Tíminn - 16.06.1989, Page 14
14 Tíminn
Föstudagur 16. júní 1989.
DAGBÓK
Frá kynningu nýju upplýsingaþjónustunnar á dögunum.
Tfmamynd:P)etur.
Póstur og sími bryddar upp á nýjungum:
Símaupplýsingaþjónusta
Sú nýjung var tekin upp, frá og með fyrsta júní síðast
liðnum, að símnotendur geta komist í samband við upplýs-
ingaþjónustu Miðlunar og Pósts-og síma, með því að velja
einhver af 99-1000 númerunum. Kerfið er byggt upp á
svipaðan hátt og símaþjónusta sparisjóðanna og um er að
ræða margs konar upplýsingar.
Notandinn hringir í ákveðið síma- undar hér á landi. „Miðlun rekur
númer eftir því hvort hann vill fá
upplýsingar um íþróttir, úrslit get-
raunaleikja, hvað er á döfínni í
kvikmyndahúsum og svo framvegis.
Hafi viðkomandi yfir að ráða tón-
valssíma getur hann síðan flakkað á
milli upplýsingamöguleika, innan
hvers númers, að vild án þess að
hringja aftur. „Á popplínunni verða
til dæmis upplýsingar um vinsældar-
lista, einnig vandamálaþáttur þar
sem tekin verða fyrir þessi helstu
unglingavandamál, poppslúður og
fleira. Segjum að notandinn hringi í
dagbókina áður en hann fer úr
vinnu, þá getur hann valið sig niður
í innkaupalista fyrir rétt dagsins. Þar
fær viðkomandi upplýsingar um það
hvað hann þarf að kaupa í matinn.
Þegar heim er komið er síðan hringt
aftur og þá eru gefnar upplýsingar
varðandi það hvernig matreiða skuli
rétt dagsins" sagði Ámi Zophonias-
son markaðsstjóri Miðlunar hf. í
samtali við Tímann.
Póstur og sími er milligönguaðili
og leggur til nauðsynlegan tækjabún-
að en fyrirtækið Miðlun hf. mun sjá
um þjónustuna að öðru leyti. Þetta
er fyrsta símaþjónustan sinnar teg-
upplýsingaþjónustuna Gulu línuna
en varðandi þetta rennum við blint í
sjóinn. Það er því í öllum rekstrar-
áætlunum gert ráð fyrir að þjónustan
fari frekar rólega af stað“ sagði
Árni.
„Þar sem númerin byrja á svæðis-
númeri kostar það sama að nýta
þjónustuna hvaðan af landinu sem
er. Það er heldur dýrara að hringja
í þessi símanúmer en önnur númer.
Við svar mælist eitt skref og síðan er
talning á tólf sekúndna fresti. Til
samanburðar má geta þess að innan-
bæjar er talning á sex mínútna fresti.
Við erum aðeins milligönguaðilar og
innheimtuaðilar fyrir Miðlun" sagði
Bergþór Halldórsson yfirverk-
fræðingur hjá Pósti og síma í samtali
við Tímann.
Bergþór sagði að rætt hefði verið
um hliðstæða þjónustu fyrir aðra
aðila og nefndi þar sem dæmi Veður-
stofuna, Vegagerð og svo framvegis.
„Við erum alveg opnir fyrir öllu
slíku. Við sjáum nú á næstunni
hvernig þetta gefst og þá verða fleiri
möguleikar athugaðir. Að sjálf-
sögðu mun póstur og sími ekki binda
sig með einkasamningi við eitthvað
eitt ákveðið fyrirtæki" sagði
Bergþór.
