Tíminn - 29.08.1989, Page 2
w r» /,
2 Tíminn
'a r^t -1 - f >,. r i j k-» • * t' #j i •» tj
Þriðjudagur 29. ágúst 1989
Tæplega 1500 plastflöskum fargaö í óþökk eigenda sem kæra framtakiö:
Sorphirðing í Mýrdal
leiðir til eftirmála
Þau mistök urðu hjá sorphirðingarmanni Mýrdælinga á
mánudagsmorgun fyrir um viku að hann tók 10 stóra
plastpoka sem í voru plastumbúðir utan af gosdrykkjum, við
vegamótin að bænum Álftagróf í Mýrdalnum og brenndi þá,
sem hvert annað sorp væri. Umbúðirnar höfðu verið fluttar
á staðinn í þeim tilgangi að hlífa græðlingum í skógræktargirð-
ingu sem þar hefur verið tekin í notkun. Skýrsla var tekin af
eigendum umbúðanna og sorphreinsunarmanninum og kall-
ast hún, „Of mikil sorphirðing í Mýrdalnum“.
Magnús Skarphéðinsson hvalavin-
ur var einn eigenda umbúðanna og
sagði hann í samtali við Tímann að
þetta hefði verið gert óvart, þó
óhemju klaufalega hafi verið að
staðið. Magnús ásamt tveimur félög-
um sínum fékk þarna land til ræktun-
ar hjá skógræktinni í Fellamörk.
„Það voru þrjár eða fjórar jarðir
sem fóru í eyði og skógræktarfélagið
fékk til úthlutunar fyrir félagsmenn
sína til að rækta stóran skóg,“ sagði
Magnús. Hann og félagar hans fengu
úthlutað tveim hekturum og plönt-
uðu þeir um 1400 plöntum í vor og
var ætlunin að skýla þeim með
plastflöskunum í vetur. „Við lögðum
á okkur mjög mikla vinnu við að
safna tómum plastflöskum, þvo þær
og skera af þeint endann. Þetta er
sent austur ásamt timbri með flutn-
ingabíl á sunnudagskvöldinu og við
báðum þá um að skilja pokana eftir
á vegamótunum. Morguninn eftir,
aðeins nokkrum tímum síðar, á
hreinsunarmaðurinn þarna leið hjá
og það er ekkert með það, hann
tekur flöskurnar og fjarlægir þær.
Hann ekki bara fjarlægir þær, heldur
brennir þær samstundis. Pað sem við
vorum sárastir yfir var að þetta hefði
ekki verið tekið afsíðis og geymt ef
einhver vitjaði þess,“ sagði Magnús.
Plastflöskurnar voru rétt tæplega
1500 talsins, eða sem svarar til
tæplega 8000 króna eftir að skila-
gjaldið kom á. Magnús sagði að að
baki þeim lægi margra mánaða
vinna, bæði við að safna þeim, þvo
þær, skera og flokka. Um var að
ræða bæði eins og hálfslítra og
hálfslítra gosdrykkjaumbúðir. „Við
fórum þarna saman sex manns aust-
ur og ætluðum að vera við þetta frá
mánudegi fram á miðvikudag til að
setja flöskurnar á,“ sagði Magnús.
Hann sagði að umbúðirnar væru
sérlega hentugar til þessara nota og
sagði plönturnar dafna mjög vel í
þeim.
„Þeir hjá Endurvinnslunni voru
okkur mjög liðlegir, því þeir gáfu
dálítið af flöskum og við skiluðum til
þeirra töppunum og botnunum
aftur, þess efnis að við hefðum ekki
selt þær. Þeir eiga miklar þakkir
skildar," sagði Magnús.
Hann sagði að þetta hefði orðið
að miklu máli í Vík og sveitarstjór-
inn orðið miður sín vegna þessa.
„Hann vill meina að hreppurinn sé
ábyrgur fyrir þessu,“ sagði Magnús.
