Tíminn - 22.03.1989, Page 13
Miðvikudagur 22. mars 1989
UTLÖND
Herinn í Júgóslavíu:
Hyggst berja niður
þjóðernissinna
Háttsettur pólitískur foringi innan
júgóslavneska hersins skýrði frá því
í gær að herinn myndi koma í veg
fyrir það að uppreisn þjóðcrnissinna
eyðilegði Júgóslavíu.
Varaaðmírállinn Peter Simic sem
situr í stjórnarnefnd kommúnista-
flokksins fyrir hönd hersins var á
ferð um Kosovo, þar sem hermenn
á skriðdrekum hafa séð til þess að
lög og regla haldist, þegar hann lét
þessu ummæli falla.
Simic tók skýrt fram að þar ætti
hann ekki einungis við þjóðernis-
hreyfingu Albana í Kosovo heldur
allra þjóðernisbrota í Júgóslavíu.
Herinn tæki til sinna ráða ef menn
gengju of langt.
Margir hinna albönsku verkam-
anna sem fóru í allsherjarverkfall í
byrjun mánaðarins hafa ekki snúið
aftur til vinnu þrátt fyrir hótun
yfirvalda um fangelsun.
Þjóðernissinnar innan mismunandi þjóða í Júgóslavíu hafa verið áberandi
að undanförnu. Herinn er á móti slíku fólki.
IRA með enn eitt hermdarverkið:
Háttsettir
lögreglu-
menn myrtir
írski lýðveldisherinn myrti tvo tveir voru á leið yfir til írlands þar
háttsetta lögreglumenn á Norður- sem þeir hugðust ræða við kollega
írlandi eftir umsátur og telja menn sína um öryggisvörslu á landamær-
möguleika á að IRA hafi komist yfir unum. Því voru þeir með leyniskjöl
mikilvæg leyniskjöl úr bifreið þeirra. meðferðis.
Þá velta menn því fyrir sér hvort Þá gátu lögreglumennirnir enga
IRA hafi komið „moldvörpu" fyrir björg sér veitt þar sem þeir voru
innan raða lögreglunnar sem gefi óvopnaðir, en það er venjan þegar
samtökunum upplýsingar um ferðir lögreglumenn ferðast yfir landamær-
háttsettra lögreglumanna. in til samstarfs og viðræðna. Þeir
Lögregluforingjarnir tveir eru að voru á ómerktum lögreglubíl og
líkindum hæst settu fórnarlömb IRA þykir það styðja tilgátuna um „mold-
innan lögreglunnar í tuttugu ár. vörpu“.
Kólumbískur námsmaður í London:
Gleypti heróín-
smokka og lést
Kólumbískur námsmaður lést í
London eftir að hafa gleypt smokka
fyllta af kókaíni. Námsmaðurinn
hafði gleypt yfir þrjátíu fyllta
smokka sem hann smyglaði inn í
Bretland. Hann lést átta dögum eftir
komuna.
Stewart Hall rannsóknarlögreglu-
maður hjá Scotland Yard skýrði frá
því fyrir rannsóknarrétti að hinn
sautján ára Giovanni Rodriguezsem
bjó í London hafi verið fluttur á
sjúkrahús þegar smokkarnir stífluðu
meltingarveg hans, en hann lést 12.
mars.
- Okkur hefur tekist að hafa upp
á nafni mannsins sem skipulagði
innflutninginn á eitrinu, en hann er
kominn aftur til Kólumbíu, sagði
Hall.
Heróín í
Búlgaríu
Tollverðir í Búlgaríu komust
yfir sex kílógrömm af heróíni er
þeir leituðu gaumgæfilega í far-
angri tveggja Tyrkja sem voru á
leið frá Tyrklandi til Vestur-Evr-
ópu.
Tyrkirnir voru teknir í gegn á
Kapitan Andreevo landamæra-
stöðinni á landamærum Tyrk-
lands og Búlgariu. Tyrkirnir voru
með heróínið falið í bíl sem var
á vesturþýsku númeri.
Stærsti hluti þess heróíns sem
kemur á markað í Vestur-Evrópu
frá vesturhluta Asíu fer í gegnum
Búlgaríu.
Yfirvöld í Sófíu hafa nú lagt
áherslu á að uppræta þetta eitur-
lyfjasmygl.
Tík Bush
með hita
Forsetatíkin Millie er með hita
eftir að hafa gotið sex heilbrigð-
um hvolpum í móttökuherbergi
Hvíta hússins. Frá þessu var skýrt
í sérstakri yfirlýsingu frá skrif-
stofu Barböru Bush, en hún ann-
ast tíkina þar sem Georg hefur
yfirleitt í öðru að snúast.