Einnig hefur komið til tals að
bjóða fyrirtækjum upp á að vera
með númer sem viðskiptavinir geta
hringt í og leitað upplýsinga, á
kostnað fyrirtækisins. „Þetta er
komið víða um Evrópu og okkar
stefna er að taka þessa þjónustu upp
fljótlega. Þegar hefur verið unnin
ákveðin undirbúningsvinna sem
mun gera okkur kleyft að hrinda
þjónustunni af stað með tiltölulega
stuttum fyrirvara. Það hefur verið
lagt til að veitt verði ákveðinni
fjárupphæð í framkvæmdina á næsta
ári en hvenær af þessu verður ná-
kvæmlega get ég ekki sagt til um“
sagði Bergþór.
Upplýsingar um þjónustuna er að
finna í nýju símaskránni sem nýlega
var tekið til við að dreifa. Hún
verður að venju afhent á póst- og
símstöðvum um land allt gegn fram-
vísun sérstakra afhendingarseðla,
sem hafa verið póstlagðir. Upplagið
að þessu sinni er um 155 þúsund
eintök og fóru 280 tonn af pappír í
prentunina. Sama útlit er á skránni
og í fyrra að öðru leyti en því að nú
prýðir Goðafoss forsíðuna.
Sú nýjung hefur verið tekin upp
að bjóða skrána innbundna í hörð
spjöld með plasthúð. Blaðsíðutal
hefur aukist um 32 síður frá því í
fyrra og tók skráin gildi 28. maí.
jkb
Ráðstefna um stuðningsþjónustu við fatlaða:
Heimahjálp og önnur
aðstoð við fatlaða
Á vegum Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, og Lands-
samtakanna Þroskahjálpar var haldin ráðstefna um stuðn-
ingsþjónustu fyrir skömmu.
Þar var fjallað um stefnu samtakanna næstu árin á sviði
heimahjálpar og heimahjúkrunar. Auk þess sem ræddar voru
nýjar leiðir til að gera sem flestum kleift að búa heima í stað
þess að vista viðkomandi á stofnunum.
formi lyfjagjafar, ráðgjafar varðandi
heimilisaðstæður og svo framvegis.
Reglur um notendur stuðnings-
þjónustu kveða á um að hlutaðeig-
andi notandi eigi við alvarlega fötlun
Haldin voru erindi um núverandi
skipulag þjónustu á höfuðborgar-
svæðinu og í öðrum sveitarfélögum.
Notendur sögðu frá sínum þörfum
og hugmyndum um bætta þjónustu,
fulltrúar heilbrigðis- og félagsmála-
ráðuneyta fluttu erindi og fleiri.
Stuðningsþjónusta er veitt þar
sem notandinn dvelur dags daglega,
heima og heiman. Þjónustan skiptist
í þrennt, það er að segja hagnýt
aðstoð, svo sem innkaup hreingem-
ingar og annað, persónulega aðstoð
eins og fylgd á vinnustað, námsað-
stoð og fleira og sérhæfða aðstoð í
að stríða, þarfnist mikillar
umönnunar eða þurfi aðstoð við
fylgd á vissum sviðum daglegs lífs. í
því tilviki getur aðstoðarmaðurinn
til að mynda gegnt því hlutverki að
túlka fyrir fatlaðan mann með alvar-
lega málhömlun. Liðveisla felst
einnig í aðstoð við aðstandendur
fatlaðra og gerir þeim kleift að fá
helgarfrí og svo framvegis. jkb
Sumarsvning HAFNARBORGAR:
„Atólfæringi“-12
listamenn sýna í Hafnarborg,
Hafnarfirði, 10/6-7/8
Sumarsýning Hafnarborgar, menning-
ar- og listastofnunar Hafnarfjarðar, hefur
hlotið yfirskriftina „Á tólfæringi". Sú
nafngift vísar annars vegar til þeirra tólf
listamanna sem nú ýta úr vör samsýningu
á verkum sínum og hins vegar til sögu
Hafnarfjarðar, sem hefur verið útgerðar-
staður allt frá upphafi byggðar.
