Tíminn - 29.08.1989, Side 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 29. ágúst 1989
Frá Fjölbrauta-
skólanum
í Breiðholti
Haustönn
Kl. 10.00-12.00
Kl. 13.00
Kl. 14.30
Kl. 15.15
Kl. 16.00-18.00
Föstudagur 1. september
Kl. 9.00-10.00 Nýnematöflur afhentar, Dagskóli.
Nýnemakynning.
Kennarafundur.
Deildarstjórafundur.
Deildafundir.
Töflur eldri nemendaafhentar,
Dagskóli
Laugardagur 2. september
kl. 11.00 Skólasetning og útskrift nemenda
ÍFella-og Hólakirkju.
Mánudagur 4.september
Kennsla hefst í dagskóla og kvöldskóla skv. stunda-
skrá.
Skólameistari.
Nokkrir gúmmíbátar með afslætti. Nýkomin landbúnað-
arleikföng. Mjög ódýrar bast- og gjafavörur.
Úrval leikfanga á hagstæðu verði.
5% staðgreiðsluafsláttur, líka í póstkröfu.
Póstsendum samdægurs.
BÓNUS LEIKFÖNG
Nýjar verslanir á gömlum grunni,
Leikfangahúsið, Skólavörðustíg 8,
Gjafahúsið, Bankastræti 14.
Sími 91-14806.
HEILSUGÆSLUSTÖÐ í VOGUM
Tilboö óskast í aö Ijúka innréttingu í Heilsugæslustöðina í Vogum á Vatnsleysuströnd.
Verkinu skal lokið fyrir 15. desember 1989.
Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu Innkaupastofnunar rikisins, Borgartúni 7, Reykjavík
gegn 10.000,-kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 12. september ki. 11.00.
INIMKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
■■ ■ 1
r vovi ■ Mn r
Sumartími:
Skrifstofa Framsóknarflokksins, að Nóatúni 21 í Reykjavík, er opin
alla virka daga frá kl. 8.00-16.00.
Framsóknarflokkurinn.
Kjördæmisþing
Kjördæmisþing framsóknarmanna á Vestfjörðum verður haldið í
Félagsheimili Patreksfjarðar þann 15. september n.k. og hefst kl. 17.
Dagskrá samkvæmt samþykktum. Nánar auglýst síðar.
Stjórn K.F.V.
Tvær nýjar reglugerðir frá fjármálaráðuneyti um
barnsburðarleyfi og veikindaforföll:
Réttarbætur til
nkisstarfsmanna
í tveimur nýjum reglugerðum
fjármálaráðuneytisins eru gerðar
ýmsar mikilvægar réttarbætur um
barnsburðarleyfi og veikindaforföll
ríkisstarfsmanna í samræmi við
kjarasamningana í vor.
Meginbreytingarnar eru þær að
viðmiðunartímabil vegna yfirvinnu
og vaktaálags verður tólf mánuðir en
var áður sex mánuðir. Þetta á bæði
við um veikindaforföll og barnsburð-
arleyfi. Er þessi breyting gerð meðal
annars vegna þess að sex mánuðir
þóttu knöpp viðmiðun þar sem ætla
megi að barnshafandi kona hafi í
ýmsum tilvikum lægri tekjur á með-
göngutíma en ella.
Konur í barnsburðarleyfi hafa nú
venjulegan þriggja mánaða upp-
sagnarfrest. Áður gilti sú regla að ef
starfsmaður í barnsburðarleyfi
hugðist segja starfi sínu lausu við lok
leyfistímans var honum skylt að
tilkynna það við upphaf barnsburð-
arleyfisins.
Hægt er að lengja barnsburðar-
leyfi í tólf mánuði með því að jafna
út launin. Áður var hægt að lengja
leyfið að hámarki í níu mánuði með
þessum hætti.
Hægt er að skipta barnsburðar-
leyfinu ef sérstaklega sendur á um
heilsufar barns.
í reglugerðinni um barnsburðar-
leyfi eru ítrekuð þau ákvæði um að
óheimilt sé að segja barnshafandi
konu upp starfi nema af gildum
ástæðum og um að skylt sé að færa
barnshafandi konu til í starfi án
launabreytinga ef slík tilfærsla telst
æskileg af heilsufarsástæðum. SSH
Foreldrasamtökin
Vímulaus æska:
Fagnaákvörðunum
medferðarheimili
Foreldrasamtökin Vímulaus æska
hafa sent frá sér fréttatilkynningu
þar sem þeirri ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar er fagnað að stofna meðferð-
arheimili, með um tuttugu legupláss-
um fyrir unga vímuefnaneytendur.
Á framkvæmdarstjórnarfundi
Vímulausrar æsku sem haldinn var
23. þessa mánaðar, var samþykkt
ályktun þar sem samstarfsnefnd
ráðuneyta í ávana- og fíkniefnamál-
um er þakkað fyrir gott samstarf á
undanförnum mánuðum. Jafnframt
lýsa samtökin sig reiðubúin til áfram-
haldandi samstarfs um þetta verk-
efni.
