Tíminn - 16.06.1989, Qupperneq 8
8 Tíminn
Föstudagur 16. júní 1989
SAMBAND UNGRA FRAMSÓKNARMANNA
Umsjónarmenn Guðmundur Steingrímsson og Steingerður Gunnarsdóttir.
Eitthvað
Kæru félagar, nú þegar sumarið er komið eftir harðan vetur
og strembinn er hyggilegt að iíta um öxl og virða fyrir sér
liðnar stundir og reyna að gera sér einhverja grein fyrir hvað
framundan er. Er ég sest niður og hugleiði hvað okkur í stjórn
SUF hefur áunnist og hvað við höfum haft fyrir stafni kemur
þetta helst í hugann.
Starfsemi stjómarinnar hefur ver-
ið þróttmikii. Haldnir hafa verið
reglulega framkvæmdastjórnarfund-
ir á fimmtudögum, þar sem mál
líðandi stundar hafa verið rædd og
ályktað ef ástæða hefur þótt til.
Stjórnarfundir hafa verið tveir og
voru þeir starfsamir, einn miðstjórn-
arfundur var haldinn í vetur úti í
Viðey og var hann vel sóttur. Þar var
ályktað um varaflugvöll og sam-
þykkt ályktun um atvinnumál skóla-
fólks í sumar og vom það orð í tíma
töluð.
Stjómin hefur vakað yfir gerðum
ríkisstjórnarinnar og gagnrýnt hana
af sanngirni og ber þar hæst gagnrýni
sem SUF hélt uppi á húsbréfafrum-
varp félagsmálaráðherra, sem við
teljum ekki vera til hagsbóta fyrir
ungt fólk, sem er að hefja sína
lífsbaráttu sem launþegar og þarf að
koma þaki yfir höfuð sitt.
En eins og með aðra starfsemi þar
sem eitthvað á að leggja af mörkum,
krefst það starfskrafta og fjár til að
greiða kostnað sem til fellur. Fjár-
hagstímabil SUF, sem hófst eftir
þingið á Laugarvatni, hefur ein-
kennst af mjög þröngum fjárhag,
því mest allt fé sem inn hefur komið,
hefur farið í að greiða skuldir frá
fyrra tímabili og hefur því miðað
nokkuð.
Aðalfjáröflunarleið okkar er út-
gáfa jólaalmanaks um hver jól og
um síðustu páska var ráðist í útgáfu
á páskaalmanaki. S.l. haust vareinn-
ig sent áskriftartilboð að þjóðmála-
ritinu SÝN og var það gert með því
að senda SUFurum á öllum aldri
gíróseðla fyrir tveimur almanaks-
spjöldum í hvort skipti og gíróseðil
fyrir áskriftinni. En það hefur að
öllum líkindum hent hjá nokkuð
mörgum að seðlarnir hafi lent uppi í
skáp en ekki í bankanum, eins og til
hefur eflaust staðið hjá öllum sönn-
um SUFurum. En ekki er öll nótt
úti, því gíróseðlarnir halda gildi sínu
og er hægt að drífa sig með þá í
næsta banka og greiða þá til stuðn-
ings baráttunni. Ég vil hér skora á
alla sanna SUFara að leggja okkur
lið og greiða gíróseðlinn þó tími
almanaksins, sem þeir voru upphaf-
lega gerðir fyrir, sé liðinn og fram-
lagið verði sem stuðningur við SUF.
Ég vil einnig geta þess, að SUF barst
í vetur arfur frá Jóni Emil Guðjóns-
syni, tuttugu og fimm þúsund krónur
og við erum þakklát þessum látna
heiðursmanni og velunnara.
Nú hefur stjórnmálaflokkur einn
tekið sér til fyrirmyndar framtak
SUF, að standa fyrir skógrækt og
uppgræðslu landsins. En „Flag í
fóstur" var eitt af afmælisverkum
SUF á síðasta ári. Þar var ýtt úr vör
metnaðarfullu átaki við að glæða
skilning fólks á að klæða landið
gróðri, svo vissulega hefur árangur
Örfá orð um síðuna
SUF-síðan birtist nú í annað sinn. Nokkuð langt er liðið síðan
síðasta síða var skrifuð og eru margar ástæður sem þar liggja að baki.
Upphaflega var áætlað að síðan kæmi út einu sinni til tvisvar í mánuði
og ætti ekkert að verða þeirri ætlun til fyrirstöðu á komandi tímum.
Þessi síða er hugsuð sem vettvangur fyrir unga framsóknarmenn,
sem og aðra, til að koma skoðunum sínum á framfæri. Hún er
vettvangur fyrir umræðu ungs fólks, hér geta menn deilt eða orðið
sammála um þau málefni sem eru umræðu verð.
Á síðu sem þessari er ekki nema sjálfsagt að t.d. flokksforystan,
ríkisstjórnin, aðrir flokkar og önnur ungliðasamtök séu gagnrýnd og
þá jafnvel sagt til syndanna, eða hrósað ef ástæða þykir til, en það er
þó ólíklegt að þess gerst þörf þegar aðrir flokkar eiga í hlut.
Að sjálfsögðu eiga ekki einungis að fara hérfram stjórnmál mmræð-
ur. Allt efni, sem endurspeglar skoðanir ungs fólks, varð ir þeirra
málefni og er skrifað frá sjónarhóli þeirra er guðvelkomið.
Vissulega hefur borist efni til síöunnar og er þá aðallega un að ræða
ályktanir af fundum framsóknarfélaga, sem og fréttir og ri yndir af
starfsemi þeirra. En það má alltaf gera betur og því eru g íinar og
fréttir frá einstaklingum og félögum vel þegnar sem kærkoi ið efni á
síðu ungra framsóknarmanna.
