Tíminn - 16.06.1989, Qupperneq 5
Föstudagur 16. júní 1989
Tíminn 5
Tveggja ára undirréttardómi hnekkt þar sem Veiðivötn höfðu verið færð undir Skaftártunguhrepp:
Veiðivötn færð milli
sýslna í Hæstarétti
Rangárvallasýsla stækkaði í gærdag á kostnað V-Skafta-
fellssýslu þegar dómur féll í aldalangri landamerkjadeilu í
Hæstarétti, án þess þó að heildarmörk hafi verið ákveðin
milli sýslnanna. Dómurinn hefur ekki enn verið birtur en
Tíminn hefur fyrir því öruggar heimildir að Skaftártung-
uhreppur og þar með Vestur-Skaftafellssýsla nái ekki
lengur norður fyrir Tungnaá.
Einnar aldar gömlu samkomu-
lagi sýslnanna og tveggja ára göml-
um dómi í undirréttti hefur því
verið hnekkt, en í samkomulaginu
er kveðið á um að sýslumörkin nái
norður í Þveröldu norðan Þór-
isvatns og þaðan austur í Tungna-
árjökul.
Með dómi þessum er ekki tekin
afstaða til veiðiréttinda í Veiði-
vötnum sem ekki hefur átt minnst-
an þátt í því að þörf var á hæstarétt-
ardómi um landamörkin. í ferða-
bók Sveins Pálssonar er frá því
greint að Skaftártungumenn hafi
nýtt „vötnin" fram að móðuharð-
indum seint á átjándu öld, en ekki
síðan. Veiðihefð í Veiðivötnum
virðist um langan tíma hafa ráðið
sýslumörkum og hafa mörkin í
raun verið í móðu um aldir. Land-
menn og Holtamenn hafa hins
vegar um langt skeið nýtt veiði í
vötnunum sem nú eru talin til
Rangárvallasýslu, en voru áður í
V- Skaftafellssýslu samkvæmt sam-
komulaginu frá því fyrir aldamót
og einnig samkvæmt dómi í undir-
rétti fyrir um tveimur árum.
Dómurinn virðist ekki taka af
skarið með það hvar endanleg
sýslumörk eigi að vera að Fjalla-
baki. Sýslumörkin eru því enn
óljós að því er virðist. Ákvörðun
sýslumarka er háð lagasetningu og
er það mál sem heyrir undir félags-
málaráðherra. Með dómnum er
hins vegar komist að þeirri niður-
stöðu að Skaftártunguhreppi er
ekki dæmd landamerki norður fyrir
Tungnaá.
Dómur féll einnig í öðru landa-
merkjamáli milli Skaftfellinga og
Rangárvellinga, en það varðar
landamörk milli Rangárvalla-
hrepps og Álftavatnshrepps, en
dómur undirréttar var staðfestur í
því máli. Sýslumörkin virðast því
óbreytt sunnan Mýrdalsjökuls, en
eiga eftir að breytast hvað varðar
línuna milli Mýrdalsjökuls og
Tungnaárjökuls í Vatnajökli. Þess
má geta að Landmælingar íslands
hafa komið sér undan því að draga
þennan hluta sýslumarkanna inn á
aðaluppdrátt af íslandi, en fram
kemur á nokkrum kortum að
mörkin séu um Tungnaá.
Valur Oddgeirsson, hréppsstjóri
í Úthlíð í Skaftártungu, sagði að
þessi niðurstaða væri nokkur von-
brigði fyrir Skaftártungumenn.
Hins vegar hafi það verið óþolandi
að mörk þessara hreppa og þar
með sýslumörk hafi verið vafa
undirorpin. Hann sagðist þó hafa
haldið að samkomulagið frá 1886
stæði enn.
Guðni Kristinsson, hreppsstjóri
í Skarði í Landssveit, sagðist vera
feginn að heyra þetta, því hann
hafi ekki getað hugsað þá hugsun
til enda ef þeir Landmenn hefðu
fengið sömu útreið og í undirrétti
fyrir um tveimur árum. Þá voru öll
helstu veiðivötn Landmanna dæmd
í Skaftártunguhrepp og hafa verið
það síðan.
