Tíminn - 26.05.1989, Page 10
10 Tíminn
Föstudagur 26. maí 1989
Föstudagur 26. maí 1989
Tíminn 11
Leikjunum seinkað í kvöld
í kvöld verða 2 leikir í 1. deildinni
í knattspymu, Hörpudeildinni. Vík-
ingar fá KR-inga í heimsókn og
verður leikurinn á gervigrasvellinum
í Laugardal kl. 21. Á KA-vellinum á
Akureyri mætast heimamenn og Ís-
landsmeistarar Fram kl. 20.45.
f 3. og 4. deild verða einnig
nokkrir leikir:
3. deild:
í Grindavík. Grindavík-ÍK
Á gervigrasinu Leiknir R.-Hvera-
gerði
Á Valhúsavelli Grótta- Aftureiding
Á Neskaupstað Þróttur N.-Valur F.
4. deild:
Á Ármannsvelli Ármann-Léttir
Á Svalbarðseyrarvelli Æskan-Efling
Ailir 3. og 4. deildar leikirnir
hefjast kl.20.00.
BL
1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 r
raumr!!!
Einn tippari var með 12 rétta
í síðustu viku getrauna, en þá
réð teningurinn úrslitum í
tveimur leikjum. Það var jafn-
teflismerkið X sem upp kom,
en svo undarlega vildi til að
leikjunum lauk báðum með
jafntefli, þegar þeir voru leikn-
ir á mánudaginn.
Tipparinn heppni, sem að
jafnaði notar tölvu sér til að-
stoðar fær í sinn hlut rúma
hálfa milljón, en hann var ein-
nig með 8 raðir með 11 réttum.
Fram var söluhæsta félagið í
síðustu viku, með 11,86%
áheita. Fylkir var eins og svo
oft áður í öðru sæti með 6,86%
áheita. Þá kom KR sem fyrr í
þriðja sæti með 5,89%. ÍR tók
stökk í síðustu viku og skaust
uppí áttunda sætið með 3,38%
áheita.
Önnur umferð í Sumarleik
getrauna var á laugardaginn og
nú hefur BIS forystu í leiknum
með 22 stig. Keppni er þó mjög
jöfn því margir hópar fylgja
fast á eftir með 21 stig.
Fjölmiðlaleikurinn er nú
kominn af stað. í síðustu viku
voru Tíminn og MBL getspak-
astir með 7 rétta. Þjóðviljinn,
Dagur, Bylgjan , RUV og Stöð
2 voru með 6 rétta og DV og
Stjarnan ráku lestina með 5
rétta. Staðan er nú þannig að
RÚV og Stöð 2 hafa 14 stig,
Tíminn og DV hafa 13 stig,
Þjóðviljinn, Dagur og Bylgjan
hafa 12 stig, MBL hefur 11 stig
og Stjarnan rekur lestina með
9 stig.
Seðillinn sem spáð verður í
um helgina, 21. leikvika, er
alíslenskur og nú verða menn
að skila seðlunum á útsölustaði
á föstudagskvöld, því sölukerf-
ið lokar kl. 19.55. En lítum
leikina.
KA-Fram: 2
KA-menn hafa góðu liði á að
skipa í sumar og þeir eru ávallt
erfiðir heim að sækja. Einnig
eru þeir erfiðir á mölinni og
gæti hún reynst Frömurum
fjötur um fót. Þó verða íslands-
meistarar Fram að teljast sig-
urstranglegri, enda með mjög
gott lið. Sigur þeirra verður þó
mjög naumur að þessu sinni.
Víkingur-KR: 2
Það er erfitt sumar framundan
hjá Víkingum, þeir sluppu
naumlega við fall í fyrra og í
sumar verða þeir með fall-
drauginn á hælunum. Þeim til
tekna má þó reikna heimavöll
þeirra við Stjörnugróf, en
leikurinn gegn KR verður ein-
mitt á þeim velli. KR-ingar
misstu leikinn gegn ÍA um
síðustu helgi úr greipum sér og
því má búast við þeim grimm-
um í þessum leik.
Fylgir-Þór: 1
Fylkismenn sýndu hvað í þeim
býr gegn Fram á þriðjudag og ,
þótt Framarar hafi sigrað var
sá sigur naumur. Liðið á eftir
að koma á óvart í sumar og á
Fylkisvellinum verða þeir ár-
eiðanlega erfiðir. Þórsarar
fengu 3 stig í safnið er þeir léku
gegn Víkingum um síðustu
helgi, en veðrið var í aðalhlut-
verki í þeim leik. Þórsarar eiga
enn eftir að sýna að þeir geti
komið til Reykjavíkur og haft
stig á brott með sér.