Guðmundur Stein; ímsson.
í sarpinn
orðið og vonandi fylgja fleiri í kjöl-
farið.
Samband ungra framsóknar-
manna eru fjölmennustu og virkustu
ungliðasamtök stjórnmálaflokka á
íslandi og hafa verið svo um langa
tíð. Innan SUF spretta upp hug-
myndir að miklum framfaramálum
öllum til hagsbóta. Það má því öllum
vera ljóst að hvergi má af draga í
baráttunni til eflingar í flokknum og
ungt fólk þarf að búa undir störf á
vettvangi stjómmálanna í framtíð-
inni.
Kristinn Halldórsson
gjaldkeri SUF
Skógræktarferd SUF til
Galtalækjar var farin
laugardaginn lO.júní
og var ágætis þátttaka.
Hér sjást nokkrir
SUFarar planta trjám.
Stjómmálaályktun SUF:
Fullur stuðningur
við ríkisstjórnina
Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar gengur nú í gegnum
afar erfitt tímabil og virðist rúin trausti meðal almennings, sé
mark takandi á nýbirtum skoðanakönnunum. Framsóknar-
flokkurínn hefur þó ekki glatað stuðningi kjósenda svo neinu
nemi.
SUF lýsir yfir fullum stuðningi við
ríkisstjórn Steingríms Hermanns-
sonar, en hún gengur nú í gegnum
sama erfiðleikatímabil og varð ríkis-
stjóm Þorsteins Pálssonar að falli.
Þetta tímabil er prófsteinn á það
hvort núverandi ríkisstjóm nær
helstu markmiðum sínum; Þ.e.: að
lækka vexti, ná niður fjármagn-
skostnaði, tryggja rekstrargmndvöll
undirstöðuatvinnuveganna og draga
úr linnulausri skuldasöfnun ríkisins.
Að óbreyttu stefnir í verulegan
halla á rekstri ríkissjóðs. SUF telur
að þessum halla megi ekki mæta
Blóðbað
fordæmt
SUF fordæmir það blóðbað
sem ráðalausir leiðtogar kín-
verska kommúnistaflokksins
stóðu fyrir á Torgi hins himneska
friðar, þegar alþýða landsins
krafðist lýðræðis og tjáningafrels-
is. Ofbeldið sýnir einungis van-
mátt kommúnista gagnvart kröfu
alþýðu Kína um grundvallar-
mannréttindi.
SUF hvetur öll þau ríki sem
leggja áherslu á mannréttindi, að
fordæma þann glæp sem kínversk
stjórnvöld hafa framið á eigin '
þjóð. Frelsisþrá verður aldrei í
fjötra-bundm*. ......* • ....
með auknum byrðum á almennt
launafólk, heldur þvert á móti með
enn frekari niðurskurði útgjalda og
aðhaldi i ríkisrekstrinum. Þessi
niðurskurður má ekki einskorðast
við framkvæmdir á vegum ríkisins.
Það þarf ekki síður að taka rekstur
allra ríkisstofnana til rækilegrar
endurskoðunar. Þá bendir SUF á að
ríkissjóður getur aukið tekjur sínar
verulega með því að bæta innheimtu
skatta, sér í lagi söiuskatts, og láta
þá, sem mest bera úr býtum og hafa
skattfrjálsar fjármagnstekjur, borga
meira í hina sameiginlegu sjóði
Iandsmanna.
SUF hvetur félagshyggjufólk til
að standa með ríkisstjóminni á þessu
erfiða tímaskeiði og gefa henni svig-
rúm til að ná yfirlýstum markmiðum
sínum og láta verkin tala.
Ekki má gleyma
landsbyggðinni
Aðalfundur Félags ungra fram-
sóknarmanna við Djúp var haldinn
20.maí s.l. á Isafirði. I ályktun sem
samþykkt var á fundinum segir m.a.
að nauðsynlegt sé að Framsóknar-
flokkurinn auki fylgi sitt á suð-vest-
urhorninu en hins vegar megi for-
ystusveit flokksins ekki gleyma því í
málflutningi sínum að flokkurinn á
sínar dýpstu rætur meðal lands-
byggðarinnar.
„Landsbyggðin verður að geta
treyst því að í Framsóknarflokknum
finni hún- sinn baráttuvettvang sem
málsvara hér eftir sem hingað til,“
segir í ályktuninni.
í ályktuninni er einnig farið
nokkrum orðum um kvótafyrir-
komulagið og er sagt í því sambandi:
Kvótafyrirkomulagið’ hefnr með-
réttu verið gagnrýnt af Vestfirðing-
um, en þó einkum vegna vaxandi
skerðingar á síðustu árum á rétt-
mætri hlutdeild Vestfirðinga. For-
ystusveit Framsóknarflokksins er
hvött til þess að efna til opinskárrar
umræðu innan flokksins um hvaða
fyrirkomulag fiskveiðistjórnunar sé
hentugast þegar núverandi fiskveiði-
stjórnunarlög renna úr gildi.“
Á aðalfundinn mætti formaður
SUF, Gissur Pétursson, og sagði
hann frá starfi samtakanna. Þá var
kosið í stjórn og var Geir Sigurðsson
kjörinn formaður.
Að kvöldi fundarins stóð félagið
fyrir sinni fyrstu vorhátíð á Staupa-
steini á ísafirði. Góð þátttaka var á
hátíðinni og var glatt á hjalla og
menn sammála um að þetta við-
fangsefhi væri-hið besta mál. ....