Hann sagðist vonast til þess að þeir
fái tjónið að einhverju bætt, en það
yrði erfitt þar sem farið hefði í það
mikil vinna að safna og hreinsa
flöskurnar. „Við náum þessu magni
aldrei fyrir veturinn og ég er ekki
bjartsýnn á að við getum lokið því
að koma skjóli á plönturnar," sagði
Magnús.
Græðlingarnir eru mest ársgamlir,
af ýmsum tegundum, mest grenitré,
en einnig birki, stafafura, bergfura,
viðja, víðir, alaskaösp og lerki.
Reynir Ragnarsson lögreglumað-
ur í Vík sem tók skýrslu af viðkom-
andi sagði í samtali við Tímann að
kalla mætti þetta of mikla sorphirð-
ingu í Mýrdal, eins og skýrslan var
nefnd. „Ég gat ekki flokkað þetta
öðruvísi," sagði Reynir. Hann sagð-
ist ekki vita hvert yrði framhald
málsins, en það væri til athugunar
hjá tryggingum og óvíst hvað kæmi
út úr því. „Þetta var sett við vega-
Stóðhesturinn Flosi
frá Brunnum dauður
Stóðhesturinn Flosi frá Brunnum
drapst aðfaranótt síðasta laugar-
dags. Flosi hefur verið notaður á
hryssur fyrir norðan í sumar og beið
á bænum Lækjarmóti í Vestur-Hún-
avatnssýslu eftir því að vera fluttur
til Hornafjarðar en Flosi var í eigu
Búnaðarsambands Austur-Skaftfell-
inga. Þegar er búið að kryfja hestinn
°g er Það niðurstaða dýralækna að
Flosi háfi drepist úr garnaflækju.
Garnaflækja er sjúkdómur sem allaf
getur náð tökum á hrossum en
orsakif- hennar eru ókunnar. Garna-
flækja er ólæknandi.
Fl° i þótti afar glæsilegur stóð-
/ T
hestur og voru miklar vonir bundnar
við hann. Hann var 12 vetra gamall
og hefur verið notaður víða urn land
á undanförnum árum. Enn er ekki
komið í ljós hvernig afkvæmi hans
munu reynast en ljóst þykir að fall
Flosa er allmikið áfall fyrir kynbóta-
starf á íslenska hestinum.
Flosi var jafn verðmætur eins og
hann var glæsilegur. í vetur kom til
tals að hann yrði seldur og þá var
rætt um að borga fyrir hann 2-3
milljónir króna. Islenskir hestar eru
ekki seldir á öllu hærra verði hér
innanlands. Haft hefur verið eftir
Gunnari Bjarnasyni hrossaræktar-
ráðunauti að hægt hefði verið að
selja hann erlendis á 6-8 milljónir
króna. Flosi var tryggður en trygg-
ingaféð er miklu minna en þær
milljónir sem hægt hefði verið að fá
fyrir hann.
Þrúðmar Sigurðsson bóndi á Mið-
felli og formaður kynbótanefndar
Búnaðarsambands Austur-Skaftfell-
inga sagði að vissulega væri slæmt að
missa Flosa en bændur væru vanir
því að missa góða gripi og myndu
ekki láta þetta óhapp slá sig útaf
laginu. -EÓ
Magnús Skarphéðinsson ásamt öðrum félaga sinna í skógræktinni i
Mýrdalnum, með plastflöskur eins og þær sem nota átti til að skýla
plöntunum, en sorphreinsunarmaðurinn fargaði. limainvml Ámi Bjama
mótin að Álftagróf í ruslapokum.
Sorphreinsunarmaðurinn fer um all-
an hreppinn og tínir rusl sem hefur
verið sett við veginn og sá ekki að
þetta hefði verið nokkuð merkt.
Eigendurnir segja hins vegar að
pokarnir hafi verið merktir Endur-
vinnslunni. Þar ber aðeins á milli.