Völsungur-Selfoss: X
Það verður áréiðanlega hart
barist í þessum leik á Húsavík.
Völsungar féllu úr 1. deild í
fyrra og tefla fram nær nýju liði
í sumar. 'Þeir eru því enn
nánast óskrifað blað. Selfyss-
ingar ætla sér stóra hluti í
sumar og nú á að fara upp í 1.
deildina. Jafntefli er ekki fjarri
lagi.
Stjarnan-Tindastóll: 1
Garðbæingar leika nú í fyrsta
sinn í 2. deild, en þeir sigruðu
glæsilega í 3. deildinni í fyrra.
Þeir leika á góðum grasvelli í
Garðabænum og þar verða þeir
áreiðanlega harðir horn að
taka. í liðinu eru nokkrir
reyndir 1. deildárleikmenn, en
ungu mennirnir eiga enn eftir
að safna töluverðri reynslu.
Tindastólsmenn eru alltaf seig-
ir, en á útivelli eru þeir ekki
eins sigurstranglegir.
ÍR-Einherji: 1
ÍR-ingar náðu ágætum árangri
í fyrra er þeir urðu í 4. sæti í 2.
deild. í sumar tefla þeir fram
mörgum nýjum leikmönnum
til viðbótar við þá sem fyrir
voru, þar á meðal markakóng-
inum Tryggva Gunnarssyni.
Vopnfirðingar eru að koma
upp úr 3. deild og telja má
líklegt að ÍR hafi sigur á gervi-
grasinu.
Breiðablik-Leiftur: 2
Breiðabliksmenn úr Kópavogi
hafa verið í 2. deildinni um
tíma, eftir reglulega flutninga
milli 1. og 2. deildar á tímabili.
í sumar verða Blikarnir örugg-
lega allsterkir, eftir slakt sumar
í fyrra, en mótherjar þeirra að
þessu sinni eru Leiftursmenn
frá Ólafsfirði, sem léku í 1.
deild í fyrra. Þeir eru mjög
erfiðir andstæðingar og Blik-
arnir fá að kenna á því í
þessum leik.
Víðir-ÍBV: 1
Víðismönnum tókst ekki að
endurheimta 1. deildarsætið í
fyrra, en liðið varð þá í 3. sæti
í 2. deildinni. Þeir Garðbúar
eru mjög sterkir á heimavelli
og nú hafa þeir endurheimt
gamla félaga og eru á ný til alls
líklegir. Eyjamenn hafa eins
og Blikarnir átt í erfiðleikum
með að endurheimta sitt gamla
1. deildarsæti og sú barátta
verður einnig erfið í sumar.
Heimasigur í Garðinum.
Grindavík-ÍK: X
Þessi lið koma líklega til með
að berjast um sigur í SV-riðli
3. deildarinnar og þar með sæti
í 2. deild næsta sumar. Grind-
víkingar gefa aldrei eftir frekar
en Kópavogsbúar og því er
ekki fjarri lagi að ætla að liðin
skilji jöfn að þessu sinni.
Grótta-Afturelding: 1
Seltirningar hafa ágætu liði á
að skipa í sumar og gætu hæg-
lega reytt stig af Grindvíking-
um og iK-mönnum í sumar.
Mótherjar þeirra í þessum leik
eru Mosfellingar í Aftureld-
ingu, en þeir eru ekki taldir
líklegir til stórafreka í sumar.
Þeir eru þó enn nokkuð óskrif-
að blað, rétt eins og Gróttu-
menn, en heimavöllurinn á
Nesinu gerir gæfumuninn.
Reynir S.-B.ísaljarðar: 1
Reynismenn úr Sandgerði hafa
oft reynst erfiðir á heimavelli.
í æðum þeirra rennur sjór,
enda um hreinræktaða Suður-
nesjamenn að ræða. Mótherjar
þeirra að þessu sinni, Badmin-
tonfélag ísafjarðar, eru engir
spaðagosar og þrátt fyrir nafnið
hefur liðið á að skipa nokkrum
reyndum 1. deildarleikmönn-
um úr ÍBÍ. Varla verður þó
mikið fjaðrafok þótt heimalið-
ið hirði 3 stig í leiknum.