Niðurstöður Hæstaréttar verða
kynntar í dag og þá verða ítarleg
gögn um málið iögð fram. KB
Aldís og Eydís til Brussel í gærtil viðgerðar. Aldís kemst í gagnið á morgun:
Flugvélarnar verda
eitthvað aflminni
„Það er ljóst að við verðum að taka á okkur töluverðan
kostnað vegna þessara atvika sem orðið hafa vegna hreyfla
nýju vélanna. Það er margs konar ábyrgð á flugvélunum og
við höfum sett lögfræðinga í að fara yfir þessi mál og kanna
nákvæmlega okkar stöðu með tilliti til skaðabóta,“ sagði
Einar Sigurðsson blaðafulltrúi Flugleiða í gær.
Frá blaðamannafundinum í gær.
Landvernd veitir styrki:
7 milljónir
fyrir poka
Hann sagði ennfremur að missir
vélanna hefði valdið gríðarlegu
vinnuálagi við að skipuleggja flutn-
inga á um 3500 farþegum daglega og
sagði hann að þetta hefði verið eins
og að gera nýja stundaskrá í stórum
skóla einu sinni á dag.
Seint í gærkvöldi lagði Boeing
737-400 flugvélin Eydís af stað til
Brússel en þar verður skipt um
hreyfilblöð og hreyfildiska sem þessi
hreyfilblöð eru fest við. Þannig verð-
ur hreyflunum breytt í aðra undir-
tegund og í stað þess að heita
CFM56-31 heita mótorarnir eftir
aðgerðina CFM56-3B2. Aldís lagði
nokkru síðar af stað og höfðu báðar
vélar fengið ferjuflugheimild hjá
Loftferðaeftirlitinu.
„Við höfum lagt á það ríka áherslu
við bæði framleiðendur vélanna og
hreyflanna að við lendum framar-
lega í biðröðinni sem þegar hefur
myndast af vélum sem bíða sömu
aðgerðar. Það er einfaldlega vegna
þess að vélarnar okkar eru helming-
ur af Evrópuflugflota okkar,“ sagði
Einar.
Hann sagði að búist væri við að
viðgerðinni á Aldísi yrði lokið í
kvöld þar sem verkið tæki einn dag.
Því ætti vélin að geta komist í
áætlunarflug á morgun. Nýja hreyfil-
afbrigðið væri þrautreynt og væri
talið afar öruggt.
Einar sagði að þessar breytingar
hefðu í för með sér að hreyflamir
yrðu lítið eitt aflminni. Þó breyttist
notagildi vélanna lítið sem ekkert en
breytingin hefði þó áhrif á tveim
áfangastöðum félagsins: Osló og
Salzborg.
Við flugtak frá Osló yrði ekki
hægt að hlaða vélamar jafn mikið og
áður var hægt sökum þess hve braut-
ir em þar stuttar. Þá væri heldur
ekki hægt að leggja upp frá Salzborg
með jafn hlaðna vél og áður vegna
þess hve leiðin þaðan til Keflavíkur
er löng.
„Framleiðandi hreyflanna greiðir
fyrir breytingamar á þeim og kostn-
að í sambandi við þær. Hins vegar er
spurning um þann óbeina kostnað
sem Flugleiðir hafa orðið fyrir vegna
þessara atvika en hann er verulegur.
Við höfum orðið að taka á leigu
vélar til að geta haldið uppi fyrirhug-
uðum ferðum og þjónustu við far-
þega okkar. Við munum leita eftir
því að fá sem mest af því greitt en
það er alls óljóst hvernig þau mál
fara,“ sagði Einar. -sá
Á blaðamannafundi Landverndar
og Kaupmannasamtaka íslands kom
fram að plastpokanotkun landsm-
anna dróst saman um 25-30% þegar
byrjað var að selja pokana í mat-
vöruverslunum í mars. Neytendur
virðast nú nýta pokana betur og er
þá einu af markmiði sölunnar náð,
en það var að minnka notkun á
plastpokum.
