Tíminn - 16.06.1989, Page 17
Föstudagur 16. júní 1989
Tírpinn 17
GLETTUR
- Viltu svo blása í flautuna þegar
vatnið sýður.
- Geturðu heldur ekki séð neinn
mun með þessum gleraugum?
- Þú hefur víst gleymt að setja
fuglakornið út ( garð í dag.
- Ekki taka fótinn út úr kjaftinum á
honum þá fer hann kannski að
gelta...
- Þá er hundurinn tilbúinn til að
fara með þig út að ganga...
- Má ég koma aftur til þín?
Mamma og ég lentum líka í rifrildi.
Ernest og Dorothy Baker segja undirstöðu góðs
hjónabands: Ást, tillitssemi og gagnkvæm virðing
Tvífarar
Það er margt sér til gamans
gert. Nýlega var höfð sam-
keppni í Hollywood, þar sem
keppst var um hver væri lík-
astur einhverjum frægum
kvikmyndaleikara eða leik-
konu.
Á meðfylgjandi mynd sjá-
um við sigurvegarana gleðj ast
saman, en eins og sjá má er
þetta tvífari Burt Reynolds
að kyssa tvífara Dolly Parton.
Annars hefur slík keppni
annan tilgang, því að frægir
leikarar þurfa oft að leigja
einhverja persónu líka sér til
að villa um fyrir aðdáendum,
eða öðrum sem elta uppi
frægðarfólk, og þarna sjá þeir
úrval af tvíförum.
Rússiá
drottning Sovétríkjanna varð
17 ára stúlka, Yulia Sukha-
nova að nafni,“ segir Kerstin
Gustafsson, sænsk blaðakona
sem vinnur í Moskvu fyrir
„Norskensflamman" í
Svíþjóð.
Kerstin skrifar um fegurð-
arsamkeppnina, sem haldin
var í „Moscow's Rossiya
Cinema and Concert Hall“,
eins og segir í fréttinni. Þarna
voru komnar 35 stúlkur frá
hinum ýmsu ríkjum Sovét-
ríkjanna. Sænska blaðakon-
an sagðist hafa ruglað þeim
öllum saman í fyrstu, því að
flestar hafi þær verið brosandi
og leggjalangar ljóskur, en
Asíustúlkurnar hafi samt
skorið sig úr.
Keppnin stóð í tvo daga.
Stúlkurnar komu fram í sund-
bolum, kvöldkjólum og í
þjóðbúningum heimahéraðs.
Kerstin sagði að val á
„Bestu fyrirsætu ’89“ hefði
alveg komið sér á óvart, því
að sú stúlka var ekkert áber-
andi. Sama var að segja um
þá sem fékk titilinn „Stúlkan
með mestu möguleikana í
kvikmyndaheiminum".
En allt í einu fór Kerstin að
taka eftir fegurðardrottning-
unni frá Baku. 1 hvert sinn
sem sú stúlka kom á sviðið
var eins og ljósmyndararnir
fengju kast. Þeir mynduðu í
gríð og erg og nærri slógust
um bestu plássin. Þarna var á
ferðinni Yulia Sukhanova,
sem hlaut hnossið, titilinn
„Fegurðardrottning Sovét-
ríkjanna 1989“.
Síðan komu í greininni
ýmsir þankar sem Kerstin
skrifar niður í sambandi við
keppnina. Hún segir t.d., að
ólíkt skemmtilegra hefði ver-
ið að verðlaun stúlknanna
hefðu t.d. verið ávísun á
skólavist eða einhverja
menntun frekar en pelsar eða
fínir kjólar, og spáir því að
svo verði í framtíðinni. Ann-
ars var Kerstin heldur jákvæð
í skrifum sínum um þessa
fyrstu kosningu á fegurðar-
drottningu fyrir hið víðlenda
ríki.
Sú fegursta í
Yulia Sukhanova, 17 ára feg-
urðardrottning Sovétríkj-
anna, bar sig vel á sviðinu og
Ijósmyndararnir kunnu vel að
meta það
„Tárin runnu niður hið vel
snyrta og málaða andlit stúlk-
unnar þegar hún varð fyrst til
að vera kosin „Ungfrú Sov-
étríkin" eða „Miss USSR“,
eins og þeir kölluðu hana í
Moscow News. Fegurðar-
„Gervi-Burt“ kyssir „Gervi-DolIy“,
en þau unnu í keppninni
Eilíf
ást!
Hún er orðin löng ástarsag-
an þeirra Dorothy og Ernest
Baker, en nú er hún 97 en
hann 96 ára. Þau kynntust
fyrst fyrir 80 árum í skóla, og
fyrir 75 árum giftu þau sig!
Þau urðu þegar ástfangin
við fyrstu sýn 1909, en voru
svo ung að þau urðu að bíða
í fimm ár þar til kom að
giftingu. í mörg ár bjuggu
þau við kröpp kjör á búgarði
í Montana, en fluttu svo til
San Francisco, þar sem Ern-
est fékk vinnu sem húsasmið-
ur. Dorothy hafði lært að
skera út og mála postulín og
hún vann við kennslu. Hún
hefur haldið námskeið til
þessa dags, en nú aðeins tvo
tíma þrisvar í viku.
Ernest hefur verið mikið í
„bowling" eða keiluspili.
Hann varð keppnismaður og
árið 1985 - þegar hann var 93
ára - keppti hann í 300 leikj-
um!
Blaðamaður spurði hjónin
hverju þau þökkuðu þetta
langa og hamingjusama
hjónaband. Þau svöruðu
bæði í einu: Guð hefur gefið
okkur góða heilsu, svo er það
tillitssemi hvort við annað og
gagnkvæm virðing.
Ernest bætti við: „Við
hlökkum til að halda upp á
100 ára afmælin okkar