Dalvík-KS: 2
Mótherjar Dalvíkinga í þess-
um leik, Siglfirðingar hafa um
árabil leikið í 2. deild. Þeir
féllu í fyrra í 3. deild, þótt
naumlega væri og í sumar er
liðið líklegt til þess að endur-
heimta sæti sitt. Dalvíkingar
eru óþekkt stærð, en heima-
völlurinn er kannski þeirra eina
von í þessum leik gegn þeim
Siglfirðingum, með beinbrjót-
inn Mark Duffield í farar-
broddi.
Sölukerfið lokar kl. 19.55 í
kvöld, þar sem leikir no. 1, 2,
9 og 10 verða leiknir í kvöld.
skúli lúðvíks.
FJÖLMIÐLASPÁ
LEIKIR 26. OG
27. MAÍ '89
K.A. - Fram_
Vlklngur -K.R.
Fylklr — Þór
Völsungur - Selfoss
Stjarnan - Tlndastóll
IjR, - ElnherJI
Brelðabllk - Lelttur
Vlðlr_____________
Grlndavlk - I.K.
Grótta - Aftureldlng___
Reynlr B, (aafjurðar
Dalvlk-K.S.
Jl '1
3 S;l
XJLX
1 Ú 1
1' 11 1
X 2 1
2 1 1
SAMTALS
l'flt-l
2|ix
1jii1
111 1
21 X' 1
V 1 X
T[i11_
222
1 1 X ' 2
1101 8
4 _4 1
öTTIo
•löTo
a 11 j o
Ii"0|3-4
0 0 9
1x2 1x2 1x2 1x2 Hx2 1x2
CM
CM
CM
CM
1x2 I*
Tímamynd Pjetur.
Ingvar Guðmundsson skoraði glæsilegt mark fyrir Valsmenn í gær, en á myndinni hér að ofan er Ingvar að skora í leik gegn Víkingum í fyrra.
Knattspyrna:
Tvö glæsimörk Valsmanna
í góðum leik á Hlíðarenda
Valsmenn unnu sinn fyrsta sigur í 1.
deildinni í knattspyrnu, Hörpudeildinni,
Knattspyma:
Annað vítií
súginn hjá ÍBK
Keflvíkingar töpuðu í gærkvöld fyrir
FH er liðin mættust í 1. deildinni í
knattspyrnu í Keflavík. Eins og gegn
Vaismönnum í 1. umferðinni, fengu Kefl-
víkingar vítaspymu, en að þessu sinni var
það Freyr Sverrisson sem sá um að
klúðra henni.
Fyrir FH skoruðu þeir Pálmi Jónsson í
fyrri hálfleik og Hörður Magnússon í
síðari hálfleik, en Kjartan Einarsson
minnkaði muninn fyrir Keflvíkinga.
BL
Bayern og PSV
í miklum ham
í gærkvöid tryggði Bayem Munchen
sér næstum því v-þýska meistaratitilinn í
knattspymu er liðið vann Köln, sinn
helsta keppinaut með 3-1 í Köln.
í Hollandi léku PSV Eindhoven og
Groningen til úrslita í hollensku knatt-
spyraunni. PSV sigraði 4-1 og liðið hefur
því unnið tvöfalt annað árið í röð.
BL
í gærkvöld er þeir lögðu Skagamenn að
velli, 2-0 á Hlíðarenda.
Leikurinn var allfjörugur, sérstaklega
fyrri hálfleikur og síðari hluti síðari
hálfleiks. Þegar í upphafi leiksins, eða á
4. mín. fékk Lárus Guðmundsson upp-
lagt færi til þess að koma Valsmönnum
yfir, en Ólafur Gottskálksson í marki
Skagamanna sá við Lárusi og varði vel
með úthlaupi. Nokkrum mín. síðar áttu
Skagamenn 3 góð færi til að skora en í öll
skiptin fór knötturinn framhjá Valsmark-
inu. Lárus var aftur í sviðsljósinu á 17.
mín. er hann skaut í utanverða stöngina
á Skagamarkinu, eftir að hafa fengið
góða sendingu frá Heimi Karlssyni. Á
síðustu mín. fyrri hálfleiks fengu Skaga-
menn sitt besta færi í leiknum. Stefán
Viðarsson komst inní sendingu á Bjama
Sigurðsson markvörð Vals, við endalfn-
una, gaf á Harald Ingólfsson sem hafði
nægan tíma til að renna knettinum í autt
markið. Á ótrúlegan hátt tókst Haraldi
að koma knettinum framhjá markinu.
