Tíminn - 16.06.1989, Síða 12
12 Tíminn
Föstudagur 16. júní 1989
Kvenfélagið Vorhvöt:
Óviðunandi að Jón
Baldvin láti kúgast
Tímanum hefur borist fréttatil-
kynning frá Kvenfélaginu Vorhvöt
þar sem segir m.a.:
„Vegna þess, hve smásálarlega
ýmsir Islendingar hafa tekið vinsam-
legum tilmælum generáls Eric
McVadons um betri samskipti
landsmanna, hvort sem þeir búa
innan Keflavíkurflugvallar eða utan
og brýningu generálsins til íslenskra
samherja um einbeittari málflutn-
ing, vill Kvenfélagið Vorhvöt taka
fram að það er með öllu óviðunandi
að hinn glæsilegi og baráttuglaði
utanríkisráðherra vor, Jón Baldvin,
láti fámennan, öfgafullan þrýstihóp
kúga sig til þess að snupra einn af
sínum bestu vinum; vin sem hefur
meira að segja lagt það á sig bæði
fyrir hann og íslensku þjóðina að
læra íslensku. Utanríkisráðherra,
Jón Baldvin, hefur hingað til verið
þjóð sinni til sóma og reisnar með
stórmannlegum viðbrögðum í erfið-
um málum, svo sem gagnvart uppi-
vöðslusemi PLO og yfirgangi Svía,
eins og skemmst er að minnast.“
Kvenfélagið Vorhvöt harmar
einnig niðurskurð á bandaríska vara-
liðinu í væntanlegum heræfingum,
sem ekki fengu að hefjast 17. júní
n.k. og því einhverju stærsta tæki-
færi, sem þjóðinni hefur boðist til að
sýna samheldni og stórhug á sjálfan
þjóðhátíðardaginn, kastað á glæ.
Vorhvatarkonur ætla að selja
barmmerki við ýmis tækifæri nú á
næstunni til þess að leggja samein-
ingu og vömum þjóðarinnar lið á 45
ára afmæli íslenska lýðveldisins og
hvetja þær einkum foreldra til að
gefa börnum sínum merki.
r
1
|L J i .llllÉIÍi
I
O ■ SÍT á
Brautskráðir nemendur frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
FS BRAUTSKRÁIR
Brautskráning nemenda frá Fjöl-
brautaskóla Suðumesja fór fram í
Keflavíkurkirkju þann 3. júní. Að
þessu sinni vom 55 nemendur braut-
skráðir og skiptust þeir þannig á
milli brauta: 18 flugliðar, 2 skipstjór-
ar, 4 skiptinemar, 1 vélstjóri 2. stigs,
4 af 2ja ára bóklegum brautum, 13
af tæknisviði og 13 stúdentar voru
útskrifaðir.
Verðlaun vom afhent fyrir góðan
námsárangur og flest þeirra féllu í
hlut Ingu Sigursveinsdóttur. Aðrir
sem hlutu verðlaun vom Helen Hall-
dórsdóttir, Þórhallur Ingason, Helga
Sigrún Harðardóttir, Jóhann í>. Pór-
isson, Guðbjörg Leifsdóttir og Sig-
urbjörg Róbertsdóttir.
Sparisjóðurinn í Keflavík veitir
árlega bikar til þeirra sem náð hafa
góðum árangri í 4 greinum. Bik-
ararnir skiptust þannig: íslenskubik-
ar Inga Sigursveinsdóttir, hagfræði-
bikar Sigurbjörg Róbertsdóttir, vél-
ritunarbikar Guðbjörg Leifsdóttir
og bókfærslubikarinn hlaut Inga Sig-
ursveinsdóttir.
Skólanum var ekki formlega slitið
því eftir á að kenna og prófa í haust
til að bæta upp kennslumissi í verk-
falli kennara. GS.
Sjómannadagur
í Hornafirði
Frá Sverri Aðalsteinssyni, Höfn.