Einnig kom fram að fyrsta mánuð-
inn runnu um 3 milljónir króna til
Landvemdar og því má lauslega
áætla að Landvemd fái um 36 millj-
ónir króna árlega.
öllum ágóða af plastpokasölunni
ver Landvemd í styrki til félaga og
samtaka sem hafa í hyggju að græða
eða vernda náttúruna með skógrækt,
landgræðslu eða öðrum hætti.
í gær voru styrkir veittir fyrir um
7 milljónir króna, en það er sú
fjárhæð sem er reiknað með að verði
niðurstaðan fyrstu þrjá mánuðina.
Ekki hefur verið gert upp nema fyrir
einn mánuð, þ.e. mars, en forystu-
menn Landverndar eru bjartsýnir á
að þeir fái þessar 7 milljónir á fyrstu
mánuðunum.
Um 50 aðilar sóttu um styrk og var
úthiutað að þessu sinni til 36 aðila.
Hæstu styrkina, 500 þúsund, fengu
Skógrækt ríkisins til friðunar á birki-
lendi á jörðinni Hrífunesi í Skaftár-
tungu og Bændaskólinn á Hólum,
sem ætlar að standa fyrir friðun og
uppgræðslu á Hólum í Hjaltadal
ásamt fleiri aðilum.
Styrkveitingarnar skiptust þannig
á milli landshluta að Suðurland fékk
1.770.000, Norðurland eystra
1.368.900, Suðvesturland 1,2 millj-
ónir, Norðurland vestra 950 þúsund,
Vestfirðir 550 þúsund, Vesturland
500 þúsund, Austurland 335 þúsund
og 140 þúsund mnnu til óstaðsettra
verkefna. Áætlað er að veita styrki
nokkmm sinnum á ári, ef plastpoka-
sala gengur vel. GS
Fyrsti ársfjórðungur - Vöruskiptajöfnuðurinn 5 milljörðum hagstæðari en í fyrra:
ALMENNURINNFLUTNINGUR
22% MINNIEN í FYRRA
Svo mjög hefur dregið úr almennum innflutningi að
verðmæti hans á fyrsta fjórðungi þessa árs var hið sama í
krónutölu og fýrir ári, þrátt fyrir rúmlega 28% hækkun á
meðalgengi milli ára. Reiknað á sama gengi þýðir þetta að
þessi hluti innflutningsins var nú um 22% minni en á sama
tímabili í fyrra.
Heildarinnflutningurinn, þ.e. að
meðtaldri olíu, skipum, flugvélum
og vömm til stóriðju, hefur minnk-
að um rúmlega 17% milli ára,
samkvæmt tölum Hagstofunnar.
Heildarútflutningurinn hefur
hins vegar aukist um 16% á sama
tíma. Afþessuleiðiraðvömskipta-
jöfnuðurinn fob/fob var jákvæður
um 2,9 milljarða á fyrsta ársfjórð-
ungi þessa árs, sem er um 5 millj-
örðum betri staða heldur en á sama
tímabili árið 1988.
Sé litið á marsmánuð einan var
almennur innflutningur nú yfir
31% minni heldur en í fyrra reikn-
að á sama gengi, en heildarinn-
flutningur um 22% minni. Útflutn-
ingur í mars var einnig minni, 7%,
heldur en í mars 1988 miðað við
sama gengi bæði árin.
Vöruútflutningur á fyrsta fjórð-
ungi ársins var 16.530 millj.kr.,
sem er 2.270 milljónum meira
heldur en í fyrra, eða 16%. Um
70% útflutningsins voru sjávaraf-
urðir, hverra verðmæti jókst um
12% milli ára. Útflutningur áls
jókst um 21% og kísiljáms um
80%.
Heildarinnflutningur á sama
tímabili var 15.070 milljónir cif en
13.660 fob., sem er um 17% sam-
dráttur milli ára, þrátt fyrir að
sérstakur innflutningur sé mun
meiri það sem af er þessu ári. M.a.
er innflutningur skipa og flugvéla
rúmlega einn milljarður króna
þessa þrjá mánuði. -HEI