Hann spurðist fyrir m.a. í Álftagróf,
en enginn kannaðist við pokana svo
hann tók þetta sem sorp og brenndi
það,“ sagði Reynir. -ABÓ
Staða vinnslunnar með besta móti:
Tapið metið
2 prósent
Hækkun dollars um rúm 5% í
þessum mánuði hefur gert það að
verkum að staða fiskvinnslunnar í
dag er með besta móti í um eitt og
hálft ár. Fiskvinnslan metur tapið í
dag upp á 2%, en komi til með að
verða 6% 1. október, þegar kostn-
aðarhækkanir hafa átt sér stað og
ekki komi til aðgerða til að auka
tekjurnar.
„Ef þessi hækkun dollars verður
varanleg þá er það ekki spurning
að það hefur jákvæð áhrif á vinnsl-
una í heild, sérstaklega frysting-
una,“ sagði Arnar Sigurmundsson
formaður Samtaka fiskvinnslu-
stöðva í samtali við Tímann. Hann
sagði að einnig hefði orðið nokkur
breyting á meðalgcnginu, sem
kæmi þeim einnig til góða. „Engu
að síður þá erum við núna, miðað
við stöðumat í dag, með nálægt 2%
halla á vinnslunni í heild,“ sagði
Arnar. í vikunni hækka laun í
fiskvinnslu um tæp 3% og fyrsta
október hækkar fiskverð um 3,8%
og svokallaðar verðuppbætur úr
verðjöfnunarsjóði frystideildar
lækka um 1%. „Þetta þýðir að
tekjur frystingarinnar lækka um
1%, vegna lækkunar á verðuppbót-
um frystingarinnar, frá 1. októ-
ber,“ sagði Arnar.
Hann sagði að allt þetta væru
hlutir sem samið hefði verið um og
í samráði við ríkisvaldið, þannig
að þrátt fyrir að tapreksturinn í
dag sé hvað minnstur undanfarið
eitt og hálft ár, þá sé um að ræða
taprekstur, sem eitt og sér væri
voðalegt að sögn Arnars. „í annan
stað eru að koma yfir okkur kostn-
aðarhækkanir og tekjurnar lækka,
þ.e. verðuppbæturnar lækka,“
sagði Arnar. Hann segir allt þetta
kalla á aðgerðir, sem ekki þoli
mikla bið.
Arnar var spurður hver staðan
yrði að teknu tilliti til þess sem
gerist um þessi mánaðamót og
næstu, að því gefnu að staða dollars
yrði varanleg. „Ef við gefum okkur
það að í dag séum við í 2% halla,
þá eykst sá halli um tæpt eitt
prósent og síðan um tæp 3% fyrsta
október. Samanlagt eru þetta 6%.
Stjórnvöld hafa lýst því yfir að
koma verði til móts við aukin
útgjöld í gegnum hægt gengissig en
ekki lofað neinum tölum í því
sambandi, nema það sem ónotað
er af heimildinni fyrir þennan
mánuð, rúmt eitt prósent og sem
heimilt er að láta gengið síga í
september eða 1%,“ sagði Arnar.
Hann sagði að því miður stefndi í
aukinn halla, en í þessum tölum
væri ekki tekið mið af aflasam-
drætti sem kæmi til á næsta ári og
að haustið væri mun erfiðari tími.
Aðspurður sagði hann að styrk-
ing dollars hefði haft þau áhrif að
afkomumunurinn milli frystingar
og söltunar væri að verða nánast
enginn, þar sem söltunin nýtur
ekki góðs af því þótt dollar styrkist.
„Það sem helst getur hjálpað
okkur núna er lækkun nafnvaxta
og raunvaxta," sagði Arnar.
Vinnuveitendur hafa reiknað
það út að fyrr en síðar þurfi að
koma til gegnisleiðrétting sem væri
á bilinu 10 til 12%, þá með fyrir-
sjáanlegar kostnaðarhækkanir,
þegar líða tekur á haustið, í huga.
-ABÓ