Sjómannadagurinn var haldinn á
Höfn í Hornafirði með hefðbundn-
um hætti. Á laugardeginum var
kappróður sem 14 sveitir tóku þátt í
og að honum loknum var flotgalla-
kappsund þar sem Andrés Kolbeins-
son, vélstjóri, sigraði, en þar tóku
þátt sex keppendur. Laugardags-
skemmtuninni lauk með hópsiglingu
báta með fólk út fyrir ós og var mikill
fjöldi sem þáði boð útgerðarmanna
að fara í þá siglingu.
Á sunnudeginum hófust hátíðar-
höld með því að lagður var blóm-
sveigur að minnisvarða sjómanna á
Óslandshrauni og gengið var til
sjómannamessu. Að henni lokinni
um klukkan 14:20 hófst skemmti-
dagskrá á hóteltúni. Par hélt Guð-
bjartur Össurarson, formaður Út-
vegsmannafélags Hornafjarðar,
aðalræðu dagsins. Þá sá Örn Árnars-
son um afhendingu heiðursmerkis
sjómanna og hlaut Guðmundur
Sæmundsson merkið að þessu sinni.
Örn tók fram að Guðmundur hefur
tvisvar bjargast úr sjávarháska, í
fyrra skiptið þegar ms. Bliki fórst í
mars 1942 vestur af Vestmannaeyj-
um og í seinna sinnið þegar ms.
Borgey fórst rétt við Hornafjarðarós
7. nóvember 1946.
Næst voru afhent afreksverðlaun,
bikar og minnispeningur, en þau
hlaut áhöfnin á Akurey SF 31, en
hún bjargaði Hrísey SF 41 við
Hornafjarðarós þann 7. mars við
mjög erfiðar aðstæður.
Því næst var slegið á léttari strengi
með ýmsum leikjum, en sennilega
hefur mesta kátínu vakið kappleikur
skipstjóra og Sindrastúlkna, en
skipstjórar léku í pilsum. I lokin var
sýnt fallhlífarstökk.
Sjómannadeginum lauk með
miklu sjómannahófi í íþróttahúsinu
þar sem 400 manns snæddu mat og
dönsuðu fram eftir nóttu.
Sagt til vega
á Suðurlandi
Leiðsöguhandbókin „Sagt til vega
á Suðurlandi" er komin út.
í bókinni er að finna ýmsar hand-
hægar upplýsingar fyrir ferðamenn,
svo sem um gististaði, verslanir,
veitingastaði, söfn, íþróttaaðstöðu
og þjónustu ýmisskonar. Bókin tek-
ur yfir Ámessýslu, Rangárvalla-
sýslu, V-Skaftafellssýslu og Vest-
mannaeyjar.
Stutt leiðsögn er gefín um hvem
stað fyrir sig og auk fjölda mynda
em kort sem sýna vegi og þjónustu
á viðkomandi stað.
Stórt yfirlitskort af Suðurlandi
fylgir með bókinni og þar em merkt-
ir inn helstu vegir og vegaslóðar og
sú þjónusta sem veitt er á hverjum
stað, svo að nú ætti að vera auðvelt
að skipuleggja ferðalagið um Suður-
land í sumar.
Ritstjóri „Sagt til vega á Suður-
landi“ er Kjartan Valgarðsson en
útgefandi er Tungutak sf. fyrir
Ferðamálasamtök Suðurlands.
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII frimerki JII!::- ■''111111111,;: ..........................................................IIIII........ -.................. ■ ........................................ ......................................... ...................................... ■ - -................................... ............................................................................................
„ISFIL-89“
Frímerkjasýningin „ÍSFÍL-89"
var haldin í Listasafni Alþýðusam-
bandsins dagana 7.-9. apríl síðastlið-
inn. Mun þar hafa verið gott úrval
safna með þátttöku frá öllum
Norðurlöndunum í 142 römmum,
auk íslenskra safna.
Það var Klúbbur Skandinavíu-
safnara, sem hélt sýninguna og var
samhliða haldið Landsþing Lands-
sambands fslenskra frímerkjasafn-
ara. 1 ávarpi í sýningarskrá segir
meðal annars:
„Það eru víst flestir sammála um
það, að hvers konar félags- og tóm-
stundastarfsemi á frekar erfitt upp-
dráttar nú á tímum. Þetta á ekki síst
við um frímerkjasöfnun. Allt of lítil
endurnýjun er í hópi safnara; það
virðist vera flest annað, sem heillar
ungt fólk. Við trúum því samt að
söfnun frímerkja sé enn jafn holl og
fræðandi tómstundaiðja og áður var.
