclldur
er fyrir innkeyrsluna.
Helgi Ibsen, framkvæmdastjóri Skallagríms, sagði í samtali við Tímann
í gærkvöldi, að ef þetta væri tilfellið, að skipið hafi verið opið, þá kynni
hann engar skýringar á því. Skipið ætti að vera lokað á siglingu bæði að
aftan og framan. Helgi vísaði á skipstjóra Akraborgarinnar hvað skýringar
á þessu varðar. Ekki náðist í hann í gærkvöldi. SSH
Notkun bílbelta hefur minnkaö um 16% milli ára:
74% ökumanna
nota bílbelti
bilbeltanotkun ökumanna og
farþega í framsæti bifreiða hefur
minnkað um 16% frá því fyrir einu
ári er notkun bílbelta var lögleidd.
Þetta er niðurstaða athugunar lög-
reglunnar víða um land á Ijósa- og
bílbeltanotkun sem gerð var fyrir
Umferðarráð dagana 23. febrúar til
3. mars s.l.
Samtals voru athugaðar 2725 bif-
reiðar og voru ökuljós kveikt í 92%
tilfella. Sem fyrr segir voru 74%
ökumanna með bílbeltin spennt en
75% farþega í framsæti. í samskonar
könnun sem gerð var fyrir ári kom í
ljós að yfir 90% ökumanna og far-
þega f bílum notuðu bílbelti. f
tilkynningu frá Umferðarráði segir
að fyrir bragðið hafi alvarlega
slösuðum fækkað um 20% hér á
landi miðað við árið á undan.
ökumenn á landsbyggðinni eru
greinilega mun tregari til að nota
bílbeltin. Notkun ökumanna á ísa-
firði, Akureyri og Selfossi er undir
70%. Farþegar í bifreiðum á ísafirði
skera sig úr, en aðeins 42% þeirra
nota bílbelti.
Óli H. Þórðarson framkvæmda-
stjóri Umferðarráðs sagði í viðtali
við Tímann að þessar niðurstöður
væru mikil vonbrigði en ættu jafn-
framt að vera ökumönnum og far-
þegum hvatning til að bæta um
betur.
Aðspurður sagði Óli að erfitt væri
að segja til um ástæður þessarar
minnkunar. „Við höfum slakað á
áróðrinum vegna þess að það er í svo
mörg horn að líta varðandi fræðslu
og upplýsingar og bílbeltanotkunin
virtist vera í nokkuð góðu lagi. Nú
snúum við blaðinu við hið snarasta
og aukum áróðurinn aftur. SSH
Niðurstaða hæstaréttardóms:
Lögreglu var gert að
greiða hærri fjársekt
Hæstiréttur hefur dæmt í máli
ákæruvaldsins gegn Árna Ólafs-
syni og Valgarði Sveini Hafdal
varðstjóra. Niðurstuða héraðs-
dóins var staðfest að ööru leyti en
því að sektargreiðsla Árna var
hækkuð.
Aðdragandi málsins er sá að í
byrjun síðastliðins árs var Eskfirö-
ingurinn Sveinn Benedikt Jónsson
á ferð í Reykjavík. Hann brá sér á
Fógetann og þegar hann kom það-
an var hann nokkuð við skál.
Sveinn fór upp á húdd bíls sem
staðsettur var í Aðalstræti með
þeim afleiðingum að bílinn
skemmdist nokkuð. Eigandi bílsins
elti Svein þcgar hann hélt heim til
bróður sins sem búsettur er hér í
bæ.
Eigandinn, sem var á þeim tíma
lausráðinn lögregluþjónn, hafði
samband við fóður sinn sem var
lögregluþjónn á vakt, Árni Óiafs-
son, vegna málsins. Árni fór heim
til bróður Sveins og fékk hann með
sér út t lögreglubilinn. í dömi
Hæstaréttar segir að Sveini hafi
verið Ijóst aö lögrcglan vildi spyrja
hann urn atvikiö í Aðalstræti, og
skylt aö svara spurningum um nafn
og heimilisfang. Þar segir einnig að
skýrslutöku hafi ekki verið lokið er
Sveinn leitaði útgöngu úr lögreglu-
bifreiðinni. Því hafi lögregluntönn-
um vcrið heimilt að stöðva för
hans. I dómnum segir að Sveinn
hafi verið æstur og veitt lögreglu-
mönnunum mótþróa og hafi þeim
viö þær aðstæður verið hcimilt að
handtaka hann og færa tii yfir-
heyrslu á lögreglustöð.
Lögreglan var einnig ákærð fyrir
líkamsmeiðingar en Sveinn hand-
leggsbrotnaði í fangavistinni.
Handieggsbrotið var í héraðsdómi
rakið til gálcysis Árna og staðfesti
Hæstiréttur það sakarmat. Hcraðs-
dómur hafði dæmt Árna til greiðslu
tuttugu þúsund króna sektar vegna
þessa en i Hæstarétti var sektin
hækkuð í þrjátíu þúsund krónur.
Þá var staðfest ákvæði hins áfrvj-
aða döms um sakarkostnað og að
áfrýjunarkostnaður greiðist að 3/4
af ríkissjóði og 1/4 af Árna en
upphæð sem honum er gert að
greiöa ncmur 12500 krónum. Einn-
ig var staðfest sú niðurstaða hér-
aðsdóms að sýkna Valgarð Svein
Hafdal sem var varðstjóri á vakt
umrætt kvöld. jkb