Þeir listamenn sem sýna eru: Björg
Örvar, Borghildur Óskarsdóttir, Jón
Axel Björnsson, Kristbergur Pétursson,
Magnús Kjartansson, Margrét Jónsdótt-
ir, Sigurður Örlygsson, Sóley Eiríksdótt-
ir, Steinunn Þórarinsdóttir, Steinþór
Steingrímsson, Sverrir Ólafsson og Val-
gerður Bergsdóttir.
Aöalsteinn Ingólfsson listfræðingur rit-
ar inngang í sýningarskrá.
Sýningin verður opnuð laugard. 10.
júní og mun standa til 7. ágúst. Opnunar-
tími er kl. 14:00-19:00 alla daga nema
þriðjudaga. Kaffistofan í Hafnarborg ey
opin á sama tíma alla daga.
Edda Jónsdóttir sýnir í Nýhófn
Edda Jónsdóttir opnar sýningu í Lista-
salnum Nýhöfn, Hafnarstræti 18, laugar-
daginn 10. júní kl. 14:00-16:00.
A sýningunni eru myndir unnar með
vatnslit, olíukrít og blýanti. Myndirnar
eru flestar unnar á sl. vetri, en þá dvaldi
Edda í Kjarvalsstofu í París um tíma.
Edda stundaði nám við Myndlistaskóla
Reykjavíkur, Myndlista- og handíða-
skóla íslands og Rijksakademie van Beel-
dende Kunsten 1968-’78.
Þetta er ellefta einkasýning Eddu, en
hún hefur einnig tekið þátt í fjölda
samsýninga og alþjóðlegra grafíksýninga
hér heima og erlendis, þar sem hún hefur
unnið til verðlauna, svo sem í Bradford
1982 og Fredrikstad 1984.
Sýningin, sem er sölusýning, er opin
virka daga kl. 10:00-18:00 og kl. 14:00-
18:00 um helgar. Henni lýkur 21. júní.
Aðalfundur UMHYGGJU -
félags áhugafólks um þarfir
sjúkra barna
Félag áhugafólks um þarfir sjúkra
barna, UMHYGGJA, heldur aðalfund
sinn miðvikudaginn 21. júní kl. 20:30 í
fundarsal Hjúkrunarfélags lslands,
Suðurlandsbraut 22.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosin ný stjórn. 3. Sjúkraþjónusta
barna - umræður.
Gestur fundarins Birgir Jakobsson,
doktor í barnalækningum, fjallar um
sjúkraþjónustu bama.
Allir eru velkomnir sem hafa áhuga á
velferð sjúkra barna, jafnt innan stofnana
sem utan. Stjómin
Frá Félagi eldri borgara
Laugardaginn 17. júní fellur niður
gönguferð hjá Göngu-Hrólfi.
Opið hús á laugardag 17. júní í Goð-
heimum, Sigtúni 3, frá kl. 20:00. Dans-
leikur og skemmtiatriði.
Sumarferð
Breiðfirðingafélagsins
Breiðfirðingafélagið fer I sfna árlegu
sumarferð laugardaginn 24. júní kl. 08:30
á Njáluslóðir. Fararstjóri verður með í
ferðinni. Upplýsingar í síma 32562 og
41531.
Hana nú 17. júní
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun, laugardaginn
17. júní. Lagt af stað frá Digranesvegi 12
kl. 10:00.
1 fréttatilkynningu frá Frístundahópn-
um Hana nú í Kópavogi segir svo: „Við
skreytum borðin með íslensku birki á
þjóðhátíðardaginn og tökum góðan tíma
í molakaffið. A gönguleið okkar stendur
náttúran í blóma í síungu lýðveldi. Hefj-
um hátíðarhöldin á Digranesveginum.
Ekkert kynslóðabil.”
Bústaðasókn
Sumarferð Félagsstarfs aldraðra í Bú-
staðakirkju verður farin miðvikudag 21.
júní n.k. Lagt af stað frá kirkjunni kl. 10
f.h. Nánari uppl. veitir Áslaug í síma
32855 eða f.h. á skrifstofu kirkjunnar s.