í hraða nútímans er það mikil hvíld
að grúska í frímerkjum og þeirri
sögu, sem að baki þeirra liggur.
Klúbbur Skandinavíusafnara.s em
stendur að þessari sýningu, hefur
lagt áherslu á unglingastarf og er
með skipulagða leiðbeiningarstarf-
semi innan Ölduselsskóla í Breið-
holti. Þar hefur myndast lítill en
góður hópur áhugasamra unglinga,
sem væntanlega verður kjami félags
okkar er stundir líða. Einnig hefur
útgáfustarfsemi verið ofarlega á
stefnuskránni, m.a. hefur klúbbur-
inn gefið út handbók um íslenska
póststimpla eftir Þór Þorsteins og
ýmislegt fleira er í bígerð.“
Af þessu má ráða að mikil gróska
er í starfi klúbbsins.
En snúum okkur að verðlaunum
þeim er veitt voru á þessari sýningu.
Ein gullverðlaun voru veitt og
hlaut þau Páll H. Ásgeirsson fyrir
flugsafn sitt, „Flugpóstsaga frá 1928-
1945“. Var hann vel að þessum
verðlaunum kominn, þar sem hér er
um að ræða hið besta flugsögusafn
sem finnst hér á landi. Stórt silfur
hlaut Eivind Evensen fyrir rann-
sóknarsafn sitt á Svalbarðafrímerkj-
unum frá 1925 og yfirprentun eins
þeirra. Silfur ásamt heiðursverð-
launum hlutu svo: Þorvaldur S. Jó-
hannesson, fyrir fyrstu flug og
flugpóst, 1928-1948 og má segja að
hann sé að komast upp að hliðinni á
Páli. Þá hlaut hann einnig brons fyrir
samskonar safn frá 1948-1986. Þá
hlutu tveir Norðurlandabúar einnig
silfur með heiðursverðlaunum. Silf-
ur hlutu; Guðmundur Ingimundar-
son fyrir átthagasafn sitt, Vest-
mannaeyjar og fimm Norðurlanda-
búar. Silfur-bronsverðlaun hlutu;
Jón Halldórsson fyrir safn sitt af
stimplum á frímerkinu með mynd
Safnahússins. Þór Þorsteins fyrir
safn sitt af merkjum frá Hópflugi til
Matthíasar Jochumsonar, eða 1933-
1935. Jón Halldórsson fyrir safn
einfaldra íslenskra bréfspjalda frá
1879-1934. Sigmar Sigurðsson fyrir
safn sitt dýralíf og fjórir norrænir
ÍSFÍL89\%
safnarar. Aðrir sýnendur hlutu svo
bronsverðlaun.
Aðrar sýningar
Meðal annarra sýninga sem haldn-
ar hafa verið má nefna sýningu á
Vorvöku Vestur-Húnvetninga, sem
var haldin á Hvammstanga um
bænadagana. Var þetta einkasýning
Sigurðar H. Þorsteinssonar, sem
sýndi þama átta frímerkjasöfn.
Meðal annars var þarna safn er sýndi
hvemig jólamerki verður til, eða
sögu þess að Lionsklúbburinn
Bjarmi á Hvammstanga gaf út jóla-
merki í 11 ár. Þá var flugsaga íslands
sýnd í heild sinni í 13 römmum. Tvö
átthagasöfn vom á sýningunni, frá
Húnavatnssýslu og úr Strandasýslu,
f tveimur römmum hvort. Þá voru
sýnd öll merki er gefin vom út fyrir
aldamót í þremur römmum, í öllum
prentunum og ýmsum afbrigðum og
með flestum þeirra stimpla er þá
voru notaðir. Auk þess vom sýnd
tegundasöfn.
Þá mun standa til sýning hjá
Félagi frímerkjasafnara á Akureyri,
en ekki hafa borist nánari upplýsing-
ar um hana.
Sigurður H. Þorsteinsson.