Síðari hálfleikur var framan af ekkert
líkur bróður sínum fyrri hálfleik. Ingvar
Guðmundsson átti hörkulangskot í stöng
Skagamarksins á 65. mín. og eftir það
náðu Valsmenn undirtökunum í leikn-
um. Sævar Jónsson kom Val síðan yfir á
69. mín. er hann skoraði einstaklega
glæsilegt mark með langskoti af 25-30 m
færi, algjörlega óverjandi fyrir Ólaf
markvörð. Skagamenn reyndu að klóra í
bakkann og Haraldur átti þokkalegt skot
að Valsmarkinu á 79. mín. Það var síðan
í 89. mín. að Ingvar Guðmundsson
innsiglaði sigur Vals er hann fór að dæmi
Sævars og þrumaði að marki af löngu
færi. Knötturinn fór í slána og inn, 2-0
fyrir Val.
Valsliðið var lengi í gang í þessum leik,
en Skagamenn höfðu í fullu tré við þá
lengst af. Sigurinn verður þó að teljast
sanngjarn og mörkin voru sérlega glæsi-
leg.
Valsmenn léku flestir ágætlega í þess-
um leik, en sérstaka athygli vakti hvað
Halldóri Áskelssyni voru mislagðir fætur.
Hjá Skagamönnum var Karl Þórðarson
einna bestur í jöfnu liði.
Liðin; Valur: Bjarni Sigurðsson,
Þorgrímur Þráinsson, Sævar
Jónsson, Einar Páll Tómasson, Atli
Eðvaldsson, Ingvar Guðmundsson,
Handknattleikur:
Erlingur þjálfar KA
Magni Bl. Pétursson, Halldór Áskels-
son, Sigurjón Kristjánsson, Lárus
Guðmundsson, Heimir Karlsson
(varam. á 87. mín. Jón Þór Andrés-
son).
ÍA: Ólafur Gottskálksson, Heimir
Guðmundsson, Alexander Högna-
son, Sigurður B. Jónsson, Guðbjörn
Tryggvason (varam. á 20. mín. Sigur-
steinn Gíslason), Páll Guðmundsson,
Júlíus Ingólfsson, Karl Þórðarson,
Stefán Viðarson, Aðalsteinn Víg-
lundsson, Haraldur Ingólfsson. BL
Mtpptö hér
Frá Jóhannesi Bjarnasyni iþróttafréttamanni
Timans á Akureyri.
Erlingur Kristjánsson mun þjálfa
1. deildariið KA í handknattlcik
næsta vetur. Frá því var gengið á
þriðjudagskvöld og mun Erlingur
áfram leika með liðinu. Kappinn er
íþróttakennari að mennt og hefur
um skeið þjálfað yngri flokka félags-
ins. Gamla kempan Þorleifur Anan-
íasson verður aðstoðarmaður
Erlings.
Samningar tókust á þriðjudags-
kvöld, en í síðustu viku var skýrt frá
ráðningu Erlings í blöðum. Þá hafði
ekki verið rætt við manninn, en nú
hefur verið frá ráðningu hans
gengið, eftir að Erlingur lagðist
undir feld til að hugsa málið.
Fyrirliði KA-manna, Friðjón
Jónsson leikur ekki með liðinu næsta
vetur. Hann hefur ákveðið að leggja
skóna á hilluna. Þá er óvíst hvort
þeir Sigurpáll Aðalsteinsson og Axel
Stefánsson leiki með liðinu áfram og
þá er ekki útséð um hvort Páll
Ólafsson fari frá KR og norður til
Akureyrar. JB/BL
18. titill
Liverpool?
í kvöid verður sýndur í beinni
útsendingu í Sjónvarpinu úrslitaleik-
ur Liverpool og Arsenal um enska
meistaratitilinn í knattspyrnu. Út-
sending hefst kl. 19.00 frá Anfíeld
Road heimavelli Liverpool.
Fyrir leikinn hefur Liverpool 3
stiga forskot á Arsenal, sem verður
að vinna leikinn með tveggja marka
mun til þess að hljóta titilinn. Liv-
erpool nægir því að tapa með einu
marki.
í byrjun mars hafði Arsenal 19
stiga forskot á Liverpool, en Liver-
pool liðið hefur ekki tapað leik síðan
á nýársdag. Þess má geta að leikur-
inn í kvöld er 8. leikur Liverpool á
23 dögum, en liðið er það sterkt að
það hefur haft efni á að hvíla
landsliðsmenn eins og Ian Rush og
Peter Beardsley í sumum þessara
leikja.