Millie sem er ættgöfug „Eng-
lish spaniel" tík var með 40 stiga
hita á celsíus, en eðlilegur líkams-
hiti hunda er 38 gráður.
Ástæða hitans er sýking í þvag-
rás Milliar sem kom í kjölfar
gotsins, sem Bandaríkjaforseti
var viðstaddur að hluta. Hann
tók á móti einum hvolpi en Bar-
bara hinum fimm.
- Millie er á batavegi eftir að
hafa fengið ampecillin töflur sem
hún tekur á þriggja tíma fresti,
sagði í yfirlýsingu Hvíta hússins.
Tékkneskur áfrýjunardómstóll mildar dóm yfir andófsmanni:
Stytti dóm yfir Havel
Tékkneskur áfrýjunardómstóll.
stytti fangelsisdóm andófsmannsins
Vaclav Havel um einn mánuð í gær.
Mun Havel því einungis dúsa í átta
mánuði í fangelsi vegna aðildarsinn-
ar að hinum fjölmennu mótmæla-
fundum tékknesks almennings í
janúar. Þá var píslarvottarins Jan
Palach minnst, en hann svipti sig lífi
fyrir tuttugu árum til að mótmæla
innrás og kúgun Sovétmanna þegar
„Vorið í Prag“ var kæft árið 1968.
Fangelsun leikritaskáldsins Vacl-
av Havel hefur verið fordæmd víða
um heini og hefur almenningur í
Tékkóslóvakíu mótmælt handtöku
hans af mætti. Voru nokkur hundruð
andófsmanna fyrir utan dómshúsið
er áfrýjunarrétturinn kvað upp
dóminn.
Hvort sem alþjóðleg mótmæli og
ólga meðal Tékka hafi einhverju
ráðið um, þá úrskurðaði dómstóllinn
að Havel skuli afplána dóm sinn í
fangelsi þar sem aðstæður eru mun
betri en í því fangelsi það sem hann
hefur verið í að undanförnu.
Tíminn 13
Kópavogur
Gissur Pétursson
Opið hús miðvikudaginn 29. mars n.k. kl. 17.30 að
Hamraborg 5.
Málefni dagsins. Stjórnmálin og unga fólkið.
Frummælandi: Gissur Pétursson formaður S.U.F.
Steingrímur
Hermannsson
Almennur stjórnmálafundur með Steingrími Hermannssyni
forsætisráðherra verður haldinn í Félagsheimili Kópavogs
fimmtudaginn 13. apríl n.k.
Flokksstarfið
Skúli Sigurgrímsson
Skrifstofan að Hamraborg 5 er opin þriðjudaga og miðvik-
udaga kl. 9-12 s. 41590.
Alltaf heitt á könnunni.
Opið hús alla miðvikudaga kl. 17.-19.
Skúli Sigurgrímsson bæjarfulltrúi er til viðtals alla miðviku-
daga kl. 17.30-19.00.
Einnig eftir nánara samkomulagi.
Vinnuhópar eru að fara í gang um hina ýmsu þætti
bæjarmála.
Komið, látið skrá ykkur í hópana og takið þátt í stefnumótun
og starfi flokksins.
Framsóknarfélögin í Kópavogi.
Halldór Ásgrímsson Jón Kristjánsson
Almennir stjórnmálafundir
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra og Jón Kristjánsson al-
þingismaður boða til almennra stjórnmálafunda á Austurlandi vikuna
28. mars-2. apríl sem hér segir.
í Valaskjálf Egilsstöðum, þriðjudaginn 28. mars kl. 20.30.
í Skrúð Fáskrúðsfirði, miðvikudaginn 29. mars kl. 20.30.
í kaffistofu Hraðfrystihússins Breiðdalsvík, fimmtud. 30. mars. kl.
20.30.
í Félagsheimilinu Stöðvarfirði, föstudaginn 31. mars kl. 20.30.
Á Djúpavogi, laugardaginn 1. apríl kl. 15.00.
í Hofgarði Oræfum, sunnudaginn 2. apríl kl. 15.00.
Sunnlendingar
Framsóknarfélögin í Árnessýslu halda sína árlegu árshátíð síðasta
vetrardag 19. apríl í Hótel Selfoss.
Allir velkomnir. Nánar auglýst síðar.
Nefndin.
Suðurland
FUF í Árnessýslu
og Félag framsóknarkvenna í Árnessýslu áformar að halda félags-'
málanámskeið í lok mars og í apríl. Um er að ræða byrjenda- og
framhaldsnámskeið. Námskeiðin eru öllum opin sem áhuga hafa.
Þátttaka tilkynnist sem fyrst til formanna félaganna.
Sigurðar Eyþórssonar í síma 34691
og Ólafíu Ingólfsdóttur í síma 63388.
FUF og FFÁ.