37801.
Ráðstefna um stuðningsþjónustu við fatlaða og aðstandendur þeirra var
haldin fyrir skömmu. Einn ræðumanna var Jón Bjömsson, og sést hann
hér í ræðustól. Tlmamynd:Árnl BJarna
Helen Caldicott.
Helen Caldicott flytur erindi
í Þjóðleikhúsinu 19. júní
Á kvennadaginn 19. júní mun einn
þekktasti friðarsinni í heimi, Helen Caldi-
cott, bamalæknir og móðir frá Ástralíu,
flytja erindi í Þjóðleikhúsinu kl. 20:30.
f fréttabréfi frá undirbúningsnefnd seg-
ir svo:
„Koma Helen Caldicott er einstæður
atburður. Hún er frábær fyrirlesari, talar
af mikilli þekkingu og lætur engan ósnort-
inn.
Helen Caldicott hefur verið lýst sem
móður hugmyndarinnar um frystingu
kjarnorkuvopna. Hún átti frumkvæðið
að stofnun Samtaka lækna gegn kjarn-
orkuvá og var fyrsti forseti samtakanna.
Samtökin hlutu friðarverðlaun Nóbels
árið 1985. Ennfremur stofnaði Helen
Caldicott Friðarsamtök kvenna fyrir af-
vopnun. Hún hefur skrifað tvær bækur
um vopnakapphlaupið og afleiðingar
kjarnorkustríðs."
Helen Caldicott kemur hingað i boði
allra þeirra kvennasamtaka sem stóðu að
ferð íslenskra kvenna á Nordisk Fomm í
Noregi sl. ár. Hún var gestafyrirlesari á
kvennaþinginu. fslenskar konur hrifust
svo af málflutningi hennar, að ákveðið
var að bjóða henni hingað til lands.
Helen Caldicott dvelst hér dagana
18.-24. júní. Hún mun hitta að máli ýmsa
ráðamenn og fulltrúa friðarsamtaka.
f tengslum við heimsókn hennar verður
Kvenna-friðarmessa í Langholtskirkju,
sem sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir mun
hafa veg og vanda að, miðvikudagskvöld-
ið 21. júní þegar sólargangur er lengstur.
Atriði úr Bílaverkstæði Badda.
Bílaverkstæði Badda
-fer vestur og norður
Þjóðleikhúsið fmmsýndi Bílaverkstæði
Badda í október 1987. Leikritið var sýnt
90 sinnum fyrir fullu húsi á Litla sviðinu
síðasta leikár og síðan 8 sinnum í maí sl.
Þá var sýningin valin, ásamt Degi
vonar, á Norrænu leiklistarhátíðina í
Helsinki í Finnlandi í maí 1988. Nú er
leikför í gangi með Bílaverkstæði Badda
og verða næstu sýningar: Sunnud. 18.
júní í félagsheimilinu Þinghamri, Varma-
landi í Borgarfirði, mánud. 19. júní í
félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík, þriðjud.
20. júní í félagsheimilinu á Hvamms-
tanga, miðvikud. 21. júní í félagsheimil-
inu Blönduósi og fímmtud. 22. júní í
Miðgarði, Varmahlíð í Skagafírði. Sýn-
ingarnar eru kl. 21:00 á öllum stöðunum.
Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson,
Grétar Reynisson gerði leikmynd og
búninga og Björn Bergsteinn Guðmunds-
son sér um lýsingu. Aðalleikarar eru
Bessi Bjarnason, sem leikur Badda, en
aðrir leikarar eru: Jóhann Sigurðarson,
Guðlaug María Bjarnadóttir, Sigurður
Sigurjónsson, Arnar Jónsson og Árni
Tryggvason.
Olíusíur frá
Mjög hagstætt
verð
/S BÚNABARDEILD
SAMBANDBINS
ARMÚLA3 REYKJAVlK SlMI 38900