Ný IBM tölva er komin á markað. Um er að ræða fjölskyldutölvu af
gerðinni PS/2. Henni fylgir litaskjár, mús til að auðvelda vinnslu og
prentari. Auk þess fylgir henni forrit sem er hentugt fyrir alla almenna
ritvinnslu svo og leikir fyrir börn og unglinga.
Töivan verður kynnt í Kringlunni vikuna 25. ágúst til 2. september. Að
kynningunni lokinni verður hún kynnt um allt land. -EÓ
Gísli Ragnarsson ferfrá Landsbókasafninu til Menningarstofnunar Bandaríkjanna:
Ráðinn í stöðu yf irbókavarðar
Þann 21. ágúst s.I. tók Gísli Ragn-
arsson við stöðu yfirbókavarðar Am-
eríska bókasafnsins hjá Menningar-
stofnun Bandaríkjanna, en hann var
áður deildarstjóri hjá Landsbóka-
safninu. Hlutverk Ameríska bóka-
safnsins er fyrst og fremst að veita
íslenskum almenningi hvers kyns
upplýsingar um Bandaríkin.
Alls telur safnið 8.000 titla sem
spanna félagsvísindi, stjórnmál,
utanríkismál, bókmenntir og listir,
efnahagsmál, ferðalög, sögu og
fleira þá eru einnig á boðstólum
bandarísk dagböð, tímarit og mynd-
bandasafn er telur 500 titla.
Auk annarra starfa hefur Gísli
fengist við þýðingar og á meðal
verka sem hann hefur þýtt eru „Sjúk
í ást“ („Fool for love“) eftir Sam
Shephard, sem leikhópurinn „Ann-
að svið“ sýnir um þessar mundir.
Gísli hefur að baki BA próf í ensku
og bókmenntafræði frá Háskóla ís-
lands og MA próf í bókfræði og
útgáfu og textafræði frá Háskólanum
í Leeds.
Kaupfélag Noröur-Þingeyinga reynir að koma í veg fyrir gjaldþrot
og býöst til að borga 40% af skuldunum:
Kaupfélagið á Kópaskeri
hættir starfsemi sinni
Á næstunni munu Kaupfplag Lang-
nesinga á Þórshöfn og Kaupfélag
Þingeyinga á Húsavík taka við
rekstri Kaupfélags Norður-Þingey-
inga. Kaupfélag Norður-Þingeyinga
er að reyna að ganga frá nauðasamn-
ingum við lánardrottna sína. Leitað
er allra leiða til að koma í veg fyrir
gjaldþrot.
Kaupfélag Norður-Þingeyinga
hefur nú boðið lánardrottnum sínum
að borga 40% skulda gegn því að
þeir felli niður það sem eftir stendur.
Óvíst er hvort þessu tilboði verður
tekið. Samhliða þessu er ætlunin að
kaupfélagið hætti starfsemi en Kaup-
félag Langnesinga og Kaupfélag
Þingeyinga taki við starfseminni á
Kópaskeri og Raufarhöfn. Fyrirhug-
að var að ganga frá skiptingunni
fyrir mánaðamót en það virðist ætla
að dragast eitthvað.
Kaupfélag Norður-Þingeyinga er
85 ára. Hjá því vinna að jafnaði um
40 manns. Á síðasta ári var velta
þess um 300 milljónir. Skuldir félags-
ins voru orðnar um 280 milljónir um
síðustu áramót. Tap hefur verið
lengi á rekstri félagsins og ekki hefur
tekist að stöðva það, hvað þá að
borga niður skuldir. Eysteinn Sig-
urðsson kaupfélagsstjóri var spurður
um ástæður fyrir þessu. „Þær eru
ýmsar. Það er samdráttur í landbún-
aði og í verslun á landsbyggðinni.
Álagning í verslun er of lág og
hrekkur alls ekki fyrir kostnaði.
Fólk sækir verslun frá þessum litlu
stöðum því það telur sig fá betri kjör
annars staðar. Við eigum mjög erfitt
með að sporna við þessu. Laun
hækka og rafmagn hækkar en álagn-
ing lækkar. Það er erfitt að ráða við
stærstu útgjaldaliðina. Við ráðum
t.d. ekki launum, rafmagnsverði,
sköttum eða vöxtum.“
- Er svo komið að eina lausin sé
að kaupfélagið hætti starfsemi?
„Þegar fyrirtæki er komið í veru-
lega neikvæða eiginfjárstöðu og tap-
rekstur er viðvarandi þá þýðir það
að annað hvort verður að fara í
gjaldþrot eða reyna eitthvað annað.
Menn eru sammála um að reyna
allar aðrar leiðir en gjaldþrot. Það
er þó engin almenn ánægja um
svona ráðstafanir, síður en svo. Það
er vitað að einhverjir munu missa
atvinnuna og þetta á eftir að hafa
slæm áhrif á allt hér á Kópaskeri."
Kaupfélögin sem taka við rekstri
Kaupfélags Norður-Þingeyinga taka
ekki við skuldum þess. Kaupfélagið
mun reyna að borga þær með því að
selja eignir. Þegar búið verður að
komast út úr þeim verður framtíð
félagsins endanlega ákveðin. -EÓ