Arsenal hefur aðeins hlotið 1 stig
úr tveimur sxðustu heimaleikjum
sínum, en ófarir liðsins eru taldar
stafa af meiðslum hjá lykilmönnum
á borð við Brian Marwood og Paul
Davis.
Sigri Liverpool í kvöld verður 18.
Englandsmeistaratitill félagsins í
höfn og liðið verður þá fyrst liða til
þess að sigra tvöfalt í tvígang. Arsen-
al hefur tvívegis orðið enskur meist-
ari, 1953 og 1971, en í bæði skiptin
var það sigur í síðasta leik mótsins
sem færði liðinu titilinn. BL
- í handknattleiknum næsta vetur
Körfuknattleikur:
Pétur orðinn
löglegur með
landsliðinu
Á Evrópuþingi FIBA, alþjóöa-
körfuknattleikssambandsins uni
síðustu helgi var samþykkt að leik-
menn í NB A-deildinni megi ieika
mcö landsliöum þjóöa sinna þegar
í stað.
Kolbeinn Pálsson fomiaður KKÍ
sótti þingið fyrir íslands hönd og
var hann einn þeirra 19 sem sam-
þykktu tillöguna um atvinnumenn-
ina, 9 vora á móti. NBA-lcik-
mennimir era nú þegar löglegir
með landsliðum sínuin.
Nú cr ekkert sem komið getur í
veg fyrir að Pétur Guðmundsson
ieiki með íslenska landsliðinu,
nema ef vera kynni meiðsl. ís-
lenska landsiiðið hcfur á undan-
förnum vikum átt í miklu basii i
leikjum sínum og tapað stórt og
óvænt. Með tilkomu Péturs mundi
liðið breytast mjög til hins betra,
en hávaxna ieikmenn hefur tilfínn-
anlega skort í liðið.
Pétur er nú með lausan samning
og er þessa dagana að skoða að-
stæður og tilboð frá nokkrum
iiðum, þar á meöal NBA-Iiðum.
Verði Pétur heill í september ætti
hann að geta leikið með landsliðinu
í undankeppni heimsmeistara-
keppninnar, svo framarlega sem
félag hans stendur ekki í veginum.
BL
-ekki
hepP0'
Föstudagur kl. 19:55
21. LEIKVIKA-
Leikur 1
K.A.
26. MAÍ1989
- FRAM 1J
Leikur 2
VÍKINGUR
- K.R. ^
- ÞÓR v
Leikur 3 FYLKIR________________
Leikur 4 VOLSUNGUR - SELFOSS
Leikur 5 STJARNAN
Leikur 6
Í.R.
- TINDASTÓLL Z}
EINHERJI '£)
Leikur 7
BREIÐABLIK - LEIFTUR
■2T
Leikur 8
VÍÐIR
- Í.B.V. Z)
Leikur 9 GRINDAVÍK
Leikur 10 GROTTA
- Í.K. 3>
- AFTURELDING °
Leikur 11
Leikur 12
REYNIR S.
DALVÍK
- B. ÍSAFJ. V
■3T
K.S.
Símsvari hjá getraunum á laugardögum eftir
kl. 16:15 er 91-84590 og -84464.
Ath. breyttan lokunartíma !
GfETRAUNIR ÍALLTSUMAR!
Staðan í 1. deild eftir leikina í gær:
Valur..........2 1 1 0 2-0 4
FH ...........2 1 1 0 2-1 4
Þór...........1 1 0 0 1-0 3
Fram .........1 1 0 0 1-0 3
Akranes......2 1 0 1 3-3 3
KA ...........1 0 1 0 0-0 1
Fylkir........1 0 0 1 0-1 0
Víkingur .... 1 0 0 1 0-1 0
KR ............1 0 0 1 1-3 0
Keflavík.....2 0 1 1 1-2 1
Timinn
□ ER ÁSKRIFANDI
□ NÝR ÁSKRIFANDI
Dags.:
1
I
I
I
□
□
JL
Kortnr.:
□□□□□□□□□□□□□□□□
Gildirút: I I I I I
Natnnr.: rmn - n'l I I
MILLIFÆRSLU
ÁSKRIFTARGJ ALDS
Ég undirrituð/aðuróska þess að áskriftar-
gjald Tímans verði mánaðarlega skuld-
fært á greiöslukort mitt.
UNDIRSKRIFT.
ÁSKRIFANDI:.............................................
HEIMILI:................................................
PÓSTNR. - STAÐUR:.................. SÍMI:............... SENDIST AFGREIÐSLU BLAÐSINS
LYNGHÁLSI 9. 130 REYKJAVÍK